Morgunblaðið - 11.09.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 19
LISTIR
Scan-foto/Knut Falch
„ÞETTA eru heiðurshjónin sem Ólafur Kárasön talaði við þeg-
ar hann var á leiðinni upp á jökulinn þar sem hann ætlaði að
hitta látna unnustu sína,“ segir Erlingur Jónsson um höggmynd
sína á Karls Johans götunni.
Erlingur Jónsson myndhöggvari
Sýnir á Karls Johans
götunni í Osló
ERLINGUR Jónsson er einn af tíu
myndhöggvurum sem eiga verk á
afmælissýningu norska mynd-
höggvarafélagsins sem er nú fímm-
tíu ára. Sýningin er haldin á Karls
Johans götunni í Ósló sem liggur á
milli þinghússins og konungshallar-
innar. Erlingur, sem kennir mynd-
list við Óslóarháskóla, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að það væri
sér mikill heiður að taka þátt í þess-
ari sýningu. „Mér þykir líka sér-
staklega vænt um að íslensk list
skuli komast á blað með þessum
hætti. Sýningin hefur vakið tölu-
verða athygli enda er henni komið
fyrir á sérstökum stað.“
Skúiptúr Erlings heitir Heiðurs-
hjón og vísar titillinn í Heimsljós
Halldórs Laxness. „Þetta eru heið-
urshjónin sem Ólafur Kárason tal-
aði við þegar hann var á leiðinni
upp á jökulinn þar sem hann ætlaði
að hitta látna unnustu sína. Og það
er skemmtilegt að margir hér kann-
ast við þessi hjón úr sögunni. Verk-
ið er úr sýruheldu stáli og má segja
að það vísi í tvær áttir; ef maður
gengur í átt að þinghúsinu, snýr
hann á móti manni en ef maður
gengur í átt að höllinni snýr hún
að manni.“
Erlingur hefur tekið þátt í mörg-
um samsýningum í Noregi síðastlið-
in ár en að hans sögn er langt síðan
hann hélt einkasýningu síðast. „Það
líður örugglega ekki á löngu þar til
ég held einkasýningu því að menn
hafa verið að ýta á mig að halda
sýningu. Annars langar mig mest
til að koma heim með sýningu en
ég veit ekki hvenær verður af því.“
Sýningin á Karls Johans götunni
stendur til 22. september.
Fjöldi bóka frá Fjölva
Leið til frelsis
og huldar lendur
ÆVISÖGUR, fræðibækur, barna-
bækur og klassískar bókmenntir
setja svip á útgáfu Fjöiva á þessu
ári. Lætur nærri að útgáfubækur séu
á fjórða tug og hefur þá ekki verið
gengið frá öllu varðandi fyrirhugaða
útgáfu.
Saga byggð á æviferli Júrís Res-
itovs sendiherra Rússa á íslandi er
væntanleg og bókina hafa skrifað
Eyvindur Erlendsson og Júrí Resitov.
Resitov lærði ungur íslensku og hef-
ur starfað lengi í utanríkisþjón-
ustunni. í bókinni greinir frá tilbreyt-
ingaríkum ferli diplómats og leið
þjóðar hans til aukins fijálsræðis.
í byrjun október kemur út sjálfs-
ævisaga Nelsons Mandela, Leiðin til
frelsis, viðamikil bók yfir 500 bls.
Þessi bók á að vera upphaf fiokks
ævisagna hjá Fjölva.
Ævintýrasigling með Odysseifi
nefnist bók eftir landkönnuðinn og
ævintýramanninn Tim Severin sem
lýsir siglingu á galeiðu meðfram
ströndum Grikklands og fylgir Odys-
seifskviðu. í þýðingu sinni byggir
Finnbogi Guðmundsson á Hómers-
þýðingum Sveinbjarnar Egilssonar.
Rennt í hylinn er eins konar eintal
Björns á Laxamýri við Laxá í Aðal-
dal, smásögur, vangaveltur um lax-
veiði og dularfulla atburði.
Frönsk kona sem ung heillaðist
af íslandi og giftist íslendingi er
höfundur bókarinnar Bláu trén í Frið-
heimum. Lýst er raunverulegum at-
burðum, en bókin er fyrst og fremst
tilfinningaþrungin upplifun hennar,
ástar- og harmsaga að sögn útgef-
anda. Sigurlaug Bjarnadóttir aðstoð-
aði konuna, Liliane í Friðheimum,
við að færa bókina í letur.
Fjölvi mun eiga samstarf við Ofna-
smiðjuna um að koma út starfs- og
ævisögu Sveinbjarnar Jónssonar for-
stjóra, en höfundar eru þrír sagn-
fræðingar.
Breytt heimsmynd
Einar Þorsteinn Asgeirsson er
höfundur verksins Innsýn, en í því
eru saman komnar heimildir og til-
gátur um breytingar á heimsmynd-
Júrí Nelson
Resitov Mandela
inni með tilliti til lífs í öðrum sólkerf-
um.
Feneyjar engu líkar er áttunda bók
Jónasar Kristjánssonar ritstjóra í
flokknum Leiðsögurit Fjölva.
Vasadeild Fjölva hefur útgáfu á
nýjum flokki um geðræna sjúkdóma.
Fýrsta bókin er um þunglyndi, önnur
kvíða og fælni, þriðja um lystarstol
og sú fjórða snýst um sorgarvið-
brögð.
Svokallaðar sjálfshjálparbækur
eru ofarlega á blaði hjá Fjölva. Með-
al slíkra bóka sem eru í undirbúningi
eða væntanlegar á markað eru bæk-
ur um mígreni og punktaþiýsting,
Stóra heilsubókin eða Matarbiblían
og ný toppformsbók.
Yoga og andlega lífið verður nýj-
asta bókin í ritröð Sri Chinmoys.
Bókin um Shanti Devi fjallar um
framhaldslíf og sálnaflakk.
Grínbókin Forsetaslagurinn eftir
Kjartan Arnórsson kom út í sumar
og er í ritröðinni Kaftein Island.
Bókinni er lýst sem skopstælingu á
undirbúningi frambjóðenda til for-
setakosninga.
Lærið að teikna heitir nýr flokkur
sem Fjölvi gefur út og er ætlað að
stuðla að bættri teiknikennslu að
franskri fyrirmynd. Dýrin í sveitinni
og Gæludýrin okkar eru komnar út
í þessum flokki og næst eru Lærum
að teikna dýrin í Afríku og Lærum
að teikna heimskautadýrin.
Lúlli litli lundi er kynningarbók
um ísland og eyjuna Vigur í Isafjarð-
ardjúpi eftir svissneska konu, Krist-
ínu Marti. Sama bók hefur komið út
á þýsku og ensku og verður einnig
gefin út á sænsku og unnið er að
franskri gerð hennar.
Fjölvi gefur út eina íslenska skáld-
sögu, íslendingur á vígaslóð í Waffen
SS, og er hún eftir nýjan höfund,
Einar Björgvinsson. Sagt er að höf-
undurinn hafi kannað starfshætti SS
og Gestapó með það í huga að af-
hjúpa þátttöku íslendinga í þeim.
I sumar kom út hjá Fj'ölva „að lík-
indum vandaðasta bók sem út hefur
komið hjá forlaginu" eins og segir í
kynningu. Þetta er forn helgisögn
austan úr Georgíu í Kákasus um
drottninguna Sjúsaník og píslarvætti
hennar. Islandsvinurinn Grigol þýddi
bókina og er hún gefin út til minning-
ar um hann, en hann fórst í bílslysi
fyrr á árinu.
í sumar kom út Meðan þú gefur,
hók eftir Gunnar Dal. Bókin er hin
fyrsta í nýrri ritröð sem kallast Litlu
gimsteinarnir. I sömu röð kom einnig
út úrval ljóða Tolkiens, Vegaijóð, úr
Hringadróttinssögu í þýðingu Geirs
Kristjánssonar. Gunnar Dal hefur
unnið að þremur bókum til viðbótar
í Litlu gimsteinaröðinni. Þær eru
þýðing á elsta þekkta ljóði heimsins,
Gilgameskviðu, önnur er ný þýðing
á Tao eða Bókinni um veginn og
þriðja bók um Zen-vísdóminn. Ekki
er enn afráðið hvenær bækurnar
koma út.
í sumar gaf Fjölvi út stórt litprent-
að kort af Miðgarði Hringadróttins-
sögu. Jafnframt var gengið frá
skrautöskju með þremur bindum sög-
unnar sjálfrar. Sérstök listaverkabók
um Hringadróttinssögu er að koma
út og heitir Hugarlendur Tolkiens.
Meðal fyrirhugaðra bóka á útgáfu-
lista Fjölva eru Ljósar hendur, úrvals-
Ijóð þriggja skáldkvenna, Vilborgar
Dagbjartsdóttur, Þóru Jónsdóttur og
Ágústínu Jónsdóttur. Þóra og Ágúst-
ína skreyta sín ljóð en Snorri Sveinn
Friðriksson ljóð Vilborgar.
Handrit Skrímslabókarinnar
Kynjadýr í sjó og vötnum hleður utan
á sig og stækkar og er ekki vist hve-
nær bókin kemur út. Einnig eru ótald-
ar nokkrar bækur fyrir yngstu kyn-
slóðina.
Fyrirlestur
um silfur-
smíði
ÞÓR Magnússon þjóðminjavörður
flytur fyrirlestur í forsal Þjóð-
minjasafnsins fimmtudaginn 12.
september og hefst hann kl. 17.
Nefnist fyrirlesturinn íslenskir
silfursmiðir og verk þeirra, en Þór
hefur rannsakað íslenska silfur-
smíði um árabil.
í Bogasal Þjóðminjasafnsins
stendur yfir sýningin Silfur í Þjóð-
minjasafni. Á henni getur að líta
úrval silfurgripa m.a. forna jarð-
fundna silfurgripi, íslenska silfur-
kaleika frá miðöldum, búninga-
og borðsilfur auk verkstæðis
Kristófers Péturssonar á Kúlu-
dalsá, en hann var einn hinna síð-
ustu silfursmiða gamla tímans.
PCI lím og fuguefni
3t Its
Stórhöfða 17, við Gullinbrú,
sími 567 4844
Hóptímar
Einkatímar
'MiðvUuidagimi
11. sept. verður
• Hópnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna
• Barna- og unglinganámskeið aldursskipt söngnámskeið
• Einsöngsnám fyrir byrjendur og lengra komna
• Sveifludeild söngleikjatónlist, gospel, jass og blues
• Sönghópur Móður jarðar gospel og heimstónlist
Sönghópur Móður Jarðar syngur
Kennarar og nemendur Söngsmiðjunnar taka lagið
Prufusöngtími
Kennarar Söngsmiðjunnar verða til viðtals og ráðlegginga
Heitt kaffx á könnunni
Verið hjartanlega velkomin
Jass • blues
• * e
SOIUCSMIÐJAIU ehf.
í vetur mun kanadíska jass/blues
söngkonan Tena Palmer kenna við
skólann - frábær söngkona sem unnið
hefur til fjölda verðlauna fyrir söng sinn!
Söngskóli og söngsmiðja
HVERFISGÖTU 76
REYKJAVÍK
Upplýsingar og innritun í síma: 561 2455 • faxi: 561 2456 eða á skrifstofu skólans, virka daga frá kl. 11 - 18.