Morgunblaðið - 11.09.1996, Síða 36
36 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FBIMERKI
Islenska pöststjórnin
NOKKUR NÝÚTKOMIN
FRÍMERKI
LANGT er um liðið, síðan þessi
þáttur hefur verið á ferðinni hér
í blaðinu. Því hefur ekki verið
minnzt á frímerki þau, sem ís-
lenzka póststjómin hefur gefið út
á undanfömum mánuðum. í þætti
í janúar var sagt frá fugla- og
málverkafrímerkjum, sem út komu
7. febrúar. Að þessu sinni skal
reynt að bæta hér nokkuð úr, en
þó verður einungis stiklað á helztu
atriðum í sambandi við útgáfu síð-
ustu mánaða.
Fyrst er þá að nefna tvö frí-
merki, sem út komu 18. apríl í
flokki, sem nefnist Frægar konur.
Þar er minnzt tveggja kvenna, sem
settu mjög mark sitt á samtíð sína,
en þó hvor með sínum hætti. Verð-
gildi merkjanna eru 35 krónur og
55 krónur.
Á lægra verðgildinu er mynd
af Halldóru Bjarnadóttur, sem
náði þeim háa aldri að verða 108
ára gömul. Hún var fædd árið
1873 í Ási í Vatnsdal og lézt á
Héraðshælinu á Blönduósi 1981.
Var hún alþekkt meðal samtíðar-
manna sinna, enda brautryðjandi
í kvennafræðslu á íslandi og lét
sér alla ævi mjög annt um mennt-
un kvenna. Til þess að koma fram
áhugamálum sínum stofnaði hún
tímaritið Hlín árið 1917 og var
eigandi þess og ritstýrði til ársins
1961. í sambandi við þá útgáfu
hafði hún bréfasamband við fjölda
Frí merkj aútgáfur
íslenzku póststjórnarinnar
fólks um land allt um áratuga
skeið. Hélt hún til haga bréfasafni
sínu. Fyrir bragðið varðveittust
umslög og bréfspjöld til hennar,
en þau hefur mátt sjá í ýmsum
söfnum, sem verið hafa á frí-
merkjasýningum á liðnum árum..
Á hærra verðgildinu er mynd
af annarri ágætri konu, Ólafíu
Jóhannsdóttur, sem fædd var
1863, en lézt árið 1924. Hún var
öflugur málsvari kvenfrelsis á ís-
landi um síðustu aldamót og einn-
ig helzti leiðtogi og hugmynda-
fræðingur Hvítabandsins á ís-
landi, en það voru mannúðarsam-
tök kristinna kvenna. Hún bjó 17
ár í Noregi og veitti þar forstöðu
heimili, sem Hvítabandið rak í
Ósló fyrir vændiskonur og
drykkjukonur.
Hinn 13. maí gaf póststjómin
enn á ný út smáörk með myndum
af póstbílum. Voru þessi frímerki
beint framhald af þeim frímerkj-
um, sem út hafa komið frá árinu
1991, þar sem minnt er á ýmsa
þætti í samgöngumálum íslend-
inga á láði, í lofti og á legi. Hér
má sjá þær fjorar tegundir bif-
reiða, sem fluttu póst um landið
allt frá 1930 og fram yfir miðja
öldina. Verðgildi merkjanna er hið
sama á þeim öllum, 35 kr., en í
hverri örk eru átta frímerki. FRÍMERKI þau, sem út hafa komið á liðnum mánuðum.
Vafalaust verða þessi frímerki
bæði eftirsótt af þeim, sem safna
íslenzkum frímerkjum sérstak-
lega, en svo einnig af þeim, sem
safna frímerkjum með myndum
af alls konar bifreiðategundum.
Frímerki þessi eru falleg, enda
teiknuð af Þresti Magnússyni sem
og öll fyrri frímerkin í þessum
flokki.
Ekki hafa ólympíuleikamir í
Atlanta í Bandaríkjunum getað
farið fram hjá nokkrum manni, svo
mjög sem þeir voru auglýstir og
kynntir í fjölmiðlum. íslendingar
áttu keppendur í fímm greinum,
og stóðu sumir þeirra sig mjög
vel. Einkum vakti verðskuldaða
athygli frábær frammistaða okkar
fólks í leikum fjölfatlaðra manna.
Segja má, að íslenzka póststjórnin
hafí stundum gefið út frímerki af
minna tilefni en þátttöku okkar í
ólympíuleikunum á liðnu sumri.
Hinn 25. júní komu út fjögur
frímerki, þar sem sjá má tákn-
myndir fjögurra keppnisgreina:
hlaupa, spjótkasts, þrístökks og
kúluvarps. Þessi frímerki eru hönn-
uð af Hlyni Ólafssyni, en þau síðan
prentuð í Norges Bank Seddeltryk-
keri,- Að mínum dómi eru þessi frí-
merki vel heppnuð að öllu öðru leyti
en því, að þau eru í stærra lagi til
notkunar á bréf, að ekki sé talað
um á venjulegt póstkort. Hins veg-
ar skal það játað, að táknmyndir
þeirra njóta sín miklu betur á þess-
um fleti en hefði hann verið hafður
minni. Þessi frímerki hljóta örugg-
lega að vekja verðskuldaða athygli
meðal safnara.
Jón Aðalsteinn Jónsson
RADAUGÍ YSINGAR
Lausar íbúðir
Búseti hsf. í Mosfellsbæ auglýsir
lausar íbúðir fyrir nýja og eldri félaga:
2 herb. alm. kaupleiga, Miðholti 1, íbúð 202.
3 herb. alm. kaupleiga, Miðholti 9, íbúðl 01,
laus frá 1. nóvember nk.
3 herb. fél. kaupleiga, Miðholti 9, íbúð 301.
3 herb. fél. kaupleiga, Miðholti 13, íbúð 301.
Vinsamlegast hafið samband við skrifstofu
félagsins í Miðholti 9.
Opið mánudaga og miðvikudaga frá kl. 17-19.
Sími 566 6870 - fax 566 6908.
KENNSLA
Frönskunámskeið
Alliance Francaise
Haustnámskeið verða haldin 16. sept-
ember-13. desember. Innritun fer fram alla
virka daga kl. 15-19 í Austurstræti 3, sími
552-3870.
ALLIANCE FRANCAISE
Þýskunámskeið Germaniu
Námskeiðin hefjast á ný 16. september.
Boðið er upp á byrjendahóp, 5 framhalds-
hópa og talhóp. Kennarar eru Magnús Sig-
urðsson M.A. og Rebekka Magnúsdóttir-
Olbrich M.A.
Innritað verður á kynningarfundum í Lög-
bergi, Háskóla íslands, stofu 102, miðviku-
daginn 11. september og fimmtudaginn
12. september kl. 20.30.
Upplýsingar eru einnig veittar í síma
551 0705 kl. 17-19.
Geymið auglýsinguna.
Stjórn Germaniu.
Tónlistarnám?
Getum bætt við nemendum á eftirtalin
hljóðfæri: Píanó, gítar, bassa, trommur,
flauta og saxófón. Ennfremursöngnemendum.
Upplýsingar í síma 562 1661 frá 13 - 19
virka daga.
Nýi músíkskólinn.
BRIDSSKÓUNN
Námskeið á haustönn
BYRJENDUR: Hefst 17. september og stend-
ur yfir í 10 þriðjudagskvöld, frá kl. 20-23.
FRAMHALD: Hefst 19. september og stend-
ur yfir í 10 fimmtudagskvöld, frá kl. 20-23.
Staður: Þönglabakki 1 í Mjódd, 3. hæð.
Frekari upplýsingar og innritun í síma
564 4247 milli kl. 13 og 18 virka daga.
krúsin
Námskeið
íleirmótun
fyrir fullorðna og börn
Á námskeiðunum verða
kenndar grunnaðferðir við
leirmótun, meðferð lita, glerunga og
brennsla. Auk þess eru tímar fyrir „lærða
og leika" sem vantar vinnuaðstöðu og
brennslu fyrir sína muni.
Kennarar: Steinunn Helgadóttir leikskóla-
kennari og Kristbjörg Guðmundsdóttir leir-
kerasmiður.
Skráning er hafin kl. 12-18 daglega.
Leirkrúsin, Brautarholti 16,
105, Reykjavík, sími 561 4494.
FELAGSSTARF
Garðbæingar
Aðalfundur fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Garðabæ verður hald-
inn fimmtudaginn 12. september nk. að Lyngási 12 kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnin.
Félagsfundur í sjálfstæð-
isfélagi Garðabæjar
Félagsfundur verður haldinn í Sjálfstæðisfélagi Garðabæjar fimmtu-
daginn 12. september nk. að Lyngási 12 kl. 21.15.
Dagskrá:
Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins.
Stjórnin.
Söngsveitin Fílharmónía
Vetrarstarfið hefst með æfingu í Melaskóla
mánudaginn 16. september kl. 20.00. Æfing-
ar verða á mánudags- og miðvikudagskvöld-
um. Getum bætt við nýjum félögum í allar
raddir.
Upplýsingar gefa Magnús, sími 554 1425,
Margrét, sími 557 6466 og Jóhanna, sími
553 9119.
FILBOÐ - ÚTBOÐ
ísfjarðarbær
Niðurrif húss og húshluta á Flateyri
Bæjarstjórinn í ísafjarðarbæ óskar hér með
eftir tilboðum í verkið „Niðurrif húss og hús-
hluta“ á Flateyri.
Verkið felur í sér niðurrif húss og húshluta
ásamt förgun þeirra svo og frágangi förgun-
arsvæðisins ásamt frágangi lóða, fyllingu,
jöfnun og sáningu. Verkinu er skipt í tvo
áfanga, skal þeim fyrri vera lokið fyrir 24.
okt. nk. og þeim síðari 17. júní 1997.
Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000 frá og
með miðvikudeginum 11. sept. nk. á bæjar-
skrifstofum ísafjarðarbæjar, Hafnarstræti 1,
ísafirði. Tilboð verða opnuð á sama stað að
viðstöddum þeim þjóðendum sem þess óska
fimmtudaginn 19. sept. nk. kl. 11.00.
Bæjarstjórinn Isafjarðarbæ.