Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 39
FRETTIR
Núhaustarað
HAUSTIÐ hefur farið mjúkum höndum um menn og málleysingja það sem af er. Óðum verður þó
haustlegra enda færist skammdegið í aukana með hverjum deginum.
Sameining
hesta-
manna
kynnt í
funda-
herferð
SKRIÐUR er að komast á samein-
ingarumræðu hestamanna en í
dag hefst tíu funda herferð um-
hverfis landið. Formaður sam-
eingarnefndar Landsambands
hestamannafélaga og Hesta-
íþróttasambands íslands, Sigurð-
ur Magnússon fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri íþróttasambands
íslands, mun kynna hugmyndir
og niðurstöðu nefndarinnar um
hvernig sé best að standa að sam-
einingu samtakanna.
Fyrsti fundurinn verður hald-
inn í félagsheimili Skugga í Borg-
arnesi og er sá fundur ætlaður
félögum Dreyra á Akranesi, Faxa
í Borgarfirði, Glaðs í Dölum, Snæ-
fellings og Kinnskærs í Barða-
strandasýslu auk Skugga í Borg-
arnesi. Sagði Sigurður að hann
mundi mæta á alla fundina en
aðrir nefndarmenn, sem eru
fimm, myndu skipta með sér þess-
um tíu fundum sem haldnir verða.
í lok október verður haldið árs-
þing L.H. og sagði Sigurður að
þar yrði tekin efnisleg afstaða til
framhalds í sameiningarmálum
og svo síðar á ársþingi hjá H.I.S.
Fundirnir eru opnir öllum al-
mennum félagsmönnum hesta-
mannafélaga og taldi Sigurður
mikilvægt að sem flestir mættu
og kynntu sér málin þannig að
stefnan mótaðist á breiðum
grunni. Sigurður kvað viðhorf
gagnvart sameiningu mjög já-
kvæð en hann hefur verið í sam-
bandi við ljölda hestamanna und-
anfarið vegna undirbúnings fyrir
fundina.
Fundirnir verða sem hér segir:
í Félagsheimili Skugga í Borgar-
nesi 12. september og í félags-
heimili Léttis, Skeifunni á Akur-
eyri, fyrir félaga í Létti, Hring,
Funa, Þráni og Gnýfara. 13. sept-
ember í Slysavarnahúsinu á
ísafirði fyrir félaga í Hendingu
og Stormi. 17. september í
Varmahlíðarskóla í Skagafirði
fyrir félaga í Óðni, Neista, Snar-
fara, Þyt, Blakki, Léttfeta, Stíg-
anda, Svaða og Glæsi. 18.
september í félagsheimili Grana
á Húsavík fyrir Grana. Þjálfa,
Feyki og Snæfaxa. 19. september
í Hótel Valaskjálf á Egilsstöðum
fyrir Freyfaxa, Blæ, Goða, Geisla
og Glófaxa. 20. september í Hrol-
laugsstaðaskóla í Suðursveit fyrir
félaga í Hornfirðingi, Sindra og
Kópi. 25 september í Félagsheim-
ilinu Hliðskjálf á Selfossi fyrir
félaga í Geysi, Háfeta, Ljúf,
Smára, Trausta, Loga og Sleipni.
26. september Félagsheimili
Gusts í Kópavogi fyrir félaga í
Gusti, Mána, Sörla, Andvara og
Sóta. Síðasti fundurinn verður svo
haldinn í félagsheimili Fáks í
Reykjavík fyrir Fák og Hörð. All-
ir fundirnir eiga að hefjast klukk-
an 18 nema fundurinn á ísafirði
sem hefst klukkan 20.30.
Háskólafyrir-
lestur um
heimspeki
DR. ROGER Pouivet, kennari í
heimspeki við háskólann í Rennes
í Frakklandi, flytur opinberan
fyrirlestur í boði heimspekideildar
Háskóla íslands fimmtudaginn 12.
september kl. 17.15 í stofu 101 í
Odda. Fyrirlesturinn nefnist: Eru
hinar fagurfræðilegu geðshrær-
ingar blindar?
í fyrirlestrinum verður gagn-
rýnd sú hugmynd Kants að fagur-
fræði og rökfræði séu andstæður
á grundvelli greinarmunar á hinu
fagurfræðilega, hinu tilfinninga-
lega og hinu vitsmunalega. Þessi
rangi greinarmunur byggist á öðr-
um: Hinum vanhugsaða greinar-
mun á „einkahugarástandi" og
„opinberu tungumáli“. Fylgt verð-
ur hugmynd Ronalds de Sousa um
rökvísi geðshræringa og hug-
myndum Nelsons Goodmans og
Israels Schefflers um vitsmunaleg-
ar geðshræringar. Ef til eru fagur-
fræðilegar geðshræringar eru þær
einnig vitsmunalegar. Hugmyndin
um yfirborðsfylgju gerir að verk-
um að unnt er að sýna hvernig
fagurfræðileg geðshræring og
jafnvel fagurfræðileg ánægja geta
tengst vitsmunalegri reynslu.
Roger Pouivet kennir rökfræði,
þekkingarfræði og fagurfræði við
háskólann í Rennes. Hann hefur
samið tvær bækur, Lire Goodman
(1992) og Esthétique et logique
(1996) og fjölda ritgerða um þekk-
ingarfræði og fagurfræði. Nýjasta
bók hans Aprés Wittgenstein, sa-
int Thomas er nú vætnanleg. Auk
þessa hefur hann þýtt bækur eftir
Nelson Goodman og Ian Hacking
á frönsku.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og er öllum opinn.
Ingólfur bætir
við sig félögum
BJÖRGUNARSVEIT Ingólfs er
nú að byrja starfið af fullum krafti
og leitar nú eftir nýjum félögum
í sveitina. Þeir sem hafa áhuga á
þessum málum eru velkomnir á
kynningafund sem verður haldin
miðvikudaginn 11. september kl.
20 í Gróubúð, Grandagarði 1,
Reykjavík.
Björgunarsveitin skiptist í 3
flokka sem eru landflokkur, sjó-
flokkur og bílaflokkur. Ingólfur
er eina björgunarsveitin í Reykja-
vík sem sinnir öllum leitar- og
björgunaraðgerðum jafnt á sjó og
landi.
Nýliðar eru teknir inn í þá tvo
stærstu: landflokk sem sér um
leit og björgun á landi og sjóflokk
sem sér um leit og björgun á sjó.
Starfið er opið öllum stelpum og
strákum sem hafa náð 17 ára
aldri.
Fyrirlestur um
sorg og sorgar-
viðbrögð
SÉRA Kjartan Örn Sigurbjörnsson
flytur fyrirlestur um sorg og sorg-
arviðbrögð á morgun, fimmtudag-
inn 12. september, á vegum Nýrr-
ar dögunar, samtaka um sorg og
sorgarviðbrögð.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20 í
Gerðubergi. Ný dögun hvetur þá
sem misst hafa ástvin(i) að koma
og hlýða á séra Kjartan, því mikil-
vægt er fyrir syrgjendur og að-
standendur þeirra að læra að
þekkja hina ýmsu þætti sorgarferl-
isins.
Næsta fyrirlestur flytur Páll
HALDINN verður kynningar-
fundur fimmtudaginn 12. sept-
ember kl. 20 fyrir þá sem hafa
áhuga á að gerast félagar í
Hjálparsveit Skáta Kópavogi.
Fundurinn verður haldinn í
húsnæði sveitarinnar í Hafnar-
skemmunni við Kópavogshöfn.
Eiríksson, geðlæknir 3. október
um endurtekinn missi. Gunnar
Rúnar Matthíasson sjúkrahús-
prestur flytur fyrirlestur 7. nóvem-
ber um makamissi og á jólafundin-
um 12. desember flytur Gunnar
Sigurjónsson sóknarprestur jóla-
hugvekju. Opið hús verður 26.
september, 17. og 31. október, 21.
nóvember og 5. desember. Allir
fyrirlestrar og opið hús eru í
Gerðubergi og hefjast kl. 20.
Sigling með vík-
ingaskipinu
í MIÐ VIKUD AGSKV ÖLDFERÐ
Hafnargönguhópsins verður hægt
að velja um gönguferð með höfn-
inni út í Örfirisey og/eða siglingu
með víkingaskipinu íslendingi út
á Kollafjörð og inn Engeyjarsund
til baka að Miðbakka.
Mæting er kl. 20 við Hafnarhús-
ið. Siglingin með íslendingi verður
fyrsta ferð hans eftir lögskráningu
með farþega. Allir velkomnir.
Starfsemi sveitarinnar verð-
ur kynnt í máli og myndum og
sagt frá fjölbreyttu starfi nýl-
iða á komandi vetri. Þeir sem
fæddir eru ’79 og fyrr og vilja
kynnast skemmtilegu og krefj-
andi starfi í björgunarsveit eru
velkomnir.
Opið hús 1 Söng-
smiðjunni
OPIÐ hús verður hjá Söngsmiðj-
unni, Hverfisgötu 76, miðviku-
daginn 11. september nk. frá kl.
18-21.
Kennarar Söngsmiðjunnar
verða til viðtals og ráðleggingar.
Sönghópur Móður jarðar syngur,
einnig munu nemendur og kenn-
arar Söngsmiðjunnar taka lagið.
Þá geta þeir sem hafa áhuga
fengið prufusöngtíma.
Söngsmiðjan kennir börnum,
unglingum og fullorðnum. I vetur
mun kanadíska djass/blús söng-
konan Tena Palmer kenna við
skólann en sagt hefur verið um
Tenu að hún sé „mest spennandi
djasssöngkona Kanada í dag“.
Allir eru velkomnir.
Vantar vitni að
slysi við
Gullinbrú
VITNI óskast að slysi við Gullin-
brú við gatnamót Höfðabakka og
Stórhöfða. Atvikið átti sér stað
þann 20. ágúst síðastliðinn um
hádegisbilið en tildrög slysins
voru þau að Volkswagen Polo bif-
reið ók á hjólreiðamann á gang-
braut sem liggur vestur yfir Gull-
inbrú.
Þeir sem kunna að hafa orðið
vitni að þessu atviki eru beðnir
um að hafö samband við rann-
sóknardeild lögreglunnar í
Reykjavík.
LEIÐRÉTT
Rangur titill
í FRÉTT Morgunblaðsins á sunnu-
dag um mál manns sem ákveðið
hefur verið að framselja til Finn-
lands að ósk þarlendra stjómvalda,
var Jón H. Snorrason titlaður starf-
andi rannsóknarlögreglustjóri.
Þetta er mishermi, Jón hefur starf-
að sem vararannsóknarlögreglu-
stjóri.
Beðist er afsökunar á þessum
mistökum.
w~
Kynningarfundur HSSK