Morgunblaðið - 11.09.1996, Síða 40
•40 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Tommi og Jenni
Ljóska
Ferdinand
Smáfólk
QL/ICK, MARCIE, I NEEDTHE
AN5WER5 T0 FlVE,5EVEM,
NINE, TEN ANPTUIELVE..
Fljót, Magga, mig vantar svörin Ég hef þau ekki ennþá, herra ... Hversiags nemandi ert þú,
við númer fimm, sjö, niu, tíu og Magga?
tólf...
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
FRÁ námskeiðinu.
Námskeið leiðbein-
enda um íþrótta-
iðkanir aldraðra
Frá Þorsteini Einarssyni:
FÉLAG áhugafólks um íþróttir aldr-
aðra (FÁÍA) hélt í Árbæjarskóla í
Reykjavík námskeið fyrir þá sem
annast leiðbeiningar í líkamsæfing-
um aldraðra. íþróttakennara og leið-
beinenda er þörf á þessu sérsviði
engu síður en á vaxtarskeiði barna
og unglinga. Hluti aldraðra dvelur
í félagsmiðstöðvum en fleiri í heima-
húsum. Meðal þeirra síðartöldu þarf
að koma á ennþá frekari starfsemi
að íþróttaiðkunum. Til að svo megi
verða þarf hentugt húsnæði og svo
kunnáttufólk til leiðbeininga marg-
víslegra líkamsæfinga. Hið síðar-
nefnda hefur stjórn FÁÍA leitast við
að efla með því að halda námskeið
fyrir þá sem annast slíkar forsagnir
eða vilja taka þær að sér.
Fyrr á árinu hefur stjórn FÁÍÁ
með aðstoð kunnáttufólks haldið
námskeið í boccia og pútti en nú var
í Árbæjarskóla í Reykjavík á vegum
félagsins þriggja daga námskeið í
almennum íþróttafræðum aldraðra.
Námskeiðið sóttu 43. Aðalkennari
var frá Danmörku Kristine Hjörr-
inggaard. Hún hefur um árabil ann-
ast fyrir Álaborg víðtæka íþrótta-
starfsemi aldraðra. Starfið að þess-
um málum þar í borg er svo öflugt
að þar er efnt í komandi október til
nokkurs konar Olympíuleika aldr-
aðra á Norðurlöndum.
Aðrir kennarar voru: Guðrún Ni-
elsen, íþróttakennari og formaður
FÁÍA, Halldóra Björnsdóttir,
íþróttakennari (annast morgunleik-
fimi RÚV), Kristín Einarsdóttir,
íþróttakennari, Mínerva Jónsdóttir,
íþróttakennari við Iþróttakennara-
skóla íslands, Soffía Stefánsdóttir,
íþróttakennari og í stjórn FÁÍA.
Fyrirlestra fluttu: Gunnar Sig-
urðsson, læknir (um beinþynningu),
Kristine Hjörringgaard (æfingar fyr-
ir beinþynningarsjúklinga), Þórarinn
Sveinsson, lífeðlisfræðingur (vöðva-
breytingar við hækkandi aldur).
Hinn danski kennari fræddi um
aðferðir til að fá aldraða til að iðka
íþróttir og um hina félagslegu þætti
umgengni og samneytis. Á slíkum
námskeiðum er mikið gert að rifja
upp leiki með eða án áhalda. Krist-
ine Hjörringgaard bætti í það safn
mörgum leikjum með tiltækum
áhöldum, svo sem handklæðum,
mjúkum knöttum o.s.frv. Kennsla
Kristine var vel þökkuð.
Aðstoðar við námskeiðið naut fé-
lagið frá skólayfirvþldum Reykjavík-
ur, skólastjóra Árbæjarskóla og
starfsfólks hans, menntamálaráðu-
neytis, borgarstjórnar Reykjavíkur
og framkvæmdastjórnar Iþrótta-
sambands íslands. Framkvæmd
námskeiðsins var innt af höndum
af þeim: Guðrúnu Nielsen, Soffíu
Stefánsdóttur, Ólöfu Þórarinsdóttur
og Ernst Fr. Backman.
ÞORSTEINN EINARSSON,
Laugarnesvegi 47, Reykjavík.
Hvað skal segja? 9
Væri rétt að segja: Smíði beggja bryggjanna dróst lengi?
Svar: Kvenkynsorð, sem enda á a, enda á -na í eignarfalli fleir-
tölu. Þess vegna er sagt: gatna-mót, flugna-ger, þotna-flug,
kúlna-hríð, þúfna-kollar, ijúpna-veiðar.
Þó fá þau, sem enda á -ja, ekkert n í beygingu. Þess vegna
er sagt: Haldið er uppi ferðum tveggja ferja til allra eyjanna.
En ef g eða k er í stofni orðsins , fær það samt n í eignar-
falli fleirtölu, þó að það endi á -ja. Þess vegna er sagt: Turnar
kirknanna eru háir; hlutur ekknanna var rýr; fjöldi sprengna féll
á borgina; og smíði beggja bryggnanna dróst lengi.
Þrátt fyrir allt mun flestum þykja lítil prýði að n-i í fleirtölu-
eignarfalli orðanna vera, kerra og nokkurra annarra, þar sem
smekkur hlýtur að ráða.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til Dirtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.