Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 1
72 SIÐUR B/C
215. TBL. 84. ÁRG.
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
p'
Reuter
Hart deilt á Breta
Vespan
Brussel. Reuter.
BRETAR sættu í gær harðri gagn-
rýni annarra aðildarríkja Evrópu-
sambandsins vegna þeirrar ákvörð-
unar að hætta við áform um slátrun
nautgripa til að útrýma kúariðu.
Klaus Kinkel, utanríkisráðherra
Þýskalands, sagði „óviðunandi" að
Bretar ákvæðu einhliða stefnu-
breytingu af þessu tagi og að þetta
myndi leiða til þess að útflutnings-
banni á breskar nautgripaafurðir
yrði ekki aflétt. Frakkar sögðust
ætla að herða eftirlitið til að hindra
að breskt nautakjöt bærist inn fyrir
landamæri þeirra.
Þjóðverjinn Klaus Hánsch, forseti
Evrópuþingsins, gekk skrefi lengra
og sagði að ef aðildarríki gæti ekki
virt sameiginlegar ákvarðanir ætti
það ekki heima í sambandinu. „Það
væri betra ef slíkt ríki segði sig úr
sambandinu,“ sagði Hánsch.
Fulltrúar þýskra neytenda- og
bændasamtaka gagnrýndu ákvörð-
un Breta harðlega og sögðu að
ekki kæmi til greina að aflétta út-
flutningsbanninu fyrr en um-
saminni slátrun nautgripa lyki.
■ ESB útilokar afnám banns /18
50 ára
ÍTALSKA fyrirtækið Piaggio
minntist þess í gær að hálf öld
er liðin frá því það hóf fram-
leiðslu á Vespu. í tilefni afmælis-
ins voru kynntar tvær nýjar
gerðir af bifhjólum og önnur
þeirra er fyrsta bifhjólið í heim-
inum sem fullnægir reglum Evr-
ópusambandsins um mengunar-
varnir og hávaða sem taka gildi
árið 2000. A myndinni prófa ung-
ir Italir nýju Vespuna við hring-
leikahúsið í Róm.
Bons Jeltsín enn á sjúkrahúsi
Þarf í „alvar-
lega aðgerð“
Moskvu. Reuter.
SERGEJ Míronov, yfirlæknir
sjúkrahússins sem Borís Jeltsín
dvelst á, sagði í gær að rússneski
forsetinn væri að búa sig undir
„mikla og alvarlega aðgerð" og
þyrfti að gangast undir ýtarlegri
rannsókn á sjúkrahúsinu en gert
var ráð fyrir í fyrstu.
Míronov sagði að Jeltsín yrði á
sjúkrahúsinu í þrjá eða fjóra daga
til viðbótar og þetta er í þriðja sinn
sem dvölin er framlengd, en henni
átti að ljúka á sunnudag.
„Mikil og alvarleg aðgerð er
framundan og hún þarfnast mikils,
yfirvegaðs og vandlegs undirbún-
ings, enda vita allir hvað er í húfi,“
sagði Míronov í hreinskilnustu yfir-
lýsingu lækna forsetans til þessa
um heilsu hans.
Miklar líkur á að aðgerðin
heppnist
Jeltsín samþykkti fyrr í mánuð-
inum að gangast undir skurðað-
gerð við kransæðastíflu og hefur
verið í rannsókn á sjúkrahúsinu í
rúrna viku. Míronov sagði að
grannt væri fylgst með blóðþrýst-
ingi, nýrum, lifur og lungum.
Hópur hjartasérfræðinga, þeirra
á meðal bandaríski hjartaskurð-
læknirinn Michael DeBakey, koma
saman á miðvikudag til að ákveða
hvenær forsetinn verður skorinn
upp.
Renat Aktsjúrín, rússneskur
læknir sem talið er að stjórni að-
gerðinni, sagði að líkurnar á að
slíkar aðgerðir heppnuðust væru
miklar en það væri þó háð heilsu
sjúklinganna. „Líkurnar á árangri
eru 98% þegar ekkert annað amar
að sjúklingnum en þegar vandamál
koma upp í öðrum líffænim geta
líkurnar farið niður í 90%,“ sagði
hann.
Baráttan um
embættið hafin?
Rússneskir fjölmiðlar sögðu í
gær að Jeltsín hefði ákveðið hvern-
ig staðið yrði að tímabundnu valda-
afsali hans vegna aðgerðarinnar.
Jeltsín myndi gefa út tvær tilskip-
anir, í annarri kæmi fram nákvæm
timasetning valdaafsalsins og í
hinni tilgreint hvernig staðið yrði
að valdatöku forsetans eftir að-
gerðina.
Gennadí Zjúganov, leiðtogi rúss-
neskra kommúnista, sagði að bar-
áttan um hver tæki við embætti
forseta væri þegar hafin, aðallega
með þátttöku bandamanna Jeltsíns
í Kreml. Hann kvaðst hins vegar
sjálfur vera best til þess fallinn að
taka við forsetaembættinu.
Slagnum um embætti forseta Eistlands lokið
Meri nær endur-
kjöri í fimmtu lotu
Reuter
Simitis á atkvæðaveiðum
Tallinn. Reuter.
LENNART Meri, forseti Eistlands,
náði loks endurkjöri á sérstakri
kjörmannasamkundu í gær eftir að
hafa ijórum sinnum mistekist að
fá nægilegan stuðning. Meri sagði
úrslitin sigur fyrir þá stefnu hans
að beita sér fyrir aðild Eistlands
að Evrópusambandinu og Atlants-
hafsbandalaginu.
Meri fékk 196 atkvæði í fimmtu
og síðustu lotu forsetakjörsins og
Arnold Rúútel, varaforseti þingsins,
fékk 126. 50 kjörfundarmenn
greiddu ekki atkvæði.
„Þessi atkvæðagreiðsla merkir
að Eistar hafa kosið skjóta inn-
göngu í vestræn bandalög, þar á
ég fyrst og fremst við Evrópusam-
bandið og Atlantshafsbandalagið,“
sagði Meri eftir atkvæðagreiðsl-
una.
Siim Kallas, utanríkisráðherra
Eistlands, kvaðst ánægður með nið-
urstöðuna enda hefði flokkur hans,
Umbótaflokkurinn, stutt Meri í for-
setakjörinu. „Þetta er að öllum lík-
indum besti kosturinn fyrir stjórn-
málaöflin sem og utanríkisráðu-
neytið," sagði hann.
Erfið barátta
Barátta Meris fyrir endurkjöri
hófst á þinginu í síðasta mánuði
en honum tókst ekki að fá tilskilinn
meirihluta, 68 atkvæði, í þremur
atkvæðagreiðslum. Forset; þingsins
varð því að kalla saman sérstaka
kjörmannasamkundu sem er skipuð
101 þingmanni og 273 oddvitum
sveitarstjórna.
í fyrri atkvæðagreiðslunni á sam-
kundunni í gærmorgun voru fimm
í framboði. Auk Meris og Rúútels
voru það Tunne Kelam, hægrisinn-
aður þjóðernissinni, Siiri Oviir,
vinstrisinnuð þingkona, og háskóla-
maðurinn Enn Tougu.
Meri fékk mest fylgi í fyr.'i at-
kvæðagreiðslunni, 139 atkvæði og
Rúútel kom næstur með 85. Þar
sem forsetinn fékk ekki meirihluta
atkvæða þurfti að kjósa milli þeirra
tveggja síðar um daginn. Meri bar
þá loks sigurorð af Rúútel, sem var
áður hátt settur embættismaður í
eistneska kommúnistaflokknum og
barðist fyrir sjálfstæði Eistlands.
Meri er 67 ára að aldri og þótt
hann sé í miklum metum á Vestur-
löndum sem öflugur talsmaður
Eista hefur stuðningurinn við hann
minnkað á þinginu síðustu árin.
Hann hefur verið sakaður um að
taka sér meiri völd en stjórnarskrá-
in heimili og einkum hefur hann
sætt gagnrýni fyrir samning við
stjórnina í Moskvu um brottflutning
rússneskra hermanna árið 1994.
„Ég fer ekki leynt með þær til-
finningar mínar að mér létti mik-
ið,“ sagði Jón Baldvin Hannibals-
son, fyrrverandi utanríkisráðherra,
í samtali við Morgunblaðið. Hann
kvað endurkjör Meris hafa afstýrt
„stórpólitísku slysi“ fyrir Eista og
Eystrasaltsþjóðirnar.
■ Stórpólitísku slysi afstýrt/4
COSTAS Simitis, forsætisráð-
herra Grikklands og leiðtogi sós-
íalista, veifar til stuðningsmanna
á síðasta útifundi stjórnarflokks-
ins fyrir þingkosningarnar á
sunnudag. Fundurinn var hald-
inn í Aþenu í gær og Simitis lagði
þar allt í sölurnar og flutti eina
bestu ræðu sína í kosningabarátt-
unni. Helsti andstæðingur hans,
Miltiadis Evert, leiðtogi hægri-
flokksins Nýs lýðræðis, lauk bar-
áttunni á smáeyju undan Tyrk-
landi og gagnrýndi þar frammi-
stöðu stjórnarinnar i erjunum við
Tyrki.
Mjög lítill munur var á fylgi
flokkanna tveggja og fjöldi
óákveðinna var óvenju mikill síð-
ustu daga kosningabaráttunnar,
ef marka má skoðanakannanir.
Þær bentu einnig til þess að
ýmsir smáflokkar myndu sækja
í sig veðrið.
■ Litlu munar áfylgi/18