Morgunblaðið - 21.09.1996, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 21.09.1996, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 NEYTENDUR MORGUNBLA.ÐIÐ Haustlaukar Afbrigði túlípana- lauka skipta tugum Morgunblaðið/Þorkell Bónus og Hagkaup með sérmerkta vöruliði Gos, safar og unnar kjötvörur vinsælust UM ÞESSAR mundir eru margir að planta út haustlaukum og nóg er úrvalið. Bara þegar túlípanar eru annars vegar skipta afbrigðin af fáanlegum laukum mörgum tugum. Að sögn Láru Jónsdóttur garðyrkjufræðings hjá Blómavali eru túlípanarnir af mismunandi stærð, lit og hafa mismunandi blómgunartíma. Hún segir að þar sem vindasamt er velji fólk iág- vaxna túlípana, hávaxna þar sem skjól er mikið og síðan eru valdir saman litir eftir öðrum nálægum gróðri. Þar sem snjóþungt er borg- ar sig að hafa túlípana sem blómstra ekki snemma og svo framveg- is. „Ef fólk er með autt beð sem það ætlar að setja í haustlauka er tilvalið að velja saman lauka sem bytja að blómstra í apríl, aðra sem taka við í maí og kannski þriðju tegundina sem tekur þá við að blómstra og er kannski að því fram í júlí.“ Lára segir að margir punti síðan með smálaukum svo sem maí- stjörnu, vorboða, perlulilju, postul- ínslilju eða garðhýasintu. Ekki vandfýsnir ájarðveg „Það ætti ekki að vaxa fólki í augum að setja niður haustlauka. Þeir eru ekki vandfysnir á jarðveg og ef hann er þéttur er hægt að létta hann með sandi. Hvað snertir áburðargjöf borgar sig að strá honum yfir laukbeðið eftir að búið er að planta laukunum. Fram að frosti eru laukarnir að ræta sig og setja sig í stellingar fyrir þann tíma þegar dag tekur að lengja á ný.“ Lára tekur samt fram að ekki sé gott að setja niður lauka þar sem leki af þakskeggi í allan vet- ur. Auk sígildra beða henta haust- laukar vel í steinbeð og runnabeð. - En hversu langt á að setja laukana niður í moldina? „Þumalfíngursreglan er sú að setja þijár laukhæðir af mold ofan á þá. Því stærri sem þeir eru því dýpra þurfa þeir að fara. Smálauk- ar fara í 8-10 sentimetra dýpt, meðal- stórir þurfa að fara 12-15 sentimetra niður í mold- ina og það þarf að grafa stóra lauka 15-20 senti- metra djúpt í jörðu. Besta raun hefur gefið að setja nokkra lauka saman ofan í holuna sem grafin er.“ Jóla- laukarnir Ef fólk er með góða kæli- geymslu er tilvalið að setja niður jólalaukana núna. Lára segir að hentugur staður geti t.d. verið óupphitaður bílskúr, háaloft, gam- all ísskápur eða búr sem er við útvegg og er óupphitað. Laukamir eru hafðir í 8-10 vikur þar sem er svalt og dimmt og vökvaðir viku- eða hálfsmánaðarlega. Að því búnu eru þeir settir í góða birtu. Og um jólin ættu þeir að skarta sínu feg- ursta. FYRIR um það bil tveimur og hálfu ári hóf Bónus að selja matvörur merktar versluninni sérstaklega og eru vöruliðirnir nú orðnir 160 tals- ins. Hagkaup reið svo nýlega á vaðið og hóf að bjóða viðskiptavin- um sínum upp á matvöru í gulum pakkningum sérmerkta Hagkaupi. Fyrirmyndin kemur að utan en víða í stórmörkuðum erlendis hefur það tíðkast lengi að bjóða viðskiptavin- um upp á vörur sem þessar. Svokall- aðar Tesco vörur sem 10-11 búðirn- ar hófu að flytja inn í fyrra eru dæmi um það en það eru breskar vömr sem seldar eru í stórmörkuð- um Tesco. Fyrirmyndin kanadísk „Hugmyndin er fengin að utan og við hjá Hagkaupi förum að kana- dískri fyrirmynd. Meginmálið er að þetta er vara sem á að vera ódýrust í þeim flokki sem um er að ræða en hún á að sama skapi að vera frambærileg að gæðum,“ segir Ósk- ar Magnússon forstjóri Hagkaups. „Pakkningarnar eru ekki endilega stærri en venjulega en það er oft tilfellið og þær eru einfaldar og lít- ið í þær lagt. Við eyðum semsagt engu í auglýsingar og hönnunar- kostnaður er nánast enginn." - Lesandi hafði samband og var með áhyggjur af því að börn kynnu að rugla saman þvottaefni og morg- unkorni þar sem pakkningarnar eru allar eins og með merki Hagkaups á? - „Við ætlum ekki að ganga svo langt í uppeldishlutverkinu að hafa áhyggjur af því hvort börn fari að ruglast á pakkningunum,“ segir Óskar. „Þar að auki eru pakkning- arnar með þvottaefni mjög ólíkar þeim sem innihalda morgunkorn svo ekki sé talað um bragðmun- inn.“ Á að merkja vörurnar framleiðanda? Fæstar matvörutegundimar sem til sölu eru hjá Hagkaup og Bónus eru merktar framleiðanda en hjá Hagkaup stendur til að bæta úr því og láta nafn framleiðanda líka koma fram. Hjá Bónus á hinsvegar ekki að gera breytingu á því og Jón Ásgeir Jóhannesson hjá Bónus seg- ir að ástæðan sé sú að með þessu móti fái verslunin færi á að skipta um framleiðendur ef aðrir bjóða betri gæði eða hagstæðara verð án þess að skipta um umbúðir. Hann segir að í strikamerkingunum komi fram nafn framleiðanda og ef varan uppfyllir ekki kröfur viðskiptavina tekur skamman tíma að fínna út nafn framleiðanda. 5-6% af heildarveltu Jón Ásgeir segir að veltan á sér- merktum vörum nemi kannski 5-6% af heildarveltu fyrirtækisins og Óskar tekur í sama streng en bæt- ir við að þó sé ekki komin mikil reynsla á það. Jón Ásgeir á ekki von á að þessar tölur taki breyting- um þó bætist við vöruliðir en hann segir ekki ólíklegt að sérmerktir vöruliðir Bónus verði um 200 þegar upp er staðið. Hjá Hagkaup eru vöruliðirnir 120 og að sögn Oskars Magnússonar forstjóra Hagkaups fer þeim fjölgandi. Flestir vörulið- irnir hjá Hagkaupi og Bónus eru framleiddir á íslandi. Jón Ásgeir segir að yfirleitt sé það dýrari kost- ur að biðja framleiðendur erlendis um að sérmerkja vöru en að kaupa hana merkta framleiðanda sökum þess hve lítið er pantað í einu. „Við erum svo lítið land og getum ekki pantað á við aðra stórmarkaði er- lendis þannig að í 95% tilfella er þetta íslensk vara sem við hjá Bón- us erum að bjóða með þessum hætti. Óskar tekur í sama streng og segir að varan sé í yfir 90% tilvika ís- lensk framleiðsla. Þegar þeir eru spurðir hvaða sér- merktu vöruflokkar seljist best eru þeir sammála um það það sé gos, ávaxtasafar og unnin kjötvara. Nýtt Morgunblaðið/Ásdís Avaxta- hristingur EMMESSÍS hefur sett á markað tvær nýjar bragðtegundir af hrist- ingi, karamellu-, og ávaxtahristing. Hægt er að borða hann með skeið beint úr frysti eða þíða hann og drekka á hefðbundinn hátt með röri. Ungliðahreyfing Rauða krossins 1.200 leðurflíkur í Kolaportinu Sjálfsafgreiðslu- afsláttur Nýttu þér 2 kr. sjálfsafgreiðsluafslátt af hverjum bensínlítra á eftirtöldum þjónustustöðvum Olís. m Sæbraut við Kleppsveg • Mjódd í Breiðholti + 2 kr* • Gullinbrú í Grafarvogi • Klöpp við Skúlagötu • Háaleitisbraut • Ánanaustum • Hamraborg, Kópavogi • Langitangi, Mosfellsbæ • Reykjanesbraut, Garðabæ • Vesturgötu, Hafnarfirði • Suðurgötu, Akranesi *Viðbótarafsláttur vegna framkvæmda. 0lÍ5 léttir þér lífið UNGLIÐAHREYFING Rauða krossins ætlar að selja um 1.200 notaðar leðurflíkur í Kolaportinu um helgina. Um er að ræða allskonar flíkur eins og buxur, vesti, kápur, jakka, húfur, pils og kjóla. Fatnaðurinn kemur frá móttökustöð Rauða krossins á Akranesi en leður-, og skinnfatnaður er ekki sendur til útlanda þegar verið er að útbúa sendingar til bág- staddra. Ástæðan fyrir því er trúarlegs eðlis, þ.e.a.s. dýr eins og kýrin er heilög í mörg- um löndum sem Rauði kross- inn sendir fatnað til. Leður- fatnaður hefur því verið tek- inn frá og Ungmennahreyf- ingin tekið að sér að selja hann í Kolaportinu. Ágóðinn af sölu fatnaðarins rennur síðan til starfsemi Ung- mennahreyfingarinnar en hver flík verður seld á 500 krónur. Kolaportið er sem- sagt opið þrátt fyrir risaeðlu- sýninguna sem stendur yfir og er opið bæði á laugardag og sunnudag frá 11-17. Morgunblaðið/Kristinn Nýtt Hörkulurkur, 7-9-13 og jarð- arberjatoppur KOMINN er á markað ísklakinn Hörkulurkur en hann er með lime- bragði og súkkulaðihjúp á endanum og það er Emmessís sem framleiðir hann. Þá er einnig kominn í verslan- ir nýr ístoppur frá Emmessís en hann nefnist Jarðarbeijatoppur. Að síðustu er það íspinninn 7-9-13 sem nú er farið að framleiða. Það er vanilluís með ananashjúp. ------» ♦ ♦----- Heilsufóður fyrir ketti FYRIRTÆKIÐ Goggar og trýni er farið að flytja inn heilsufóður fyrir kettlinga og fullorðnar kisur. í umræddu heilsufóðri sem heitir Elite for cats er að finna mörg efni ■ sem talin eru nauðsynleg fyrir vöxt og þroska katta. Fóðrið er framleitt úr kjúklingum, fiski, eggjum og hrísgijónahveiti og sett í það nauð- synleg bætiefni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.