Morgunblaðið - 21.09.1996, Blaðsíða 42
42 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUIM
Guðspjall dagsins:
Sonur ekkjunnar
__________í Nain,__________
(Lúk. 7.)
ÁSKIRKJA: Barna- og fjölskyldu-
guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur
Sigurbjörnsson.
BÚSTAÐAKIRKJA: Barnamessa kl.
11. Foreldrar hvattir til þátttöku
með börnunum. Guðsþjónusta kl.
14. Organisti Guðni Þ. Guðmunds-
son. Pálmi Matthíasson.
DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11.
Prestur sr. Hjalti Guðmundsson.
Dómkórinn syngur. Organleikari
Marteinn H. Friðriksson. Barna-
samkoma kl. 13 í kirkjunni og í
Vesturbæjarskóla. Jakob Á. Hjálm-
arsson.
ELLIHEIMILIÐ GRUND: Guðsþjón-
usta kl. 10. Prestur sr. Gylfi Jóns-
son. Organisti jartan Ólafsson.
GRENSÁSKIRKJA: Sunnudaga-
skólinn hefst í dag kl. 11 með fjöl-
skyldumessu. Barnakór Grensás-
kirkju syngur. Messa kl. 14. Altar-
isganga. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal. Organisti Árni Arinbjarn-
arson.
HALLGRÍMSKIRKJA: Barnastarf
og messa kl. 11. Guðmunda Inga
Gunnarsdóttir cand.theol. prédikar.
Ragnar Fjalar Lárusson.
LANDSPÍTALINN: Messa kl. 10.
' * Jón Bjarman.
HÁTEIGSKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Börnin fá afhenta
möppu og poka í upphafi vetrar-
starfsins. Sr. Helga Soffía Konráðs-
dóttir. Messa kl. 14. Organisti Vio-
leta Smid. Helga Soffía Konráðs-
dóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guð-
brands biskups. Messa kl. 11.
Prestur sr. Flóki Kristinsson. Org-
anisti Jón Stefánsson. Kór Lang-
holtskirkju (hópur IV) syngur. Kaffi-
sopi eftir messu.
LAUGARNESKIRKJA: Barnastarf
kirkjunnar hefst með guðsþjónustu
kl. 11. Félagar úr Kór Laugarnes-
kirkju syngja. Organisti Gunnar
Gunnarsson. Guðsþjónusta kl. 14.
Drengjakór Laugarneskirkju syngur
undir stjórn Friðriks S. Kristinsson-
ar. Kirkjukaffi að lokinni guðsþjón-
ustu. Bpðið upp á akstur til og frá
kirkju. Ólafur Jóhannsson.
NESKIRKJA: Barnastarf vetrarins
hefst í kirkjunni kl. 11. Opið hús frá
kl. 10. Munið kirkjubílinn. Sr. Frank
M. Halldórsson. Nýjung: Barnastarf
hefst í félagsmiðstöðinni Frosta-
skjóli (við KR-heimilið) kl. 11. Húsið
opnar kl. 10.30. Sr. Halldór Reynis-
4+. son. Guðsþjónusta kl. 14. Ath.
breyttan tíma. Organisti Reynir Jón-
asson. Prestur sr. Halldór Reynis-
son.
SELTJARNARNESKIRKJA: Messa
kl. 11. Prestur sr. Solvelg Lára
Guðmundsdóttir. Organisti Violeta
Smid. Upphaf barnastarfsins, sem
í vetur verður í umsjá Hildar Sigurð-
ardóttur, Erlu Karlsdóttur og Bene-
dikts Hermannssonar.
ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN: Guðs-
þjónusta kl. 14. Barnastarf á sama
tíma. Kaffi eftir messu.
ÁRBÆJARKIRKJA: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11. Fyrsta samkoma barn-
anna eftir sumarhlé. Nýtt og áhuga-
Fríkirkjusöfnuðurinn
í Reykjavík
Barnaguðsþjónusta
kl. 11.15
Guðsþjónusta
kl. 14.00.
Samverustundir
í Safnaðarheimiiinu
að guðþjónustunum
ioknum. í
vert fræðsluefni. Foreldrar, afar og
ömmur boðin velkomin með börn-
unum. Guðsþjónusta kl. 14. Ath.
breyttan messutíma. Guðrún Edda
Gunnarsdóttir syngur stólvers.
Organleikari Sigrún Steingríms-
dóttir. Vænst er þátttöku væntan-
legra fermingarbarna og foreldra
þeirra í guðsþjónustunni. Stuttur
fundur með foreldrunum eftir guðs-
þjónustuna. Prestarnir.
BREIÐHOLTSKIRKJA: Barnaguðs-
þjónusta kl. 11. Guðsþjónusta á
sama tíma. Prédikunarefni: „Þú
skalt ekki aðra guði hafa“. Sam-
koma Ungs fólks með hlutverk kl.
20. Gísli Jónasson. •
DIGRANESKIRKJA: Messa kl. 11.
Altarisganga. Barnaguðsþjónusta á
sama tíma. Organisti Sigríður Sól-
veig Einarsdóttir. Sóknarprestur.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: Guðs-
þjónusta kl. 11. Prestur sr. Guð-
mundur Karl Ágústsson. Organisti
Lenka Mátéová. Barnaguðsþjón-
usta á sama tíma. Barnastarfið
hefst. Umsjón Ragnar Schram.
Prestarnir.
GRAFARVOGSKIRKJA: Barna-
guðsþjónusta kl. 11 í kirkjunni og
kl. 12.30 í Rimaskóla í umsjón Hjart-
ar, Rúnu, Jóhanns og Ólafs. Guðs-
þjónusta kl. 14. Organisti Hrönn
Helgadóttir. Prestarnir.
HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl.
11. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson
héraðsprestur þjónar. Barnaguðs-
þjónusta kl. 13 í umsjá írisar Kristj-
ánsdóttur. Organisti Oddný J. Þor-
steinsdóttir. Kristján Einar Þorvarð-
arson.
KÓPAVOGSKIRKJA: Barnastarf í
safnaðarheimilinu Borgum kl. 11.
Guðsþjónusta fellur niður vegna
framkvæmda í kirkjunni. Ægir Fr.
Sigurgeirsson.
SELJAKIRKJA: Barnaguðsþjónusta
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14. Sr.
Valgeir Ástráðsson prédikar. Org-
anisti Ólafur Finnsson. Sókn-
arprestur.
FRÍKIRKJAN, Rvík: Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.15. Guðsþjónusta kl. 14.
Samverustundir í safnaðarheimilinu
að guðsþjónustunum loknum. Org-
anisti Pavel Smid. Cecil Haralds-
son.
KRISTSKIRKJA, Landakoti: Laug-
ardagur: Messa kl. 8. Sunnudagur:
Hámessa kl. 10.30, messa kl. 14,
messa á ensku kl. 20. Mánudaga
til föstudaga: messur kl. 8 og kl. 18.
KFUM og KFUK, v/Holtaveg: Sam-
koma á morgun kl. 17. Barna- og
unglingasamverur á sama tíma.
Ræðumaður Ragnar Gunnarsson.
Fyrirbæn í lok samverunnar.
MARÍUKIRKJA, Breiðholti: Messa
kl. 11 á sunnudögum.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Filadelfía:
Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður
Hinrik Þorsteinsson. Almenn sam-
koma kl. 16.30. Ræðumaður Hafliði
Kristinsson. Allir hjartanlega vel-
komnir. Ath. breyttan samkomu-
tíma.
MESSÍAS-FRÍKIRKJA: Rauðarár-
stíg 26, Reykjavík. Guðsþjónusta
sunnudag kl. 20 og fimmtudag kl.
20. Altarisganga öll sunnudags-
kvöld. Prestur sr. Guðmundur Órn
Ragnarsson.
ORÐ LÍFSINS: Grensásvegi 8. Al-
menn samkoma kl. 11. Ræðumaður
Ásmundur Magnússon. Fyrirbæna-
þjónusta/bænaklútar. Allir hjartan-
lega velkomnir.
FÆREYSKA SJOMANNAHEIM-
ILIÐ: Samkoma á morgun kl. 17.
LÁGAFELLSKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Sigurður Ragnarsson,
guðfræðinemi prédikar. Kirkjukór
Lágafellssóknar. Organisti Guð-
mundur Ómar Óskarsson. Jón Þor-
steinsson.
VÍDALÍNSKIRJA: Guðsþjónusta kl.
11. Séra Bjarni Þór Bjarnason
messar. Bragi Friðriksson.
BESSASTAÐAKIRKJA: Guðsþjón-
usta kl. 14. Séra Bjarni Þór Bjarna-
son, prédikar. Vænst er þátttöku
fermingarbarna og foreldra þeirra.
Bragi Friðriksson.
VÍÐISTAÐAKIRKJA: Barnamessa
kl. 11. Guðsþjónusta kl. 14 Sigurður
Skagfjörð Steingrímsson syngur.
Sigurður Helgi Guðmundsson.
ÍDAG
Með morgunkaffinu
MATURINN er alveg óætur. Við hefðum
alveg eins getað borðað heima.
Farsi
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Gott krem
MIG LANGAR að taka
undir með Evu Davíðs-
dóttur sem skrifaði um
gott krem í Velvakanda
fyrir nokkru. Eg er búin
að vera með psoriasis í
13 ár og aldrei náð nein-
um bata. Síðan fór ég
að prófa þetta krem, SD
sjávar- og jurtasmyrsl
og ég er alveg að verða
blettalaus. Ég vil benda
öðrum psoriasissjúkling-
um á þetta krem og vona
að það reynist þeim jafn-
vel og mér.
Brynhildur
Bjarnadóttir
Útvarpsmaður
hættir
ATLI Steinarsson hefur
verið með sérstaklega
skemmtilega fréttapistla
í útvarpi frá Ameríku.
Hann segir mjög
skemmtilega frá, en
virðist vera hættur og
Sigríður Amardóttir
komin í staðinn. Mér
finnst þetta slæm skipti.
Er hann alveg hættur
eða hvað? ^
Valgeir
Gæludýr
Köttur
í óskilum
Gulbröndóttur) fress-
kettlingur, mjög gæfur
og greiniiega heimilis-
köttur, u.þ.b. fjögurra til
sex mánaða er í óskilum
í Funafuld 56. Eigandi
má hafa samband í síma
567-6569 eða hafa sam-
band við Kattholt í síma
567-2909.
BRIDS
Umsjón Guðmundur Páll
Arnarson
UNDANÚRSLIT og úrslit
bikarkeppninnar verða spil-
uð nú um helgina í Þöngla^
bakka 1, húsnæði BSI. í
dag eigast við sveitir
Landsbréfa og Búlka ann-
ars vegar, og hins vegar
sveitir Samvinnuferða og
Sparisjóðs Þingeyinga. Sig-
ursveitirnar spila síðan úr-
slitaleik á morgun. Sýnt
verður frá leikjunum, bæði
í dag og á morgun. Lítum
á athyglisvert varnarspil
frá úrslitaleik bikarsins i
fyrra, sem var á milli sveita
-t-Film og VÍB.
Austur gefur; AV á
hættu.
Norður
♦ DG
▼ D4
♦ ÁKDG
♦ ÁDG74
Vestur Austur
♦ 98 ♦ Á64
Y Á32 IIIIH V K9765
♦ 98764 111111 ♦ 105
♦ 1083 ♦ K96
Suður
♦ K107532
V G108
♦ 32
♦ 52
Sagnir gengu eins á báð-
um borðum:
Vestur Norður Austur Pass Suður 2 spaðar
Pass Pass 2grönd 4 spaðar Pass Allir pass 3 spaðar
Útspil: Tígulnía.
Báðir sagnhafar spilaðu
spaðadrottningu í öðrum
slag, sem austur dúkkaði.
Nú felst vinningsleiðin í því
að spila tígli og þvinga aust-
ur til að trompa með smát-
rompi. Síðan er hægt að
henda laufhundi niður í tíg-
ulhámann. En hvorugum
sagnhafa leist á þessa leið,
enda bjuggust þeir allt eins
við að útspil vesturs væri
frá tvílit. Þeir spiluðu því
meiri spaða.
Á öðru borðinu drap
austur á spaðaás og skipti
yfír í lítið hjarta. Vestur
drap og spilaði tígli í þeirri
von að austur gæti tromp-
að. Svo var ekki og spilið
vannst, því sagnhafi hafði
nú tíma til að henda laufi
niður í háan tígul.
Hinum megin skipti aust-
ur yfir í hjartakóng eftir
að hafa tekið á spaðaásinn.
Hann fékk kall og spilaði
þá hjartafimmu næst. Vest-
ur drap á ásinn og skipti
yfír í lauf, enda túlkaði
hann hjartafimmuna sem
kall í þeim lit. Með einspil
í tígli hefði austri verið í
lófa lagið að spiia hærra
hjarta. Spilið fór því einn
niður.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI varð nýlega í fyrsta
— og vonandi eina — sinn
fyrir þeirri óskemmtilegu reynslu
að missa af flugvél í millilanda-
flugi. Víkveiji vaknaði í rúmi sínu
fimmtán mínútum áður en Kaup-
mannahafnarvélin átti að taka sig
á loft frá Keflavíkurflugvelli og
upplifði nokkrar mínútur í full-
kominni ringulreið, þar sem hann
hljóp um heimili sitt eins og haus-
laus hæna og gat ekki ákveðið á
hveiju hann ætti að byrja; klæða
sig í sokkana, hringja á leigubíl
og reyna að ná vélinni eða hringja
til Keflavíkur og biðja 180 farþega
og áhöfn um að bíða eftir sér.
Allt fór þetta þó betur en á horfð-
ist, einkum fyrir einstök liðlegheit
starfsfólks Flugleiða, sem bókaði
Víkveija í flug morguninn eftir,
þótt strangt til tekið ætti hann
ekki rétt á að breyta miðanum
sínum.
xxx
ASTÆÐA þess að Víkveiji svaf
yfir sig var að hann vaknaði
ekki við hringingu þá frá land-
símanum, sem hann hafði pantað
kvöldið áður. I sjálfsásökun sinni
og angist fyrstu klukkustundirnar
eftir að Víkverji missti af vélinni,
var hann sannfærður um að hann
hefði einfaldlega sofíð hringing-
una af sér. Þegar á líður fer Vík-
veija þó að þykja ósennilegra að
enginn heimilismanna skuli hafa
rumskað, hafi síminn á annað borð
hringt, en símtækið, sem er forn
gripur og hávær, stóð á ganginum
framan við svefnherbergisdyr Vík-
veija. Þegar skrifari fór að segja
vinum og kunningjum frá þessari
reynslu sinni, kom í ljós að fleiri
höfðu sömu sögu að segja. Bæði
rútubílstjóri og flugfreyja, sem
starfs síns vegna höfðu reglulega
pantað vakningarhringingu frá
Pósti og síma, höfðu orðið fyrir
því að síminn hringdi einfaldlega
ekki á tilsettum tíma. Víkverji
hafði alltaf haldið að vakningar-
þjónusta P&S væri algerlega skot-
held. Getur verið að henni sé ekki
að treysta?
VINKONA Víkveija hefur, eins
og gengur, stundum þurft að
leita læknis vegna einhverra smá-
kvilla eða venjubundinna rann-
sókna. Þetta er upptekin athafna-
kona og til þess að vera ekki
klukkustundum saman frá vinnu í
hvert sinn, sem hún þarf að mæta
hjá lækni, hefur hún undanfarið
haft þann háttinn á að panta fyrsta
tíma að morgni, til þess að komast
hjá bið vegna þess að viðtöl við
aðra sjúklinga dragist hugsanlega
á langinn. Að sögn konunnar heyr-
ir hins vegar til undantekninga ef
hún er komin inn á stofu læknisins
á tilsettum tíma. Oft sé hún látin
bíða í hálftíma og stundum allt að
klukkustund. Vinkonunni finnst að
læknar hafi fáum afsökunum á að
skipa þegar um fyrsta viðtal dags-
ins er að ræða, og með þessu sýni
læknar tíma annarra virðingarleysi.
Víkverja finnst þetta sama eiga við
um fleiri starfsstéttir, sem ástunda
það að mæla sér mót við viðskipta-
vinina á ákveðnum tíma, en sóa
síðan fyrir þeim tíma og stundum
peningum með því að mæta seint.