Morgunblaðið - 21.09.1996, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Jón Baldvin Hannibalsson
um endurkjör Meris
Stórpólitísku
slysi afstýrt
JÓN Baldvin Hannibalsson, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, segir
að endurkjör Lennarts Meris í
embætti forseta Eistlands hafi
afstýrt stórpólitísku slysi.
„Eg fer ekki leynt með þær til-
fmningar að mér létti mikið; ég
segi guði sé lof vegna þess að ég
tel að það hefði orðið stórpólitískt
slys fyrir Eista og Eystrasaltsþjóð-
irnar allar á þeim örlagatímum,
sem framundan eru, ef þær hefðu
ekki notið forustu og leiðsagnar
Meris, ekki hvað síst varðandi
stórmál eins og inngöngu í Evr-
ópusambandið og Atlantshafs-
bandalagið,“ sagði Jón Baldvin.
Þeim Meri og Jón Baldvin er
vel til vina og þeir áttu mikil sam-
skipti meðan á sjálfstæðisbaráttu
Eystrasaltsþjóðanna stóð en þá
var Meri utanríkisráðherra Eist-
lands.
Leikreglum breytt
Jón Baldvin sagði að á þeim
fjórum árum, sem liðið hefðu síðan
eistneska þjóðin kaus Meri forseta,
hefði honum vaxið ásmegin og
væri ekki einasta áhrifamesti tals-
maður Eystrasaltsþjóðanna á al-
þjóðavettvangi heldur hefðu vin-
sældir hans og virðing farið vax-
andi heima fyrir eins og skoðana-
kannanir hefðu sýnt.
„Það er enginn vafi á því í mín-
um huga, að Meri hefði nú verið
endurkjörinn afdráttarlaust ef leik-
reglurnar hefðu verið óbreyttar og
hann orðið að leggja verk sín und-
ir dóm þjóðarinnar milliliðalaust.
Hann hefur hins vegar á þessum
tíma lent í pólitískum átökum og
stundum orðið að taka af skarið
og grípa í taumana þannig að hann
hefur bakað sér óvild áhrifamikilla
pólitískra foringja á þinginu. Því
var borin von að hann hefði náð
V.i þingmanna á sitt band.
Kjörhópurinn nú var síðan út-
víkkaður og náði til forkólfa sveit-
arstjórna og ýmissa annarra og
satt að segja hélt ég að það gerði
kosningu hans nánast útilokaða
því í þessum hópi voru fulltrúar
gamla kerfisins svo áhrifamiklir.
En það fór á annan veg þótt naumt
hafí verið,“ sagði Jón Baldvin.
Morgunblaðið/Þorkell
Forsetahiónin á Reykhólum
OPINBER heimsókn Ólafs Ragn-
ars Grímssonar, forseta Islands,
og Guðrúnar Katrínar Þorbergs-
dóttur forsetafrúar til sunnan-
verðra Vestfjarða hófst á Reyk-
hólum í gær.
Á Reykhólaflugvelli tóku Þór-
óifur Halldórsson sýslumaður,
Guðmundur H. Ingólfsson sveitar-
stjóri og hreppsnefnd Reykhóla-
hrepps á móti forsetahjónunum.
Að því loknu var ekið að Þör-
ungaverksmiðjunni í Karlsey og
hún skoðuð. Þá var haldið í hjúkr-
unar- og dvalarheimilið Barma-
hlíð á Reykhólum. Forsetahjónin
komu síðan í Króksfjarðarnes síð-
degis og kynntu sér m.a. fram-
kvæmdir við Gilsfjarðarbrú.
Þjóðskáldi sómi sýndur
Minnisvarði um sr. Matthías
Jochumsson á fæðingarstað hans
á Skógum í Þorskafirði var jafn-
framt sóttur heim. Lagði forset-
inn blómsveig að minnisvarðanum
og hlýddi á hugleiðingu sr. Braga
Benediktssonar á Reykhólum.
Forsetahjónin sátu þá móttöku
fyrir íbúa Reykhólahrepps um
kvöldmatarleytið en seint í gær-
kvöldi tóku forsvarsmenn Vestur-
byggðar á móti forsetahjónunum
í Flókalundi í Vatnsfirði. í dag,
laugardag, verða forsetahjónin
m.a. á Bíldudal og Tálknafirði.
Halldór og
Godal ræða
Smuguna
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra og Bjorn Tore Godal, utan-
ríkisráðherra Norejgs, munu ræða
deiluna um veiðar Islendinga í Bar-
entshafi er þeir hittast á allsheijar-
þingi Sameinuðu þjóðanna í New
York í n'æstu viku.
Halldór Ásgrímsson hélt af stað
til New York frá Ottawa í Kanada
í gær. Hann sagði í samtali við
Morgunblaðið að þeir Godal hefðu
rætt saman fyrir nokkrum dögum
og ákveðið að funda um Smugudeil-
una í New York. „Það er að verða
fastur liður á dagskránni," sagði
Halldór.
Innbrot hjá
frímerkja-
söfnurum
LÖGREGLAN í Reykjavík fékk
tilkynningu um innbrot í hús-
næði Félags íslenskra frí-
merkjasafnara við Síðumúla
um hádegi í gær.
Að sögn lögreglu voru brotn-
ar upp fimm hurðir og höfðu
þjófarnir á brott með sér tölvu,
verðlaunapeninga og tvö hund-
ruð krónur í skiptimynt.
Barn á vakt
við búðahnupl
KONA var staðin að hnupli í
verslun Hagkaups við Kjörgarð
síðdegis á fimmtudag. Áð sögn
lögreglu var hún með næga
fjármuni á sér til að greiða
fyrir varninginn.
Konan hafði stungið á sig
matvörum fyrir nokkur þúsund
krónur þegar til hennar sást
og vakti það athygli lögreglu
að með henni var barn sem
hafði það hlutverk að fylgjast
með mannaferðum meðan hún
var við iðju sína.
Mælt fyrir um aðskilnað Útfararstofu Kirkjugarða og Kirkjugarða Reykjavíkur
Samþættíng hefur skað-
leg áhrif á samkeppnina
SAMKEPPNISRÁÐ telur nauð-
synlegt að alger aðskilnaður eigi
sér stað milli fjárhags Útfararstofu
Kirkjugarðanna og Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæma og að
hin nána samþætting þessara
tveggja stofnana hafí skaðleg áhrif
á samkeppnina á þessum markaði.
Útfararstofa Kirkjugarðanna
ákvað í gær að áfrýja úrskurðinum
til áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála.
Aðskilnaður um næstu áramót
Nauðsynlegt sé að mati ráðsins
að Útfararstofan breyti nafni sínu
til að tengsl við Kirkjugarða séu
ekki sjáanleg og að tengsl milli
þessara aðila í kynningar- og
markaðsstarfi verði rofin.
Samkeppnisráð mælir fyrir að
þessi aðskilnaður fari fram eigi
síður en 1. janúar 1997. Meðal
annars skuli Útfararstofa Kirkju-
garðanna færa árlega til gjalda og
greiða markaðsvexti af stofnfram-
lagi til Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma. Kirkjugarðsstjórn
skuli skipa sérstaka framkvæmda-
stjóm fyrir Útfararstofuna sem
ráði framkvæmdastjóra.
Framkvæmdastjóm skuli ekki
skipuð sömu mönnum og fram-
kvæmdastjórn Kirkjugarðanna og
sami maður skili ekki gegna stöðu
framkvæmdastjóra í þessum
tveimur stofnunum. Kirkjugörðum
sé ekki heimilt að greiða hugsan-
legt rekstrartap Útfararstofunnar
eða leggja fram frekara stofnfram-
lag til fyrirtækisins meðan það er
í samkeppnisrekstri.
Öll viðskipti milli Útfararstofu
Kirkjugarðanna og Kirkjugarða
Reykjavíkurprófastsdæmis skuli
vera eins og um viðskipti milli
óskyldra aðila væri að ræða og á
markaðsverði.
Umfjöllun ráðsins má rekja til
erindis Líkkistuvinnustofu Eyvind-
ar Árnasonar sf. og Útfararþjón-
ustunnar hf. frá því í mars í fyrra,
þar sem því var haldið fram að
áðurnefndar stofnanir uppfylltu
ekki skilyrði um fjárhagslegan að-
skilnað samkvæmt ákvæði laga um
kirkjugarða, greftrun og lík-
brennslu.
Hafa starfað lögum
samkvæmt
í yfirlýsingu frá framkvæmda-
stjóm Útfararstofu Kirkjugarð-
anna, sem send var fjölmiðlum í
gær, kemur fram sú skoðun henn-
ar að fyrirtækið hafi í einu og öllu
starfað í samræmi við samkeppnis-
lög og lög um kirkjugarða frá ár-
inu 1993.
Óyfirvegaður úrskurður
„Það kemur því mjög á óvart að
samkeppnisráð skuli í gær fella
útskurð sem að mati framkvæmda-
stjórnar er óyfirvegaður. í sumum
greinum felst úrskurðurinn ein-
göngu í ábendingum um að haldist
rekstunnn ekki í núverandi horfi,
muni Útfararstofan fara út fyrir
ramma laganna, Yissu fleiri en
þögðu þó, mætti segja um þessi
varnaðarorð samkeppnisráðs,
segir í yfirlýsingu framkvæmda-
stjórnar.
Router
Stofnfundur
Norður-
skautsráðs
FULLTRÚAR allra aðildarríkja
hins nýstofnaða Norðurskauts-
ráðs Iýstu yfir sterkum viija til
að efla samstarf heimskautsríkj-
anna á stofnfundi ráðsins í
Ottawa í Kanada í fyrradag. Að
sögn Halldórs Ásgrímssonar ut-
anríkisráðherra lýstu öll ríkin
yfir eindregnum stuðningi við
markmið samstarfsins, þar á
meðal Bandaríkin. Á myndinni
sjást fulltrúar aðildarríkja Norð-
urskautsráðsins og samtaka
frumbyggja á blaðamannafundi
eftir undirritun stofnyfirlýsingar
ráðsins.