Morgunblaðið - 21.09.1996, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.09.1996, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 29 AÐSEIMDAR GREINAR • • Onug'heit Arthurs Morthens ARTHUR Morthens, sem er nýhætt- ur sem stjórnarformaður SVR, skrif- ar grein í Morgunblaðið á miðviku- daginn. Þar svarar hann ekki gagn- rýni minni á vinnubrögð meirihluta stjórnar en leggur þeim mun meiri áherslu á fúkyrði í minn garð og virðist sem hann vilji ekki að íjallað sé á málefnalegan hátt um stjórn hans á SVR. Það er á vissan hátt skiljanlegt eða a.m.k. mannlegt að Arthur skuii vilja halda umræðu um stjórn fyrirtækisins, eins og hún hefur verið undanfarnar vikur, í lágmarki. Hins vegar verður hann að beygja sig fyrir þeirri staðreynd að fyrirtækið er í eigu borgarbúa og þeir eiga rétt á því að vita ef það verður fyrir skakka- föllurn eða ef óvissa ríkir um stjóm þess. í grein minni sl. laugardag var því lýst, án gífuryrða, hvaða áhrif óvissan um stjórn fyrirtækisins hefði og R-listinn hvattur til að höggva á hnútinn hið fyrsta. Stjórnarformaðurinn heldur því fram að undirritaður skrifi gegn betri vitund um þær tímasetningar, sem nefndar voru um afsögn hans. Oþarfi er að þreyta lesendur á því að rifja upp ummæli, sem féllu um þetta mál í sumar en væri það rétt, sem Art- hur heldur fram í greininni hefur hann heldur betur talað betri vitund sína í kaf á síðustu tveimur síðustu stjórnarfundum, 26. ágúst og 9. sept- ember. Á fyrri fundinum sagði hann að fundurinn 9. sept. yrði sinn síð- asti. Á fundinum 9. sept skipti hann um skoðun og sagði að hann myndi kveðja stjórnina á næsta fundi en þá þegar var ljóst að sá fundur yrði ekki fyrr en að aflo- knu sumarleyft borgar- stjórnar, en því lauk sl. fimmtudag. Af þessu sést að í síðustu viku ríkti óvissa um fram- vindu málsins þótt Art- hur segi annað. Nýr slj órnarf ormaður Atburðarásin var hins vegar sú að fund- urinn 9. september var hinn síðasti, sem Arthur sat því að á borgarstjórn- arfundi á fimmtudag gerðust þau tíðindi að SVR fékk nýjan stjórnar- formann, Árna Þór Sigurðsson, borg- arfulltrúa R-listans og Alþýðubanda- lagsins. í grein Arthurs lýsir hann yfír miklum skilningi á því að undirrit- aður sé spenntur yfir því hver taki við stjórnarformennsku í fyrirtækinu og heídur því fram að sú óvissa hafi ekki haft nein áhrif á starfsemi fyrir- tækisins. Ef slíkir hlutir sköpuðu óbærilega spennu í mínu lífi væri ég örugglega orðinn spennufíkill en til fróðleiks má geta þess að R-listinn stjórnar ekki af meiri festu en svo að hann hefur nú þegar skipt um formenn í þremur af þeim fjórum nefndum, sem undirrit- aður situr í á vegum Rey kj avíkurborgar þrátt fyrir að kjörtíma- bilið sé aðeins hálfnað. Ég hafði ekkert að at- huga við formanns- skipti í hinum tveimur nefndunum enda höfðu þau ekki mikla áhrif á starfsemi þeirra og voru því alfarið mál R-list- ans. Öðru máli gegnir hins vegar um for- mannsskiptin í SVR þar sem engum vafa er undirorpið að þau hafa skapað óvissu í fyrirtækinu. Þess hef ég orðið var í fjölmörgum samtölum við starfsmenn þess, þ.á.m. yfirmenn. Það er athyglisvert að í grein Art- hurs er mestu púðri eytt í ýmis auka- atriði, sem í raun koma gagnrýni minni á stjórn hans ekki við. T.d. gerir hann mikið úr því að undirritað- ur hafi ekki kvartað yfir slælegum undirbúningi mála fyrir stjórnarfund. Það er rétt enda var ekki kvartað yfir því í grein minni. Gagnrýni mín beindist að því að óvissan um stjórn- ina gerði það að verkum að meiri- hluti hennar legði ekki fram neinar tillögur til úrlausnar þegar full Kjai-tan Magnússon ÍSLENSKT MÁL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 867. þáttur ASA-ÞOR og lagsmaður hans fóru að leita ketils (lögvellis) sem væri svo stór, að heitt yrði í honum öl handa öllum ásum. Þeir Þór komu á heimili Hymis jötuns, en hann átti stóra katla. Frilla Hymis var komumönnum ráðhollari en jötunninn, fríi henn- ar. Þegar Hymir kom heim af veiðum, sátu þeir í skjóli við súlu. „Sjáðu hvar sitja und salar gafli, svo forða sér, stendur súl fyrir," segir frilla við Hymi, en: Sundur stökk súla fyr sjón jötuns, en áður í tvö ás brotnaði. Máttugt var augnaráð Hymis, er hann braut bæði ásinn og súluna. í þessari gömlu vísu úr Hym- iskviðu notar höfundur til skipt- is orðmyndirnar súl og súla um sama fyrirbæri. Uppruni orðanna er ekki alveg ljós, en samsvar- andi orð eru í öðrum germönsk- um málum, t.d. sauls í gotnesku (súl-saul 2. hljóðskiptaröð, sbr. lúta-laut). Líklega hefur sýling verið í enda súlunnar í öndverðu. Til er ofurlítið torrætt orðtak: að setja sök við (fyrir) súlu. Merking er breytileg: ákveða, vera ákveðinn; banna, hindra. Sögnin að setja (orsakarsögn af sitja = láta eitthvað sitja) getur haft merkinguna að lægja eða stilla. Johan Fritzner þýðir á dönsku: „dæmpe, stille noget, standse noget“. Hann tekur dæmi úr Fornmannasögum, en þar segir að „ófriður settist í Svíþjóð", þegar friður komst á. í Gulaþingslögum segir einnig: „nú megu þeir setja þá sök þar, ef þeir kunnu lög...“ Þeir gátu sem sagt sett niður deiluna. Gaman er að sjá hina fornu beyg- ingu núþálegu sagnanna. Þátíða- rending í nútíðinni: þeir megu, þeir kunnu. I doktorsritgerð sinni um ís- lensk orðtök skýrir Halldór Hall- dórsson orðtakið að setja sök við súlu. Með vitnun í nokkra staði í varðveittum heimildum sýnir hann áðurnefnd merking- arafbrigði: banna, hindra, ákveða. En hann telur óljóst við hvers konar súlu eða súl það var gert og hvílík sú athöfn hefur verið, er menn settu sakir við súlur. En nú hefur umsjónarmaður sett sök við súlu að hætta að fjalla um þetta efni. ★ Bernharð Haraldsson skóla- meistari sendir mér nokkrar at- hugasemdir sem ég reyni að fjalla um í stuttu máli innan hornklofa: 1. Spilakassar lokka til sín börn og reyndar fullorðna líka. Á einum slíkum er þessi leiðbein- ing: „Móttekur aðeins 50 og 100 ki'ónu peninga". Verður ekki að telja þetta vafasamt málfar? [Jú, þetta er danska. Á máli okkar: tekur (eða tekur við).] 2. í riti einu, skrifuðu af yfir- lækni nokkrum er fjallað um ýmsar tegundir fælni. Einn kaflinn ber þessa yfirskrift: „Aðrar fælnir“. Er fælni til í fleirtölu og hvað þá um t.d. elli og æsku? [Þessi orð eru svo óhlutstæð, að þau fara afar illa í fleirtölu.] 3. í Morgunblaðinu í dag, 29. ágúst, er grein um keppni í akst- ursíþróttum. Fyrirsögnin er: „Sögufrægir bílar keppa hér- lendis". Keppa bílar eða er keppt á bílum? í viðtali í greininni seg- ir síðan orðrétt: „Rallakstur er stór iðngrein erlendis...“ Er hægt að nota orðið iðngrein í þessu sambandi? [Já, bílar geta keppt, alveg eins og skipin sigla og bátarnir afla vel. En rallakst- ur er væntanlega fremur íþrótta- grein en iðngrein.] 4. Verslanir, einkum þær er selja ungu fólki vörur, eru oft nefndar erlendum nöfnum. Það finnst mér óviðeigandi. Þó kast- aði tólfunum er verslun með er- lenda nafninu „Redgreen“ var komin á Laugaveginn þar sem áður var fornbókaverslun, sem hét einfaldlega Bókin og Snær og Gunnar seldu margan kjör- gripinn. [Að sjálfsögðu eiga ís- lensk fyrirtæki að bera íslensk nöfn, engan undanslátt þar.] 5. Nýtt leiðakerfi SVR gekk í gildi fyrir skömmu. Alloft hef ég heyrt orðið „tímatafla“ yfir nýjar áætlanir strætisvagnanna. Er þetta ekki komið úr ensku? [Jú, jú, en áætlun dugir.] 6. Sveitarfélög tóku við rekstri grunnskólanna fyrir skemmstu. Sí og æ er klifað á, að sveitarfélögin hafi tekið yfir reksturinn. Er ekki enskan enn á ferðinni? [Jú, umsjónarmaður hefur margsinnis andæft þessu, og er þess ærin þörf enn.] Hafi svo B.H. enn kærar þakk- ir fyrir sendingarnar. ★ Þjóstólfur þaðan kvað: Ásmundur allsherjarbófi aldrei neinn glæp drýgði í hófi; engin tvöfeldni þar, því að týpan var: al-gegnheill allsherjarbófí. Og enn var kveðið: Tóm vitleysa að freistast í framakró, það fer öllum best þessi sama ró; þegar Rögnvaldur fer, kemur röðin að mér á eftir Amfinni og Birki í Amaró. (Sigfinnur í Sundi.) ATH. í síðasta þætti örlaði á rangri skiptingu milli lína. Beðist er velvirðingar á því, og einnig því að fyrirsögn féll framan af þættinum. Til fróðleiks má geta þess, segir Rjartan Magnússon, að R-list- inn stjórnar ekki af meiri festu en svo að hann hefur nú þegar skipt um formenn í þremur af þeim fjórum nefndum, sem undirrit- aður situr í á vegum Reykj avíkurborgar þrátt fyrir að kjörtíma- bilið sé aðeins hálfnað. ástæða væri til þess að til úrræða yrði gripið. Það segir meira en mörg orð að á stjórnarfundinum 9. september höfðu fulltrúar R-listans af fyrra bragði engar tillögur fram að færa, hvorki um úttekt á leiðakerfinu né fund með vagnstjórum. Það var ekki fyrr en fulltrúar sjálfstæðismanna höfðu bent á að það væri hlutverk stjórnar að reyna að höggva á þann hnút, sem hafði myndast í fyrirtækinu, og lagt fram tillögur þar að lútandi, að full- trúar R-listans tóku við sér. Fundir með starfsmönnum Við lestur greinar Arthurs kemur manni ósjálfrátt í hug goðsagnaper- sónan íkarus, sem hóf sig til flugs skreyttur mörgum flöðrum en eftir því sem hann flaug hærra fækkaði fjöðrunum og hann missti flugið. Árthuri fatast flugið í greininni er hann grípur til vafasamra fullyrð- inga, sem koma_ óvissunni innan stjórnar ekki við. í einhverri örvænt- ingu hallar hann réttu máli er hann segir að stjórn SVR hafi haldið fjóra fundi með starfsmönnum á kjörtíma- bilinu. Hið rétta er að slíkir fundir hafa verið haldnir tvisvar en vegna vaktakerfis þurfti að halda hvorn fund tvisvar sinnum sama daginn svo allir starfsmenn kæmust. Að sjálf- sögðu ákvað stjórnarformaðurinn fundartímann og einhverra hluta vegna sá hann ekki ástæðu til að boða fulltrúa sjálfstæðismanna á þá nema með örskömmum fyrirvara, í annað skiptið í hádeginu sama dag. Svo vill til að báðir fulltrúar minni- hluta í stjórn SVR gegna þannig *— störfum að óhægt er að losna með skömmum fyrirvara. Að sjálfsögðu hlýtur að vera hægt að gera þá kröfu til stjórnaformanna fyrirtækja að þeir boði fundi með nægjanlegum fyrirvara. Miklar sviptingar hafa orðið um SVR á síðustu vikum. Vonandi tekst þó betra samstarf innan stjórnarinn- ar en verið hefur og munu fulltrúar sjálfstæðismanna ekki láta sitt eftir liggja í þeim efnum. Brýnt er að stjórnarmenn SVR sitji ekki með hendur í skauti og hreyti ónotum hver í annan heldur bretti upp erm- arnar og einbeiti sér að því að bæta hag fyrirtækisins og finna lausn á vandamálum þess. Eg vil að lokum . þakka Arthuri Morthens fyrir lær- dómsríkt samstarf og óska honum alira heilla í nýju starfi um leið og ég býð Árna Þór Sigurðsson velkom- inn og vonast eftir því að eiga gott samstarf við hann. Höfundur situr ístjórn SVR. Batnandi hagur hjá Hafnarfjarðarbæ ÁRSREIKNINGUR HafnarQarðarkaupstað- ar fyrir árið 1995 sýndi að tekist hafði að ná tökum á ijármálum bæjarins og mikil festa var komin á stjórn bæj- armála. Var það einkum síðari hluti ársins sem sýndi góðan árangur. Nú liggur fyrir uppgjör fyrrihluta árs 1996, þ.e. frá 1. janúar tii 30. júní. Uppgjör þetta sýnir að haldið hefur verið áfram á sömu braut og gætt ýtrasta aðhalds í meðferð fjármuna til að ná settum markmiðum, að lækka skuldir og jafnframt að við- halda brýnustu þjónustu. Skal bent hér á nokkrar lykiltölur sem staðfesta þetta. Páll V. Daníelsson ur af ÍSAL hafi farið um 110 millj. kr. fram úr áætlun þá er hér um mjög góðan árangur að ræða. Samhent og sterk stj’órn Nú verður að hafa það í huga að uppgjör innan árs eru ekki eins nákvæm og ársreikn- ingar en framangreind- ar tölur sýna að um verulegan bata er aét ■ ræða frá fyrri tíma og má gera sér vonir um að markmið fjárhags- áætlunar muni nást og sýnir það að meirihluti bæjarstjómar er bæði styrkur og mjög samstilltur að takast á við þá erfíðleika sem við Athyglisverðar tölur Skatttekjur bæjarsjóðs 30. júní voru orðnar 1.163.606 þús. kr. og er það um 56% af áætluðum tekjum. Skatttekjur fyrri hluta árs 1995 voru 862.147 þús. kr. eða 46% af áætlun. Rekstur málaflokka nettó var 30. júní 1996 653.551 þús. kr. eða 48% af áætlun. Samsvarandi tölur fyrri hluta árs 1995 voru 750.638 eða 56% af áætlun þess árs. Heildarskuldir 30. júní 1996 voru 4.101.279 þús. kr. en voru í ársbyijun kr. 4.281.579 þús. og höfðu því lækkað um 180 millj. kr. Fé til ráðstöfunar eftir greiðslu almennra rekstrargjalda, vaxta og afborgana var 30. júni 1996 kr. 202.733 þús. en 30. júní 1995 var enginn afgangur heldur vantaði 162.522 þús. kr. upp á að endar næðu saman. Þannig hefur staðan batnað um 365.255 þús. kr. Eign- færð fjárfesting nettó var 30. júní 1996 51.909 þús. kr. en 30. júní 1995 var eignfærð fjárfesting nettó 57.922 þús. kr. Óráðstafað fé 30. júní 1996 var því 175.920 þús. kr. en á fyrri hluta árs 1995 var búið að eyða umfram tekjur 365.684 þús. kr. Niðurstaðan er því sú að greiðslustaða 30. júní þessa árs er 541.604 þús. kr. betri en á sama tíma árið 1995. Þótt tekj- Um verulegan bata er að ræða, segir Páll V. Daníelsson, og má gera sér vonir um, að markmið fjárhagsáætl- unar muni nást. er að stríða. En það eru ekki ein- göngu bæjarfulltrúarnir heldur hljóta starfsmenn að vera vel meðvitaðir um málin og taka á hver á sínu sviði til að ná sem bestum árangri. Þess má geta að allt þetta tímabil hefur bæjarsjóður verið rekinn án þess að fá yfirdrátt á hlaupareikn- ingi eða að taka önnur lán. Reikning- ar stofnana bæjarins liggja ekki fyr- ir en þar er ekki reiknað með að vandi sé á höndum nema húsnæðis- kerfið sem rekið er með tapi og verð- ur að taka á þeim málum af fullri festu hið bráðasta. Það hefur tekist að ná góðum árangri undanfarna mánuði og er vonandi að hægt verði að halda áfram á sömu braut. Höfundur er viðskiptafræðingun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.