Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 2

Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 2
2 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Einar Sigurðsson, aðstoðarmaður forstjóra Flugleiða, segir óákveðið hvort árekstrarvari verði í öllum 737-vélum Stöðugt rætt um öryggis- búnað flugvélanna EINAR Sigurðsson aðstoðarmaður forstjóra Flugleiða segir að ekki hafi verið tekin ákvörðun um það að svo stöddu að setja árekstrar- vara í allar Boeing-737 vélar félags- ins. „Það er hins vegar til umræðu nú innan Evrópu í nefndum á veg- um flugmálastjórna að krefjast slíks búnaðar í Evrópuflugi innan fárra ára,“ segir Einar. Hann segir búið að setja árekstr- arvara í eina 737-vél og að ekki verði tekin „skyndiákvörðun" nú um að setja slík tæki í hinar. „Við munum hins vegar fara mjög ítar- lega ofan í þetta,“ segir hann. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær og fyrradag fengu flugmenn Boeing-757 vélar Flugleiða, sem hlut átti að flugumferðaratviki suð- austur af Keflavík síðastliðinn sunnudagsmorgun, aðvörun frá árekstrarvara við klifur í 7.500 fet. Flugstjórinn hafði fengið heimild til þess að klifra óhindrað í 29.000 fet og sendi árekstrarvarinn boð vegna 737-vélar Flugleiða sem talin er hafa verið í 8.000 fetum, eins og fram hefur komið í blaðinu. Flugstjóri Boeing-757 sagði í Morgunblaðinu í gær að engar upp- lýsingar hefðu borist frá flugturni í Keflavík um flugumferð á móti vélinni, sem var á leið til Evrópu, þegar heimild var gefin fyrir 29.000 feta hæð. Árekstur flugvéla afar sjaldgæfur Árekstrarvari er í fimm af átta þotum Flugleiða, að Einars sögn, það er öllum 757-vélunum, sem notaðar eru í Ameríkuflugi, og einni 737-vél, sem flogið er til Evrópu. Bandaríkjamenn gera kröfu um þennan búnað í sinni lofthelgi en árekstrarvara er ekki krafist í flugi til Evrópu og Kanada að Einars sögn. Einar segir ennfremur að þegar horft sé til fólksflutninga sýni töl- fræði fæst slys í flugi. „Og þegar horft er á ástæður slysa er árekst- ur við flugvélar afar sjaldgæfur. Ef slys verða er mest um að vélum sé flogið inn í fjallshlíðar og að óhöpp verði í flugtaki og lendingu, þó ég sé ekki að draga úr nota- gildi árekstrarbúnaðar," segir hann loks. Fundur norrænna varnarmálaráðherra Island með í fyrsta sinn ÍSLAND mun í fyrsta sinn senda áheymarfulltrúa á reglulegan fund varnarmálaráðherra Norðurlanda, sem haldinn verður í Kalmar í Sví- þjóð 7. til 8. október næstkomandi. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er tilgangurinn sá að kanna,_ hvort grundvöllur sé fyrir því að ísland taki í framtíðinni full- an þátt í fundum ráðherranna. Fundir varnarmálaráðherranna fjölluðu áður fyrr einkum um fram- kvæmdaatriði varðandi þátttöku Norðurlandanna í friðargæzlu á vegum Sameinuðu þjóðanna, en á seinni árum hafa þeir orðið mun pólitískari. Varnarmálaráðherrarnir ræða nú mál á borð við stækkun NATO, samstarfíð í Vestur-Evrópu- sambandinu og friðarsamstarf NATO. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Sólgnar í grænfóðrið KÝRNAR eru sólgnar í hafra og fóðurkál. Þegar Atli Vigfússon, bóndi á Laxamýri í Reykjahverfi færir rafmagnsgirðinguna til þess að þær komist að nýjum hluta akursins hópast þær að honum til þess að missa nú ekki af neinu. Launagreiðslur ríkissjóðs voru 35,7 milljarðar á seinasta ári YFIRVINNA var 24% af heildar- launagreiðslum ráðuneyta og undirstofnana þeirra á seinasta ári eða tæplega 8,5 milljarðar kr. af samtals 35,7 milljarða kr. launa- kostnaði ríkissjóðs. Hlutfall yfir- vinny af heildarlaunum jókst lítið eitt frá árinu á undan skv. ríkis- reikningi fyrir árið 1995. Hlutfall yfirvinnu af heildar- launagreiðslum æðstu stjórnar rík- isins og ráðuneytanna var mjög mismunandi eftir stofnunum á seinasta ári skv. ríkisreikningi árs- ins. Hæst var hlutfall yfirvinnu í sjávarútvegsráðuneyti og undir- stofnunum þess eða 40%. Samtals námu launagreiðslur ráðuneytisins um 662 millj. kr. og þar af var yfirvinna 263,5 millj. í iðnaðar- ráðuneyti var hlutfallið 39% eða Yfirvinna 16-40% af heildarlaunum ráðuneyta um 202 millj. kr. af 520 millj. kr. heildarlaunagreiðslum. 45% yfirvinna á aðalskrifstofu iðna ðarráðuneytis Hlutfall yfírvinnu var lægst í heilbrigðisráðuneyti og utanríkis- ráðuneyti eða 16% af heildarlauna- kostnaði þessara ráðuneyta og undirstofnana þeirra. Heildar- launagreiðslur heilbrigðisráðu- neytis voru tæplega 1,4 milljarðar kr. á árinu 1995 og þar af námu vfirvinnugreiðslur 2.246 millj. kr. I utanríkisráðuneyti voru heildar- laun 660 millj. og yfírvinnugreiðsl- ur tæplega 106 millj. Yfirvinnugreiðslur voru einnig mjög mismunandi stórt hlutfall af heildarlaunagreiðslum á aðalskrif- stofum ráðuneytanna í fyrra. Hæst var hlutfallið í iðnaðar- ráðuneytinu en á aðalskrifstofu þess var yfirvinna 45% af heildar- launum eða 13,8 milljónir af 31,1 millj. kr. heildarlaunakostnaði. Næsthæst var hlutfallið í við- skiptaráðuneytinu eða 41% (13,3 millj.) af heildarlaunum, sem námu um 32,8 millj. kr. á sein- asta ári. Hlutfall yfírvinnu var lægst á aðalskrifstofu fjármálaráðuneytis- ins eða 24% af launakostnaði og næstlægst á aðalskrifstofu forsæt- isráðuneytisins eða 25% af heildar- launakostnaði, sem nam um 33,4 millj. kr. á seinasta ári, skv. ríkis- reikningi ársins. Islensku- kennsla áfram í Jónshúsi ÍSLENSKUKENNSLA verður áfram starfrækt í húsi Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn eins og verið hefur undanfarin ár, að sögn Karls M. Kristjáns- sonar, fulltrúa Alþingis í hús- stjórn Jónshúss. Hann segir það hafa verið einhliða ákvörðun Róberts Trausta Árnasonar, sendiherra og fyrrverandi formanns hús- stjórnar, að banna íslenskunem- um að stunda þar nám. í hússtjórn sitja nú eftir Karl og Anna Karlsdóttir landfræð- ingur. „Við höfum fjallað um málið og sjáum ekkert lengur því til fyrirstöðu að kennsla hefjist þar að nýju.“ Það eru dönsk stjórnvöld sem bióða íslenskum börnum og unglingum, búsettum í Kaup- mannahöfn og nágrenni, kennslu í íslensku vikulega, þrjá tíma í senn. Þau hafa jafnframt boðið upp á kennsluhúsnæði, en íslendingar í Kaupmanna- höfn hafa kosið að láta kennsl- una fara fram í Jónshúsi. Á mánudag mun forsætis- nefnd Alþingis ræða hugsanleg- ar breytingar á rekstri Jónshúss vegna deilna um fyrirkomulag veitingarekstrar. Karl segir niðurstöðu af þeim fundi ekki hafa áhrif á íslensku- kennslu í húsinu. Tveir bíða eftir líf- færumytra TVEIR íslenskir karlmenn bíða eftir líffærum við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg, annar eftir hjarta og lungum og hinn eftir lungum. Annar þeirra hef- ur beðið eftir líffæri í Gauta- borg frá því í nóvember á síð- asta ári en hinn skemur. Jón Dalbú Hróbjartsson, sjúkrahús- prestur í Gautaborg, segir að tveir bíði á íslandi eftir lungum og nokkuð margir eftir nýrum. Einn væntanlegur nýrnaþegi er væntanlegur til Sahlgrenska sjúkrahússins um helgina. Samningi heilbrigðisráðu- neytisins við Sahlgrenska sjúkrahúsið í Gautaborg um líf- færaflutninga í íslenska ríkis- borgara var sagt upp um síð- ustu áramót. Nefnd sem heil- brigðisráðherra skipaði til þess að fjalla um þetta mál hefur lokið sinni vinnu. Niðurstöður nefndarinnar verða kynntar ráðherra í dag.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.