Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 10
10 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Uppboð á hvalkjöti hjá Fiskmarkaði Suðurnesja
Kjötið ekki heilbrigðis-
skoðað og þ ví ólöglegt
Morgxinblaðið/Golli
HELGA Aðalgeirsdóttir landslagsarkitekt, Halldór Blöndal sam-
gönguráðherra, Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskips, Valur
Þór Hilmarsson, umhverfisfulltrúi Ferðamálaráðs, og Sigþrúður
Stella Jóhannsdóttir, þjóðgarðsvörður i Jökulsárgljúfri við
Dettifoss.
Aðkoma að Dettifossi bætt
KJÖT af strönduðum hval sem
skorinn var í Sandgerði og selt
var á uppboði hjá Fiskmarkaði
Suðumesja í fyrradag var ekki
heilbrigðisskoðað og því ólöglegt.
Hollustuvernd ríkisins sendi í
gær frá sér dreifibréf vegna fyrir-
spurnar um hvort umrætt kjöt
væri heilbrigðisskoðað samkvæmt
reglugerð nr. 105 frá 1949 um
vinnslu og umbúnað á hvalkjöti. I
dreifibréfinu kom fram að emb-
ætti yfirdýralæknis hefði upplýst
að svo væri ekki.
Kaupandinn blekktur
Magnús Guðjónsson, fram-
kvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits
Suðurnesja, segist munu skrifa
bréf til forsvarsmanna fiskmark-
aðarins og benda þeim á að salan
hafi verið ólögleg. „Allt hvalkjöt
sem ekki er meðhöndlað sam-
kvæmt reglugerðinni um vinnslu
og umbúnað á hvalkjöti er ólöglegt
í dreifingu. Einnig má benda á það
að í elleftu grein matvælalaganna
stendur að óheimilt sé að hafa
matvæli á boðstólum eða dreifa
þeim þannig að þau blekki kaup-
anda, að því er varðar uppruna,
tegund, gæðaflokkun, samsetn-
Heilbrigðis-
eftirlitið segir
kaupendur
kjötsins biekkta
ingu, magn, eðli eða áhrif. Ef
menn eru að dreifa matvælum eins
og þau séu lögleg, þ.e. matvæli
sem hafa verið meðhöndluð á lög-
legan hátt, þá_ er verið að blekkja
kaupandann. í tíundu grein mat-
vælalaganna er ennfremur kveðið
á um að þeir sem framleiði mat-
væli eða dreifi þeim skuli haga
starfsemi sinni í samræmi við al-
menna hollustuhætti og tryggja
að matvælin valdi ekki heilsu-
tjóni,“ segir Magnús.
Ábyrgðin seljanda
Aðspurður hver sé ábyrgur ef
upp komi sýking sem sannanlega
megi rekja til neyslu kjötsins, seg-
ir Magnús að það hljóti að vera
sá sem selur það. Hvort það séu
þá björgunarsveitarmennirnir sem
seldu Fiskmarkaði Suðurnesja
hvalinn eða fiskmarkaðurinn sjálf-
ur, segir Magnús vera lögfræði-
lega spurningu sem kanna verði
sérstaklega. „Það er náttúrlega
ljóst að björgunarmenn eru ekki í
matvælabransanum, og það er
sjálfsagt að benda þeim á að þetta
athæfi þeirra sé ólöglegt. Við
munum skrifa þeim og biðja þá
um að halda sig við raketturnar í
framtíðinni,“ segir Magnús og
bætir við að fiskmarkaðurinn hljóti
að bera einhveija ábyrgð líka, þar
sem salan fari fram í húsakynnum
hans og hann hafi hagnað af söl-
unni sem milliliður.
Ekki fiskmarkaðarins að afla
heilbrigðisvottorða
Ólafur Þór Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Fiskmarkaðar
Suðurnesja, segir það ekki mál
fiskmarkaðarins að afla heilbrigð-
isvottorða fyrir vörur sem hann
býður upp. „Við treystum því að
seljandinn hafi verkað vöruna rétt
og aflað tilskilinna leyfa til að
selja hana ef þess gerist þörf. Við
myndum til dæmis hiklaust selja
lambakjöt frá Kára í Garði eða
kartöflur úr Þykkvabænum án
þess að spyrja um heilbrigðisvott-
orð. Við erum bara umboðsaðilar,"
segir Ólafur Þór.
AÐKOMA að Dettifossi hefur ver-
ið bætt til mikilla muna þannig
að gönguleið niður að fossinum,
sem mörgum hefur verið erfið og
jafnvel hættuleg, er nú greiðfær-
ari. Aðrar gönguleiðir hafa verið
afmarkaðar og sett upp skilti með
upplýsingum um náttúru, gróðurf-
ar og fleira. Á útsýnisstaðnum
hefur verið hellulagt með náttúru-
legu grjóti til að koma í veg fyrir
frekari gi-óðurskemmdir.
Ferðamálaráð hefur haft for-
göngu um úrbætur á fjölsóttum
ferðamannastöðum, árið 1994
skipaði samgönguráðherra verk-
efnissljórn í umhverfismálum en
hlutverk hennar var að gera til-
lögur um úrbætur í umhverfismál-
um á ferðamannastöðum. Verk-
efnisstjórnin lauk störfum
snemma á síðasta ári en hafði
áður komið á samstafi við Eim-
skipafélag Islands um að „taka
fossa í fóstur". Vinnu er nú lokið
við fjóra fossa, Goðafoss, Skóga-
foss, Dynjanda (Fjallfoss) og Detti-
foss.
Fleiri en Eimskip tóku þátt í
verkefninu en hlutur Vegagerð-
arinnar er stór og þá hafa starfs-
menn þjóðgarðsins í Jökulsár-
gljúfri unnið ötullega að verkefn-
inu auk þess sem breskir sjálfboð-
aliðar unnu við tröppugerð, við
erfiðar aðstæður.
Garðverk á Akureyri sá um
framkvæmdir á staðnum, en liönn-
uður verksins er Helga Aðalgeirs-
dóttir landslagsarkitekt.
Eiðismýri 30 - Seltjarnarnesiíbúðir
fyrir fólk 60 ára og eldra
Aðeins tvær íbúðir eftir
Opið hÚS. íbúðimar verða til sýnis í dag, laugardag frá
kl. 13-15.
3ja herb. íbúð á 1. hæð. Stæði í bílgeymslu geturfylgt.
Upplýsingar gefur Ágúst ísfeld í síma 562 1477 og
Fjár festing fasteignasala í síma 562 4250.
Nýkomnar á söluskrá m.a. eigna:
í gamla, góða vesturbænum
Stór, sólrík 3ja herb. 4. hæð. Tvennar svalir. Þarfn. nokkurra endurbóta. Ris-
hæðin fylgir. Ný stofa, 1 herb., 2 geymslur og snyrting. Getur verið séríb. eða
gott vinnuhúsn, t.d. fyrir listamann. Tilboð óskast.
Skammt frá Gróðrarstöðinni í Breiðh.
Stór, sólrfk 3ja herb. 1. hæð tæpir 100 fm. Inng. og hiti sér. í kj. fylgja 2
rúmg. herb. m.m. Bílsk. 24 fm m. góðu vinnuplássi f kj. skúrsins. Teikn. og
nánari uppl. aðeins á skrifst.
Einbhús í Árbæjarhverfi - skipti
Steinhús, ein hæð um 165 fm skammt frá Árbæjarskóla. Bílsk. 25 fm. Rækt-
uð lóð 735 fm. Eignaskipti mögul.
Á lækkuðu verði við Leirubakka
Vistleg 3ja herb. fb. á 1. hæð rúmir 80 fm. Sérþvotta- og vinnuherb. v. eld-
hús. í kj. fylgir gott fbherb., sérgeymsla og sam. snyrting. Langtlán um kr.
3,7 millj. Gott verð.
Fyrir smið eða laghentan
Sólrík 3ja herb. fb. um 70 fm á 2. hæð v. Gnoðarvog. Endurn. hafin en ekki
lokið. Laus um áramót. Vinsæll staður. Gott verð.
• • •
Opið í dag frá kl. 10-14.
Fjársterkir kaupendur óska
eftir húseignum af flestum
stærðum og gerðum.
ALMENNA
FASTEIGNASALAN
LAUGAVEG118 S. 5521150 - 5521370
Aðalfundur fulltrúaráðs Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði
Formaður fulltrúaráðs-
ins fær mótframboð
KRISTINN Andersen, stjórnarmaður
í fulltrúaráði Sjálfstæðisfélaganna í
Hafnarfirði, ætlar fram gegn Þórarni
Jóni Magnússyni, sitjandi stjórnar-
formanni, á aðalfundi fulltrúaráðsins
3. október. Þórarinn lítur svo á að
mótframboðið komi frá stuðnings-
manni Jóhanns Bergþórssonar.
Kristinn segir framboðið ekki grund-
vallað á klofningi innan flokksins.
Fremur á því hvort hægt sé að setja
kaflaskil og horfa fram á veginn í
flokksstarfinu.
Þórarinn sagði að Kristinn yrði að
skoðast stuðningsmaður tveggja sjálf-
stæðismannanna í samstarfi við Al-
þýðuflokkinn og vísaði með því til
Jóhanns G. Bergþórssonar og Ellerts
Borgars Þorvaldssonar. Hann rök-
studdi staðhæfinguna með því að taka
fram að Kristinn væri t.d. enn vara-
maður í atvinnumálanefnd bæjarins.
Sjálfstæðismenn hefðu gert athug-
semd við veru Kristins í nefndinni
enda hefði hann verið kosinn í hana
af Jóhanni og Ellerti. „Hann og ann-
ar skoruðu svo á fulltrúaráðið að taka
á móti Jóhanni og Ellerti í Sjálfstæðis-
húsið til að þeir gætu útskýrt fjár-
hagsáætlun meirihlutans fyrir minni-
hlutanum í vetur,“ sagði Þórarinn og
tók fram að sú nýbreytni hefði þótt
heldur óeðlileg. Örygglega hefði
hvergi gerst að meirihluti kæmi í
heimsókn til minnihlutans til að út-
skýra fjárhagsáætlun. Þórarinn sagði
ekki spurningu að á meðan menn
störfuðu gegn Sjálfstæðisflokknum
gætu þeir ekki verið með hinn fótinn
inn í Sjálfstæðishúsinu. „Við lítum svo
á að þegar þeir hófu samstarf við
Alþýðuflokkinn hafi þeir, á meðan
a.m.k., yfirgefið Sjálfstæðisflokkinn.
Við höfum hins vegar ekkert gert í
því að reka menn úr flokknum og lít-
um svo að þegar þeir láti af þjónustu
við Alþýðuflokkinn geti þeir átt aftur-
kvæmt,“ sagði hann.
Ekki í Jóhanns
Bergþórssonar armi
Kristinn sagði rétt að Jóhann
Bergþórsson hefði tilnefnt hann í
atvinnumálanefnd bæjarins en tók
fram að hann hefði áður verið aðal-
maður í nefndinni. „Ég gaf í fram-
haldi af tilnefningunni út tilkynningu
um að ég myndi ekki láta stjórna
mér heldur starfa í anda Sjálfstæðis-
flokksins eins og ég hef gert,“ sagði
hann og lagði áherslu á að ekki
væri rétt að hann tilheyrði svokölluð-
um Jóhanns Bergþórssonar armi.
„Ég tek í því sambandi fram að
ég, einn fárra starfandi sjálfstæðis-
mannna í bænum, hef lýst því yfir
opinberlega að ég styðji ekki meiri-
hluta Jóhanns Bergþórssonar. Ég hef
pví til viðbótar á stjórnarfundum
?ulltrúaráðsins gengið fram fyrir
skjöldu í að styðja Magnús Gunnars-
son í verkum hans fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn í bænum. Hins vegar finnst
mér að forysta flokksins verði að
umgangast fólk í Sjálfstæðisflokkn-
um sem siíkt svo lengi sem það er
í flokknum," sagði Kristinn.
Kristinn sagðist vilja breyta
áherslum í flokksstarfinu. „Mér
finnst t.a.m. að kominn sé tími til
að opna fiokkinn. Að bæjarbúar geri
sér grein fyrir því fyrir hvað Sjálf-
stæðisflokkurinn standi," tók hann
fram.
Aðalfundir Sjálfstæðisfélaganna
fjögurra í Hafnarfirði verða haldnir
í dag. Á aðalfundunum verða kosnir
fulltrúar félaganna í fuiltrúaráð
flokksins. Aðalfundur fulltrúaráðsins
fer svo fram 3. október.
NYJARIBUÐIR 3. og 4. HERBERGJA
Víkurhverfi er vel skipulagt þar sem umferðarþunga er haldið í
sem mestri fjarlægð frá byggðinni.
Umhverfi allt er sérstaklega skemmtilegt.
íbúðirnar eru rúmgóðar með stórum svölum á móti suðri.
Upplýsingar veitir Örn Isebarn, byggingameistari, í síma 896-1606.
kOLl
FASTEIGNASALA
-HÓLL
af lífi og sál
“ 5510090
Krummahólar 8 - opið hús
Einstaklega falleg og rúmgóð 75 fm íbúð á 4. hæð í
nýlega viðgerðu lyftuhúsi. Bílskýli. Áhv. byggingasjóður 2
millj. Verð 6,3 millj. Þessa íbúð skoðar þú í dag milli kl. 14
og 17. Þú hringir bara á bjöllu merkta 4-J. Gakktu i bæinn.