Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 17
ÚRVERINU
LC1F185
FÁLKINN kynnir m.a. Tele-
mecaniqe rofabúnað á sýning-
unni.
Stýribún-
aður fyrir
fiskiðnað
FÁLKINN hf. kynnir á sjávarút-
vegssýningunni bæði hefðbundna
og nýja vöruflokka og verður sér-
stök áhersla lögð á að kynna ýmiss
konar rafstýribúnað, ásamt bindi-
vélum fyrir fiskiðnaðinn.
Véladeild Fálkans var stofnuð
1955 og hefur þjónusta við fiskveið-
ar og fiskvinnslu verið meginþáttur
í starfsemi fyrirtækisins allt frá
stofnun hennar. í dag sinna þrjár
deildir þessari þjónustu; véladeild,
raftæknideild og rafvélaverkstæði.
Fjölbreytt varahlutaþjónusta
Véladeildin er stærsta deild Fálk-
ans og tengjast mikilvægustu vöru-
flokkar deildarinnar veiðum og
vinnslu, t.d. legur, ásþétti og allt
sem viðkemur drifbúnaði. Þá selur
deildin ýmsar fullunnar vörur, s.s.
viftur og dælur sem og gufustjórn-
unartæki og hæðar- og flotsstýring-
ar. Fálkinn hefur jafnframt lengi
sérhæft sig í sölu á vinnsluvélum
fyrir fiskimjölsverksmiðjur, s.s.
þurrkurum, pressum, sjóðurum og
soðkjarnatækjum.
Fullkomið verkstæði
Raftæknideildin leggur áhersiu á
alls konar rafstýribúnað ásamt raf-
magnsskápum, rafmótorum, gírum,
hitablásurum, þakviftum og bindi-
vélum. Rafvélaverkstæði Fálkans
er með þeim fullkomnari á landinu
og sérhæfir sig í mótorvindingum,
rafvélaviðgerðum og dæluviðgerð-
um, auk þess sem þar fer fram
samsetning á sérgæfðum rafstýri-
skápum.
«rfur horfinna kynslóða
Jurtasmyrsl Erlings grasa-
læknis fást nú í apótekum
og heilsubúðum um land
allt.
• Græðismyrsl
• Handáburður
• Gylliniæðaráburður
Framlfiftamli: íslcnsk lyfja^ös «*hf.
I)r<*ifing: Lyfjaverslun Islandw hf.
Vöggusœngur,
vöggusett.
SkéUvðfOustig 21 Simi55l 4050 Rcykjavtk
J. Hinriksson fram-
leiðir toghlera í Mexíkó
J. HINRIKSSN, toghleraframleið-
andi í Reykjavík er nú að hefja
starfsemi dótturfyrirtækis síns,
Poly-Ice Mexíco S.A CV í Mazatlán
í Mexókó. Starfsemin er að hefjast
í 480 fermetra stálgrindarhúsi á
rúmlega 1.700 fermetra lóð og til
að byija með verða 10 til 12 manns
við vinnu hjá fyrirtækinu. „í fram-
tíðinni vonumst við til að geta
þjónustað viðskitpavini okkar í
Bandaríkjunum og Suður-Ameríku
með Poly-Ice toghlera framleiddum
í Mexíkó," segir Jósafat Hinriksson,
forstjóri fyrirtækisins.
Aðdragandinn að stofnun fyrir-
tækisins hefur tekið á annað ár, en
í byijun síðasta árs tók J. Hinriks-
son þátt í tilraunum á rækjuveiðum
í Mexíkó með Hampiðjunni, Neta-
gerð Vestfjrða og mexíkósu útgerð-
inni Pesquera Cozar.
„Tilgangurinn er stofnun dóttur-
fyrirtækis í Mexíkó er að geta boð-
ið framleiðslu okkar, toghlera og
annan togbúnað á samkeppnishæfu
verði miðað við verðlag og kaup-
getu þarlendra útgerðarmanna.
Rækjuveiðar heimamanna eru að
mestu stundaðar á 18 til 26 metra
bátum sem veiða með svokölluðu
bómukerfí. Hver bátur er útbúinn
með eitt troll og einu pari af tog-
hlerum á hvorri síðu, sem dregin
eru frá bómunum sem standa lárétt-
ar út frá síðum bátanna. Litlar
breytingar hafa verið á veiðibúnaði
í Mexíkó í meira en 40 ár.
Óhætt er að segja að búnaður
þeirra sé gamaldags og þar sem
litlar breytingar hafa verið gerðar
í langan tíma, má gera ráð fyrir
að þeir fari hægt í sakirnar með
allar nýjungar þó þeir fylgist vel
með því sem verið er að gera,“ seg-
ir Atli Már Jósafatsson hjá J. Hin-
rikssyni. „Með þessum hætti viljum
við nálgast heimamenn með smíði
á toghlerum og togbúnaði á þeirra
eigin svæði og þróa með þeim
breyttar veiðiaðferðir sem koma
þeim til góða í hagkvæmari veiðum
og rekstri," segir Atli.
Framkvæmdastjóri hins nýja fyr-
irtækis er Jónas Gíslason, en hann
hefur verið búsettur í Mexíkó í
mörg ár.
-Loforð um litríkt vor-
MYTT TILfeOO
LAUKABARINN
Laukar í lausasölu!
Hafsteinn Hafliðason og
Lára Jónsdóttir ráðleggja
með val og samsetn-
ingar og lofa litríku vori.
10 Túlípanar rauðir
kr. 169,-
POTTAPLÖNTUÚTSALA
20 -50% aísláttur
Útsölunni lýkur um helgina.
Bjóðum meðal annars
10 tegundir af potta-
plöntum á kr. 299,- stk.
10 Perluliljur
kr.99,-
HAUSTSKREYTINGAR
Laugardag og sunnudag kl. 13 til 18.
Hjördís Jónsdóttir sýnir
listir sínar við gerð haust-
skreytinga og kennir fólki
að færa litskrúð haustsins
heim í stofu.
5 Páskaliljur
kr. 139,-