Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 18

Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Tvísýnar þingkosningar í Grikklandi Litlu munar á fylgi við stóru fiokkana Aþenu. Reuter. Reuter BANDARÍSKUR flotaforingi býður velkomna kúrdíska flóttamenn sem komu í gær til bandarísku flotastöðvarinnar á eynni Guam í Kyrrahafi. Fólkið hefur flúið vegna átakanna í norðurhéruðum íraks. Tyrkir andvígir árásum á Irak Ankara, Bagdad, Genf. Reuter. LEIÐTOGAR tveggja stærstu flokkanna í Grikklandi héldu síð- ustu útifundi sína í gær vegna þing- kosninganna á sunnudag en sam- kvæmt skoðanakönnunum munár litlu sem engu á fylgi þeirra. Nik- os, sonur Andreas heitins Pap- andreous, fyrrverandi forsætisráð- herra, sagði í gær um ekkju hans, Dimitra Liani, að hún væri valda- sjúkur hrægammur, sem hefði eyði- lagt föður sinn. Costas Simitis forsætisráðherra og leiðtogi sósíalista var með sinn Max Manus látinn Ósló. Reuter. MAX Manus, sem þekktur var fyrir þátttöku sína í norsku andspyrnuhreyfingunni í heimsstyijöldinni síðari, lést í Ósló í gær, 81 árs að aldri. Frægð sína hlaut Manus fyrir djarflega baráttu gegn Þjóðvetjum en eitt þekktasta dæmið var er hann synti út að herflutningaskipinu Donau og festi við það sprengiefni. Hann náðist árið 1941 en tókst að flýja úr haidi Þjóðveija. Sneri hann heim tveimur árum síðar og hélt áfram skemmdar- verkum gegn hersetuliði þeirra. Áður en þeir hernámu Noreg árið 1940, barðist Man- us við hlið Finna í Vetrarstríð- inu gegn Rússum. # LOWARA Gæðavara, mikið úrval, hagstætt verð, örugg þjónusta. = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260 síðasta fund í Aþenu en helsti and- stæðingur hans, hægrimaðurinn Miltiades Evert, leiðtogi Nýs lýð- ræðis, ætlaði að ljúka kosningabar- áttunni á lícilli eyju rétt undan Tyrk- landi. Er það táknrænt fyrir þá áherslu, sem hann hefur lagt á það, sem hann segir vera skammar- lega frammistöðu stjórnarinnar í væringunum við Tyrki. Stuðningur við smáflokka Samkvæmt skoðanakönnunum munu ýmsir smáflokkar fá meira fylgi nú en oft áður og fjöldi óákveð- inna kjósenda hefur sjaldan verið meiri. Þegar Simitis ákvað að ijúfa þing og boða til kosninga þóttist hann viss um sigur en síðan hefur Nýtt lýðræði aukið fylgi sitt jafnt og þétt og nú hafa sósíalistar ekki nema eitt prósent umfram. Stjórnmálaskýrendur segja, að enginn sjáanlegur munur sé á efna- hagsstefnu sósíalista og hægri- manna enda mótist hún af kröfum Evróþusambandsins um umbætur í efnahags- og fjármálalífi landsins. „Þetta er sama sagan um alla Evr- ópu. Frambjóðendur verða að gera svo vel og laga sig að því, sem að er stefnt í ESB, og í ýmsum málum er enginn munur á stefnu flokk- anna,“ var haft eftir vestrænum stjórnarerindreka. Erfa aðeins nafnið Grísku dagblöðin höfðu það eftir Nikos Papandreou í gær, að faðir sinn hefði verið óhamingjusamur í hjónabandinu með Liani, sem hefði eyðilagt stjórnmálaferil hans og heilsuna líka. „Hún er valdagráðug og gerir allt til að komast yfir þau. I kring- um mann eins og föður minn safn- ast jafnan margir hrægammar og hún var einn þeirra." Börn Papndreous hafa hingað til ekki sagt margt um erfið samskipti sín við Liani en nú í mánuðinum voru birtar tvær erfðaskrár föður þeirra. Samkvæmt þeim fær Liani allar hans jarðneskar eigur en um börnin segir hann í erfðaskránni, að þeim sé það nóg að erfa nafnið hans. EVROPUSAMBANDIÐ útilokaði í gær að útflutningsbanni á breskar nautgripaafurðir yrði aflétt í kjölfar þess að bresk stjórnvöld Iýstu því yfír að áform um Ijöldaslátrun naut- gripa, til að útrýma kúariðu, hefðu verið lögð á hilluna. Klaus Kinkel, utanríkisráðherra Þýskalands, og Hervé de Charette, utanríkisráðherra Frakklands, sögðu ekki koma til greina að aflétta bann- inu vegna þessarar ákvörðunar Breta. Búast margir við að kúariðu- deilan muni blossa upp að nýju af fullum krafti á fundi landbúnaðar- ráðherra ESB á sunnudag. Breska ríkisstjórnin ákvað á fimmtudag að hætta við áform um slátrun nautgripa þar sem nýjar rannsóknir vísindamanna við Ox- ford-háskóla bentu til að kúariða myndi hverfa á næstu fimm árum jafnvel þótt ekki yrði gripið til neinna aðgerða. FORSÆTISRAÐHERRA Tyrk- lands, heittrúarmaðurinn Necmett- in Erbakan, tjáði sig í gær í fyrsta sinn um flugskeytaárásir Banda- ríkjamanna á írak en Tyrkir hafa lengi verið traustir bandamenn Vesturveldanna og eiga aðild að Atlantshafsbandalaginu, NATO. Erbakan lýsti andstöðu við frekari árásir, þær myndu aðeins auka spennu á svæðinu. Hann sagði Bandaríkjamenn ekki hafa nægi- lega skýra stefnu í málefnum íraks. Hvatti Erbakan til þess að stjórn- völd í Bagdad og íraskir Kúrdar kæmu í framkvæmd nokkurra ára gömlum hugmyndum um sjálfsfor- ræði Kúrdahéraðanna, einkum ef þar með kæmist þar á friður og festa. Tyrkir hafa leyft herflugvélum Vesturveldanna, er veita Kúrdum í írak loftvernd, að hafa bækistöðv- ar í landinu en viðskiptabannið á Irak hefur valdið Tyrkjum búsifjum þar sem Irak var áður eitt helsta viðskiptaland þeirra. Milljónir Kúrda búa í Tyrklandi og tyrk- neski herinn hefur um árabil barist við kúrdíska uppreisnarmenn er Douglas Hogg, landbúnaðarráð- herra Bretlands, sagði að þessi ákvörðun hefði verið tekin vegna mikillar andstöðu á breska þinginu við slátrun nautgripa. Ekki meirihluti Ríkisstjóm Johns Majors hefur ein- ungis eins atkvæðis meirihluta á þinginu og er talið víst að stjórnin hefði beðið ósigur ef tillagan um slátrun hefði verið borin upp til at- kvæða. Hogg sagði marga þingmenn ekki sannfærða um að vilji væri fyr- ir því utan Bretlands að aflétta út- flutningsbanninu jafnvel þó að gripið yrði til róttækra aðgerða af þessu tagi. Major vísaði á fimmtudag til rann- sóknar vísindamanna við Oxford- háskóla og sagði það vera efnahags- lega sóun að slátra nautgripum að óþörfu. Hvatti hann til rökrænnar umræðu um málið þannig að smám hafa bækistöðvar í norðurhluta ír- aks. John Deutch, yfirmaður banda- rísku leyniþjónustunnar (CIA), sagði fyrir þingnefnd á fimmtudag að Saddam Hussein íraksforseti hefði styrkt pólitíska stöðu _ sína undanfarnar vikur. Samskipti íraka við Tyrki hefðu batnað, innbyrðis átök Kúrda hefðu dregið úr hætt- unni á að þeir beittu sér gegn for- setanum og komið hefði í ljós að „evrópskir bandamenn okkar eru að þreytast á einangrunarstefnunni [gagnvart írak]“. Mannfall í flóttamannabúðum Þessi ummæli þykja vera í litlu samræmi við yfirlýsingar Williams Perrys varnarmálaráðherra og Bills Clintons forseta sem sögðu í vik- unni að aðgerðir Bandaríkjastjórn- ar, þ. á m. flugskeytaárásirnar, hefðu borið árangur og samstaða ríkti enn meðal bandamanna er börðust í Persaflóastríðinu 1991. Mike McCurry, talsmaður Banda- ríkjaforseta, sagði Clinton teldi hernaðarlega stöðu Saddams hafa versnað og sagðist talsmaðurinn saman yrði hægt að endurvekja traust neytenda á bresku nautakjöti. Allsherjarbann var sett á sölu bresks nautakjöts utan Bretlands eftir að greint var frá því í mars að kúariða í nautgripum kynni hugsan- lega að valda heilarýrnunarsjúkdómi í mönnum. Jacques Sant- er, forseti fram- kvæmdastjórnar ESB, sagði í gær að ákvörðun Breta myndi ekki hafa nein áhrif á afstöðu annarra Evrópuríkja. „Afstaða fram- kvæmdastjórnarinnar hefur ekki breyst,“ sagði Santer. Framkvæmdastjórnin vill að Bret- ar slátri allt að 147 þúsund nautgrip- um, líkt og áður hafði náðst sam- komulag um að gera yrði ef aflétta ætti útflutningsbanninu. álíta að Deutch væri sammála því ma.ti. íraskir fjölmiðlar réðust harka- lega á Bandaríkjamenn í gær og sögðu þá hafa sent flugumenn CIA til norðurhéraðanna sem Kúrdar byggja. Atburðir þar að undanfömu hefðu sýnt að ástæðulaust væri að óttast að stjórnvöld í Bagdad þrengdu að Kúrdum, eina leiðin til að binda enda á stjórnleysi og átök þar væri að Kúrdar ættu samstarf við íraksstjórn. Kúrdaleiðtoginn Massoud Barzani naut aðstoðar Ir- akshers til að tryggja sér völd í héruðunum en hefur síðan beðið Bandaríkjamenn að halda áfram að veita Kúrdum loftvernd. Segja heim- ildarmenn að Barzani hafí tjáð full- trúum Bandaríkjastjómar í Ankara að samstarfið við Saddam hafí að- eins verið tímabundið. Fjöldi Kúrda hefur flúið til írans vegna átaka Barzanis við Jalal Tala- bani er nýtur stuðnings írana. Skýrði fulltrúi Sameinuðu þjóðanna frá því í gær að 11 manns hefðu fallið og 35 særst í flóttamannabúð- um í íran af völdum skothríðar yfir landamærin. Evrópuþingið krefst lausn- ar Nikitins Ósló. Morgnnblaðið. EVRÓPUÞINGIÐ í Strassborg samþykkti í gær ályktun þar sem þess er krafist að rússnesk stjórn- völd leysl Alexander Nikitin, starfsmann norsku umhverfissam- takanna Bellona, úr fangelsi. Nikitin var handtekinn af rúss- nesku öryggislögreglunni FSB og á yfir höfði sér dauðarefsingu, verði hann fund- inn sekur um njósnir. Hann hafði unnið að því að safna sam- an upplýsingum um mengun af völdum rússneska Norðurflotans fyrir norsku samtökin. Evrópu- þingið krefst þess að fá ítarlega greinargerð um þau atriði sem Nikitin er kærður fyrir. Hann hef- ur setið í varðhaldi í sjö mánuði. Öryggislögreglan hefur meinað Nikitin að ráða sér lögfræðing. ESB útilokar afnám útflutninsjsbanns Brussel. Reuter. EVRÓPA*

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.