Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 19
ERLENT
!§ STUTT
Perry til
Norður-
landa
WILLIAM Perry, varnarmála-
ráðherra Bandaríkjanna, hélt
í gær í ferðalag til Norður-
landa og mun meðal annars
taka þátt í viðræðum Atlants-
hafsbandalagsins um nýtt frið-
argæslulið í Bosníu og undir-
rita samkomulag um að stöðva
kjarnorkumengun af völdum
rússneska hersins á Norður-
heimskautinu og jafnvel
hreinsa upp gamlan kjarn-
orkuúrgang, sem Rússar hafa
skilið eftir.
Djöfladýrkun
linni
YFIRVÖLD í Kenýa kveðast
hafa sannanir fyrir því að
djöfladýrkendur fórni mönnum
í athöfnum sínum, éti kjöt og
drekki blóð þeirra. Einnig sé
börnum nauðgað og útlimir
skornir af fólki. Skora þau á
almenning að sniðganga hópa
djöfladýrkenda.
Asahara
blessaði
eiturgasið
SHOKO Asahara, leiðtogi
dómsdagssamtkanna Aum
Shinri Kyo (Samtök hins
æðsta sannleika), blessaði
kassann með hinu banvæna
sarin-gasi áður en lærisveinar
hans notuðu það í neðanjarðar-
lestarkerfínu í Tókýó í fyrra,
að því er fram kom í réttar-
höldunum yfir Asahara í
Tókýó í gær.
Fjárlög lögð
fram í Svíþjóð
ERIK Asbrink, fjármálaráð-
herra Svíðþjóðar, lagði í gær
fram Qárlög ársins 1997 og
sagði að afgangur mundi
verða á fjárlögum ársins 1998
án þess að grípa þyrfti til frek-
ari niðurskurðar og jafnframt
yrðu skilyrði Maastricht-sátt-
málans um mynteiningu upp-
fyllt.
Fundu 6.500
ára gamla
stúlku
FORNLEIFAFRÆÐINGAR í
Austurríki hafa fundið beina-
grind stúlku frá steinöld, að
því er austurríska fréttastofan
APA greindi frá í gær. Talið
er að beinin séu 6.500 ára
gömul, eða 1.200 árum eldri
en „ísmaðurinn“ svokallaði,
sem fannst í Ölpunum fyrir
fimm árum og er elsta mann-
vera, sem fundist hefur varð-
veitt í heilu lagi. Eftir beina-
grindinni að dæma lá stúlkan
í hnipri þegar hún lést.
Perot í mál
ROSS Perot, forsetaframbjóð-
andi Umbótaflokksins, hugðist
höfða mál í gær vegna ákvörð-
unar nefndar um forsetakapp-
ræður, sem skipuð er fulltrú-
um demókrata og repúblikana,
um að banna honum að taka
þátt í kappræðum forseta-
frambjóðenda í bandarísku
forsetakosningunum.
Deilan um Boutros-
Ghali magnast
ii///,.
París, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
BANDARÍKJAMENN segjast reiðu-
búnir til að beita neitunarvaldi til að
koma í veg fyrir að Boutros Boutros-
Ghali verði endurkjörinn fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
en Frakkar hafa lýst yfír stuðningi
við áframhaldandi setu hans.
Jacques Rummelhardt, talsmaður
franska utanríkisráðuneytisins, sagði
að hefð væri fyrir því að fram-
kvæmdastjórar SÞ sætu tvö tímabil
í embætti og Frakkar bæru mikla
virðingu fyrir Boutros-Ghali.
Madeleine Albright, sendiherra
Bandaríkjanna, sagði að ekkert væri
hæft í fréttaskrifum um að stjóm
Clintons gæti snúið við blaðinu eftir
forsetakosningarnar 5. nóvember og
samþykkt að Boutros-Ghali sæti ann-
að fímm ára tímabil. Fá yrði mann
í starfíð, sem ekki „berðist um á hæl
og hnakka" gegn því að gera umbæt-
ur á stofnuninni.
Ýmsir hafa tekið það illa upp að
Bandaríkjamenn skuli reka herferð
sína gegn endurkjöri Boutros-Ghalis
í fjölmiðlum. A það einkum við um
Frakka, Kínveija og Rússa, sem hafa
neitunarvald í öryggisráði SÞ ásamt
Bandaríkjamönnum og Bretum.
Grænt númer
Símfal í grœnt númcr er
ókcypis fyrir þann sem hringir*
‘Gildir fyrir símtöl innanlands. Ef hringt er úr
farsíma, greiðir sá sem hringir farsímagjald.
PEUGEOT 406
ZJ
Tímamótabíll á einstöku verði
TIL AFGREIÐSLU
NÚNA!
Þægindi f akstri
Einstakir aksturseiginleikar hafa alltaf verið aöalsmerki
Peugeot. Sérstakur fjöörunarbúnaöur gerir Peugeot 406
rásfastari og þægilegri í akstri en þú átt að venjast í öðrum
bílum. Bíllinn„svínliggur“á götunum.
Þægindin skapa öryggið
Við hönnun á Peugeot 406 var gífurleg áhersla
lögö á öryggi og yfir ÍOO árekstursprófanir voru
geröar á bflnum. En þaö eru fyrst og fremst
aksturseiginleikarnir sem skapa öryggið því
þú átt auðveldara meö að stjórna bílnum þegar
mest á reynir.
Þægindi við hendina
Innrétting Peugeot 406 er vönduö lúxusinnrétting þar sem
stjórntækjum er vel fyrir komiö, sem gerir bílinn ekki
eingöngu þægilegri T akstri heldur eykur enn á öryggiö.
Taktu líka eftir hvað Peugeot 406 er hljóðlátur þegar þú reynsluekur honum.
Veröíð kemur
þægilega á óvart!
* • “V
ifý-Tiiarw—r;- ..
frá 1.430.000 kr.
PEUGEOT
- þekktur fyrir þœgíndi
1 9 4 4 - 1 9 9 í
Nýbýlavegi 2 • Simi SS4 2600