Morgunblaðið - 21.09.1996, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 21.09.1996, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Reuter SUÐUR-kóreskir hermenn taka þátt í umfangsmikilli leit að norður-kóreskum kafbátsmönnum. Strand norður-kóreska kafbátsins Þriggja sérþjálfaðra spellvirkja leitað Kangnung. Reuter. SUÐUR-kóreskar hersveitir notuðu hátalara í gær til að koma boðum til norður-kóreskra kafbátsmanna um að gefast upp en talið er að 6-7 slíkir hafist við í ógreiðfæru fjalla- svæði. Kafbátur þeirra strandaði sl. miðvikudag skammt frá suður-kór- esku borginni Kangnung á austur- strönd Kóreuskagans. Eini maðurinn úr áhöfn kafbáts- ins, sem náðst hefur á lífi, hefur skýrt frá, að 26 menn hafi verið í áhöfninni. Liggja 18 þeirra í valnum, ýmist eftir að hafa verið felldir eftir bardaga eða fallið fyrir eigin hendi. í fyrrinótt kom til harðra bardaga miili manna sem enn er leitað og suður-kóreskra hermanna á fjalla- svæði sem erfitt er yfirferðar og þakið smáhellum eftir kolanámu- vinnslu. í gær var útvarpað með hátölurum hvatningarorðum til norð- anmannanna þar sem þeir voru hvattir til að gefa sig fram og þiggja lífið að launum. í hópi skipveija voru þrír menn sérþjálfaðir til spellvirkja og til þess að komast af bakvið víglínu óvinar- ins. Þeirra er enn leitað. Suður-kór- eskir leyniþjónustumenn sögðu í gær, að þessir menn hafi að öllum líkindum myrt 11 félaga sína, sem fundust látnir í skógarlundi á fyrsta degi, til þess að villa um fyrir leitar- mönnum. Margir þeirra reyndust hafa verið skotnir í hnakkann. Heimildarmenn úr suður-kóresku lögreglunni sögðu í gær, að áhöfn norður-kóreska kafbátsins virtist ekki hafa verið send til Suður-Kóreu til venjulegra njósna, heldur til sér- tækra aðgerða á borð við hryðjuverk. Japanir fordæmdu norður-kóresk stjórnvöld í gær fyrir laumuferð kaf- bátsmanna. Warren Christopher ut- anríkisráðherra Bandaríkjanna sagði atvikið valda áhyggjum en hvatti bæði Norðan- og Sunnanmenn til að sýna stillingu. Stjórnmálaskýrendur telja líkur á, að atvikið verði til að skaða tilraunir suður-kóreskra og bandarískra stjórnvalda til að laða stjórnvöld í Pyongyang að friðarsamningaborði. Kaþólska kirkjan í Bretlandi í vanda Biskup á 15 ára gamlanson London, Polegate. Reuter. KAÞÓLSKA kirkjan í Bret- landi skoraði í gær á bisk- upinn, sem hijópst á brott með fráskildri konu, að koma úr felum og segja sögu sína alla. Finnst mörgu kaþólsku fólki sem hann hafi blekkt það og sérstaklega eftir að í ljós kom, að hann ætti 15 ára gamlan dreng. Það var mikið áfall fyrir kirkjuna þegar Roderick Wright, biskup í Argyll, hvarf fyrir um tveimur vikum með fráskilinni konu og ekki batnaði það þegar Joanne Whibley, 48 ára gömul, einstæð móðir, skýrði frá því á fímmtudag, að Wright væri faðir Kevins, sonar síns. í fyrrakvöld kom síðan Kevin sjálfur fram í sjónvarpi og sagði frá því grátandi, að hann hefði aðeins verið með föður sínum í tvo mánuði allt sitt líf. „Nú er alit um seinan. Ég kæri mig ekki um hann lengur," sagði hann. Joanne sagði sjálf frá leyniiegri ást þeirra Wrights og kvaðst hafa ákveðið að ijúfa þögnina til „að kveða niður þá tilfinningu Kevins, að hann ætti ekki að vera til“. Þessi mál eru mikill álitshnekkir fyrir kaþólsku kirkjuna og hafa enn einu sinni vakið upp umræður um skírlífisheit presta. Þá segjast leið- togar kirkjunnar harma það, sem Wright hafi gert á hlut Joanne og sonar hennar. Tom Connolly, tals- maður skoska biskuparáðsins, skor- aði í gær á Wright að láta vita af sér og gefa fjölmiðlunum þau svör, sem kirkjan gæti ekki svarað. Wright, sem er 55 ára gamall og hljópst á brott með Kathleen Macp- hee, fertugri, fráskilinni konu og þriggja bama móður, hefur beðið fjölskyidu hennar fyrirgefningar en sagði hins vegar ekkert um, að hann ætti 15 ára gamlan son. Það var til þess, að Joanne Whibley kvaddi sér hljóðs. Upplýsingar hennar urðu svo aftur til þess, að Adr- ianna Alsworth, 39 ára göm- ul ekkja, skýrði frá því, að hún hefði átt tvö böm með kaþólskum presti, sem síðan hefði ekkert viljað með hana hafa. Mikill herskari blaðamanna hefur setið um heimili Joanne og Kevins Whibleys síðan þau sögðu sögu sína og Kevin, sem hefur raunar forðað sér að heiman, sagði, að þetta mál sýndi, að kaþólska kirkja yrði að endurskoða andstöðu sína við að prestar væru í hjónabandi. Fundum þeirra Joanne og Wrights bar saman þegar hann var prestur í afskekktri sókn í Skotlandi. Var hún þá trúlofuð kaþólskum manni og vildi sjálf ganga kirkjunni á hönd. Sá Wright um að uppfræða hana í kaþólskum sið, hóf ástarsamband við hana og hótaði síðan að flýja til Perú segði hún frá því. Þeesi mál hafa kynt undir umræð- um um skírlífísheit kaþólskra presta en Wright er að minnsta kosti fimmti kaþólski biskupinn, sem sagt hefur af sér sl. sex ár eftir að hafa viður- kennt skírlífisbrot. Michael Hyland, talsmaður stuðningshóps presta, sem gengið hafa úr þjónustu kirkjunnar til að geta kvænst, sagði í gær, að hann harmaði framferði manna eins og Wrights. „Þeir messa á sunnudögum og brýna fyrir fólki hreint líferni en eiga svo sjálfir börn á laun. Þeir kalla okkur svikara fyrir að hafa kosið hjónabandið en það, sem þeir aðhaf- ast, er óafsakanlegt." Faxafeni 7 - Sími: 568 9950 í tilefni af 15 ára aímæli verslunarinnar munum við dagana 20. -21. september bjóða viðskiptavinum okkar 15% - 80% afslátt af ýmsum vörum verslunarinnar eins og húsgögnum, rúmteppum, sængurfatnaði, handklæðum, náttsloppum, kertastjökum, vösum, veggklukkum, matar- og kaffistellum, olíuljósum og búsáhöldum. GEGNUM GLERIÐ Máttur, forvarna og endurhœfingarstöð Ertu með verki í baki eða hálsi og herðum, gigt eða einhvern annan sjúkdóm sem dregur úr líkamlegri atorku þinni? Þá hjálpar Máttur þér til að ná betri líðan og heilsu. Við bjóðum upp á tíma með sérhæfðum leiðbeinendum. Sigrún Baldursdóttir, sjúkraþjálfari. Dong Qing Guan, kínverskur þjálfari. Leiðbeinendur verða til viðtals í Mætti, Faxafeni 14, sunnudaginn 22. september frá kl. 12.00-14.00. Prímakov í Austurríki Andvígur stækkun NATO Vín. Reuter. UTANRÍKISRÁÐHERRA Rúss- lands, Jevgení Prímakov, segir úti- lokað fyrir Rússa að sætta sig við að varnarlína Atlantshafsbandalags- ins (NATO) verði færð til austurs að landamærum ríkisins. Ráðherr- ann sagði í gær í Vín að efla bæri Öryggis- og samvinnustofnun Evr- ópu (ÓSE) og láta hana í framtíð- inni annast öryggismál í álfunni. Prímakov sagði að aukin hætta væri á að nýr klofningur kæmi upp í Evrópu í stað Kalda stríðsins og áætlanir um stækkun NATO væru merki um þá þróun. Ummæli hans koma nokkuð á óvart vegna þess að fyrst eftir sigur Borís Jeltsíns í forsetakosningunum í Rússlandi virtist sem andstaða Rússa við stækkunina hefði dvínað. Þeir hafa þó ávallt sagt að þeir væru á móti því að NATO yrði með vígbúnað í væntanlegum nýjum að- ildarríkjum sem talið er að verði í fyrstu umferð Pólland, Tékkland og Ungveijaland. Ráðherrann tjáði sig ekki um hugmyndir Warrens Christophers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem hvatti nýlega til þess í ræðu að gerðir yrðu sérstakir samningar milli NATO og Rússa um samstarf í varnarmálum. Einnig hafa frammámenn bandalagsins kynnt hugmyndir um aukna áherslu á Frið- arsamstarfið (PfP), sem mörg fyrr- verandi kommúnistaríki, þ. á m. Rússland, taka þátt í með NATO- ríkjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.