Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 23

Morgunblaðið - 21.09.1996, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ Bihini fyrr ag nú Þegar kom að því að kynna bikini fyrir 50 árum, fékkst engin sýningarstúlka í París til að taka þátt í því. Hvað sem því líður voru það ekki Frakkar sem fundu bikini upp, eins og Bergljót Ingólfsdóttir bendir á, heldur má finna fyrirmyndina á mósaíkmynd frá síðari hluta 3. aldar fyrir Kristsburð. LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 23 STÚLKAN frá Ipanema, Heloisa Pinheiro, nú 53 ára, fer enn á ströndina í bikini. AFAR efnislítið bikini, framleitt árið 1996. Louis Réard að kynna bik- ini, sem franska dansmærin sýndi árið 1946. JT , , , IJULIMANUÐI árið 1946 kynnti franskur hönnuður, Lou- is Réard, nýja gerð af sól- og sundfötum, svokallað bikini. Voru þau nefnd eftir lítilli eyju, Bikini, í Kyrrahafl, þar sem Bandaríkja- menn gerðu tilraunir með kjarnorku- sprengingar. Louis Réard var verkfræð- ingur að mennt, en hann hafði hannað sundfatnað í 25 ár þegar þetta var. Aður hafði hann unnið hjá Renault bílafyrirtæk- inu. Þegar kom að því að kynna bikini fyrir 50 árum, fékkst engin sýningarstúlka í París til að taka þátt í því. Það var dansmær við „Casino de Paris“, Micheline Barnadini, sem kom fram á bikini við sundlaug í París, fyrst kvenna. Fyrir bragðið hefur nafn hennar verið rifjað upp nú 50 árum síðar, svo hún er þar með komin á spjöld tískusög- unnar. Næstu nagrannar Frakka, Spán- verjar og Italir, brugðust við eins og um hættulegan smitstjúkdóm væri að ræða, þeir bönnuðu bikini á sínum ströndum. A Spáni sáu sér- stakir gæslumenn um að fjarlægja bikiniklæddar konur og fylgja þeim heim á hótelin. Bandaríkjamenn voru ekki yfír- máta hrifnir af svo mikilli nekt, þeir vildu hafa sínar konur í sundbolum eins og þeim sem sund- og leikkonan Esther Williams klæddist í kvikmynd- um. Þar átti allt að vera í sómanum. í bandarísku Vogue- blaði í maí 1954 var mynd af stúlku í tví- skiptum sundbol, en yfír honum var hún í nokkurskonar jakka til að hylja nekt sína. Þegar bikini var fyrst framleitt í Bandaríkj- unum var neðri part- urinn, buxurnar, lát- inn ná upp að mitti, en bert á milli brjósta- haldara og buxna. Þess var vel gætt að ekki sæist í naflann. Það má segja, að velsæmismörk í klæðnaði sem öðru hafi gjörbreyst á síðustu áratugum. Hvort allt hef- ur þar verið til góðs skal ósagt lát- ið. En eftir 50 ár lifir bikini góðu lífi og hefur verið útfært á marga vegu, nektin stundum lítt hulin eins og sjá má á mynd af nýjustu gerðinni. Stúlkan frá Ipanema Margir kannast við hið fallega lag Stúlkan frá Ipanema „The girl from Ipanema", sem oft heyrist flutt. Það lag varð til í Brasilíu og bikini kom þar við sögu. I Rio de Janeiro var kornung stúlka, Heloise Mendes, sem daglega gekk fram hjá bar við Ipanema, klædd bikini á leið á ströndina. A barnum voru fasta- gestir Antonio Carlos Jobim laga- smiður og Vinicus de Mores texta- höfundur, dáðust þeii- mjög að stúlkunni ungu. Hún varð þeim inn- blásturinn að lagi og texta, fyrr- nefnds lags, sem fyrst heyrðist árið 1964. í tilefni af fímmtugsafmæli bikin- is var haft upp á þeirri er innblást- urinn gaf á sínum tíma. I banda- ríska tímaritinu Time segir frá því að Heloisa heitir nú Pinheiro að eft- irnafni, sé 53 ára gömul, gift kona og fjögurra barna móðir. Sagðist hún hafa orðið mjög undrandi þegar hún á unglingsaldri komst að því að hún átti heiðurinn að því að lag og ljóð urðu til. En tónskáldið hafði sagt henni það sjálft. Undir nafninu Helo Pinheiro hef- ur stúlkan frá Ipanema lokið við sjálfsævisögu sína. En þar segir hún frá þvi að Antonio Carlos Jobim hafi beðið sín, þegar hún var ung stúlka, hann á fertugsaldri og kvæntur maður. Hún tók þvi bón- orði ekki. Hún hefur það eftir öðr- um að hann hafi aldrei gleymt henni. Hann lést árið 1994. Nú þegar upphafs bikinis hefur verið minnst eru einhverjar efa- semdir um hvort hið upprunalega bikini sé franskt. Italir létu til sín heyra á dögunum og birtu myndir frá árinu 1945, þar sem ítalskar stúlkur eru í bikini. Vonandi verða ekki milliríkjadeilur út af þessu! íþrúttafatnaður til fnrna Hvað sem því líður voru það ekki Frakkar sem fundu bikini upp, en þeir endursköpuðu það. Á Sikiley, í höll við Piazza Armena, hefur varðveist mósaíkmynd frá síðari hluta 3. ald- ar f. Kr., þar sem stúlka er við íþróttaiðkun klædd bikini. Eins og sjá má á myndinni gæti þetta verið bikini, eins og það var fyrir nokkrum áratugum. Ekki er gott að vita hvort hinn franski Loius Réard hefur séð þessa mynd eða heyrt af henni. En svona voni þeir framsýnir Rómverjar að fornu. Bikini árið 1SSE Oft hefur bikini verið efnislítið en tæpast eins og í ár, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Naflinn sést vel en hann er skreyttur með glitr- andi steini. Bleðillinn að neðan get- ur vart verið minni en stúlkan hylur sig með klæði, í það minnsta meðan myndin er tekin. í íslenskri Orðabók, fyrstu út- gáfu, er ekki að finna heitið bikini. En í annarri útgáfu, aukinni og end- urbættri, frá árinu 1983 er bikim komið á sinn stað og hefur fengið ís- lenska fallbeygingu. Skýinngin við heitið er á þessa leið: sund og sól- baðsföt kvenna, þannig gerð að sem mest af líkamanum sé nakið. Þá vit- um við það. En öll þessi nekt . . . Getur ekki verið sannleikur fal- inn í því sem Hannes Hafstein sagði svo eftirminnilega: Fegurð hrífur hugann meir ef hjúpuð er, svo hugann gi-uni eitthvað fleira en augað sér. Mosaikmynd frá síðari hluta 3. aldar f. Kr., sem varðveist hefur á Sikiley. Charade'97 Sýning um ■ I O I (TT Q °Piö (l ^fiugcirdfí X I V /lw I I XCX sunnudag 13-1( DAIHATSU —fínn í rekstri! Frá: 998.000 Með vökvastýri, 1,3 lítra vél nieð beinni innspýtingu, útvarpi og segulbandi, iulluin bensíntanki og mörgu fleiru.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.