Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 25

Morgunblaðið - 21.09.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ VIKU m LAUGAKDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 25 KASTIÐ er þungamiðja athafnarinnar. Morgunblaðið/Halldór HÉR stendur veiðimaðurinn frammi fyrir þeirri siðferðilegu ákvörðun hvort hann á að sleppa fiskinum eða drepa hann. Þessum var sleppt. þeim fiski sem hann veiðir, nema hann sé illa særður. Þann fisk tekur hann og borðar. „Sumir veiðimenn halda því fram að það sé gott fyrir árnar að grisja þær með þvi að veiða sem mest. Að mínu mati er þetta vit- leysa. Og mesti glæpurinn er að drepa stærstu fiskana. Þú tekur ekki stærstu og bestu mjólkurkúna þína og slátrar henni. Er það? Það er að vísu rétt, að veiðieðlið í okkur er til staðar: Við drepum til að éta og það getur verið gaman að koma með fallegan fisk heim í mat- inn. En það er þetta tilgangsleysi drápsins sem ég get ekki fellt mig við. Algengasta spurning sem veiði- menn fá er: Hvað veiddirðu marga í dag? Spurningin ætti hins vegar að vera: Hvað upplifðir þú í ánni í dag? Það er ekki veiðin sjálf, eða fjöldi fiskanna, sem skiptir máli heldur sú reynsla og upplifun sem veiðimaður- inn verður fyrir. Sem betur fer er nú að koma fram á sjónarsviðið ný kyn- slóð veiðimanna sem skynjar að það er sitthvað að veiða fisk og drepa hann. Að sleppa fiskinum er eitt af því sem við leggjum áherslu á í okk- ar kennslu." Kastaá án átaha Nú vaknar sú spurning hvort hinn heimskunni laxveiðigúrú og leiðbein- andi geti kennt viðvaningi, eins og ÞAÐ er stórkostleg tilfinning að leggja pínulitla þurrflugu út í vatnið, meðal þúsunda lifandi, og fá fiskinn til að taka þína flugu, en ekki hinar. undirrituðum, að veiða lax á fimm mínútum. „Við'getum reynt," segir hann og kímir. En áður en við byrjum vil ég benda þér á fímm grundvallaratriði sem hver veiðimaður verður að átta sig á og taka afstöðu til: ■ 1. Hvar í ánni á að veiða? ■ 2. Hvaða flugu á ég að nota, vot- flugu eða þurrflugu? ■ 3. Hvaða línu á ég að nota, flot- línu eða sökklínu? ■ 4. Næsta skref er svo kastið sjálft, sem er þungamiðja athafnarinnar. ■ 5. Ef fiskur bítur á er næsta skref að landa honum. ■ 6. Hér stendur veiðimaðurinn frammi fyrir þeirri siðferðilegu ákvörðun hvort hann á að sleppa fiskinum eða drepa hann. Ef fiskur- inn er særður eða veiðimaðurinn svangur, ellegar með fullt hús af svöngum börnum sem bíða heima, þá drepur hann fiskinn. Annars sleppir hann honum.“ Þá er að vinda sér í kasttæknina. Krieger sýnir nemandanum hvernig tekið er um stöngina með „lyklagrip- inu“, eins og hann kallar það. „Og svo er að kasta án átaka, það er grundvallaratriði." Þetta virðist ætla að ganga vel og leiðbeinandinn hrósar nemandanum. „Eg held að þessi maður gæti orðið góður veiðimaður," kallar hann til Pálma, sem svarar að bragði: „Hann er líka tónlistarmaður. Ég sagði þér að tónlistarmenn eiga auðveldara með að tileinka sér þetta en aðrir. Það gerir rythminn." Og í þeim orð- um töluðum er bitið á hjá Pálma. Þetta er fallegur nýgenginn sjóbirt- ingur og honum er sleppt samkvæmt lífsviðhorfum meistarans, Mels Kriegers. Pálmi er með leðurhatt á höfði og segir að það skipti öllu máli. „Ég fór einu sinni hattlaus með vini mínum í veiði og okkur gekk svo illa að vinurinn heimtaði að ég brenndi heim í veiðihús að sækja hattinn. Hjátnáin er svo mikil í þessu.“ Dásamlegt, en dýrt Mel Krieger hefur áður komið til Islands, fyrir fimmtán árum. „Ég átti hér góða viku og þurfti því ekki að hugsa mig tvisvar um þegar ég var beðinn að koma hingað til taka þátt í gerð sjónvarpsþáttar um stanga- veiði,“ segir hann, en það voru þeir Pálmi, Jóþannes Guðmundsson og Þórarinn Agústsson, sem fengu hann hingað til lands vegna þáttar sem þeir eru að vinna fyrir Stöð 3. Og í ráði er að hann komi jafnvel aftur að ári og haldi námskeið í kasttækni. Og þá kemur hin klassíska spurn- ing: How do you like Iceland? „Island er dásamlegt veiðiland. Líklega eitt hið besta í heiminum fyr- ir veiðar á Atlantshafslaxi. Landið er líka afskaplega sérkennilegt og fal: legt og ámar ómengaðar og tærar. I Ameríku og Evrópu eru margar fal- legar ár, en þær eru flestar mengað- ar vegna iðnaðarúrgangs og fólks- mergðar. Árnar hérna eru líklega einhver dýrmætasti fjársjóður sem þið eigið. Eini ljóðurinn sem mér finnst á ráði Islendinga varðandi veiðiskap- inn er að gróðasjónarmið eru of ríkj- andi. Þetta er nú bara mín persónu- lega skoðun, þú lætur þetta ekki fara lengra. Það er alltof dýrt að fara í laxveiðiámar hérna. ísland er eitt dýrasta veiðiland í heimi. Að vísu hefur frá fomu fari verið sagt að lax- veiði sé sport konunga, en silungs- veiðin sé fyrir almenning og það hef- ur yfirleitt verið þannig, víðast hvar I heiminum, að þeir sem eiga mesta peninga fá bestu árnar. En að mínu mati er eitthvað öfugsnúið við þetta. Það er synd, ef sú andlega upplyfting sem veiðimennskan gefur, verður eingöngu á færi hinna ríku um ókomna ffamtíð. Náttúran, í allri sinni dýrð, á að vera almennings- eign.“ I gölf með Palmer íþróttatölvuleikir eru ágæt dægrastytt- ing þeim sem annars hafa óbeit á íþróttum eða nenna ekki að hamast í rysjóttu veðri. Arni Matthíasson brá sér til Hawaii að leika golf við Arnold Palmer án þess að þurfa að punga út stórum fúlgum. ÞO SÉRKENNILEGT megi virðast vilja fjöl- margir golfáhugamenn frekar stunda íþróttina heima í stofu en úti á teig, ekki síst þegar þeir geta leikið við suma fremstu golfleikara sögunnar. Þannig hafa golfleikir ævinlega notið hylli, nú síðastnýútgáfaafleiknum fræga Links með Arnold Palmer sem kjölfestu. Eftir því sem einkatölvur verða öflugri og grafík betri hafa golfleikir sótt í sig veðrið enda vinsælir vel. Flestir kannast við Mierosoft Golf, sem er víða til á tölvum, aukinheldur sem margir kannast við Links. Frumdrögin að Links voru lögð í átta bita leiknum Leaderboard sem gaml- ir tölvurefir þekkja. Næsta út- gáfa var öllu betri og kallaðist Links. Þá kom Links 386, sem var með fyrstu leikjum sem reyndu af alvöru á 386 tölvur og SVGA skjákort. Hann þótti og sérdeilis vel heppnaður og stenst að margra mati samanburð við marga leiki sem settir eru á markað í dag. Frá þeirri útgáfu er aftur á móti nokkuð langt um liðið og margur hefði kannski búist við því að lokið væri þróun- arvinnu á þeim bæ. Fyrii' vikið náðu nýir golfleikir að hasla sér völl, þar á meðal fyrirtaks golfleikur Electronic Arts, en nú er eins gott fyrir menn að vara sig því Éinks er kominn í nýrri út- gáfu, Links LS. Erafíh í hæsta gæðaflakki Ekki er gott að segja til um það hvað LS-ið táknar í enda heitis- ins, en enginn þarf að velkjast í vafa um að Links LS er verðugur arftaki Links 386. Grafík er öll í hæsta gæðaflokki og upplausnin ótrúlega vel heppnuð á köflum, svo vel heppnuð reyndar að eins gott er að hafa almennilegt skjá- kort til að geta sýnt 1280*1024 upplausn með 16,5 milljón litum. Ekki er nóg með það heldur er leikurinn allur kominn á nýtt stig í að líkja eftir raunverulegum golfleik; óteljandi atriði geta haft áhrif á leikinn, hraða, stefnu og lendingu golfkúlunnar. Veðurfar er breytilegt, reyndar yfirieitt gott, enda nenna margir gylfingar ekki að leika í vondu veðri í tölv- unni frekar en á teignum, og margt sem hefur áhi'if á kúluna, til að mynda getur skyndilega birst þoka, grasið getur verið rakt og sandurinn óþægilega grófur. Golffróðir geta skemmt sér við að stilla sér upp því hægt er að ná flestum mögulegum og ómöguleg- um höggum og púttum, en val- möguleikar eru svo margir og hægt að fínstilla svo margt að það hálfa væri nóg. Það er líka nóg af völlum að velja úr, ekki bara heimavöllur Ai-nolds Palmers, sem kemur mjög við sögu í leikn- um, heldur er einnig að finna á diskunum þremur sem fylgja leiknum tvo 18 holu velli á Hawaii og vissulega er ódýrara að kaupa sér tölvuleik en fljúga þangað. innsýn í iegndiar- dúma galfsins Arnold Palmer leggur nafn sitt við Links LS eins og áður er get- ið, en hann fer með leikanda um áðurnefndan heimavöll sinn í Latrobe í Pennsylvaníu og lýsir honum í hörgul. Hann veitir einnig innsýn í leyndardóma golfsins, gefur góð ráð og kennir það helsta með hreyfimynd og munnlegum lýsingum. Því má segja að þó leikurinn sé all strembinn fyrir byrjendur í golfi ná menn snemma áttum undir hans leiðsögn og geta síðan spreytt sig við að spila á móti Arnold. Links LS er líklega besti golfleikur sem völ er á um þessar mundir og hefur þann kost fram yfir raunverulegt golf að veðrið er alltaf gott, það þarf aldrei að flýta sér vegna þess að einhverjir koma á eftir og ekki skemmir að enginn nema leikandinn er til frásagnar um hvernig gekk. HANDBOLTINN A LENGJUNNI! ,50 Afturelding * Stjarnan 1,10 6,40 3,75 51 FH-KA 3,30 6,25 1,15 52 Grótta - Fram LAU LAU LAU 53 HK - Haukar 3,00 6,15 1,20 54 Valur - Selfoss 1,10 6,40 3,75 * 55 ÍR - ÍBV LAU LAU LAU LAU: Stuðlar ekki tilbúnir þegar auglýsing var gerð, nánari uppl. á síðu 294 i Textavarpi og á sölustöðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.