Morgunblaðið - 21.09.1996, Side 41

Morgunblaðið - 21.09.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 41 BRÉF TIL BLAÐSIIMS Vetrarstarfið í Neskirkju Tryggingamál sjómanna Frá Neskirkju: Guðsþjónustur Guðsþjónustur í vetur eru hvern sunnudag kl. 14. Fyrsta sunnudag í hveijum mánuði er að jafnaði höfð altarisganga. Sérhvern mið- vikudag er bænamessa í kapellunni og hefst hún kl. 18.05. Beðið er fyrir sjúkum og sérhveijum sem þarf á fyrirbæn að halda og einnig er altarisganga. Hægt er að koma bænarefnum á framfæri við prest- ana. Barna- og æskulýðsstarf Á venjulegum sunnudegi eru barnaguðsþjónustur kl. 11. Sú ný- breytni er tekin upp nú að hafa barnastarfið á tveimur stöðum í vetur, í Neskirkju og í Frostaskjóli. í Neskirkju er safnaðarheimilið opið frá kl. 10. Þá geta foreldrar eða aðstandendur komið með börn sín í safnaðarheimili kirkjunnar til að föndra og lita. Kl. 11 byijar dag- skrá í sjálfri kirkjunni og stendur í u.þ.b. 45 mínútur. í Frostaskjóli byijar dagskráin kl. 11 en húsið er opnað kl. 10.30. Á eftir gefst börnunum tími til að föndra og lita. Á báðum stöðum er byijað á því að kveikja á kertum og fara með bænavers. Síðan taka við söngvar og sögur. Stundum er bömunum skipt upp í hópa eftir aldri. Barna- guðsþjónusturnar eru fullar af gleði í kringum börnin og reynslan er sú að fullorðnir njóta þessara stunda ekkert síður en þau. Kirkjubíllinn fer um Skeijafjörð og flytur börnin til og frá Nes- kirkju. Fyrsta sunnudag hvers mán- aðar er sameiginleg fjölskylduguðs- þjónusta í Neskirkju og hefst hún kl. 11. Kirkjubíllinn mun þá fyrst fara um Skeijaijörðinn að venju, en síðan ná í krakkana í Frosta- skjóli. Eftir guðsþjónustu fer bíllinn síðan hringferð um allt hverfið. Á mánudögum er starf fyrir börn á aldrinum tíu til tólf ára, stundum auðkennt TTT. Það fer fram í safn- aðarheimili kirkjunnar og er húsið opnað kl. 16.30. Fundirnir byija kl. 17 og standa í klukkustund, og enda með stuttri helgistund í kap- ellu kirkjunnar. Fyrsti fundurinn verður 30. september. Á mánudagskvöldum er ungl- ingastarf í kirkjunni. Húsið er opn- að kl. 19.30 með borðtennis og fleiru, en um kl. 20 hefst fundur. I lokin er svo helgistund. Á síðasta ári var unglingakór komið á lagg- irnar og er stjórnandi hans Sigur- björg Níelsdóttir. Kórinn æfir á fimmtudögum frá kl. 15.30-16.30. Mömmu- og pabbamorgnar Á þriðjudögum frá kl. 10-12 eru mömmu- og pabbamorgnar í safn- aðarheimilinu. Þar hittast foreldrar með börn sín og ræða saman yfir kaffibolla. Þriðju hveija viku er fræðasla þar sem gestur kemur og fjallar um tiltekið efni. Allir eru hjartanlega velkomnir. Umsjón með starfinu hefur Elínborg Lárusdóttir félagsráðgjafi. Hjónastarf Um nokkurra ára skeið hefur verið fræðslustarf fyrir hjón á veg- um Neskirkju. Starfið heldur áfram í vetur og verða fundir mánaðar- lega. Þá er tekið fyrir efni sem lýt- ur að hjónabandi og fjölskyldulífi, samskiptum kynjanna, hvernig má bæta hjónabandið og hvernig á að bregðast við erfiðleikum í hjóna- bandi o.fl. Fundir eru ýmist í hönd- um þátttakenda eða gestir eru fengnir til að flytja erindi. Þeir sem hafa áhuga á þátttöku hafi sam- band við sr. Halldór Reynisson í síma 551-0535. Biblíulestrar Á þessari önn verða biblíulestrar á þriðjudögum kl. 15.30 í umsjá sr. Franks M. Halldórssonar, en hann hefur annast þá undanfarin ár og hafa þeir verið fjölsóttir. Lesnir verða valdir kaflar úr Rómveija- bréfinu. Lestrarnir hefjast þriðju- daginn 1. október. Starf fyrir aldraða Öldrunarstarfið í Neskirkju er fjölþætt. Á miðvikudögum frá kl. 13-16 er opið hús fyrir roskið fólk í umsjá kvenfélags kirkjunnar. Þar gefst tækifæri til samfunda, enn- fremur er boðið upp á kínverska leikfimi, svonefnda taiji-leikfimi. Heitt er á könnunni og hægt er að fá fótsnyrtingu. Upplýsingar veitir Sigríður í síma 551-1079. Fyrsta opna húsið verður 2. október. Á laugardögum er félagsstarf aldr- aðra, en það hefst 5. október. Boð- ið er upp á dagskrá og farið verður í stuttar ferðir um Reykjavík og nágrenni, stundum með leiðsögn fararstjóra. Kirkjubíllinn ekur um hverfið, tekur fólk og einnig er því ekið heim að lokinni ferð. Kvenfélag Neskirku Við kirkjuna hefur verið starf- andi kvenfélag í áratugi og hefur stutt dyggilega við safnaðarstarfið. Fundir eru í félaginu fyrsta mánu- dag í hveijum mánuði og eru þeir nánar auglýstir í dagbók Morgun- blaðsins. Einnig sér kvenfélagið um árlega kaffisölu og basar, og rennur ágóðinn til kirkjustarfsins. Núver- andi formaður Kvenfélags Nes- kirkju er Jóna Siguijónsdóttir. Djáknastarf - heim- sóknarþjónusta Við kirkjuna er starfandi djákni, Kristín Bögeskov. Það er í verka- hring hennar að skipuleggja og stýra vitjunarþjónustu til veikra og aldraðra í sókninni. Viðtalstímar hennar í Neskirkju eru á mánudög- um frá kl. 10-12 og á miðvikudög- um frá kl. 15-17 í síma 551-0515 og 551-6873. Kirkjukórinn Kór Neskirkju hefur fastar æf- ingar á þriðjudögum kl. 18 undir stjóm organistans Reynis Jónasson- ar og raddþjálfarans Ingu J. Back- man. Karlaraddir vantar í kórinn. Þeir sem hafa áhuga á að vera með geta snúið sér til organistans varð- andi frekari upplýsingar í síma 552-7266 eða 896-4488. Litli kórinn Á miðvikudögum að loknu opnu húsi kl. 16.15 hittist í kirkjunni eldra fólk sem hefur gaman af söng. Það syngur saman sálma, ættjarð- arlög og dægurflugur undir stjórn Reynis Jónassonar og Ingu J. Back- man. Kórinn hefur komið fram við ýmis tækifæri, m.a. sungið við guðsþjónustur. Öllum, sem áhuga hafa, er velkomið að taka þátt í þessu söngstarfi á miðvikudögum. AA-fundir Um langt árabil hafa AA-menn átt skjól í Neskirkju. Fundir eru þrisvar í viku, á þriðjudögum kl. 21 og föstudögum kl. 18 og 21. Þá eru fundir Al-Anon einu sinni í viku, á miðvikudögum kl. 21. Viðtalstímar presta Viðtalstímar prestanna eru sem hér segir: Sr. Frank M. Halldórs- son, þriðjudaga til föstudaga, frá kl. 17-18 í síma 551-1144. Sr. Halldór Reynisson, mánudaga til fimmtudaga frá kl. 11-12 í síma 551-0535. (Úr bréfi frá Neskirkju.) Frá Benedikt Brynjólfssyni: HÖFUM við sjómenn hugað nógu vel að tryggingarmálum okkar? Gæti verið að fæstir okkar hafí yfir höfuð hug- mynd um hvern- ig þeim er hátt- að? Það þykir kannski fjar- lægur hlutur að íhuga slíka hluti; það kemur ekkert fyrir mig, það hendir ein- hvern annan, er viðtekinn hugsunarháttur, en þegar slysið verður, þá koma hlutir í ljós sem fæstir okkar hafa hugmynd um. Sjómaður er frá minum sjónar- hóli svo til ótryggður. Bætur fyrir slys sem valda varanlegum örkuml- um eru það litlar að það er þjóðar- skömm. Eg undirritaður byijaði til sjós aftur fyrir tveimur árum eftir að hafa verið í landi í 11 ár. Svo gerðist það í sumar að ég slasaðist á öxl og þurfti að bíða í mánuði eftir aðgerð. Stutt frá heimili mínu er þekkt lögmannsstofa (lögmenn þar fara með 70% af slysamálum sjómanna) og þar átti ég spjall við einn af lögmönnunum; var svona að kanna stöðu mína kæmi til þess að heilsu- tjón mitt yrði kannski varanlegt. Handleggurinn yrði ekki samur aftur og ég gæti t.d. ekki gengið í hvaða vinnu sem væri. Svörin sem ég fékk voru vægast sagt ógnvænleg. Fyrir t.d. ónýta hendi eftir slys sem fellur undir hugtakið óhapp (þ.e. ekki hægt að kenna einhveijum öðrum um) færðu 2-300 þúsund krónur í bæt- ur og þarft að öllum líkindum að greiða lögmanni af þeirri upphæð. Sé aftur á móti hægt að kenna einhveijum um getur þú átt von á 700 þúsund krónum. Verðir þú aftur á móti örkumla af völdum slyss og neyðist til að vera rúmliggjandi það sem eftir er ævinnar gætirðu hugsaniega feng- ið tvær milljónir. Mér finnast þetta skelfilegar upplýsingar. Ég get raunar ekki séð að þessi mál hafi í nokkru breyst frá því sem var á gömlu síðutogurunum milli 1950- 1960. Er þetta ekki háalvarlegt mál sem þarf að taka á nú þegar og af fullri hörku? Að mínu viti er það svo. Ég veit dæmi um mann sem lærbrotnaði í bílslysi. Ekki um sér- lega slæmt brot að ræða, en hann var kominn með eina og hálfa millj- ón í vasann eftir nokkra daga. Hann hefur án efa verið vel að bótunum kominn, - en hvers vegna þennan stigsmun á réttlæti til handa sjómönnum annars vegar og öðrum hins vegar? Það gengur auðvitað ekki lengur að sjómenn liggi svo til óbættir eftir meiri og minni slys. Hvar væri þjóðin stödd án þeirra, ég bara spyr (kannski eins og fávís kona; ég meina þetta ekki í niðr- andi merkingu um okkar ágætu konur). Þetta eru mennirnir sem til dæmis dvelja allt upp í tvo mán- uði samfleytt í Smugunni og Flæmska hattinum við aðstæður sem á tíðum eru ekki mönnum bjóð- andi, eins og nýlega hefur komið fram í fjölmiðlum. hvers eigum við sjómenn að gjalda? Að ekki skuli betur að okkar kjarasamningum staðið er eitt alls- herjar hneyksli, - því eftir kjara- samningum fara þessi mál. Hluti vandamálsins er nefnilega að okkar samningar eru einfaldlega ekki beisnari en þetta. Hugsaðu þessi mál, sjómaður góður, því þetta er ekkert grín. Þú gætir orðið næstur! BENEDIKT BRYNJÓLFSSON, ________Hátúni 6, Reykjavík. 1 Háskóli íslands Endurmenntunarstofmm Háskóli Islands býður ykkur velkomin á kv öldnámskeið í október - nóv ember Hugsjónir stjórnmálanna Frelsi, réttlæti, lýðræði og jöfnuður • Dr. Vilhjálmur Ámason dósent HI. Vesturheimsferðir á 19. öld og mannlíf í Nýja Islandi • Umsjón: Gísli Sigurðsson, sérfr. á SÁM og fyrrv. gestaprófessor í Winnipeg, auk fjölda fyrirlesara. Endurreisnartíminn á Ítalíu 1400-1600 : Listasaga, hugmyndasaga og samfélagsgerð • Ólafur Gíslason blaðamaður og listgagnrýnandi. Trú, töfrar og særingar: íslensk galdramenning fyrr á öldum • Matthías Viðar Sæmundsson dósent í íslenskum bókmenntum við HI. Menning í Reykjavík á stríðsárunum: Tónlist, myndlist, bókmenntir, leiklist og kvikmyndir • Umsjón: Eggert Þór Bemharðsson sagnfr., auk fjölda fyrirlesara. íslenskar barnabókmenntir: Saga, hugmyndafræði, verklag valinna höfunda • Silja Aðalsteinsdóttir bókmenntafr., auk íslenskra barnabókahöfunda. • A vængjum vinnunnar: Verkamannamyndir Edvards Munch - í samstarfi við Listasafn Islands • Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur. Er sjálfsblekking forsenda lífshamingjunnar? Leikskáldið Henrik Ibsen og Villiöndin - í samstarfi við Þjóðleikhúsið • Leikhúsfræðingarnir Jón Viðar Jónsson og Melkorka Tekla Ólafsdóttir og Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri. Sagnir frá Grænlandi og Vínlandi - í samstarfi við Tómstundaskólann • Jón Böðvarsson cand. mag. Viltu þekkja áhrif áreynslu og þjálfunar? Lífeðlisfræði mannslíkamans • Þórarinn Sveinsson lektor og Logi Jónsson dósent. Sjálfshjálp við depurð og kvíða • Sálfræðingamir Jón Sigurður Karlsson, Kolbrún Baldursdóttir, Guðrún íris Þórsdóttir og Loftur Reimar Gissurarson. Listin að yrkja • Þórður Helgason bókmenntafr. og rithöfundur, lektor í KHÍ. Að skrifa bók - frá hugmynd að bók • Halldór Guðmundsson mag. art., útgáfustjóri Máls og menningar. Ritlist - að skrifa skáldskap Byrjenda- og framhaldsnámskeið • Rúnar Helgi Vignisson rithöfundur og bókmenntafræðingur. Skráning og nánari upplýsingar um efni, tíma og verð: Sími 525 4923,-24,-25. Bréfasími: 525 4080. Benedikt Brynjólfsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.