Morgunblaðið - 21.09.1996, Side 47
morgunblaðið
LAUGARDAGUR 21. SEPTEMBER 1996 47
SAMma
SAMmm
: SAS4-I
cSt-O
SAI3A-I
BÍÓItÖLLI
Iiitp://www.islanciíá. is/samboin ALFABAKKA 8 SIMI 5878900
FRUMSYNING: FYRIRBÆRIÐ
STORMYNDIN ERASER
^ííSSW-rS-T. V' c-w-fe.yxxj&vxrxw*
5CHWARZENEGGER
. .
★ ★★S.VMBL
1/2 S.G.X-IÐ
p»
STORMUR
„Brellurnar eru sérstaklega vel útfærðar og senda
kaldan hroll niður eftir bakinu á manni... það er
engu líkara en maður sé staddur í myljandi
hvirfilbyl þegar hann gengur yfir tjaldið." A.l. Mbl.
„Brellur gerast ekki betri." Ó.J. Bylgjan
„Brellurnar í ID4 eru ekki slæmar en þær jafnast
ekkert á við Twister" People Magazine
DIGITAL
..ERASER er góö hasarmynd og fín skemmtun þar sem
Russel keyrir söguþráöinn áfram á fullri ferð, kryddaðan
flottum brellum, fyndnum tilþrifum og góðum
aukaleikurum"...
★ ★★ S.V. MBL
Aðalhlutverk: Bill Paxton (Apollo 13, True Lies, Aliens)
og Helen Hunt (Kiss of Death, Mad About You).
Leikstjóri er Jan De Bont leikstjóri Speed.
Twister er einfaldlega stórmynd sem allir verða að
sjá.
Ein vinsælasta mynd ársins!!
Nýjasta kvikmynd John Travolta, eins virtasta leikara samtímans, er stórbrotin
saga af manni sem skyndilega öðlast mikla hæfileika. Eru kraftar hans komnir
til að vera eða er aðeins um tímabundið ástand að ræða? Mögnuð mynd sem
spáð er tilnefningum til Óskarsverðlauna.
Aðalhlutverk: John Travolta, Kyra Sedgwick, Forest Whitaker og Robert
Duvall. Leikstjóri: John Turtletaub (While You Were Sleeping, Cool Runnings).
Sýnd kl. 5, 6.50, 9 og 11.20.
Það er erfitt að
vera svalur
þegar pabbi
þinn er Guffi
Stórskemmtileg ný teiknimynd frá Walt Disney um Guffa og
ævintýri hans. Sonur hans Guffa er með unglingaveikina og
finnst ekkert svalt að láta sjá sig með pabba sínum. Myndin er
bæðí sýnd með íslensku og ensku tali.
Sýnd kl. 3 og 5. íslenskt tal.
Sýnd kl. 3 og 7. Enskt tal
Nýtt í kvikmyndahúsunum
JEFF Bridges og Scott Wolf í hlutverkum
sínum.
Teikni-
myndin
Guffagrín
frumsýnd
BÍÓHÖLLIN, Bíóborgin og Nýja
Bíó í Keflavík hafa tekið til sýning-
ar Walt Disney teiknimyndina
Guffagrín með íslensku tali. Um er
að ræða teiknimynd í fullri lengd
um ævintýri þessarar heimsþekktu
sögupersónu. Sagan segir af
Guffa og syni hans. Sá er á gelgju-
skeiðinu og þykir ekkert sérstak-
lega svalt að hafa pabba sinn með
í för. Vandamálið er bara það að
ATRIÐI úr teiknimyndinni Guffagrín.
pabbinn er á öndverðum meiði; vill
rækta sambandið við gutta og taka
hann frekar með í veiðitúrinn en á
tónleika með vinsælustu hljómsveit-
inni.
Teiknimyndin gerist í nútímanum
og er íslenska talsetningin að venju
vönduð og full af hnyttnum tilsvör-
um og bröndurum. Hið sama gildir
um stuttmyndina sem sýnd er á
undan en þar fer sjálfur Mikki mús
á kostum í sinni bestu teiknimynd
í áraraðir, segir í fréttatilkynningu
frá Sambíóunum.
Stjörnubíó sýnir
myndina Svaðilförin
STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýning-
ar á kvikmyndinni Svaðilförin eða
„White Squall“. Með helstu hlut-
verk fara þau Jeff Bridges, Carol-
ine Goodall, John Savage og Scott
Wolf. Leikstjóri er Ridley Scott
sem leikstýrði myndum á borð við
„Alien“, „Thelma & Louise“ o.fl.
Myndin hefst árið 1960 og fjall-
ar hún um hinn 17 ára Chuck Gieg
(Scott Wolf) og 12 aðra unga
menn sem skrá sig á skólaskipið
Albatross. Við fylgjumst með
löngu og ströngu ferðalagi þeirra
sem liggur um og Suður-Kyrrahaf-
ið og Karíbahafið. Ferðalagið tekur
um eitt ár. Skipstjórinn, Christop-
her Sheldon (Jeff Bridges) stýrir
skipinu með harðri hendi og sér
til þess að halda hinum við efnið.
Sama gegnir um eiginkonu skip-
stjórans dr. Alice Sheldon (Carol-
ine Goodall) og McCrea (John
Savage). Harður agi gildir á skip-
inu og munu ungu mennirnir
mannast og þroskast svo um mun-
ar. Ýmsar hættur skapast á þqssu
langa og viðburðaríka ferðalagi ög
er ekkert gefið eftir þegar stefnir
í mikinn sjávarháska. Hin unga
áhöfn telur að allt sé yfirstíganlegt
en það kemur að því að þeir eiga
við ofurefli að etja. Það eina sem
gæti bjargað þeim er viljinn til að
komast lífs af.