Morgunblaðið - 24.09.1996, Side 10

Morgunblaðið - 24.09.1996, Side 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Samkeppnisráð gagnrýnir styrki samgöngu- ráðuneytis til hótela á landsbyggðinni Þvert á markmið samkeppnislaga SAMKEPPNISRAÐ hefur fellt úr- skurð vegna ráðstöfunar styrkja á vegum úthlutunarnefndar sam- gönguráðuneytis til heilsárshótela á landsbyggðinni, og telur ráðið að forsendur nefndarinnar fari þvert gegn markmiði og tilgangi sam- keppnislaga. Forsaga málsins er sú að sam- gönguráðherra skipaði fyrir þremur árum nefnd til að fjalla um vanda heilsárshótela á landsbyggðinni og leggja fram tillögur um úrbætur. Nefndin valdi ellefu hótel sem hún taldi vera í framvarðasveit lands- byggðarhótela og bauð þeim styrk Mikiá úrvðl ðf fallegum rúmfatnaði SkébvBröiistigZl Símissi 4050 Reykiwtk- til markaðsstarfs. Öðrum heilsárs- hótelum á landsbyggðinni gafst ekki kostur á að sækja um umrædd- an styrk. Alls 35 millj. í styrki Hótelstjórinn á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit óskaði eftir því snemma sl. vor að Samkeppnisstofn- un kannaði hvort ráðstöfun fjárveit- inga á fjárlögum seinasta árs, til þessara tíu hótela sem um ræðir, raski samkeppnisstöðu landsbyggð- arhótela, auk þess sem hann lét þess getið að hann teldi Hótel Reyni- hlíð ekki síður styrkhæft en þau fyrirtæki sem fengu styrk. Skömmu síðar barst stofnuninni samsvarandi erindi frá forsvarsmönnum Hótel Selfoss. í umsögn samgönguráðuneytis frá apríl á þessu ári um erindi Hót- el Reynihlíðar, kemur fram að Al- þingi samþykkti 20 milljón króna fjárveitingu á á ijárlögum 1995 til að leysa bráðavanda hótela á lands- byggðinni. Uthlutunarnefndin lagði til að 11 hótelum, sem gátu talist heilsárshótel á landsbyggðinni, yrði úthlutað 16 milljónum króna, en 4 milljónir króna færu til samtaka hótela og fengu Regnbogahótelin þá fjárhæð til ráðstöfunar. Hæsta styrk hlaut Hótel Stykkishólmur, 2,2 milljónir króna. Nýr bfll: VW Golf 2.01 '96, 5 dyra, 5 g., vínrauðir. Álfelgur o.fl. V. 1.385 þús. Bílamarkaöurinn Smiðjuvegi 46E v/ReykjanesbrauL Kopavogi, sími 567-1800 Löggild bflasala Verið velkomin. Við vinnum fyrir þig Grand Wagoneer Ltd. ‘93, grænn, m/við arkl., sjálfsk., ek. 100 þ. km, rafm. í öllu, leðurkl., sól- lúga, álfelgur o.fl. V. 3,1 millj. Nissan Sunny 2.0 GTi ‘91, rauður, 5 g., ek. 81 þ. km, sóllúga, ABS bremsur, ál felgur, rafm. í öllu. V. 980 þús. Citroen XM 2.0i ‘91, leðurinnr., sjálfsk., ek. aöeins 84 þ. km. Rafm. í rúðum, álfelg ur o.fl. Toyota Corolla XL sedan ‘92, brúnsans., sjálf- sk., ek. 66 þ. km, grjótgrind o.fl. V. 790 þús. Hyundai Accent GSi ‘95, grænsans., 5 g., ek. 9 þ. km, 15” álfelgur, loftpúðar o.fl. V. 990 þús. Suzuki Sidekick JLX 1.8 Sport ‘96, 5 g., ek. 5 þ. km, upphækkaður, álfelgur, rafm. í öllu, þjófavörn, ABS bremsur o.fl. Sem nýr. V. 2.390 þús. Tilboðsverð á fjölda bifreiða Ath. eftirspurn eftir árg. ‘93-’97.Vantar slíka bfla á skrá og á staðinn. Ford Explorer XLT ‘92, hvítur, sjálfsk., ek. 97 þ. km, sóllúga, álfelgur o.fl. Top peintak. V. 2.150 þús. MMC Colt GLX ‘90, 5 g., ek. 66 þ. km. Nissan Sunny SLX sedan ‘92, sjálfsk., ek. aöeins 55 þ. km, rafm. í rúðum, spoil er, álflegur, 2 dekkjag. o.fl. V. 890 þús. Hyundai Elantra 1.8 GLSi ‘96, blágræns ans., 5 g., ek. 5 þ. km. Rafm. i öllu, fjarst. læsingar. Spoiler o.fl. V. 1.390 þús. Cherokee LTD 4,0 High Output ‘91, svartur, ek. 75 þ. km, leðurinnr., rafm. í öllu o.fl. V. 2.050 þús. Ford Aerostar 4x4 ‘94, hvítur, ekinn að eins 5 þ. km m/gluggum, sem nýr. V. 1.600 þús. Ath. sk. ód. Dodge Shadow ES turbo ‘88, ek. 100 þ. km 4 dyra, svartur, sjálfsk., mikiö yfirfarinn. Tilboðs- verð 560 þús. Ath. Sk. ód. Volvo 740 GL ‘89, 4 dyra, gylltur, sjálfsk., ek. aðeins 86 þ.km 2 eigendur. Mjög fall egur bíll. V. 1.050. Ath. sk. ód. Toyota Coroila GTi liftback ‘88,. hvítur, rafm. í öllu, ek. 146 þ. km. V. 550 þús. Áth. sk. ód. Ford Explorer XLT ‘92, hvítur, sjálfsk., ek. 97 þ. km. Sóllúga, rafm. í öllu. V. 2,1 millj. Lada Sport ‘93, 5 g., ek. 35 þ.km, 2 dekkjag. Gott eintak. v. 530 þús. Toyota 4Runner V-6 ‘91, steingrár, 5 g., ek. 80 þ. km, sóllúga, rafm. í rúðum, geislasp., álfelgur o.fl. Óvenju gott eintak. V. 1.850 þús. Subaru Legacy 1.8 station ‘90, hvítur, sjálfsk., ek. 85 þ. km. V. 1.020 þús. Toyota Hilux D. Cap SR-5 ‘92, bensín, m/húsi, 5 g., ek. 66 þ. km. V. 1.550 þús. MMC Lancer GLXi Royal ‘95, hvítur, 5 g., ek. 45 þ. km, álfelgur, rafm. í öllu, geislasp. o.fl. V. 1.250 þús. Hyundai Elantra 1.8 GT ‘94, sjálfsk., ek. 28 þ. km, rafm. í öllu o.fl. V. 1.090 þús. Grand Cherokee V-8 LTD Orvis ‘95, einn m/öllu, ek. 7 þ. km. Sem nýr. V. 3.980 þús. Honda Civic Shuttle 4x4 ‘89, blár, 5 g., ek. 71 þ. km. V. 690 þús. Ford Escort 1.4 station ‘93, hvítur, 5 g., ek. 58 þ. km. V. 790 þús. MMC Lancer GLXi station '93, hvítur, sjálfsk., ek. 53 þ. km. V. 980 þús. Renault 19 RN ‘94, rauöur, 5 g., ek. 65 þ. km, rafm. í rúðum o.fl. V. 890 þús. MMC Pajero langur '91, V-6 bensín, ek. 90 þ. km., 31” dekk, blár og grár, 5 g., sóllúga, rafm. í rúðum o.fl. V. 1.680 þús. Suzuki Sidekick JX ‘95, 5 dyra, blár, 5 g„ ek. 27 þ. km, álfelgur, upphækkaður, þjófavörn o.fl. V. 1.880 þús. V.W. Vento GL ‘94, rauður, 5 g„ ek. 30 þ. km. V. 1.200 þús. BMW 316i ‘92, rauður, 5 g„ ek. 85 þ. km, mjög gott eintak. V. 1.390 þús. Sk. ód. Nissan Pathfinder 2.4L ‘88, 5 g„ ek. 135 þ. km. Fallegur jeppi. V. 1.080 þús. Ráðuneytið benti jafnframt á að styrkveitingum til heilsárshótela á landsbyggðinni sé ekki lokið, þar sem Alþingi hafi samþykkt á Ijárlög- um þessa árs 15 milljóna króna fjár- veitingu til þessa málaflokks. í áliti samkeppnisráðs kemur fram að styrkurinn var ekki skilyrt- ur og hótelin hafí ekki þurft að gera grein fyrir því hvemig fénu var var- ið. Styrkirnir komi því til með að nýtast hótelunum til heildar mark- aðssóknar, en ekki aðeins um vetrar- tímann. Hótelunum, sem voru styrkt, sé því veitt visst forskot til markaðssóknar í samanburði við önnur heilsárshótel á landsbyggð- inni, en þau eru ríflega 40 talsins, ekki síst gagnvart þeim hótelum sem teljast vera á sama svæði. „Sökum þess verður að líta svo á að ofangreindur ríkisstuðningur mismuni keppinautum sem allir telja sig geta veitt sömu eða sambærilega þjónustu og þau hótel sem stuðning hlutu,“ segir í úrskurði ráðsins. „Það er því álit Samkeppnisráðs að sá styrkur sem ellefu heilsárshót- elum á landsbyggðinni var veittur í samræmi við tillögur úthlutunar- nefndar, geti haft skaðleg áhrif á samkeppnina á markaðnum fyrir heilsárshótel á landsbyggðinni og fari gegn markmiði samkeppnis- laga.“ Frétta- ljósmyndir ársins í Kringlunni SÝNING á fréttaljósmyndum ársins, World Press Photo, stendur nú sem hæst í Kringl- unni en henni lýkur 2. október. Hér virðir einn sýningargesta fyrir sér bestu myndina í flokki fréttamynda. Hún er tekin á Jövu í maí og sýnir vörubíl, hlaðinn íþróttaáhangendum, í veltu. Einnig stendur yfir sér- sýning á 32 myndum eftir ljós- myndara Morgunblaðsins á göngum Kringlunnar. Morgunblaðið/Ásdís Tillaga um heildarkjarasamn- inga til tveggja ára Laun hækki á þriggja mán- aða fresti VERKAMANNAFELAGIÐ Hlíf hefur samþykkt ályktun þar sem lagt er til að gerðir verði heildarkj- arasamningar til tveggja ára, eða frá 1. janúar 1997 til 31. des- ember 1998. Félagið leggur til að um áramót hækki grunnur kaup- taxta verkafólks um 2.700 krónur á mánuði og sama krónutöluhækk- un komi síðan á grunntaxtana á þriggja mánaða fresti út samn- ingatímabilið. Þetta myndi þýða 2.700 króna hækkun 1. janúar, 1. apríl, 1. júlí og 1. október á næsta ári og jafn- mikið 1. janúar, 1. apríl, 1. júlí og 1. október 1998, eða alls 21.600 krónur, auk þess sem starfsaldurs- hækkanir gengju í gildi á fimm ára starfstíma. Skattleysismörk hækki Einnig leggur félagið til að í slíkum kjarasamningi væru opn- unarákvæði, næðu aðrir hópar launafólks fram meiri kauphækk- un í krónutölu á samningsbilinu, til að samningurinn skili launa- jöfnun. Samningurinn skuli upp- segjaniegur með mánaðar fyrir- vara, verði breyting á gengisviðm- iðun íslensku krónunnar og sömu- leiðis ef verðlagshækkanir fari fram úr viðmiðunarmörkum sam- kvæmt forsendum samningsins.. Þá vill félagið jafnframt að sam- ið verði við stjórnvöld um að skatt- leysismörk hækki og skattkort maka nýtist að fullu, að lánskjara- vísitala verði afnumin og að íbúar í félagslegu kaupleiguhúsnæði eigi sama rétt til húsaleigubóta og aðrir leigjendur. Þá leggur félagið til að samið verði um að elli- og örorkulífeyrir fylgi launaþróun í landinu, að frítekjumörk við töku elli- og örorkulífeyris hækki hlut- fallslega jafn mikið og lægstu laun og að skattar og álögur hækki ekki á almennu launafólki eða elli- og örorkulífeyrisþegum á samn- ingatímabilinu. Misrétti hefur aukist í ályktun félagsfundar segir að launamisrétti hafi stöðugt aukist á íslandi síðan svokallaðir þjóðar- sáttarsamningar voru gerðir. „Meðan kauptaxtar verkafólks eru undir framfærslumörkum eru tekjur margra hálaunamanna það miklar að þeir eru einungis tvær til fjórar vikur að ná inn árslaunum verkamanns. Þar að auki hefur ótryggt atvinnuástand lagt í rúst efnahag þúsunda láglaunaheimila í landinu. Þessu alvarlega ástandi hafa stjórnvöld og samtök at- vinnurekenda einungis mætt með því að hækka eigin laun og skara eld að eigin köku,“ segir þar. Nemar borgi ekki fyrir val- greinar ÓHEIMILT er að krefja nemendur í grunnskólum um greiðslu fyrir námsgögn eða annað námsefni í val- greinum, samkvæmt tilkynningu frá menntamálaráðuneytinu en nýlega barst því beiðni um að úrskurða um réttmæti slíkrar gjaldtöku. Menntamálaráðuneytið bendir á að í niðurstöðum umboðsmanns Al- þingis frá 30. ágúst vegna kæru- máls frá 1988 komi fram að skólum sé ekki heimilt að innheimta gjald af nemendum fyrir kennslu. Þessi niðurstaða hafi verið höfð til hliðsjón- ar við setningu laga í fyrra um grunnskóla, samanber 33. grein iag- anna þar sem skýrt sé kveðið á um að óheimilt sé að krefja nemendur í grunnskólum um greiðslu fyrir meðal annars kennslu og námsgögn. í reglugerð um valgreinar frá þessu ári komi fram að valgreinar í grunnskóla séu hluti af skyldunámi og því skuli þær vera nemendum að kostnaðarlausu. Ráðuneytið bendir jafnframt á að í reglugerðinni sé gert ráð fyrir að valgreinatilboð skóla þurfi samþykki sveitarstjórnar, enda greiði sveitar- stjórn kostnaðinn. Vikulegur kennslutími nemenda í 10. bekk á að vera 35 kennslustund- ir á viku og má verja allt að þriðj- ungi þess tíma til valgreina sem telj- ast þar með til skyldunáms. ------»44-------- * Aætlunar- FLUGLEIÐIR eru að meta hvort áætlunarflug til Þingeyrar verði tek- ið upp að nýju og er niðurstöðu að vænta innan tveggja vikna, sagði Páll Halldórsson, forstöðumaður inn- anlandsflugs Flugleiða, í samtali við Morgunblaðið. Áætlunarflug þangað hefur legið niðri frá byijun september. Páll sagði að um tilraun hjá Flug- leiðum væri að ræða. „Verið er að meta mikilvægi áætlunarflugs til Þingeyrar í ljósi bættra samgangna um Ve_stfjarðagöng.“ Frá ísafirði hefur farþegum í stað- inn verið boðið upp á ókeypis rútu- ferðir til Þingeyrar." Að mati Páls er brýnt að Þingeyr- arvelli verði vel viðhaldið, hver svo sem niðurstaðan verður þar sem mikilvægi hans sem varaflugvallar hafi aukist til muna með tilkomu jarðganganna. Ný vetraráætlun Flugleiða innan- lands mun gilda frá 27. október til loka maí.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.