Morgunblaðið - 24.09.1996, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 24.09.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 11 Snögg umskipti gegn Banda- ríkjamönnum SKAK Armcníu, Jcrcvan ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ Ólympíuskákmótið er haldið í Armeníu dagaiia 15. september til 2. október. ÍSLENDINGAR töpuðu illa fyr- ir Bandaríkjamönnum í 6. umferð á laugardaginn á Ólympíuskák- mótinu í Jerevan. Hannes Hlífar gerði jafntefli á öðru borði, en Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson og Helgi Áss Grétarsson töpuðu allir. Úrslitin urðu þannig 'h vinn- ingur gegn 3*/2. Bandaríkjamenn hafa löngum þótt tefla grimmt til sóknar, og hefur því verið um kennt, að þeir séu aldir upp í stuttum helgar- skákmótum, þar sem hver einasta skák sé hrein úrslitaskák. Þetta hefur gefist þeim misjafnlega í flokka- keppni og undanfarin ár hafa þeir teflt af nokkuð meiri yfirveg- un. Það má ef til vill rekja til þess að á und- anförnum ólympíu- og heimsmótum landsliða hefur meiri hluti bandarísku sveitarinn- ar verið ættaður frá hinum skákmenntuðu Sovétlýðveldum. Hafi íslenska sveitin í Jerevan haldið að tímar tryllingslegra sókna hjá Bandaríkja- mönnum væru liðnir komust þeir að raun um annað á laugar- daginn. Hvítt: Christiansen Svart: Helgi Áss Grétarsson Evansbragð l.e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bc4 - Bc5 4. b4!? - Heimsmeistarinn, Kasparov, endurvakti þessa fornu bytjun í fyrra og vann, m.a., Anand í frægri skák. 4. — Bxb4 5. c3 — Ba5 í fyrrnefndri skák lék Anand 5. — Be7 og framhaldið varð 6. d4 — Ra5 7. Be2 — exd4 8. Dxd4! - Rf6?! 9. e5 - Rc6 10. Dh4 - Rd5 11. Dg3 - g6 12. 0-0 - Rb6 13. c4 - d6 14. Hdl - Rd7 15. Bh6! — Rcxeö 16. Rxe5 — Rxe5 17. Rc3 - f6 18. c5! - Rf7 19. cxd6 — cxd6 20. De3! — Rxh6 21. Dxh6 - Bf8 22. De3+! - Kf7 23. Rd5 - Be6?! 24. Rf4 - De7 25. Hel! og svartur gafst upp. 6. d4 - d6 7. Db3 - Dd7 8. dxe5 — Bb6 Svartur getur einnig leikið 8. — dxe5, en hins vegar gengur 8. — Rxe5? ekki, vegna 9. Rxe5 — dxe5 10. Bxf7+ - Dxf7 11. Db5+ ásamt 12. Dxa5 o.s.frv. 9. Rbd2 - Eftir 9. exd6 — Ra5 10. Db4 — Rxc4 11. Dxc4 cxd6 er staðan að vera nokkuð jöfn. 9. - dxe5 10. Ba3 - Ra5 11. Db4 - c5 12. Db2 — Rxc4 13. Rxc4 - f6!? Nýr leikur í stöðunni, en áður hefur oftast verið leikið hér 13. - De6 14. Rfxe5, en það hefur ekki gefist vel fyrir svart, t.d. 14. - Rf6 15. Db5+ - Bd7 16. Rxd7 - Dxe4+ 17. Kd2 - Dd5+ 18. Kc2 Dxd7 19. Hhel+ - Kf8 20. Bxc5+ — Bxc5 21. Dxc5+ — Kg8 22. Hadl - Da4+ 23. Kb2 - h6 24. Hd4 - Dc6 25. Dxc6 - bxc6 26. He7 - Rd5 27. Hd7 - Kh7 28. Hxf7 með betra tafli fyrir hvít.. 14. Hdl - De6 15. Rd6+ - Ke7 16. 0-0 - Rh6 17. c4 - Rf7 18. Rxc8+ - Haxc8 19. Hd5 - Hhd8 20. Dc2 - Kf8 21. Rh4 - g6 22.Hfdl - Hxd5 23. cxd5 - Bandaríkjamaðurinn hefur eng- ar bætur fyrir peðið sem hann fórnaði í 4. leik og verður þess vegna að reyna að flækja taflið. Eftir að hann drep- ur með c-peðinu á d5 losnar um svörtu peðin á drottningarvæng. 23. - Dd7 24. h3 - Kg7 25. Hd3 - Ba5 Framhald skák- arinnar sýnir að svarti biskupinn hefði verið betur kominn eftir B-d8- e7. 26. Hg3 - b5 27. Bcl - c4 28. De2 - c3 29. Kh2 - c2 30. Rf5+ - Kh8 31. Re3 - Bb6 32. Df3 - De7 33. Rg4 - Rd6 34. Da3! - Christiansen fiskar í gruggugu vatni af miklu hug- viti. 34. - Hc4!? Helgi var í heift- arlegu tímahraki og missti þess vegna af einföld- ustu leiðinni. Ekki verður séð að hvít- ur eigi mikla von um að bjarga tafl- inu eftir 34. — Bd8 35. Dd3 - b4 36. Hf3 — Hc3 o.s.frv. 35. Hf3 - f5? Helga yfirsést hugmynd Christ- iansens, en eftir 35. — Bc5 36. Db3 - Rxe4 37. Dxb5 - Rd6 á hvítur ekki mikið mótspil. 36. Bg5!! - Sannarlega óþægilegur leikur í bullandi tímahraki! 36. - Dxg5? Staðan er geysiflókin og margar gildrur, sem svartur verður að varast, t.d. 36. — b4 37. Dcl - Df8? 38. Bf6+ - Kg8 39. Rh6+ - Dxh6 40. Dxh6 - Re8 41. Bg5 - f4 42. Bxf4 - exf4 43. Dxf4 og hvítur vinnur. Svartur gæti farið út í endatafl með 36. — clD 37. Bxe7 — Dxa3 38. Hxa3 — Rxe4 39. Rxe5, en sú staða er ekki einföld þótt svartur eigi peði meira. 37. Dxd6 — Hxe4?? og Helgi féll á tíma, áður en Christiansen náði að leika 38. Df8+ mát. Svartur hefði líklega leikið best 37. — Hc7, en staðan er svo flókin, að erfitt er að segja til um, hvort hvítur geti haldið jafntefli. Bragi Kristjánsson Hannes Hlífar náði hálfum vinningi. Margeir hefur aldrei séð önnur eins umskipti. Horfði agndofa á félaga sína tefla við Bandaríkin „Hef aldrei séð annan eins umsnúning“ Jerevan. Morgunblaðið. „ÉG hef teflt á öllum Ólympíumót- unum síðan í Haifa árið 1976, eða í ellefu mótum, og ég hef aldrei séð annan eins umsnúning í einni viðureign," sagði Margeir Péturs- son stórmeistari eftir að hafa fylgst með félögum sínum tapa stórt gegn Bandaríkjamönnum í sjöttu umferð Ólympíuskákmóts- ins í Jerevan sl. laugardag. Og það voru orð að sönnu vegna þess að þegar nokkuð var liðið á tafl- mennskuna var allt útlit fyrir stór- sigur Islendinga. Jóhann Hjartarson hafði hvítt gegn stórmeistaranum Alex Yermolinsky á efsta borði og náði fljótlega öflugu frumkvæði og á þriðja borði virtist Helgi Ólafsson mjög snemma hafa öll ráð Joels Benjamins í hendi sér. Á fjórða borði tefldi Helgi Áss Grétarsson af hörku gegn Larry Christansen, hrifsaði til sín frumkvæðið, vann peð og stefndi í öruggan sigur. Það var aðeins á öðru borði sem Hannes Hlífar Stefánsson lenti í vanda gegn Nick DeFirmian og var um tíma ekki hugað líf í stöð- unni. En Hannes seiglaðist við og með góðri aðstoð DeFirmians, sem yfirsást mát í fjórum leikjum, náði Hannes smátt og smátt að komast yfir erfiðasta hjallann. Þrír léku afleiki í sömu andrá „Þetta lítur orðið svo vel út að ég er farinn að hafa þungar áhyggjur," sagði Ágúst Sindri Karlsson, liðsstjóri íslenska liðsins, þegar hér var komið sögu, og það var eins og við manninn mælt; skyndilega léku þeir Jóhann, Helgi Ólafsson og Helgi Áss allir af sér, nánast á sama andartaki, og það sem hefði orðið 3-1 sigur íslands, eða jafnvel stærri sigur, snerist í auðmýkjandi ósigur. Bandaríski sendiherrann var þá mættur á svæðið til að fylgjast með sínum mönnum en þeir þurftu ekki and- legan liðsstyrk hans; íslendingarn- ir sáu sjálfír um að eyðileggja sigurmöguleika sína. Hröpuðu niður í 52. sæti Nokkuð er óljóst hversu mikla yfirburði Jóhann Hjartarson hafði á efsta borðinu en alténd valdi hann ranga áætlun og undraskjótt hallaði undan fæti hjá honum. Helgi Ólafsson hafði kolunnið tafl en hugsaði sig síðan um í hálftíma og valdi algjörlega rangt fram- hald, svo skyndilega stóð hann uppi með tapað hróksendatafl. Helgi Áss fór illa að ráði sínu en hann þurfti ekki annað en að halda í horfinu þangað til tímamörkun- um væri náð og þá myndu stöðuyf- irburðir hans áreiðanlega hafa tryggt honum sigur. í staðinn reyndi hann að knýja fram sigur og lék á fáeinum sekúndum af sér öllum sínum yfirburðum og féll síðan á tíma. Hannes hélt hins vegar jöfnu og niðurstaðan varð því 0,5-3,5, Bandaríkjamönnum í hag. Við þetta hröpuðu íslendingar niður í 52. sætið með 12,5 vinn- inga. Rússar héldu efsta sætinu með því að vinna Armena með minnsta mun, 2,5-1,5, Bareev vann Lputian, en jafntefli gerðu Kasparov og Anastasian. Kasp- arov tefldi þarna sínu þriðju skák á mótinu og höfðu þær allar end- að með fremur tilþrifalitlum jafn- teflum og ber þá nýrra við því hér í eina tíð lagði Kasparov metnað sinn í að reyna að vinna svo til hveija skák á Ólympíu- skákmótunum. Rússar höfðu 17,5 vinninga eft- ir sjöttu umferð, síðan komu Tékk- ar sem unnu Perúmenn 4-0, Spánveijar sem unnu Kínveija 2,5-1,5 (Shirov vann Ye), og Eng- lendingar sem unnu Georgíumenn með sama mun (Short gerði jafn- tefli við Asmaeparasvili, Adams tapaði en Speelman og Sadler unnu sínar skákir). Önnur úrslit m.a.: Ungveijaland-Frakkland 2.5- 1,5 (Portisch vann Renet), Kúba-Bosnía 2-2, Króatía- Þýskaland 2,5-1,5, Holland- Hvíta-Rússland 2,5-1,5, Svíþjóð- Rúmenía 2-2, Úkraína-Kasakst- an 2-2 og Búlgaría-Portúgal 3-1. Danir lágu ekki síður illa í því en við íslendingar því þeir töpuðu 1-3 fyrir C-liði Armeníu, Norð- menn töpuðu 1,5-2,5 fyrir Make- dóníu en Finnar unnu Tyrki 3.5- 0,5. Færeyingar töpuðu 1.5- 2,5 fyrir Úganda. ^MEXIKéWi í CECNUM BRAGPLAUKANA! MEXÍKÓSKIR DAGAR VERÐA í GRILLINU DAGANA 24.-Z9. SEPTEMBER. ÞÁ MÆTIR SNILLINGURINN ALEJANDRO CALOGA OG TÖFRAR FRAM ÞAÐ BESTA í MATARGERÐ MEXÍKÓBÚA OG MEXÍKÓSKTTRÍÓ SKEMMTIR MATARGESTUM MED ÞEIRRA EINSTÖKU ÞJÓÐLAGATÓNLIST. SÝNISHORN AF MATSEÐLI: FORRÉTTUR TOSTADAS DE POLLO MAÍSSKEL MEÐ KJÚKLINGUM, BAUNASPÍRUM, LAUK OC TÓMÖTUM 690 KR. APALRÉTTUR CARNE ASADA A LA TAMPIQUENA CLÓÐARSTEIKT KRYDDLÖCÐ NAUTALUND AÐ HÆTTI TAMPIQUENABÚA 1980 KR. EFTIRRÉTTUR FLAN BLANCO AL ROMPOPA MARENSBÚÐINCUR MED ECCJALÍKJÖR 730 KR. KYNNISTTÖFRUMMEXÍKÓSKRARMATARGERÐAR í GRILLINU! i BORÐAPANTANIR í SÍA-VA 552 5053 EÐA 552 9900. i EFTIRTÖLDUM AÐILUM ÞÖKKUM VIÐ GÓÐAN STUÐNING: FERÐAMÁLAKÁP MEXÍKÓ, SENPIRÁP MEXlKÓ í NOREGI, R+PISMANNSSKRIFSTOFA MEXÍKÓ f REYKJAVÍK, > . KRYSTAL HÓTELKEPJAN f MEXIKÓ, AEROMEXICO, FLUGLEIÐIR. -þín sagal

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.