Morgunblaðið - 24.09.1996, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 15
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
MIKIÐ fjölmenni var viö vígslu hitaveitunnar í Skorradal um helgina.
Hitaveita
Skorra-
dals tekin
í notkun
Grund - Þórður Runólfsson,
sem átti 100 ára afmæli þann
18. september sl., tók formlega
í notkun virkjaða borholu
Skorradalshrepps með því að
kveikja á öryggisljósi dæluhúss-
ins sl. laugardag.
Hreppsnefnd Skorradals-
hrepps og Hitaveita Skorradals
buðu til vígsluhátíðar í tilefni
þess að virkjuð borhola hrepps-
ins og Hitaveita Skorradals er
tekin til starfa.
Hátíðin hófst kl. 16 með því
að gestir söfnuðust saman við
borholuna undir hlíðum Draga-
fells. Þar var farið yfir sögu hita-
vatnsleitar í Skorradal sem hófst
29. janúar 1992 en lauk með frá-
bærum árangri 6. júní 1994 þeg-
ar kotnið var niður á heitavatns-
æðá816mdýpi.
Eins og áður sagði tók Þórður
Runólfsson, bóndi í Haga, virkj-
unarmannvirkin formlega í
notkun og að því loknu bauð
Hitaveita Skorradals síðan gest-
um í Skátafell og þar fór fram
fjölbeytt dagskrá.
Formaður Hitaveitufélagsins,
Birgir Guðmundsson, rakti sögu
framkvæmdanna frá því að Hita-
veita Skorradals var stofnuð 3.
mars sl. og til þessa dags er
ÞÓRÐUR Runólfsson bóndi í Haga, sem átti 100 ára afmæli
fyrir skömmu, opnaði hitaveituna formlega.
DAVÍÐ Pétursson, oddviti Skorradalshrepps, flutti ávarp.
Hitaveitan víir formlega tekin í
notkun. I máli formannsins kom
fram að núverandi áfangi þarf
einungis ‘/3 eða 74 af orkufram-
leiðslu hitaveituholunnar væri
hún fullvirkjuð.
Að ræðu formanns lokinni
skemmtu þau Dagný Sigurðar-
dóttir og Snorri Hjálmarsson
gestum með söng við undirleik
Davíðs Þ. Jónssonar. Margir
fluttu aðstandendum hitaveit-
unnar árnaðaróskir og einnig
bárust heillaskeyti ogblóm.
MEBflSHENC
HILLUKERFI
ÓDÝRARI LAUSN
FYRIR LAGERINN
OG GEYMSLUNA
Fagleg rábgjöf - leitið tilboöa
Isold ehf.
Umbods-& hei/dverslun
Faxafen 10 - 108 Reykjavík Sími 581 1091 - Fax 553 0170
Nýtt öflugt og ódýrara hillukerfi,
auövelt í uppsetningu, engar skrúfur.