Morgunblaðið - 24.09.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 19
ERLENT
Gætu þurft að fresta að-
gerð Jeltsíns eða hætta við
Moskvu. Reuter, The Daily Telegraph.
RÚSSNESKA stjórnin neitaði í
gær að tjá sig um fréttir þess
efnis að ef til vill þyrfti að fresta
hjartaskurðaðgerð Borís Jeltsíns
forseta um allt að tvo mánuði
eða hætta algjörlega við hana
þar sem henni fylgdi meiri
áhætta en talið var í fyrstu.
Rússneskir læknar og erlendir
hjartasérfræðingar ákveða á
miðvikudag eða fimmtudag
hvort eða hvenær forsetinn verð-
ur skorinn upp við kransæða-
stíflu. Talsmaður stjórnarinnar
kvaðst ekkert geta sagt um lík-
urnar á að hætt yrði við aðgerð-
ina fyrr en eftir fund læknanna
í Moskvu.
Rússneski læknirinn, sem talið
er að skeri forsetann upp, Renat
Aktsjúrín, sagði í viðtali við rúss-
neska sjónvarpið NTV á sunnu-
dag að læknarnir kynnu að þurfa
að fresta aðgerðinni um allt að
tvo mánuði og hann gæti jafnvel
þurft að sætta sig við að gang-
ast ekki undir aðgerðina.
Áhættan minni ef beðið
verður
Aktsjúrín sagði að læknarnir
myndu ræða hversu mikil áhætta
fylgdi aðgerðinni. „Við ætlum
að athuga hvort sjúklingurinn
er undir aðgerðina búinn. Ef
áhættan er réttlætanleg, verður
látið til skarar skríða. Ef ekki,
mega menn ekki gera neina vit-
leysu,“ sagði hann. „Við þurfum
að ganga í gegnum ákveðinn
undirbúningstíma og Jeltsín virð-
ist skilja það. Því fyrr sem skor-
ið verður upp þeim mun meiri
verður áhættan.“
Hann bætti við að líkurnar á
því að sjúklingar lifðu af slíka
hjartaaðgerð væru yfirleitt
85-90% ef vandamál kæmu upp
varðandi önnur líffæri. Aktsjúr-
ín var spurður hvort læknarnir
kynnu að hætta við aðgerðina.
„Það er hugsanlegt en við verð-
um þá að skapa sérstakar að-
stæður fyrir forsetann. Við
myndum neyðast til að tak-
marka líkamlega áreynslu hans.
Hann myndi ekki sætta sig við
það.“
Aktsjúrín framkvæmdi svip-
aða hjartaðaðgerð á Viktor
Tsjernomyrdín forsætisráðherra
fyrir átta árum og kvaðst ekki
kvíða því að skera forsetann upp
Ahættan meiri en talið var í fyrstu
Reuter
JEVGENÍ Tsjazov, yfirmaður Rannsóknarmiðstöðvar hjarta-
sjúkdóma í Moskvu (t.v.), tekur á móti bandaríska hjartaskurð-
lækninum Michael DeBakey þegar hann kom til Moskvu í gær
til að aðstoða lækna sem undirbúa aðgerðina á Borís
Jeltsín forseta.
þrátt fyrir áhætt-
una.
Fyrrverandi læri-
faðir Aktsjúríns,
bandaríski hjarta-
skurðlæknirinn
Michael DeBakey,
fór til Moskvu í gær
til að aðstoða rúss-
nesku læknana.
Aktsjúrín sagði að
DeBakey myndi ekki
skera Jeltsín upp en
myndi leggja lækn-
unum lið sem ráð-
gjafi. DeBakey er 88
ára og Aktsjúrín
lýsti honum sem
„Tolstoj hjartasjúk-
dómafræðinnar".
Ber sig vel
Dóttir Jeltsíns, Tatjana, sagði
í sjónvarpsviðtali um helgina að
hann fylgdist grannt með þróun
helstu þjóðmála. „Hann hlustar
af athygli þegar honum er sagt
hveijir hafi hringt í hann og
hver skilaboðin voru. Hann les
dagblöð og veit um allt sem
sagt er um hann.“
Dóttirin sagði að
Jeltsín væri kvíðinn
en léti ekki bera á
áhyggjum sínum
enda væri hann ekki
vanur að flíka til-
finningunum. Aktsj-
úrín sagði að forset-
inn bæri sig vel,
væri í „baráttuham"
og það gæti hjálpað
honum.
Tatjana sagði að
í stað þess að hvíla
sig hefði Jeltsín
stundað anda- og
villisvínaveiðar í
byrjun mánaðarins
þegar hann skýrði frá því að
hann hefði samþykkt að gangast
undir hjartaaðgerð.
„Okkur reyndist mjög erfítt
að fá hann til að vera áfram á
sjúkrahúsinu," sagði hún. „Hann
er mjög atorkusamur maður og
það að vera lokaður inni í her-
bergi er stórhættulegt í hans
augum.“
Ljóst er að mjög erfitt yrði
RENAT Aktsjúrín,
sem talið er að skeri
forsetann upp.
fyrir Jeltsín að sætta sig við að
þurfa að vera á heilsuhælum eða
sjúkrahúsum það sem eftir er
ævinnar eins og hann hefur gert
síðustu þrjá mánuði. Neiti lækn-
arnir að skera hann upp munu
andstæðingar hans úr röðum
kommúnista og þjóðernissinna
krefjast afsagnar hans á þeirri
forsendu að hann geti ekki gegnt
embættinu.
Barist á bak við tjöldin
Talið er að áhrifamiklir menn
í Kreml hafi þegar hafið baráttu
um forsetaembættið á bak við
tjöldin. Forsetinn hefur gefið út
tilskipun þar sem staðfest er að
Viktor Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra verði staðgengill hans
geti hann ekki gegnt embættinu
vegna veikinda. Jeltsín virðist
hins vegar tregur til að afsala
sér völdum til lengri tíma. Heim-
ildarmenn í Kreml segja líklegt
að verði forsetinn skorinn upp
afsali hann sér völdunum í
nokkrar klukkustundir, eða þar
til hann vaknar eftir aðgerðina.
Verði ákveðið að fresta skurð-
aðgerðinni í tvo mánuði dregur
það úr læknisfræðilegu áhætt-
unni en töfin gæti jafnframt
aukið hættuna á því stjórnkerfið
lamaðist vegna valdabaráttunn-
ar.
Nokkrir sérfræðingar í rúss-
neskum stjórnmálum sögðu að
slík töf myndi litlu breyta í Kreml
þar sem forsetanum hefði tekist
að skapa ákveðið valdajafnvægi
milli helstu forsetaefnanna,
Tsjernomyrdíns forsætisráð-
herra, Alexanders Lebeds, yfir-
manns öryggisráðsins, og Anat-
olís Tsjúbajs, skrifstofustjóra
forsetans.
Aðrir stjórnmálaskýrendur
voru á öndverðum meiði og
sögðu að harka myndi færast í
valdabaráttuna. „Enginn er að
tala um valdarán, en við búumst
við erfiðum tímum, án skýrrar
valdaskiptingar," sagði Ljúdmila
Telen, aðstoðarritstjóri viku-
blaðsins Moskvufrétta.
Aðrir sérfræðingar sögðust
óttast að stjórnkerfið lamaðist
og ýmis óleyst vandamál myndu
hrannast upp, einkum í efna-
hagnum. Vangoldin laun hafa
þegar leitt til verkfalla og mót-
mæla á síðustu vikum.
Biskup
selur
sögu sína
London. The Daily Telegraph.
RODERICK Wright, fyrrverandi
biskup af Argyll, sem nú er í felum
ásamt fráskilinni ástkonu skinni,
hefur fengið tilboð um að klæðast
prestshempu á ný. Sagði erkibisk-
upinn af Edinborg, Keith O’Brien,
að Wright yrði boðið prestsembætti
þrátt fyrir að allt sem á undan er
gengið og það að hann hafi um
helgina selt sögu sína til götublaðs.
Wright hefur verið tvær vikur í
felum en samþykkti um helgina til-
boð News of the World um að segja
í smáatriðum frá ástarsambandi
sínu við Kathleen MacPhee. Fullyrt
er að Wright fái um 30 milljónir
ísl.kr fyrir en að féð renni til barna
MacPhee.
O’Brien sagði að Wright ætti
fyrst og fremst að hugsa um fimmt-
án ára gamlan son sinn sem hann
eignaðist í öðru ástarsambandi.
Telur biskupinn ekki nauðsynlegt
að Wright giftist móður drengsins,
heldur gangist við honum og kynn-
ist honum. Geri hann það, geti hann
snúið aftur til kirkjunnar.
Erkibiskupinn og kardináli kaþ-
ólsku kirkjunnar lýstu því yfir á
sunnudag að ákvörðun Wrights um
að selja sögu sína væri „hörmuleg"
en glöddust jafnframt yfir því að
líðan hans virtist góð. Aðrir kirkj-
unnar menn voru ekki eins sam-
úðarfullir og kölluðu biskupinn fyrr-
verandi Júdas.
.....-»—♦—»----
Lægsta
verð á áli í
rúm 2 ár
London. Reuter.
VERÐ á málmmörkuðum lækkaði
í gær og hefur verð á áli ekki verið
lægra í tvö ár og þijá mánuði.
Stórir bandarískir fjárfestinga-
sjóðir seldu mikið á málmarkaðnum
í London í gær og seldist ál á innan
við 1.400 dollara, sem hefur ekki
gerzt síðan í júní 1994.
Á1 til afhendingar eftir þijá mán-
uði seldist fyrir hádegi á 1.392 doll-
ara, sem var 20 dollara lækkun úr
1.412 dollurum á föstudag. Álverð
hefur lækkað úr 1.700 dollurum
síðan í janúar.
Sérfræðingar á málmmörkuðum
segja að verðlag sé undir þrýstingi
vegna aukinnar framleiðslu, vax-
andi birgða og sölutregðu.