Morgunblaðið - 24.09.1996, Page 25

Morgunblaðið - 24.09.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 25 MENNTUN Kópa- vogsskóli einsetinn MEÐ tilkomu 1.000 fm. við- byggingar við Kópavogsskóla, sem nú hefur verið tekin í notk- un, hefur opnast möguleiki á að einsetja skólann frá og með því skólaári sem nú er hafið. Sömuleiðis hefur viðbyggingin gert kleift að stofna sérdeild fyrir nemendur sem þurfa á sérúrræðum að halda í námi. I sérdeildinni eru fimm nem- endur á aldrinum 6 og 7 ára sem búsettir eru víða í Kópa- vogi en starfsmenn eru fjórir. Sérdeildin er í sérhönnuðu hús- næði í nýbyggingu skólans, en þar eru einnig fjórar almennar kennslustofur, raungreina- stofa, myndamenntastofa og samkomusalur auk samnýting- arrýmis. I undirbúningi er einnig að byggja upp tölvuver og segir í fréttatilkynningu að þess verði væntanlega ekki langt að bíða. Verður þar meðal annars kennd vélritun með tölvuforritinu „Bach“. Háskóli íslands Margir sækja um aðstoðar- menn HÁTT í sjötíu umsóknir hafa borist frá háskólakennurum um að ráða sér aðstoðarmenn, að sögn Halldórs Jónssonar deild- arstjóra Rannsóknarsviðs HÍ og mun á næstu dögum ský- rast hvernig úthlutun verður varið. Sjóðurinn sem er til út- hlutunar er að upphæð 2,9 milljónir króna. Tómstundaskólinn Nýtt kennslu- húsnæði MÍMIR-Tómstundaskólinn hef- ur tekið í notkun nýtt skólahús- næði að Grensásvegi 16a, þar sem áður var Listasafn ASÍ. Skólinn stendur fyrir fjölbreytt- um námskeiðum, en tæpleg 700 nemendur stunda tungu- málanám í skólanum á hverri önn. Auk þess eru barna- og unglinganámskeiðin vaxandi þáttur í starfsemi skólans. Nýr skólastjóri, Andrés Guðmunds- son, hefur tekið við af Þráni Halgrímssyni. Lýðskólinn ekki hafinn vegna fjárskorts m LOWARA RYÐFRÍAR ÞREPADÆLUR Morgunblaðið/Ásdfs NOKKRIR nemendanna sem voru á vorönn Lýðskólans komu saman fyrir skömmu til að fagna útkomu vestnorræna skólablaðsins Ozon. Skólastjórinn, Oddur Albertsson, er lengst til vinstri. Flestir fyrri nemendur komnir í framhaldsnám LYÐSKOLINN hefur ekki tekið til starfa á þessu hausti vegna fjár- skorts, en að sögn Odds Albertsson- ar skólastjóra er Norræna húsið reiðubúið að leggja fram 2 m.kr styrk eins og það gerði á vorönn, svo fremi sem aðrir leggi til það fjármagn sem upp á vantar. Segir Oddur að hvorki menntamála- né félagsmálaráðuneytið hafi séð sér fært að leggja fram fé til skólans á næstu önn, hins vegar hafi verið leitað til borgarinnar um styrk. Verður málið tekið til afgreiðslu í borgarráði í dag. Þýðir ekki að gefa reiðu barni bók Síðastliðið vor fór fram í fyrsta sinn tilraunastarfsemi á þessu skólaformi hér á landi og telur Odd- ur að árangur hafi verið mjög góð- ur. Hann bendir á að 15 af þeim 18 nemendum sem stunduðu nám á vorönn hafi skráð sig í framhalds- skóla í haust, en þeir eru á aldrinum 17-20 ára. „Það þýðir ekkert að gefa reiðu barni bók. Þegar krakkar hata skólann verður að finna leið til að fá þá til að sætta sig við hann með einhveiju móti, því þetta unga fólk veit að leiðin til frama liggur í gegnum menntun. Okkur tókst að skapa hjá þeim tilfinningu og tengja sálarlífið við skóla, sem er ekki ógeðslegur heldur skóla sem þau finna sig í. Þar sem kennarar, fé- lagsskapurinn og viðfangsefnin eru þeim að skapi. Þá verður metnaður- inn til staðar og þau geta tekist á við nýtt skref,“ segir Oddur. Hann segir að vegna þessa góða árangurs hafi það orðið honum og Lýðskólafélaginu mikil vonbrigði í vor þegar þau leituðu til mennta- málaráðuneytis um fjármagn að fá ekki athygli að svo komnu máli. „Menntamálaráðherra benti okkur á að reglugerðir, sem fylgja nýjum lögum, væru ekki fullmótaðar en þar væri reynt að mæta þessum hópi meðal annars í Borgarholts- skóla,“ segir Oddur. Nemendur aðstoðaðir Hann tekur fram að Borgar- holtsskóli sé með fjölmenntabraut, sem er útfærsla á svipuðum verkiýsingum og Lýðskólinn hafi verið með, þ.e. að hjálpa krökkum við að fínna áhugamál sín, hæfileika o.s.frv. Það sé hins vegar reynslan að til að skapa andrúmsloft sem krökkum líkar verði skólinn að vera óháður gamla kerfmu, þ.e. skilgreiningu á hvað þekking er, hvað skóli er og hvað er aðalfag og aukafag. Oddur segist hins vegar vera ánægður með að Reykjavíkurborg hafi gefið í skyn að tilraun Lýðskól- ans sé þess virði að styrkja hann á einhvern hátt. Hann kveðst bjart- sýnn á fjármagn og segir að næsta skref muni vera að höfða til fleiri markhópa en einungis þeirra _sem hvorki séu í vinnu né skóla. Ýmis samtök hafa sýnt áhuga á sam- starfi, eins og félag heyrnarlausra, félag sérkennara og Rauði krossinn, sem er með hugmyndir um nám fyr- ir ómenntaðar einstæðar mæður. „Svona skólaform getur mætt ákveðnum hópum með sérstökum hætti, enda hefur reynslan erlendis sýnt fram á það,“ segir Oddur. Hann segir að rætt hafi verið um að Lýð- skólinn fái hugsanlega aðsetur hjá Námsflokkum Reykjavíkur eftir ára- mót. Gæðavara, mikið úrvai, hagstætt verð, örugg þjónustat = HÉÐINN = VERSLUN SELJAVEGI 2 SÍMI 562 4260 , 48bs>»_ ■ -kjarni niálvim! skólar/námskeið tónlist QÆÐfiSTjÓRNaN í MENNTfiKERFINCI Föstudaginn 27. september kl. 10 - 17 Hétel Borg Diane S. Ritter fyrirlesari námstefnunnar starfar sem deildarstjóri menntasviðs hjá ráðgjafafyrirtækinu GOAL/QPC i Bandaríkjunum. Hún hefur stundað rannsóknir á altækri gæðastjórnun í menntakerfinu og unnið sem ráðgjafi bæði í grunnskólum, framhaldsskólum og háskólum. Lögð verður áhersla á umijöllun um hvernig má nota verklag og aðferðir altækrar gæðastjórnunar í menntakerfinu, einkum við stjórnun og skiplagningu skólastarfs og í skipulegu umbótastarfi í skólum. Einnig verður fjallað um leiðir og verkfæri fyrir skólastjómendur, kennara og nemendur til að örva skapandi hugsun við lausn á vandamálum. Verð kr. 5.900, og 4.900 f. félagsmenn Skráning: sími 511 5666 arney@vsi.is GÆÐASTJÓRNUNARFÉLAG ÍSLANDS Nimari uppl>siugat : http: skima.is g^fi ■ Píanókennsla. Einkakennsla á píanó og í tónfræði. Upplýsingar og innritun í síma 553 1507. Anna Ingólfsdóttir. ■ Kinversk leikfimi - Qi Gong/Chi Kung Hver tími er 1 klst. Hægt að velja fjölda líma á viku. Kennt er mán. og fim. kl. 7.45-8.45 f.h. - mán. kl. 9-10 f.h. og þri. og fös. kl. 17.30-18.30. Námskeiðið hefst 26. sept. í Sjálfefli, Nýbýlavegi 30, Kóp., 554 1107. Leiðbeinandi Helga Jóakimsdóttir. Uppl. og skráning í síma 568 6516. Birna Smith, Norðurljósin, Laugarásvegi 27, s. 553 6677. ■ Bætt heilsa - betra útlit Hæ. elskurnar Hef fengið lærabanann góða í umboðssölu á 6.500 kr. og selló- lite-olíur, (gott verð). Verð áfram með sogæðanudd og Trimm-form. Saman 5 tímar á 8000 kr. Losar um fitu, bjúg og sellólite, styrkir varnarkerfið og eyk- ur úthald. myndmennt ■ MYND-MÁL Myndlistarnámskeið fyrir byrjendur og lengra komna. Undirstöðuatriði og tækni. Málað með vatns- og olíulitum. Uppl. og innritun eftir kl. 14 alla daga. Rúna Gísladóttir listmálari, sfmi 561 1525. ■ Tréskurðarnámskeið Tréskurðarkennsla síðan 1972. Náms- braut í sjö stigum með allt að 250 verkefn- um. FuUskipað í bili, en innritað í nýjan hóp byrjenda sem hefst 1. október. Hannes Flosason myndskurðarmeistari, sími 554 0123.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.