Morgunblaðið - 24.09.1996, Síða 27

Morgunblaðið - 24.09.1996, Síða 27
26 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 27 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. AÐGENGI SÓKNARBARNA AÐ KIRKJUM FYRR á þessu ári leituðu hjónaefni, sóknarbörn í tilteknu prestakalli norður í landi, til nágrannaprests. Erindið var að fá hann til að annast hjónavígslu þeirra - í sóknar- kirkju hjónaefnanna. Þegar prestur kom til grannkirkju sinn- ar var hún læst og lokuð og gaf hann brúðhjónin saman nánast undir kirkjuveggnum. Nýlega kvað siðanefnd Presta- félags íslands upp þann úrskurð í þessu sérstæða máli, að sóknarprestur geti ekki meinað öðrum presti að annast at- hafnir í „eigin“ safnaðarkirkju, enda uppfylli athöfnin öll formleg skilyrði og kirkjan sé ekki í annarri notkun á sama tíma. Meginreglan er að sjálfsögðu sú, enn sem áður, að safnað- arprestur annast prestsverk fyrir sóknarbörn sín. Aðstæður hafa á hinn bóginn gjörbreytzt í samfélagi okkar með þeim afleiðingum, áð sóknarmörk hafa í reynd minna vægi en áður. Þetta á einkum við um höfuðborgarsvæðið þar sem fólk sækir guðsþjónustur vítt og breitt um samvaxnar byggð- ir þess. Það leitar og persónubundinnar prestsþjónustu utan sinnar sóknar, ef hugur þess stendur til. Og prestar sinna oftlega prestsverkum utan eigin safnaða, ef eftir er leitað. Þróunin er hægari að þessu leyti utan höfuðborgarsvæðis- ins, þótt þar miði einnig til sömu áttar, hvort sem mönnum líkar betur eða verr. Vaxandi valfrelsi í samfélaginu setur mark sitt á alla þjónustu, kirkjulega sem aðra. Breyttar og betri samgöngur hafa fært byggðir og söfnuði í nábýli, sem ýtir undir þessa þróun. Byggðaþróun kemur einnig til sög- unnar; fjölskyldur hafa dreifst um land allt, en byggða- og fjölskyldutengsl hafa oft áhrif á prests- og/eða staðarval fólks, sem leitar þjónustu kirkjunnar. Kirkjur eru Kristi vígður helgidómur. Afnot af þeim verða að virða þann veruleika. En vandséð er, eins og fram kemur í úrskurði siðanefndar Prestafélagsins, á hvaða forsendum sóknarprestur getur neitað sóknarbörnum um afnot af eigin safnaðarkirkju, ef athöfn uppfyllir öll formleg skilyrði. Slíkt á ekki að geta gerzt. Aðgengi sóknarbarna að eigin safnað- arkirkju á að vera hafið yfir allan ágreining. NEYTENDAHOLL SAMKEPPNI HEIMILISBÍLLINN, kaup og rekstur, er gildur þáttur í útgjöldum flestra landsmanna. Þannig er talið að rekstur fjölskyldubíls taki í mörgum tifellum til sín meiri fjármuni en matarkaupin. Það er saga út af fyrir sig, sem ekki verður rædd hér og nú, að ríkisskattar eru meira en helmingur bæði af kaup- verði bíls og benzíns. Tryggingar vega síðan hvað þyngst í rekstri heimilisbílsins. Morgunblaðið braut þann rekstrar- þátt kirfilega til mergjar í ítarlegum greinarflokki í fyrra. Þar segir m.a.: „Samkeppni hefur verið frekar dauf á íslenzkum bíla- tryggingamarkaði. Hann ber öll einkenni fákeppni, þar sem ákveðið jafnvægi ríkir. Lítill munur er á almennum iðgjöld- um ... Samkeppni er lífleg í mörgum Evrópulöndum og hefur verið að glæðast með opnun markaðarins. Tryggingafélög sem selja þjónustu sína beint, án milligöngu vátrygginga- miðlara, hafa verið að þjarma að gömlu risunum og þeir hafa orðið að bregðast við.“ Nýtt félag, FÍB-trygging, hóf á dögunum sölu bifreiða- trygginga hér á landi sem umboðsaðili Ibex Motor Policis, sem er á Lloyd’s tryggingamarkaðinum í London. Hér verð- ur ekki farið ofan í saumana á tryggingakostum, sem hið nýja félag býður, né gerður samanburður á þeim og öðrum tryggingamöguleikum, sem fyrir hendi eru. Það gerir hver og einn af sjónarhóli eigin hagsmuna. Ljóst er engu að síð- ur að aukin samkeppni á þessum vettvangi, sem öðrum, er neytendaholl. Tryggingafélögin, sem fyrir eru á markaðnum eru öll rekin undir merkjum frjálsrar samkeppni og geta því ekki gert athugasemdir við að fleiri reyni fyrir sér. Reynslan leiðir svo í ljós, hversu langvinn sú starfsemi verð- ur. Sporin hræða í þeim efnum en í þeim orðum felst engan veginn áfellisdómur yfir hinu nýja tryggingafélagi. Til marks um áhrif aukinnar samkeppni má nefna að hörð og vaxandi samkeppni í smásöluverzlun, sem hér hefur ráðið ferð sið- ustu 15-20 ár, hefur fært landsmönnum raunhæfari kaup- auka en flestar aðrar „kjarabaráttuleiðir“. Seðlabankinn hækkar vexti um 0,4% og lausafjárhlutfall innlánsstofnana úr 10 í 12% Morgunblaðið/Kristinn Stigiðá bremsur til að spoma við þenslu Seðlabankinn ákvað í gær að hækka vexti í viðskiptum við innlánsstofnanir og ávöxtun í tilboðum bankans í ríkisvíxla. Jafnframt verð- ur lausafjárhlutfall bankanna hækkað 1. októ- ber. Markmiðið er að spoma við vaxandi * * einkaneyslu og þenslu. I grein Omars Frið- rikssonar kemur fram að talið er að bankar og sparisjóðir muni hækka vexti á skamm- tímaskuldbindingum í kjölfarið. Morgunblaðið/Kristinn Þurfum ekki að sjá eftir ESB-aðild AÐ hefur komið hagfræð- ingum innan stjórnkerfis- ins á óvart að undanförnu að nýjustu innflutningstöl- ur sýna áframhaldandi verulega aukningu innflutnings á neysluvör- um á síðari hluta ársins. Aukinn viðskiptahalli er mikið áhyggjuefni, að mati sérfræðinga. Hér er um mikil umskipti að ræða. Afgangur hefur verið af viðskiptum við útlönd undanfarin þijú ár og á síðasta ári nam hann 3,9 milljörðum króna. í febrúar sl. áætlaði Þjóðhagsstofnun að halli á viðskiptum við útlönd yrði 1,3 milijarðar. í júní kom síðan ný spá frá stofnuninni á þá leið að við- skiptahalli á þessu ári yrði 6,1 millj- arður. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins benda nýjustu upplýsingar til að viðskiptahallinn verði sjö til tíu milljarðar á árinu en nákvæmari spár fást ekki fyrr en þjóðhagsáætl- un verður lögð fram samhliða fram- lagningu fjárlagafrumvarps og stefnuræðu forsætisráðherra við setningu Alþingis 1. október. Sparnaður er að minnka „Það kemur á óvart að það hefur ekki dregið úr innflutningi á síðari hluta ársins," segir Bolli Þór Bolla- son, skrifstofustjóri efnahags- skrifstofu fjármálaráðuneytisins. „Sparnaður er að minnka í þjóðfé- laginu og erlendar skuldir að auk- ast. Heimilin eru að auka sínar skuldir vegna þess að neyslubreyt- ingarnar eru talsvert umfram kaup- máttarbreytingar hjá heimilunum, þótt þær séu einnig miklar á þessu ári. Þetta er kunnuglegt mynstur úr íslenskri hagsögu, að menn hafi tilhneigingu til að éta efnahagsbat- ann fyrirfram,“ segir Bolli Þór. „í fjárlagafrumvarpinu er tekið mið af þessari stöðu og áhersla lögð á að ná hallalausum fjárlögum og sparnaði í ríkisbúskapnum sem veg- ur á móti auknum viðskiptahalla," segir hann. Nokkur skoðanamunur var á því innan stjórnkerfisins hvenær tíma- bært væri að grípa til aðgerða í peningamálum til að bregðast við einkennum um aukna þenslu, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. í seinasta mánuði lýstu sérfræðingar Þjóðhagstofnunar sig fylgjandi því að stjórnvöld beittu þá þegar hag- stjórnartækjum sem þau hafa yfir að ráða með auknu aðhaldi í ríkis- íjármálum og aðgerðum í peninga- málum. Seðlabankinn taldi ekki á þeim tíma ástæðu til að grípa inn í með hækkun vaxta en stjórnendur bankans telja að nú séu komin fram full rök fyrir þessari aðgerð. Bankastjórn Seðlabankans ákvað svo í gærmorgun að grípa til ákveð- inna aðhaldsaðgerða í peningamál- um og hækka vexti bankans í við- skiptum við innlánsstofnanir og ávöxtun í tilboðum bankans í ríkis- víxla á Verðbréfaþingi íslands um 0,4%. Jafnframt var ákveðið að hækka lausafjárhlutfall innláns- stofnana úr 10% í 12% frá 1. októ- ber nk. Var forstöðumönnum við- skiptabanka tilkynnt þessi ákvörðun á fundi í gærmorgun. Gengi krónunnar hefur sigið í frétt frá Seðlabankanum segir að verðbólga hér á landi hafi verið um 2'/2% undanfarna mánuði, sem er meiri verðbólga en í viðskiptalönd- unum og felur í sér nokkra hækkun frá síðasta ári. Að hluta má rekja þessa hækkun til meiri hækkunar á innflutningsverði, að mati Seðlabankans en einnig hefur útstreymi á gjaldeyri leitt til þess að gengi krón- unnar hefur sigið lítillega að undanförnu. Óvissa um launa- og verðlagsmál á næstunni vegna væntanlegra kjarasamninga og vísbendingar um að vinnumark- aðurinn sé að þrengjast eru einnig að mati bankans ótvíræð hættu- merki fyrir stöðugleika í gengis- og verðlagsmálum. Seðlabankinn telur að vaxandi viðskiptahalla á þessu ári megi að verulegu leyti rekja til aukningar innlendrar eftirspurnar vegna bjart- ari horfa um útflutningstekjur þjóðarinnar á næstu árum. Heppi- legasta leiðin við þessar aðstæður til að draga úr viðskiptahalla og varðveita verðstöðugleika sé því að beita aðhaldi í ríkisijármálum enda stafi viðskiptahallinn af því að þjóð- hagslegur sparnaður sé ekki nægur. „Það er því mat Seðlabankans að ástæða sé til þess að beita ýtr- asta aðhaldi í ríkisfjármálum á næstu misserum. Peningamála- stefnan er þegar fremur aðhalds- söm sem sést m.a. af því að munur innlendra og erlendra skammtímavaxta hefur að undanförnu verið rösk 2% og verður eftir þessa breytingu örðinn tæp 3% og hefur vaxið um 0,7%-0,8% síðustu vikurnar. Grannt verður fylgst með vísbend- ingum um framvindu efnahagsmála á komandi vikum og metið hvort þörf verður frekari aðgerða af hálfu Seðlabankans. Framvinda ríkisfjár- mála og kjaramála mun ráða miklu um hvort og hvenær hægt verður að slaka á í peningamálum á ný á komandi vetri,“ segir í fréttatil- kynningu Seðlabankans. Rökrétt skref „Flest þau merki sem komið hafa fram frá því að Þjóðhagsstofnun sendi frá sér seinustu spá sína í júní hafa verið á sömu lund. Þau hafa gefið til kynna mikla aukningu eftirspurnar í þjóðfélaginu og að full ástæða sé til að hafa góðar gætur á því. Við þessu hefur verið brugðist með tvenns konar hætti, annars vegar með því að ítreka ásetning um og tryggja að jafnvægi verði á fjárlagafrumvarpinu sem lagt verður fram í haust og að auki hafa peningayfirvöld nú tekið ákvörðun um að sporna við þessari þensluhættu með því að stuðla að hækkun vaxta. Mér sýnist að það séu rökrétt viðbrögð við þessum merkjum sem menn hafa greint á undanförnum mánuðum,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri Þjóð- hagsstofnunar. Þórður telur rökrétt að draga þá ályktun að smám saman muni hægja á vexti eftirspurnar í þjóðfélaginu. „Mér sýnist líklegt að vextir verði tiltölulega háir á næstu vikum og mánuðum en þegar kjarasamningar eru frá og sú óvissa sem tengist þeim og fjárlagagerðin hefur jafn- framt verið samþykkt tel ég að á þeim grunni geti skapast skilyrði fyrir vaxtalækkun á ný enda eru vextir hér tiltölulega háir í saman- burði við það sem gerist annars stað- ar. Ég tel ekki sérstaklega miklar líkur á að þetta gerist fyrr en þetta tvennt, fjárlagagerð og gerð kjara- samninga, er um garð gengin," seg- ir Þórður. 13-14% raunaukning á innflutningi Birgir ísleifur Gunnarsson seðla- bankastjóri segir viðbúið að við- skiptabankarnir muni hækka vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum á næstunni, að nokkru leyti til sam- ræmis við vaxtahækkun Seðlabank- ans. „Það er erfítt að spá fyrir um hvaða áhrif þetta mun hafa á lang- tímamarkaðinn. Það má þó búast við einhverjum hækkunum en þess ber þó að gæta að það hefur verið vaxandi eftirspurn eftir langtíma- bréfum upp á síðkastið sem hefur haft í för með sér nokkra lækkun á húsbréfum. Það er erfitt að meta á þessu stigi hvort sú þróun heldur áfram,“ segir Birgir ísleifur. Seðlabankastjóri bendir á að ákveðið hefur verið að skila ríkis- sjóði án rekstrarhalla á næsta ári en einnig sé með þessum aðgerðum lögð áhersla á aðhald í peningamál- um. „Við sjáum þenslumerki víða. Samkvæmt innflutningstölum fyrir tímabilið frá janúar til ágúst var 18,5% meiri innflutningur að verð- mæti á þessum tíma en á sama tíma- bili í fyrra. Um 4% aukningarinnar stafa af versnandi viðskiptakjörum þar sem innlenda verðlagið hefur hækkað og erum við því að tala um 13-14% raunaukningu á innflutn- ingu frá janúar til ágústmánaðar,“ segir Birgir ísleifur. Vaxtahækkun á markaðinum og hjá bönkunum „Það kemur ekki á óvart að Seðla- bankinn skuli telja ástæðu til að bregðast við þensluhættu. Eftir- spurn eftir lánum er mikil og verð- bólga er meiri en menn höfðu ætlað. Tilgangur Seðlabankans með þess- um aðgerðum er að hækka vexti og er það út af fyrir sig eðlilegt/* 1 segir Valur Valsson, bankastjóri Islands- banka. „Þetta mun hafa í för með sér vaxtahækkun, bæði á markaðinum og hjá bönkum. Aðgerðirnar beinast að bönkunum sér- staklega, til þess að bankar og spari- sjóðir hækki útlánsvexti sína. Ég geri ráð fyrir því að innlánsstofnan- ir muni bregðast við núna um næstu mánaðamót," segir Valur. Hann segir erfitt að segja til um hversu mikilla breytinga á vöxtum megi vænta um næstu mánaðamót. „Áhrif þessara aðgerða í heild munu ekki koma öll fram í einu. Það er Ijóst að strax um mánaðamótin mun fjármagnskostnaður bankanna hækka en þar við bætist að áhrif hækkunar á lausaíjárskyldu eru nokkurn tíma að koma fram og eins er ekki víst á þessari stundu hvernig markaðurinn bregst við. Allt þetta þurfa innlánsstofnanir að taka með í reikninginn á næstu vikum,“ segir Valur. Aðspurður hvernig bankarnir séu í stakk búnir til að mæta ákvörðun Seðlabankans um hækkun lausaíjár- hlutfalls úr 10% í 12% sagði Valur: „Þetta er býsna mikil hækkun og eftir hana verður lausaijárhlutfallið svipað og það var áður en gripið var til aðgerða til að ná niður vöxtum síðla árs 1993. Þessi hækkun mun væntanlega hafa töluverð áhrif á vaxtaþróunina í bönkunum en það mun væntanlega koma fram á nokkrum tíma. Áhrif þessara að- gerða Seðlabankans varðandi lausafjárstöðuna munu ekki endan- lega vera komin fram fyrr en í des- ember,“ segir Valur Valsson. „Þetta er hefðbundin aðferð seðla- banka til að hafa áhrif á vaxtastig og þeir rökstyðja sinn málflutning með því að það sé ástæða til að hafa áhyggjur af verðbólguþróun- inni. Það eru að sjálfsögðu engar stórar sveiflur í gangi en menn telja að það sé ástæða til þess að sporna við fótum og þessar aðgerðir bank- ans verða ekki skildar öðruvísi en þannig að það sé markmið að bank- ar og sparisjóðir hækki eitthvað vexti sína og sporni þannig við eftir- spurnarþenslu. Það má vænta þess að þessir aðilar muni skoða þessi mál og bregðist við því. Næsti vaxta- ákvörðunardagur er um mánaða- mótin,“ segir Guðmundur Hauksson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Reykja- víkur og nágrennis. Guðmundur segir mörg merki um þenslu í þjóðfélaginu. „Ef við horfum til eðlilegs vinnulags seðlabanka er- lendis bíða þeir ekki eftir því að merkin komi mjög harkalega í ljós, heldur bregðast við þeim áður. Það er mismunandi eftir löndum hvaða aðferðum er beitt en ég tel að þess- ar aðgerðir Seðlabankans núna séu mjög eðlilegar miðað við það ástand sem við sjáum í kringum okkur,“ segir Guðmundur. Ákvörðun um hækkun lausafjár- hlutfalls innlánsstofnana minnkar svigrúm bankanna til útlána og mun hafa í för með sér að bankarnir halda fremur að sér höndum á næst- unni. Þessi breyting mælist misjafn- lega vel fyrir. Stefán Pálsson, banka- stjóri Búnaðarbankans, segir að sér lítist illa á þennan hluta af aðgerðum Seðlabankans. „Sú aðgerð nær aðeins til banka og sparisjóða en menn verða að átta sig á því að á frjálsum markaði stunda margir fleiri aðilar útlán. Lífeyrissjóðirnir eru með mikið fjár- magn og einnig tryggingafélögin sem eru í samkeppni á markaðinum við banka og sparisjóði. Ég er því með mikinn fyrirvara við að þessi aðgerð sé rétt og að hún muni skila þeim árangri sem Seðlabankinn stefnir að og tel mjög varahugavert að vera með inngrip á hluta markað- arins,“ segir hann. Stefán telur að ákvörðun Seðla- bankans um hækkun Vaxta hljóti að leiða til hækkunar á vöxtum banka og sparisjóða. „Aðgerðin er til þess ætluð að slá á þenslu. Þarna er ver- ið að tala um skammtímalánin. Þetta hlýtur að koma fram í byrjun októ- ber,“ segir Stefán. Stjórnendur Landsbankans eru ekki tilbúnir áð segja til um hvort vöxtum verður breytt um næstu mánaða- mót vegna aðgerða Seðla- bankans og verður það skoðað nánar á næstu dög- um, að sögn Brynjólfs Helgasonar aðstoðarbankastjóra. „Við erum með það góða lausafjárstöðu að það kem- ur ekki hart niður á okkur á þessari stundu þótt lausafjárskyldan hækki úr 10 í 12%. Þetta getur þó haft áhrif þegar horft er lengra fram í tímann. Að öðru leyti þurfum við að skoða þetta en það má minna á að bankar og sparisjóðir ráða ekki einir vöxtum á markaði,“ segir hann. GÖRAN Persson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, átti annasaman dag í Reykja- vík í gær. Hann ræddi við forsætisráðherra, forseta og þing- menn og hélt ræðu í Norræna húsinu um „Svíþjóð í Evrópusambandinu“. Hann ræddi við Morgunblaðið áður en hann hélt til hátíðakvöldverðar í boði Davíðs Oddssonar, sem var loka- punkturinn á opinberri heimsókn hans til íslands. Forsætisráðherrann er fyrst spurð- ur hvort hann telji frekar einkenna umræður í gagnkvæmum norrænum heimsóknum á borð við þessa; samfé- lag Norðurlandanna, sem byggir á líkri menningu, tungu og samfélags- gerð, eða sameiginlega, pólitíska hagsmuni. „Bæði og. Hið norræna gildasam- félag er mikilvægt. En við höfum einnig samfallandi hagsmuni, kannski ekki á öllum sviðum, en þó í öllum höfuðatriðum. Einmitt núna er engin spenna í samskiptum íslands og Sví- þjóðar. Það eru engar deilur okkar á milli, nema kannski um menntaskóla- pláss í Vásterás. En það er ekkert, sem forsætisráðherrar þurfa að skipta sér af.“ Algjört stórslys án niður- skurðar velferðarkerfisins I stefnuræðu Perssons, sem hann flutti á sænska þinginu í síðustu viku, sagði hann að fyrir tveimur árum hefði velferð Svía verið ógnað, en nú hefði hún verið tryggð. Engu að síður hefur gífurlegur niðurskurður átt sér stað í sænska velferðarkerfinu, sem valdið hefur pólitískum deilum, ekki sízt í flokki Perssons. Hvernig gengur sænskum jafnaðarmönnum að lifa með hinu niðurskorna velferðarkerfi? „Alveg prýðilega. Hið gagnstæða hefði verið algjört stórslys. Þversögn- in er sú að velferðin hefur verið tryggð einmitt vegna þess að við höf- um lagað útgjöld okkar að tekjun- um,“ segir Persson. Hann bætir við að sænska velferðarkerfið sé áfram eitt hið víðtækasta í Evrópu; opinberi geirinn hafi raunar ekki verið dreginn meira saman en svo að hann sam- svari nú u.þ.b. þeim danska. „Menn hafa gefið þá mynd af þessu að vel- ferðarkerfið hafi verið mölbrotið, en hún er ekki sönn. Það er gömul meg- inregla jafnaðarmanna að að velferð sé ekki hægt að byggja á lánsfé. Hún verður að byggjast á framleiðslu fyr- irtækja og getu landsmanna til að greiða skatta, ekki á viðskiptavild í bönkum," segir forsætisráðherrann. Hann segir að það sé komið í ljós, að hægt sé að láta núverandi efna- hagsástand standa undir velferðar- kerfi, sem virkar. Hins vegar verði Göran Persson, forsætis- ráðherra Svíþjóðar, lauk opinberri heimsókn sinni * + til Islands í gær. Olafur Þ. Stephensen ræddi við Persson. að spyija hvað megi gera betur. „Við verðum alltaf að spyija hvort kerfið sé uppbyggt þannig að það hvetji fólk til að vinna, hvort það stuðli að réttlátri tekjudreifingu, hvort það standist bæði hallæri og góðæri, hvemig er jafnvægið milli eigin fram- lags manna og þess, sem kemur úr opinberum sjóðum — þúsund svona spurningar. En í raun er þetta ekki ný umræða. Vandamálið í Svíþjóð, og kannski annars staðar á Norður- löndunum, er að það varð hlé á henni upp úr 1970. Menn lögðu í sífellt meiri kostnað í félagslega kerfinu; við bættum við nýjum hlunnindum án þess að hugsa fyrir fjármögnun- inni. Þannig að í raun erum við nú að snúa til baka til hefðbundinnar stefnu með því að spyija spurninga af þessu tagi.“ Nei við ESB hefði gert ástandið erfiðara í ræðu sinni um Svíþjóð í Evrópu- sambandinu í Norræna húsinu í gær, sagði Persson að Svíar yrðu nú nota næsta ár til að ræða hvort þeir vildu vera með í Efnahags- og myntbanda- lagi Evrópu, EMU. Kostirnir við aðild væru raunar augljósir, til dæmis að myntin, sem sænsk fyrirtæki nota, yrði ónæm fyrir gengissveiflum vegna spákaupmennsku og að fyrirtækin losnuðu við margvíslegan annan kostnað. Hins vegar væri með stofnun EMU — sem Persson sagðist sann- færður um að myndi ganga eftir hinn 1. janúar 1999 — verið að lyfta stjórn- un peningamála upp á yfirþjóðlegan vettvang, en ríkisfjármálin væru áfram í höndum þjóð- ríkjanna. Spurningin væri hvort þetta tvennt yrði ekki að fylgjast að; hvort yfír- þjóðleg stjórnun peninga- mála þýddi ekki að jafnframt yrði að taka ákvarðanir um ríkisfjármál, t.d. skattlagningu, á yfirþjóðlegum vett- vangi. Þar með væri stigið stórt skref í átt til evrópsks sambandsríkis og slíkt yrðu Svíar að gera upp við sig. En getur niðurstaðan af umræðum Svía um EMU-aðild orðið nema ein? Getur ríki, sem vill láta til sín taka í Evrópu, staðið utan EMU? Persson svarar því til að þótt Sví- þjóð verði utan EMU þýðir það ekki að rödd Svía í Evrópusamstarfinu verði veikari. „Ef Svíþjóð verður hins vegar vanrækt fyrir það að vilja ekki vera með eða fá það ekki, mun rödd okkar veikjast." Samkvæmt skoðanakönnunum eru Svíar sú þjóð innan Evrópusambands- ins, sem hefur neikvæðasta afstöðu til ESB-aðildar lands síns. Hafa Svíar ástæðu til að sjá eftir ákvörðun sinni um að ganga í sambandið? „Nei, það hafa þeir ekki. Hefðu Svíar greitt atkvæði gegn aðild, væri ástandið miklu erfíðara nú. Ég var nýbakaður fjármálaráðherra haustið 1994 og hafði þá vafasömu ánægju að sannfæra peningamarkaðinn um ágæti sænskrar aðildar. Hefði það bætzt ofan á vantrú umheimsins á að Svíþjóð gæti náð tökum á ríkisfjár- málum sínum, að við hefðum hafnað aðild að ESB, hefði það orðið okkur afar dýrt. Vextirnir hefðu orðið tveim- ur prósentum hærri og sérhvert pró- sent kostar sænska ríkissjóðinn 14 milljarða króna, eða jafnmikið og allt barnabótakerfið. Þetta var staðan." Eystrasaltsríkin velja sjálf Hvaða augum líta Svíar viðleitni Eystrasaltsríkjanna til að hljóta aðild að Atlantshafsbandalaginu? Getur NATO-aðild þeirra skapað ný vanda- mál fyrir Svíþjóð? „Nei, ekki er ég þeirrar skoðunar. Ég fylgi klassískri sænskri stefnu: Sérhvert ríki á rétt á að framfylgja sinni eigin öryggis- og vamarstefnu. Eystrasaltsríkin kjósa aðild að NATO og þeirra er rétturinn að velja. En með sama hætti gerum við ráð fyrir að aðrir virði stefnu Svíþjóðar í örygg- ismálum." Á blaðamannafundi í gær þvertók Persson fyrir að Svíþjóð hefði nokkr- ar ráðagerðir um að ganga í NATO. Telur hann að í ljósi þeirra breytinga, sem eru að verða á bandalaginu, og þeirrar staðreyndar að Svíar eiga nú þegar náið samstarf við það á ýmsum sviðum, sé hægt að útiloka aðild að bandalaginu í framtíðinni? „Um fyrirsjáanlega framtíð hef ég enga ástæðu til að senda út nein merki um að Svíar vilji aðild að NATO. Þetta hefur verið okkar stefna. Ef menn vilja, geta þeir auðvitað mótað stefnu í öryggismálum með tilliti til síðustu fimm ára, og þá má segja að nú sé ástandið frek ar útreiknanlegt. En Svíþjóð hefur haldið sinni stefnu í 200 ár og ekki breytt henni til eða frá. Við erum sannfærð um að hún hefur gagnast Svíum vel og verið trú- verðug." 7-10 millj- arða við- skiptahalli Munur á skammtíma- vöxtum Velferð bygg- ist ekki á lánsfé

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.