Morgunblaðið - 24.09.1996, Síða 37

Morgunblaðið - 24.09.1996, Síða 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 37 FRÉTTIR NOKKRIR liðsmenn Stuðmanna koma saman í Leikhúskjallaranum i kvöld. þá liðlega tvítugum, í lítið þorp fyrir austan fjall. Ég man enn augnablikið er ég sá hana fyrst. Við mættumst á götunni — horfð- um hvor á aðra — báðar dálítið forvitnar. Svo brosti hún til mín þessu sérstaka og fallega brosi sínu, sem einkenndi hana fremur öðru alla tíð. í litiu samfélagi kynnast allir fyrr eða síðar og svo var með okk- ur. Við urðum nágrannar og tengd- umst er frá leið vináttuböndum. Við gistum eldhús hvor hjá annarri þegar færi gafst. Ég held að varla hafi liðið sá dagur, að við vitjuðum ekki hvor annarrar, í mörg ár. Og tíminn leið. Það skiptust á skin og skúrir — eins og gengur. Svo hvarf hún á braut, alla leið á litla eyju nærri Spánarströndum. Mallorca varð hennar annað föðurland. Þar bjó hún sér nýtt heimili. Hún var með eindæmum myndarleg og dug- leg húsmóðir og þar sem Dúa var — þar voru blóm. Okkur Linda eru ógleymanlegar heimsóknirnar á heimili hennar fyrir nokkrum árum. Gestrisni hennar og gleðin yfir endurfundum snart okkur djúpt. Síðasta heimili sitt átti hún svo hér. Þá hittumst við oftar. Og eins og fyrrum var eldhúsið okkar fundarstaður. Ég er sannfærð um, að eitt það dýrmætasta í lífinu eru samferðamennirnir, góðir vinir og bara gott fólk sem maður um- gengst daglega. Nú er tími til að hryggjast, tími til að sakna og tími til að þakka. Gömlu saumaklúbbsfélagarnir þakka henni allar samveru- og gleðistundir í þá gömlu góðu daga. Eg og mitt fólk þökkum henni áralöng kynni og tryggð. Öllum ástvinum hennar biðjum við bless- unar og vonum að tíminn græði sárin. Ég þakka Juan góð kynni og mun aldrei gleyma ást hans og umhyggju fyrir vinkonu minni. Hvað er ljós ef ekki er myrkur? Hvað er mótlæti ef enginn er styrkur? Hvað er sorg ef ekki er gleði? Hvað er söknuður ef engin er minning? (Ókunnur höf.) Það er gott til þess að vita hver bíður handan tjaldsins og væntir gesta. Og ég þykist þekkja hlátur- inn hennar og fínn hana í vinahópn- um. Hún tekur í hönd mína og við leiðumst út á ódáinsakra þess heims. Ég hlakka til endurfunda. Guð blessi hana. Anna S. Egilsdóttir. Fyrirlestur um erfða- breyttar líf- verur DR. HEIDI Bente Drage, deildar- stjóri í umhverfisráðuneyti Noregs, umhverfisstórnunarsviði, heldur fyrirlestur á vegum Líffræðifélags íslands, þriðjudaginn 24. september, kl. 20.30 í Odda, hugvísindahúsi Háskóla íslands, stofu 101. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og heitir „Genetically modifi- ed organism". Fyrirlesturinn fjallar um erfðabreyttar lífverur. í fréttatilkynningur segir: „Hvað teljast erfðabreyttar lífverur? Hvar og hvernig eru erfðabreyttar lífver- ur notaðar í dag, úti í náttúrunni og við iðnaðarframleiðslu? Hvernig er staðið að áhættumati í dag og hver er framtíðin? Notkun erfðabreyttra lífvera hefur aukist gífurlega á síðustu árum og verður sennilega mikilvægur þáttur í ýmsum framleiðsluferlum í framtíð- inni. Umræða og almenn þekking á þessu sviði er hinsvegar mjög tak- mörkuð hérlendis. Fyrirlesturinn er þvi kjörið tækifæri til að fá yfirsýn yfir þá umræðu sem nú þegar hefur átt sér stað í Evrópu.“ Dr. Heidi Bente Draget hefur unnið að áhættumati um erfða- breyttar lífverur síðan 1989 og er fulltrúi Noregs í ýmsum alþjóðleg- um nefndum um líftækni, áhættu- og umhverfísmat. Dr. Heidi Bente Draget er m.a. í alþjóðlegri nefnd um mat á öryggi lífríkisins innan Evrópusambandsins, OECD- og NC-landanna. í stjórn norsku ráð- gjafanefndarinnar um líftækni og í stjórn rannsóknarnefndar um um- hverfisáhrif líftækni á vegum norska rannsóknarráðsins. Fyrirlestur um þróun hús- næðismála JÓN Rúnar Sveinsson félagsfræð- ingur heldur fyrirlestur í boði Fé- lagsfræðingafélags íslands um þró- un húsnæðismála 1980-1995 og húsnæðisrannsóknir miðvikudaginn 25. september kl. 20.30. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 202 í Odda, húsi félagsvís- inda- og viðskiptafræðideilda HÍ. Allir velkomnir. Stuðmenn koma saman NOKKRIR liðsmenn Stuðmanna koma saman í Leikhúskjallaranum í kvöld kl. 21.30 og leika jazz á RúRek-hátíðinni. Það eru þeir _ félagarnir Egill Ólafsson, Ásgeir Óskarsson og Jak- ob Frímann Magnússon en mörg ár eru liðin síðan hann lék síðast jazz. Með þeim koma fram Björn Thoroddsen og Gunnar Hrafnsson. Kvartett Reynis Sigurðssonar leikur á Jómfrúnni kl. 17, Slag- verkshátíð Samspils verður í Loft- kastalanum kl. 21, hljómsveit Eddu Borg leikur á Kringlukránni og Bé þrir á Sóloni íslandusi. Bandalag kvenna í Reykjavík Styrkur veittur úr Starfsmennt- unarsjóði Á ÞINGI Bandalags kvenna í Reykjavík 1995 var samþykkt að stofna styrktarsjóð til að styðja við bakið á ungum konum sem hefðu hug á að leita sér frekari menntun- ar en stæðu félagslega höllum fæti í tilverunni, segir í fréttatilkynn- ingu. Tilgangurinn var að rétta ein- hveija hjálparhönd ef það mætti verða til þess að auka traust ein- staklingsins á sjálfum sér og gefa þessum sama einstaklingi betri tækifæri í atvinnulífinu með ein- hverja starfsmenntun. Öflun fjár til þessa styrktarsjóðs hefur aðallega verið af skemmtikvöldum sem nefnd hafa verið Vorkvöld í Reykja- vík og hafa verið haldin á Hótel Sögu í maímánuði síðastliðin þijú ár. Aðeins þremur árum eftir stofn- unm hans má nú veita styrk úr sjóðnum og er auglýst eftir umsókn- um. Beiðni um umsóknareyðublöð þarf að berast til skrifstofu Banda- lags kvenna í Reykjavík á Hallveig- arstöðum, Túngötu 14,101 Reykja- vík, og er umsóknarfremstur til 20. október. Styrkurinn verður veittur fyrir vormisseri 1997. Háskólafyrir- lestur um heim- speki OLEG Nikiforov, kennari í heim- speki við Hugvísindaháskólann í Moskvu, flytur opinberan fyrirlest- ur í boði Heimspekideildar Háskóla íslands og Félags áhugamanna um heimspeki miðvikudaginn 25. sept- ember kl. 17.15 í Hátíðasal Háskól- ans. Fyrirlesturinn nefnist Heim- speki á umbreytingatímum í Rúss- landi. Oleg Nikiforov er ungur að áldri, fæddur árið 1969. Hann lauk heim- spekiprófi 1992 frá Ríkisháskólan- um í Moskvu og er nú fastur kenn- ari við Hugvísindaháskólann í Moskvu sem stofnaður var 1991 af sagnfræðingnum Júrí Afanasíev, fyrrverandi ráðgjafa Jeltsíns for- seta. Hann er ennfremnur einn af aðalritstjórum tímaritsins Logos, sem er leiðandi á sviði heimspeki- útgáfu í Rússlandi um þessar mundir og hefur verið gestafyrirles- ari við háskólana í Trier og Frei- burg í Þýskalandi. Fyrirlesturinn verður fluttur á ensku og túlkar Arnór Hannibals- son prófessor efni hans á íslensku. Öllum er heimill aðgangur. ■ GUÐSPEKI-Heilunarskólinn hefur göngu sína um miðjan október 1996. Skólinn er rekinn í samvinnu við Ljósheima, Guðspekimiðstöð- ina í Reykjavík, sem um árabil rak Norræna heilunarskólann. Um er að ræða tveggja ára nám í andlegri heilun þar sem kennt er eina helgi (samtals 12 helgar á 2 árum) og eitt þriðjudagskvöld í mánuði. Kynning- arbæklingur um skólann og skráning er á skrifstofu Ljósheima, Guðspeki- samtakanna, Hverfisgötu 105, 2. hæð eða í versluninni Betra líf. ■ SIÐMENNT, félag áhugafólks um borgaralegar athafnir, stendur að borgaralegri fermingu vorið 1997 eins og undanfarin ár. í október og nóvember verða haldnir kynningar- og fjölskyldufundur en sjálft ferm- ingarnámskeiðið hefst í janúar. Skráning á fermingarnámskeiðið í Reykjavík er hafin og stendur til 1. nóvember nk. Þeim sem áhuga hafa á að kynna sér borgaralega ferm- ingu, í Reykjavík og á landsbyggð- inni, er bent á að hafa samband við Siðmennt. ------♦ ♦ ♦------ LEIÐRÉTT Rangt föðurnafn ELÍN G. Jóhannsdóttir var rangfeðr- uð í tilkynningu um sýningu hennar í sal ÁTVR í Kringlunni í sunnudags- blaðinu. Er beðist velvirðingar á mis- tökunum. Iðgjöld FÍB-Tryggingar TEKIÐ skal fram vegna greinar sem birtist á miðopnu Morgunblaðsins sl. laugardag undir fyrirsögninni „Lækkun iðgjalda kynnt eftir helgi“ að með setningunni „Talsmenn Ibex á íslandi gefa hvorki fjölmiðlum né samkeppnisaðilum upplýsingar um verðskrá FÍB-Tryggingar,“ er átt við að þeir afhenta fjölmiðlum ekki ið- gjaldaskrána í heild. Starfsmenn Al- þjóðlegrar miðlunar ehf. hafa svarað skýrt og hratt öllum spurningum Morgunblaðsins um einstök verð- dæmi. Þá gæti ónákvæmni þegar fullyrt er að Gísli Maack vátryggingamiðl- ari selji FÍB-Tryggingu. Fyrirtæki Gísla, Alþjóðleg miðlun ehf., kom á viðskiptasamningi milli Ibex Motor Policies at Lloyds og Félags íslenskra bifreiðaeigenda og sér um að af- greiða tryggingarskírteini og inn- heimta iðgjöld. Föðurnafn misritaðist í greininni Þín nemönd sem birtist í B-blaði síðasta sunnudagsblaðs misritaðist föðurnafn. Guðmundur Aron var sagður Guðmundsson en hann var Guðbrandsson. Beðist er velvirðingar á mistökunum. ATVINNUAUGÍ YSINGAR Sölustarf í verslun Max ehf., sem er framarlega á sviði fram- leiðslu á útivistar- og kuldafatnaði, óskar eftir að ráða sölumann í verslun. Starfið felst í sölu, ráðgjöf og þjónustu við viðskiptavini. Leitað er að frískum og þjónustulunduðum aðila sem hefur reynslu af sölu í verslun. Vinnutími kl. 9-18. Umsóknarfrestur er til og með 26. septem- ber nk. Umsóknareyðublöð afhent og nánari upp- lýsingar eingöngu veittar á skrifstofu Liðs- auka, sem opin er frá kl. 9-14, í Skipholti 50c, 4. hæð. Fólk og þekking Lidsauki ehf. Skipholt 50c, 105 Rgykjavlk slmi 562 1355, fax562 1311 Staða hjúkrunarforstjóra Heilsugæslustöðin á Vopnafirði óskar að ráða hjúkrunarforstjóra til afleysingastarfa í 12 til 14 mánuði frá og með 15. nóv. 1996. Fjölbreytt og gefandi starf í góðu umhverfi. Ljósmæður/ hjúkrunarfræðingar Ljósmóður, hjúkrunarfræðing með Ijósmóð- urmenntun eða hjúkrunarfræðing vantar til starfa á heilsugæslustöðina á Vopnafirði. Framtíðarstarf í góðu umhverfi. Á Vopnafirði er einsetinn grunnskóli, leikskóli, öldunga- deild, tónlistarskóli og öflugt tónlistar- og menningarlíf. Nýlegt íþróttahús og sundlaug. Flutningsstyrkur og fleiri fríðindi. Nánari upplýsingar veita: Adda Tryggvadóttir, vs. 473 1225, hs. 473 1108, Emil Sigurjónsson, vs. 473 1225, hs. 473 1478. Frystitogarapiáss Vanur Baader-maður óskast á frystitogarann Stakfell ÞH 360. Upplýsingar gefur Sævaldur í vinnusíma 460 8115. Silkiprentari óskast Þarf að vera vanur eða hafa kunnáttu í silki- prenti. Upplýsingar í Bol ehf., Smiðjuvegi 6. -kjarni málsins!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.