Morgunblaðið - 01.10.1996, Síða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
2.200
Verð á áli á skyndimarkaði
í London (LME)
árin 1994-1996
dollar/tonn
JFMAMJJÁSONDJFMAMJJÁS
1.800
1.600
1.400
1.200
1.000
1995
1996
JFMAMJJÁSOND
Alverð hefur
lækkað um 32%
VERÐ á áli hefur ekki verið lægra
í rúm tvö ár en það er nú eða frá
því í júnímánuði árið 1994. Verðið
er nú um 1.400 Bandaríkjadalir
tonnið, en fór hæst í rúma 2.050
dali í janúar 1995. Síðan hefur
verðið farið lækkandi og nemur
lækkunin nú 32%, en það sem af
er þessu ári er lækkunin tæp 12%.
í nýjum hagvísum Þjóðhagsstofn-
unar segir að ástæða lækkunar-
innar sé að birgðir hafi hlaðist upp
vegna þess að framleiðsla hafi
verið umfram eftirspurn. Skiptar
skoðanir séu um þróunina á næstu
mánuðum, en þar skipti meðal
annars máli hagvöxtur á alþjóða-
vettvangi og verðþróun á stað-
göngumálmum eins og til dæmis
kopar.
Mikilli grósku spáð í flugrekstri fram til aldamóta
Flugarþegmn fjölgar
um 7% ogfrakteykst
Genf. Reuter.
FARÞEGUM sem fóru um flug-
velli heims á fyrstu sex mánuðum
ársins fjölgaði um 7% og flugfrakt
jókst um 5% á sama tíma og styð-
ur það spár um mikia grósku í flug-
rekstri til aldamóta.
Samkvæmt tölum alþjóðaflug-
vallarráðsins ACI í Genf fóru flest-
ir farþegar um íjóra flugvelli í
Bandaríkjunum og mest fór af
flugfrakt um sömu flugvelli.
Samkvæmt skýrslu ACI, sem
byggist á upplýsingum frá 458
aðildarflugvöllum, fóru 1.2 millj-
arðar farþega um þá á fyrri árs-
helmingi — 73 milljónum fleiri en
á sama tíma í fyrra.
O’Hare flugvöllur Chicagos var
fjölfarnasti flugvöllur heims og
fóru um hann 33.5 milljónir
manna. Atlanta var í öðru sæti og
jókst hlutdeild flugvallarins þar um
16,2% í 32.4 milljónir vegna
Ólympíuleikanna.
í þriðja sæti var Los Angeles
með 27.9 milljónir farþega, en síð-
an komu Dallas/Fort með 27 millj-
ónir, Heathrow-flugvöllur Lund-
úna með 26.5 milljónir og Haneda-
flugvöllur í Tókýó með 21.9 millj-
ónir.
Flugvöllurinn í
Chicago með
fiesta farþega
Flugfrakt var alls 23.3 milljónir
tonna, einni milljón meiri en í fyrra
og flugferðum fjölgaði um 2% í
23.3 milljónir.
Framkvæmdastjóri ACI, Otis
Dunham, kvað tölurnar renna stoð-
um undir nýlegar spár flugfélaga
um rúmlega 7% aukningu flugum-
ferðar til ársins 2000. Aukningin
hefði í för með sér að auka þyrfti
hagkvæmni í afgreiðslu farþega
og flugfraktarog„„nota nýjustu
tækni eins mikið og auðið væri,
jafnt á jörðu niðri sem í lofti.“
Farþegum hefur hlutfallslega
fjölgað mest í Afríku á árinu, eða
um 7,7% í 12.9 milljónir.
Ólympíuleikarnir í Atlanta stuðl-
uðu að því að farþegum í Norður-
Ameríku fjölgaði um 7,1% í 608.8
milljónir. Farþegum á Asíu-Kyrra-
hafssvæðinu ljölgaði um 6,9% í
168.7 milljónir.
í Evrópu fjölgaði farþegum um
6,2% í 330.3 milljónir og í Miðaust-
urlöndum um 5,9% í 21.7 milljónir.
Aukningin í Rómönsku Ameríku
og á Karíbahafi var aðeins 1,7% í
36.5 milljónir.
Af flugfrakt voru 12.5 milljónir
tonna fluttar um flugvelli í Norður-
Ameríku, sem er 5,5% aukning
miðað við fyrri árshelming 1995.
Mesta aukningin — 18,4% — var í
Miðausturlöndum, í 778.951 tonn.
Flugfrakt sem fór um flugvelli
á Asíu-Kyrrahafssvæðinu jókst um
4% í 4.4 milljónir tonna, en í Evr-
ópu var 3,8% aukning í 4.87 millj-
ónir.
Minni frakt í Afríku
í Afríku minnkaði flugfrakt um
1,1% í 189.544 tonn og í Róm-
önsku Ameríku og á Karíbahafi
minnkaði flugfrakt ennþá meir, um
9,8% í aðeins 505.399 tonn.
Þeir sex flugvellir sem mest
flugfrakt fór um voru Memphis,
Tennessee, með 915.057 tonn, Los
Angeles með 821.149 tonn, Miami
með 815.585, Kennedy-flugvöllur
í New York með 779.544, Narita-
flugvöllur Tókýós með 771.045 og
Frankfurt í Þýzkalandi með
722.451 tonn.
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
ALMENNT SKULDABRÉFAÚTBOÐ
Heildarnafnverð útgáfu: Allt að 2.000.000.000,- kr.
Utgefandi: Búnaðarbanki íslands, Austurstræti 5, Reykjavík kt. 490169-1219.
Flokkur bréfa: 96/2, til 20 ára með jöfnum afborgunum.
Avöxtunarkrafa á söludegi: 5,56%
Gjalddagar: Fyrsti gjalddagi 1. október 1998. Síðan 1. október ár hvert með lokagjalddaga 1. október 2016.
Verðtrygging: Bréfin eru verötryggð miðað viö vísitölu neysluverðs.
Sölutímabii: 1. október 1996 til 31. desember 1997.
Skilmálar: Lágmarksupphæð er að nafnvirði 5.000.000,- kr.
Söluaðili: Búnaðarbanki íslands og útibú bankans.
Umsjón með útboði: Verðbréfavióskipti Búnaðarbanka íslands.
Skráning: Sótt hefur verið um skráningu á Verðbréfaþingi íslands.
Útboðs- og skráningarlýsing vegna ofangreindra skuldabréfa liggur frammi
hjá Búnaðarbanka íslands.
Veröbréfaviöskipti
BÚNAÐARBANKA ÍSLANDS
Austurstræti 5, 155 Reykjavík, sími 525-6370, myndsendir 525-6259
Aðili aö Verðbréfaþingi íslands
Islensk matvæli flytja út reyktan lax
Seldur í
yfir þrjú
hundruð
verslunum
ÍSLENSK matvæli, í samstarfi
við fyrirtækið Cooking Exel-
lence, selja reyktan lax í yfir
þijú hundruð verslunum á
vegum fimm verslunarkeðja á
New York svæðinu.
í fréttatilkynningu frá ís-
lenskum matvælum kemur
fram að laxinn er seldur í
þrenns konar pakkningum
undir vörumerkinu Icefood. I
ágúst voru flutt út 20 tonn af
reykta laxinum og hefur salan
farið vel af stað. Gert er ráð
fyrir að 12 tonn verði send
utan á mánuði út árið ef við-
tökur vera góðar.
íslensk matvæli flytja út 1-2
tonn á mánuði af reyktum laxi
í sælkeraverslanir, hótei og
veitingastaði á vesturströnd
Bandaríkjanna en útflutning-
urþangað hófst á síðasta ári.
I sumar hófst samstarf ís-
lenskra matvæla við evrópsk-
an dreifingaraðila um mark-
aðssetningu á síld í Evrópu. í
fréttatilkynningunni kemur
fram að síldin sem er seld
marineruð í neytendaumbúð-
um hafi fengið góðar viðtökur
þannig að bjartsýni ríki um
framhaldið.
AÐEINS FYRIR SÖLUMENN
SÖLUYFIRBURÐIR I
Nýtt námskeið írá
SjfrDALE CARNEGIE®
Námskeiðið hjálpar þér að:
• Ná sambandi • Kynna óvenjulegar lausnir
• Byggja upp traust • Leysa mótbárur
• Auka hagnaðinn • Vera hvetjandi
• Kveikja áhuga • Loka sölu
Dale Carnegie® þjálfunin hefúr hjálpað hundruðum
þúsunda sölumanna í 70 löndum að ná söluyfirburðum.
FJARFESTING I MENNTUN SKILAR ÞER ARÐIÆVILANGT
0 STJÓRNUNARSKÓLINN