Morgunblaðið - 03.10.1996, Síða 1
96 SÍÐUR B/C/D
225. TBL. 84. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
• Rennsli í Grímsvötn eins og 10 Þjórsár • Gosmökkur í 4-5 km hæð yfir
sjávarmáli • IV2 milljarða króna mannvirki í hættu • Gjóskufall á Norður-
landi • Bændum ráðlagt að hýsa búfénað • Búist við stórhlaupi úr Grímsvötnum
Eldur í iðrum Vatnajökuls
ÖSKUGOS hófst úr um sex kíló-
metra langri gossprungu í Vatna-
jökli á milli Grímsvatna og
Bárðarbungu klukkan rúmlega
fimm í gærmorgun. Sjónarvottar
sáu hvítan bólstur yfir gosstöðv-
unum um klukkan fjögur um nótt-
ina og svarta súlu stíga upp
klukkan átján mínútur yfir fimm.
í gærdag varð vart við töluverðar
sprengingar líkt og í Surtseyjar-
gosinu á sínum tíma og þeyttu
sprengingarnar ösku upp í
300-500 metra hæð og náði gos-
mökkurinn allt að fimm kílómetra
hæð.
I Grímsvötn hafa runnið um
5.000 rúmmetrar af vatni á sek-
úndu og var búist við að hlaup
gæti hafist í Grímsvötnum í nótt
eða í morgun. Forsætisráðherra
hélt síðdegis í gær fund með sam-
gönguráðherra, utanríkisráðherra,
vegamálastjóra, veðurstofustjóra
og forstjóra Landhelgisgæslunnar
sem jafnframt er formaður Al-
mannavarna ríksins. Sagði forsæt-
isráðherra að fundinum loknum
að forstöðumönnum stofnana
hefði verið gefið fullt umboð til
að grípa til ráðstafana gegn hættu
sem skapast gæti af eldgosinu.
Gosið raskaði flugsamgöngum
í gær því síðdegis þótti ekki óhætt
að fljúga norður þar sem aska var
í lofti. Samkvæmt upplýsingum
frá Flugleiðum fer askan mjög illa
með hreyfla flugvéla og því ógnar
hún flugöryggi. Líkur voru á veru-
legri röskun á áætlun Flugleiða í
dag vegna ösku í lofti.
I gærkvöldi höfðu Veðurstof-
unni borist tilkynningar um lítils-
háttar gjóskufall á Blönduósi, í
Blöndudal, Svínadal, á Akureyri
og í Reykhólasveit. Búist var við
að gjóska gæti haldið áfram að
berast yfir norðaustanvert landið
fyrri part dagsins í dag.
Jarðskjálfti hleypti
gosinu af stað
Páll Einarsson, prófessor í jarð-
eðlisfræði við Háskóla íslands,
segir að umbrotin undir Vatna-
jökli, sem hófust á sunnudag,
tengist virkni sem fyrst varð vart
í fyrrasumar. Þar koma þrjár meg-
ineldstöðvar við sögu, en þær eru
Bárðarbunga, Grímsvötn og Ham-
arinn, eða Lokahryggur sem ligg-
ur austur af honum. Hlaup varð
í Skaftá í júlí í fyrra og aukin
skjálftavirkni fylgdi í kjölfarið
næstu mánuði á svæðinu. í febr-
úar varð svo öflug jarðskjálfta-
hrina í Hamrinum og síðan frekar
lítið Skaftárhlaup í ágúst sem kom
úr vestari Skaftárkatlinum á
Lokahiygg. Síðan hófust umbrot
í Bárðarbungu síðastliðinn sunnu-
dag með stórum jarðskjálfta sem
virðist hafa hleypt af stað gosi í
Grímsvötnum.
■ EIdgosið/4, 12, 36, 37 og 72.
Ljósmynd/Ingvai* Valdimarsson