Morgunblaðið - 03.10.1996, Qupperneq 59
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 59
I
1
I
.
<
(
i
(
i
<
<
<
<
<
I
f
I
MORGUNBLAÐIÐ
Sósíalistafélagið
Hvatt til
samstöðu
launafólks
Sósíalistafélagið hefur samþykkt
ályktun þar sem launþegar eru
hvattir til að knýja fram bætt kjör
og réttindi í næstu kjarasamningum
með órofa samstöðu.
í ályktuninni segir að undangeng-
in ár hafi ákaft verið þrengt að kjör-
um almennings á Islandi. Jafnframt
hafi skipuiega verið grafið undan
því félagslega öryggisneti sem kallað
hafi verið velferðarkerfi. Nú sé séu
heilbrigðis- og tryggingarmál í rúst
svo að öryggi almennings sé ógnað.
Um leið og atvinnuleysi hafi fest sig
í sessi sé fátækt og örbirgð orðin
úrbreitt félagslegt vandamál. Hinir
atvinnulausu séu sviptir grundvall-
armannréttindum og notaðir til að
grafa undan kjarasamningum.
„Baráttan fyrir endurreisn vel-
ferðarkerfisins er knýjandi nauðsyn
sem allir vinstri menn og verkalýðs-
sinnar verða að sameinast um. I
komandi kjarasamningum er komið
að hinum aimenna félagsmanni í
verkalýðsfélögunum að knýja fram
bætt kjör og réttindi með órofa sam-
stöðu.
Það hefur sýnt sig bæði hér á
landi og annars staðar að atvinnu-
rekendur og ríkisvald skilja ekkert
annað en samtakamátt verkalýðs-
hreyfingarinnar," segir í ályktun-
inni.
Heimdallur
Ákvörðun Sam-
keppnisráðs
fagnað
STJÓRN Heimdallar fagnar þeirri
stefnumörkun sem kemur fram í
ákvörðun Samkeppnisráðs um full-
kominn aðskilnað Útfararstofu
kirkjugarðanna og Kirkjugarða
Reykj avíkurprófastsdæmis.
I ályktun segir að í ákvörðun ráðs-
ins sé með afgerandi hætti kveðið á
um þau skilyrði sem opinber fyrir-
tæki þurfi að uppfylla varðandi sam-
keppnisstarfsemi. Mælt sé fyrir um
fullan aðskilnað milli þeirra þátta í
starfseminni sem eru í samkeppni
og þeirra þátta sem njóta opinbers
stuðnings eða einkaréttar. Ákvörðun
Samkeppnisráðs feli í sér að opinber
fyrirtæki sem stundi samkeppnis-
rekstur eigi að búa við sömu aðstæð-
ur og einkafyrirtæki, eftir því sem
við verði komið.
„Ákvörðun samkeppnislaga og
túlkun þeirra, sem m.a. birtist í þess-
ari ákvörðun Samkeppnisráðs, gefa
ríkisstjórn og Alþingi tilefni til að
taka til endurskoðunar á hvaða svið-
um ríki á að láta til sín taka og
hvar ekki. Engin rök eru fyrir því
að hið opinbera haldi uppi starfsemi
á sviðum þar sem fjölmargir einka-
aðilar hafi haslað sér völl og mikil
samkeppni ríkir. Því er réttast að
slíkir þættir í starfsemi opinberra
fyrirtækja og stofnana verði einkav-
æddir,“ segir síðan í ályktun Heim-
dallar.
Afmæiissýning
P&S
UM ÞESSAR mundir eru liðin 90
ár frá því að símaþjónusta á Islandi
hófst og í tilefni af því hefur verið
sett upp sérstök afmælissýning í
Póst- og símaminjasafninu á Aust-
urgötu 11 í Hafnarfirði.
Á sýningunni eru m.a. ýmis skjöl
og munir frá fyrstu áratugum síma-
þjónustunnar. Björn G. Björnsson
leikmyndateiknari og Heimir Þor-
leifsson sagnfræðingur hafa annast
uppsetningu sýningarinnar.
Sýningin verður opin næstu vikur
á sýningartíma safnsins, en það er
opið á sunnudögum og þriðjudögum
kl. 15 til 18. Aðgangur er ókeypis.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Stefán Ólafsson
EIGENDUR Húsgagnavals, Ólöf Gísladóttir og Jóhann Gunnars-
son ásamt Guðrúnu Ásu dóttur sinni.
Ný húsgagna-
verslun á Höfn
Höfn. Morgunbiaðið.
HJÓNIN Jóhann Gunnarsson og
Óiöf Gísladóttir opnuðu 26. sept-
ember sl. verslunina Húsgagna-
val á Höfn.
Verslunin er til húsa í gam-
alli verbúð sem faðir Ólafar,
Gísli Þorvaldsson, keypti og
breytti í verslun árið 1979. Sam-
tals er verslunarpláss um 300
fm á tveimur hæðum og eru
húsakynni öll hin vistlegustu.
Um 200 manns komu í
verslunina opnunardaginn og
var greinilegt á viðskiptavinum
að þeim Ieist vel á þessa nýju
verslun og voru ánægðir með
að húsgagnaverslun hafði verið
opnuð hér á ný eftir nokkurt
hlé. Hluta húsgagnanna flytja
Ólöf og Jóhann inn sjálf en ann-
að er keypt á höfuðborgarsvæð-
inu.
EMELÍA Petra Sigurðardótt-
ir, Jóhann Gunnar Arnarsson,
og Unnur Berglind, sem dans-
aði við þau Emelíu og Jóhann
á lokaprófinu.
Nýir dans-
kennarar
TVEIR ungir danskennarar útskrif-
uðust frá Danssmiðju Hermanns
Ragnars sl. vor þau Emelía Petrea
Sigurðardóttir frá Akranesi og Jó-
hann Gunnar Amarsson frá Akureyri.
Þau hafa starfað við skólann sl.
fjögur ár og tóku fyrri hluta prófs
fyrir tveimur árum en lokapróf nú í
vor. Aðalkennarar þeirra hafa verið
Hermann Ragnar, Henný Hermanns-
dóttir og Jóhann Örn Ólafsson. Próf-
dómarar frá Dansráði íslands voru
Vilborg Sverrisdóttir, Hólmfríður
Þorvaldsdóttir og Bára Magnúsdóttir
og hlutu bæði fyrstu einkunn í
„tecknic" og dansi.
Emelía Petrea er á förum til Eng-
lands í framhaldsnám en Jóhann
Gunnar mun kenna við Danssmiðju
Hermanns Ragnars í vetur.
Handboltadag-
ar í Hafnarfirði
HANDBOLTADAGAR verða haldn-
ir í Miðbæ Hafnarfjarðar dagana 4.
og 5. október. Þá munu FH og Hauk-
ar kljást í ýmsum þrautum ásamt
því að kynna starfsemi sína.
Dagskráin hefst á hádegi föstu-
daginn 4. október með kynningar-
starfsemi félaganna. Kl. 17 munu
svo meistaraflokkur kvenna í báðum
félögum kljást. Á hádegi laugardag-
inn 5. október mun svo meistara-
flokkur karla keppa og ýmsar fleiri
uppákomur verða þann dag.
Ljóðakvöld
í Skálanum
BÓKAFORLAGIÐ Mál og menning
og Háskóli íslands standa fyrir
þýzku ljóðakvöldi í kvöld, fimmtu-
dagskvöld. Þar flytur Petra von
Morstein ljóð sín og ræðir um þau.
Ljóðakvöldið verður í Skálanum
Hótel Sögu og hefst klukkan 20:15.
Petra von Morstein er þýzk, en
hefur verið búsett í Kanada frá
1967. Hún er höfundur margra
greina um heimspeki auk bókarinn-
ar Að skilja listaverk (On Under-
standing Works of Art), sem kom
út 1986. Hún kennir í mánuðinum
námskeið um heimspeki í skáldskap
við Háskóla íslands.
Petra von Morstein er einnig ljóð-
skáld og yrkir bæði á þýzku og
ensku. Hún hefur sent frá sér Ijóða-
bókina Til allra (An alle).
LEIÐRÉTT
Rangur umboðsaðili
MISHERMT var í blaðaukanum
Tölvur og tækni, sem fylgdi Morg-
unblaðinu síðastliðinn sunnudag, að
Treknet hefði umboð fyrir Metro-
werks og þar með CodeWarrior
kennslu- og þróunarhugbúnað. Hið
rétta er að umboðsaðili fyrir
Metrowerks er Hringiðan ehf. eins
og sjá má á slóðinni
http://www.vor-
tex.is/Islenska/Fyrirtaeki/Metrow-
erks/. Beðist er velvirðingar á
þessu.
Elsti skólinn
í frétt í Morgunblaðinu í gær
sagði að Isaksskóliskóli væri elsti
starfandi skóli í Reykjavík en hann
á 70 ára afmæli. Rétt er hins vegar
að Landakotsskóli er eldri en hann
heldur upp á aldarafmæli á næsta
ári.
Starfsfólki veitingasviðs
sagt upp
EINUNGIS starfsfólki veitinga-
sviðs Hótels KEA var sagt upp
störfum um nýliðin mánaðamót, en
ekki öllu starfsfólki hótelsins eins
og missagt var í frétt í blaðinu í
gær. Alþs vinna á hótelinu um 45
manns. Á veitingasviði starfa rúm-
lega 20 manns. Hótelstjórinn á
Hótel KEA heitir Elías Gíslason,
en rangt var farið með föðurnafn
hans í sömu frétt og er beðist vel-
virðingar á því.
Merkjasala
Krabbameinsfé-
lagsins um helgina
NÚ í vikulokin verða seld merki
o.fl. um land allt til stryktar starfi
Krabbameinsfélagsins, en slík sala
er orðin árviss. Auk merkja eru
að þessu sinni seldir áletraðir
pennar og lyklaveski, allt á sama
verði, 300 krónur. Selt verður við
verslanir og gengið í hús þar sem
því verður við komið. Allur ágóði
rennur til aðildarfélaga Krabba-
meinsfélags íslands en það eru 24
svæðisbundin krabbameinsfélög
og fímm stuðningshópar sem hafa
verið stofnaðir til að sinna félags-
legri þjónustu við þá sem fengið
hafa krabbamein. Á pennunum er
auglýst „grænt númer“ Krabba-
meinsráðgjafarinnar, 8004040, en
þetta er símaþjónusta við þá sem
vilja fá upplýsingar um krabba-
mein eða leita ráða varðandi sjúk-
dóminn.
í fréttatilkynningu Krabba-
meinsfélagsins segir að undanfar-
in ár hafi verið unnið að því að
efla starf svæðisbundnu félag-
anna. Hafi nokkur þeirra þegar
tekist á við veigamikil verkefni í
heimabyggð sinni, einkum á sviði
fræðslu og forvarna og fleiri félög
hafi hug á að fara út á þessa
braut.
Merkasölunni um helgina sé
ætlað að styðja við þessa starfs-- —
hætti. Krabbameinsfélagið vænti
þess að landsmenn taki sölufólki
vel og noti þetta tækifæri til að i
efla baráttuna gegn krabbameini. 1
Nú eru liðin 45 ár síðan Krabba- j
meinsfélag íslands var stofnað. j
Auk þess að vera heildarsamtök j
staðbundnu krabbameinsfélag- 1
anna og stuðningshópanna hefur \
félagið með höndum fjölþætta l
starfsemi. Leit að krabbameini í \
leghálsi og bíjóstum kvenna, \
skráningu krabbameina, krabba- 1
meinsrannsóknir, fræðslu um
krabbameinsvarnir og ýmiss konar
stuðning við sjúklinga.
Premium
PC
B@stu kaupin í tölvu í dagi
Turnkassi
Pentium 133 örgjörvi
16MB ED0 minni
1280MB diskur
2MB PCI S3 skjákort
8 hraða CD-drif
Soundblaster 16VE
10W Hátalarar
15" hágæða litaskjár
Lyklaborð og mús
Windows 95 uppsett
Aðeins kr. 144.900 stgr.
Digital á íslandi
Vatnagarðar 14-104 Reykjavík
Sími 533-5050 - Fax 533-5060
i
tryggja þér hvild og
vellíðan í svefni.
Þær eru framleiddar á
grunni gammalla hefða
með því að setja gorm
á gorm, það þýðir að
maður sefur
raunverulega á 2
dýnum og fær þannig
hámarks stuðning.
Mjög gott úrval af
tré og járnrúmum