Morgunblaðið - 04.10.1996, Síða 76

Morgunblaðið - 04.10.1996, Síða 76
HEIMILISLÍNAN - Heildarlausn ájjármáium einstaklinga 0 BÚNAÐARBANKI (SLANDS MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 4. OKTÓBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Áhrif gosefna á lífríki sjávar Einstakt tækifæri til rannsókna „HLAUPIÐ á Skeiðarársandi gefur einstakt tækifæri til að kanna áhrif gosefna á lífríki sjávar,“ segir Sig- urður Reynir Gíslason jarðefnafræð- ingur hjá Raunvísindastofnun. „Sú staðreynd að gosið náði sér ekki upp úr jökli í byijun þýðir að megnið af mengandi efnum leystist upp í vatn- inu sem síðan fer niður Skeiðarár- sandinn og út í sjó.“ Meðal vísindamanna er meðal ann- ars mikill áhugi á því að skýra til- vist þungmálma í sjávarseti, skelfiski ' ~og lifur ýmissa físka við Island. Vegna fjarlægðar landsins frá helstu iðnaðarsvæðum hefur reynst erfitt að skýra þessa mengun, og hefur mönnum helst dottið í hug að skýra það með eldvirkni, í sjó og á landi. Einnig er áhugi á því að kanna hvort gosefni sjái lífríki sjávar í kringum Island fyrir mikilvægum næringar- efnum, sérstaklega kísil- og fosfór- samböndum. Líkur hafa verið leiddar að því að efni sem berast úr gosum séu mikilvæg fyrir viðgang þorsk- — -stofnsins. ----♦ ♦ ♦--- Smuguafli mun minni en í fyrra AFLI íslenzkra skipa í Smugunni í Barentshafi er um 10.000 tonnum minni í ár en á sama tíma í fyrra. Um mánaðamótin hafði Fiskistofa fengið tilkynningar um að 13.000 tonnum hefði verið landað af Smugu- þorski og önnur 2.700 tonn væru á leið til lands, eða samtals 15.700 to^in. í septemberlok í fyrra var Smuguaflinn hins vegar orðinn 25.500 tonn. Rækjuafli íslenzkra skipa á Flæm- ingjagrunni er nú orðinn yfír 18.000 tonn, en allt árið í fyrra veiddust um 7.600 tonn. íslendingar kláruðu karfakvóta sinn á Reykjaneshrygg, 45.000 tonn, í sumar. Enn eru hins vegar 25.000 tonn af kvóta íslands úr norsk- íslenzka síldarstofninum óveidd. Ekki eru miklar líkur á að lokið verði við kvótann. ■ Metár í úthafsveiðum/10 --------♦ ♦--♦---- *■ 1.047 not- aðir bílar fluttir inn INNFLUTNINGUR á notuðum fólksbílum hefur nær fjórfaldast á fyrstu níu mánuðum þessa árs sam- anborið við sama tímabil í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum Bif- reiðaskoðunar íslands og nemur inn- flutningurinn um 14% af heildarinn- ^Síjtningi bifreiða það sem af er árinu. Til loka september í ár voru flutt- ir inn 1.047 fólksbílar, en á sama tímabili í fyrra voru fluttar inn 292 notaðar bifreiðar. 6.413 nýjar bif- reiðar voru fluttar inn fyrstu níu mánuðina í ár, sem er um fjórðungi meiri innflutningur en á sama tíma- bili í fyrra. ■ Innflutningurinn/16 Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson GOSSTRÓKUR eldsumbrotanna undir Vatnajökli er mikilfenglegur að sjá úr Hrafnkelsdal. Fréttaritari Morgunblaðsins brá sér upp á Fjallkoll ofan við Aðalból til að beija hann augum. Fjallkollur er 830 metra hátt fjall á vesturbrúnum Hrafnkelsdals og af Fjallkolli eru rétt rúmir 100 kílómetrar til gosstöðvanna. Myndin er tekin af Fjallkolli í suðvestur. Til vinstri við gosstrókinn ber Kverkfjöll en hægra megin sér í jökulinn til Bárðarbungu. Neðan við gosmökkinn sér í Kárahnúka og Dimmugljúfur sem Jökulsá á Dal rennur um. Varnir mannvirkja á Skeiðarársandi Fórnarkostnaður 20-40 milljónir kr. ÁKVEÐIÐ var í gærkvöldi að ijúfa vegi og varnargarða á Skeiðarár- sandi á nokkrum stöðum til að létta álagi af brúm í yfirvofandi flóði. „Ef áætlanir Vegagerðarinnar standast og tekst að verja brýrnar á Skeiðarársandi og meginhluta vega og varnargarða verður fórnar- kostnaður vegna varnanna 20-40 milljónir króna,“ að sögn Rögnvalds Gunnarssonar verkfræðings hjá Vegagerðinni. Er þá reiknaður sá skaði sem verður við það að ijúfa skörð í vegi og varnargarða til að veija brýrnar. Ótaldar eru hugsan- legar skemmdir á ljósleiðara Pósts og síma og skemmdir á rafmagns- staurum og línum. Ef allt fer á versta veg og brýr og önnur mann- virki eyðileggjast getur kostnaður- inn numið 1,3-1,5 milljörðum króna. Samkvæmt áætlun Vegagerðar- manna í gær var gert ráð fyrir að ijúfa fjögur skörð í þjóðveginn, eitt við hvert vatnsfall; Skeiðará, Núps- vötn, Sandgígjukvísl og Sæluhúsa- kvísl, en síðastnefnda kvíslin er vatnslaus undir venjulegum kring- umstæðum. Einnig var gert ráð fyrir að ijúfa þijú göt i varnar- veggi. Rögnvaldur segir að lauslega áætlað kosti eins kílómetra varnar- garður 10 milljónir króna en kíló- metra vegarkafli með bundnu slit- lagi 5-6 milljónir. Vegagerðarmenn munu aðeins rjúfa lítil skörð í vegi og garða, en vatnsflaumurinn sér sjálfur um að stækka þau. í ákvörð- unum um hvar skyldi ijúfa vegina var tekið tillit til þess að ljósleiðara- Morgunblaðið/Golli SNORRI Jónsson, verkstjóri hjá Vegagerðinni á Höfn í Horna- firði, tekur niður skilti við austurbakka Skeiðarár til að vörubíl- við hlið brúarinnar. Stælíkab svæbi Stabir þar sem fyrirhugab er ab rjufa varnargarba og vegi V,. \ a \\ --- strengjum yrði hlíft eins og mögu- legt er. Engar ráðstafanir til að veija rafmagnsstaura Að sögn Sigþórs Sigurðssonar, símaverkstjóra í Vík í Mýrdal, liggja strengirnir víðast hvar nokk- uð fyrir neðan veginn. Þar sem brýr eru fylgja þeir þeim yfir vatns- föllin, að brúnni yfir Sæluhúsakvísl undanskilinni. Á kafla austan við Skeiðará fylgir strengurinn vegin- um. Engar sérstakar ráðstafanir verða gerðar til að veija rafmagns- staura og línur, enda er ekki talinn neinn kostur á að styrkja þá frekar. Rögnvaldur segir að styrktarjárn gangi úr staurunum langt niður í jörðu, jafnvel 8-10 metra. Styrktar- járn brúnna ná ellefu metra niður í jörðu. Frá því snemma í gærmorg- un var unnið við að styrkja varnar- garða og einnig voru gerðir nokkr- ir stuttir nýir garðar. Sérstök áhersla var lögð á að styrkja garð austan við Skeiðarárbrú sem skemmdist í flóðinu í vetur og fóru í hann tugir bílfarma af gijóti. Þijár jarðýtur voru notaðar við fram- kvæmdir austan megin sandsins og þijár vestan megin og hin fjórða bættist við seint í gærkvöldi. Átta vörubílar fluttu grjót í garðana um daginn og var búist við að þeim myndi fjölga. Yfir 20 stórvirkar vinnuvélar og vörubílar eru austan sands og átta vestan sands og stjórnendur þeirra í viðbragðs- stöðu, ef á þarf að halda. Árdegis í dag verður staðan metin á ný, af Vegagerðinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.