Morgunblaðið - 13.10.1996, Síða 20

Morgunblaðið - 13.10.1996, Síða 20
20 B SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ j| jf ■ Hfa bk U U A I I V/C? //v A D i MYLLAN Fyrirtækið var stofnað 1959 og er í dag eitt stærsta matvælafyrirtæki landsins, þar sem starfsmannafjöldi er um 300. Fyrirtækið á og rekur fjölda brauðbúða og eitt af markmið- um þess er að koma vörunni nýrri og ferskri til neytendans. Hagur neytandans er hafður í fyrirrúmi og mikil áhersla lögð á ítrasta hreinlæti og hollustu. Myllan er reyklaus vinnustaður. Myllan Brauð hf. óskar eftir að ráða verk- stjóra í þrifadeild Leitað er að einstaklingi, sem hefur reynslu af verkstjórn og þrifastörfum. Umsækjandi þarf að vera ákveðinn, skipu- lagður og snyrtilegur og hafa metnað til að takast á við ábyrgðarmikið starf. Fyrirtækið starfar eftir GÁMES gæðakerfi og því er æskilegt að viðkomandi hafi þekk- ingu á tölvuforritinu Word og Excel. Umsækjandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknum skal skila í afgreiðslu Myllunnar Brauðs hf., Skeifunni 19, Reykjavík, fyrir 21. október nk. FISKIÐJAN SKAGFIRÐINGUR Viðhaldsstjóri. Fiskiðjan Skagfirðingur hf. á Sauðárkróki óskar eftir að ráða viðhaldsstjóra til starfa. Starfssvið: Umsjón með viðhaldi og þjónustu við skip fyrirtækisins. Viðhaldsstjórinn: - er ábyrgur fyrir öllu viðhaldi skipa fyrirtækisins ásamt útgerðarstjóra og yfirvélstjóra á hverju skipi. - gerir viðhalds- og kostnaðaráætlanir og hefur eftirlit með viðgerðarverkefnum. - er ábyrgur fyrir skoðunum flokkunarfélaga og Siglingastofnunar ásamt útgerðarstjóra, skipstjóra og yfirvélstjóra. - er staðgengill útgerðarstjóra. Viðhaldsstjórinn þarf að vera vélfræðingur með umtalsverða reynslu sem vélstjóri. Tæknifræðimenntun að auki kæmi sér vel í þessu starfi. Nánari upplýsingar veitir Þórir Þorvarðarson. Vinsamlega sendið skriflegar umsóknir til Ráðningarþjónustu Hagvangs hf. merktar "Viðhaldsstjóri 409" fyrir 19. október n.k. Hagvangur hf Skeifunni 19 Reykjavík Sími 581 3666 Ráðningarþjónusta Rekstrarráðgjöf Skoðanakannanir Eftirlitsstofnun EFTA Laus staða no. 8/96: Fulltrúi Skrifstofa - fjármál Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel hyggst ráða fulltrúa á skrifstofu sína, er helst þyrfti að hefja störf 1. janúar 1997. Umsóknarfrestur rennur út 28. október 1996. Fulltrúinn, sem til stendur að ráða, verður yfirmaður fjármálasviðs skrifstofu stofnunar- innar og mun bera ábyrgð á fjármála-, fjár- málaáætlunar- og fjárstreymisstjórn. Hann mun bera ábyrgð á tillögum stofnunarinnar að árlegum fjármálaáætlunum, reikningum og fjárhagsskýrslum jafnt fyrir notkun innan- húss sem utan stofnunarinnar og peninga- legum og fjármálaætlunarlegum þáttum er tengjast samkomulögum og samningum. Fulltrúinn mun jafnframt vera staðgengill framkvæmdastjóra skrifstofunnar og honum verða hugsanlega falin önnur verkefni á sviði stofnunarinnar. Nauðsynlegt er að viðkomandi hafi háskóla- gráðu í viðskiptafræði, lögfræði eða hag- fræði, þar á meðal bókhaldi, hafi gengt ábyrgðarstörfum á sviði almennrar stjórn- sýslu, áætlunargerðar, fjármálastjórnunarog bókhalds og hafi víðtæka þekkingu á tölvu- kerfum í tengslum við bókhald, fjármál og áætlanagerð. Þá verður viðkomandi að hafa fullkomið vald á ritaðri og talaðri ensku, starfstungu stofnunarinnar. Æskilegt er að viðkomandi hafi starfsreynslu af sviði al- þjóðastofnana og þekkingu í frönsku, þýsku, norsku eða íslensku. Umsækjendum ber að útfylla umsóknareyðu- blað stofnunarinnar eða senda víðtækt ævi- ágrip til: EFTA Surveillanve Authority, Director ofAdministration, Rue de Tréves 74, B-1040 Belgium. Fax: 00 32 2 286 1800. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er hægt að nálgast í síma 00 32 2 286 18 91. Munt þú blómstra.. Nýherji getur □ sig blómu bætt Lotus Notes Nýherji er með öfluga Lotus Notes deild og nú viljum við stækka hana enn frekar. Við leitum að kerfisfræðingum, tölvunarfræðingum, góðum Notes forriturum eða fólld með forritunarreynslu með löngun til að kynnast þessu frábæra hópvinnukerfi og þróa í því lausnir. Hvað er Lotus Notes? Lotus Notes. Besta leiðin til boðskipta, samvinnu og samhæf ingar. Lotus Notes er vinsælasti hópvinnubúnaður í heimi. Milljónir manna í þúsundum fyrirtækja nota Notes í dag til að ryðja úr vegi hefðbundnum hindrunum og skapa viðtæk sambönd, innan sem utan veggjafyrirtækjanna. Með útgáfu 4 af Lotus Notes verða boðskipti á milli starfsfélaga, samvinna um verkefni og samhæfing viðskiptaferla auðveldari er nokkru sinni fyrr. Lotus Notes gegnir lykilhlutverki við skilvirka meðhöndfun upplýsinga. Hvort sem markmiðið er að afla sér upplýsinga, flokka þær, breiða þær út eða deila með öðrum og hvort sem upplýsingarnar er að finna í gagnagrunni, tölvupósti, ritvinnsluforriti eða á Internetinu, er lausnina að finna í Lotus Notes. Allt sem fyrirtækið þarf á að halda til að nýta sér styrk Lotus Notes er biðlari, miðlari og netkerfi. Viltu vita meira um Lotus Notes? Sjá http://www.lotus.com Hjá Nýherja starfar hresst félk sem leggur metnað sinn í að bjéða íslensku atvinnulíf i upp á góða þjénustu og ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. Nýherji hýður upp á géða aðstöðu og fyrsta flokks þjálfun. Nánari upptýsingar eru veittar hjá Sigurði Ólafssyni, starfsmannastjóra Nýherja. Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál. Vinsamlega sældð um á umsóknarblöðum sem Iiggja frammi í móttöku okkar í Skaftahlíð og á slóð http://www.nyherji.is/umsokn/. Umsóknir og nánari upplýsingar má einnig fá með tölvupósti: sigol@nyherji.is Umsóknarlresturertil 18. október 1996. ...á okkar akri? <33> NÝHERJI Rœstingadeild SECURITAS ehf. er stcersta Jyrirtœkið hérlendis á sviði rœstinga- og hreingerningaþjónustu. Hjá rœstingadeildinni eru nú starfandi á fimmta hundrað starfsmenn er vinna við rœstingar á vegum fyrirtœkisins víðsvegar í borginni og nágrenni. Ertu vanur verkstjórn og viltu vinna óreglulega ? Óskum eftir að ráða verkstjóra hreingeminga hjá Ræstingadeild Securitas ehf. Starfið felst í verkstjóm með hreingemingum í hinum ýmsu fyrirtækjum á vegum Securitas. Verkstjóra er að taka út verk, annast undirbúning verka, koma áhöldum og tækjum á áfangastað, annast eftirlit með verkum og taka þátt í þeim auk þess að skila búnaði aftur “í hús”. Jafnframt þarf verkstjóri að sinna skýrslugerð og öðm tilfallandi. Um framtíðarstarf er að ræða. Hæfniskröfur era að umsækjendur séu samviskusamir og vinnufúsir, ábyrgir, útsjónarsamir, liprir í mannlegum samskiptum, reglusamir og reyklausir. Æskileg reynsla af ræstingum. Umsóknarfrestur er til og með 18. október n.k. Ráðning verður skv. nánara samkomulagi. í boði era góð laun fyrir réttan aðila. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar á skrifstofu, sem opin er frá kl.10-16, en viðtalstímar frá kl.10- 13. STRA GALLUP STARFSRAÐNINGAR Mörkinni 3, 108 Reykjavík Sími: 588 3031, bréfsími: 588 3044 Guðný Harðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.