Morgunblaðið - 23.10.1996, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
lOOkm
EldljaUið
EldfjaMagígurinr
(askjan)
Grlmsvöln
Bráðið vainið salnast
í Grímsvatnaoskjuna.
Þeoar ákveðinni vatnshæð
er iiáð lyttisl íshellan og vatnið
streymir undir jöklinum niður í daiinn.
Eldgosið tsrýst gegnum ísinn milli
eidtjailsins Bárðarbungu og Grimsvatna
Glóandi hraun bitar jokuiinn að neðan.
ís'mn óráðnar.
Tveir
bíða
líffæra
TVEIR íslendingar bíða þess
nú að komast í líffæraflutn-
inga í Gautaborg, þar af ann-
ar þeirra ytra, að sögn Jóns
Dalbús Hróbjartssonar,
prests í Svíþjóð. Báðir bíða
þeir eftir lungum.
Samningur íslenskra
stjórnvalda við Sahlgrenska-
sjúkrahúsið í Gautaborg um
líffæraflutninga var nýlega
framlengdur um mánaðar-
tíma, en fyrri framlenging
nam hálfum mánuði.
Vonast eftir endurnýjun
Jón kveðst vona að samn-
ingurinn verði endurnýjaður
að fullu, enda séu faglegar
og félagslegar aðstæður góð-
ar í Gautaborg. „Ég vona að
aðgerðirnar verði hér áfram,
því þær eru í mjög góðum
höndum,“ segir Jón,
Jón segir orðið algengara
að líffæraþegar bíði hérlendis
eftir aðgerðum en áður fyrr,
sökum tækniþróunar á þessu
sviði, og því séu að jafnaði
færri íslendingar staddir ytra
en var fyrir nokkrum árum.
Beðið eftir
þreföldum
Niagara-
fossi
ÞÝSKA vikuritið Der Spiegel gerir
eldgosinu við Bárðarbungu í
Vatnajökli rækileg skil í síðasta
tölublaði um leið og farið er ofan
í saumana á sögu jöklarannsókna
undir fyrirsögninni „Duttlunga-
fullir risar“.
í greininni í Der Spiegel segir
að Vatnajökull hafi narrast að
jarðfræðingunum og sagt að það
sé jafn mikil ráðgáta hvers vegna
flóðið úr Grímsvötnum hafi látið
bíða eftir sér og hvað gerist undir
og innan í jöklinum.
Um flóðið segir að þegar það
brjótist fram verði umfang þess á
borð við þrefalda Niagara-fossa
eða 20 milljónir lítra á sekúndu.
„Herskarar •
hamfaraferðamanna “
Bið hafi hins vegar orðið á flóð-
inu og því hafi „herskarar ham-
faraferðamanna" byrjað að hafa
sig á brott.
í greininni kemur fram að þetta
sé ekki eina dæmið um það að
erfitt sé fyrir vísindamenn að
henda reiður á náttúru jökla,
hinna „duttlungafullu risa“. I
fyrra hafi til dæmis Bering-jökull
í Alaska skyndilega farið að skríða
fyrir alvöru og færst fram um 100
metraádag.
Der Spiegel 43/1996
Með greininni í Der Spiegel fylgdi teikn-
ingin sem birtist hér. Þar er sýnt hvernig
flóðið gæti átt sér stað.
Ungnr og óþekktur höfundur hlaut Laxnessverðlaunin
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
SKÚLI Björn Gunnarsson með þeim Auði Laxness og Ólafi Ragnarssyni.
Lífsklukkan tifar - bók
um lífið og dauðann
SKÚLI BJÖRN Gunnarsson, ís-
lenskufræðingur, hlaut bókmennta-
verðlaun Halldórs Laxness sem af-
hent voru í fyrsta skipti í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar í gær en það
er bókaforlagið Vaka-Helgafell sem
Glóð undir íshellunni: Farvegur vatnsins eftir eldgosið í Bárðarbungu
stendur að verðlaununum ásamt
fjölskyldu skáldsins. Verðlaunaféð
nemur 500.000 krónum. Verð-
launabókin, sem er smásagnasafn
og heitir Lífsklukkan tifar, kom út
í gær og var höfundinum afhent
fyrsta eintakið. „Þetta er bók um
lífið og dauðann", sagði Skúli Björn
aðspurður um efni bókarinnar.
Held áfram á sömu braut
Skúli Björn, sem er íslenskufræð-
ingur að mennt og stundar nú M.A.-
nám í íslenskum bókmenntum, seg-
ist hafa fengist við það að skrifa
um nokkurt skeið þótt ekki hafi
hann mikið verið að trana verkum
sínum fram. „Þetta er fyrsta bókin
sem kemur út eftir mig. Það má
kannski segja að ég hafi verið að
bíða eftir hentugu tækifæri. Verð-
laun af þessu tagi eiga að mínu
viti fullan rétt á sér vegna þess að
þau gefa ungum höfundum tæki-
færi til að leggja verk sín í dóm
fagmanna."
í umsögn dómnefndar um verð-
launahandritið segir: „Lífsklukkan
tifar er einkar vel saman sett verk,
sem ber vott um hæfileikaríkan
höfund. Sögurnar tengjast allar inn-
byrðis svo að úr verður óvenju heild-
stætt smásagnasafn. Stíll verksins
er látlaus og hnitmiðaður en á jafn-
framt ríkan þátt í því hvernig sög-
urnar enduróma hver í annarri og
í huga lesandans."
Alls bárust tæplega fimmtíu
handrit. Þau voru merkt dulnefni
en rétt nafn höfundar látið fylgja
með í lokuðu umslagi og valdi sér-
stök dómnefnd verðlaunahandritið.
Formaður dómnefndar var Pétur
Már Ólafsson, bókmenntafræðingur
og útgáfustjóri Vöku-Helgafells, en
með honum í nefndinni voru Ástráð-
ur Eysteinsson, prófessor í al-
mennri bókmenntafræði við Há-
skóla íslands, og Guðrún Nordal
bókmenntafræðingur.
Verðlaunin eru veitt fyrir nýja
og áður óbirta íslenska skáldsögu
eða safn smásagna að undangeng-
inni samkeppni sem er öllum opin.
Um þijátíu íslendingar hafa greinst með latex-ofnæmi síðustu fimm ár
Langveikum börn-
um og heilbrigðis-
starfsfólki er hættast
Um þrjátíu Islendingar hafa greinst með latex-ofnæmi síðustu fímm
árin eða svo og virðist stærsti áhættuhópurinn vera böm sem hafa
þurft að gangast undir ítrekaðar aðgerðir á sjúkrahúsum, svo og
fólk í heilbrigðisstéttum. Pétur Gunnarsson komst að því að þessi
tegund ofnæmis var nær óþekkt þar til fyrir fímm árum.
AÐ SÖGN Davíðs Gíslasonar sér-
fræðings í ofnæmissjúkdómum er
um bráðaofnæmi að ræða og hafa
einkennin verið allt frá því að fólk
bólgni á vörum eftir að blása upp
blöðrur eða fái húðkláða undan
gúmmíhönskum til óþæginda í nefi
og augum og jafnvel asma. A.m.k.
eitt tilfelli ofnæmislosts er þekkt
hérlendis þótt ekki hafi þar verið
um bráða lífshættu að ræða en
dauðsföll eru þekkt vegna þessa
erlendis. Latex, sem er hið náttúru-
lega grunnefni í gúmmíi, er hvar-
vetna í umhverfi manna.
Algengast er að latex-ofnæmis
verði vart hjá börnum, sem vegna
fæðingargalla, t.d. klofins hryggjar,
eða galla í þvagrás hafa mikið ver-
ið undir læknishendi og gengist
undir tíðar skurðaðgerðir. Ofnæmið
kemur helst fram þegar slímhúð
þessara barna kemst í snertingu
við latexefni. Morgunblaðinu er
kunnugt um að nýlega fékk dreng-
ur sem varð fyrir alvarlegu slysi í
bernsku og gekkst þá undir læknis-
aðgerðir, ofnæmiskast í stól hjá
tannlækni sem notaði latex-dúk i
munn hans.
Heilbrigðisstarfsfólki er einnig
hætt við latex-ofnæmi, einkum
starfsmönnum á skurðstofum, að
sögn Davíðs Gíslasonar. Þrír hjúkr-
unarfræðingar eru í hópi þeirra sem
greinst hafa með ofnæmið og einn
læknir. Dæmi eru um fólk úr öðrum
starfsstéttum, t.d. er einn sjúkling-
anna 30 starfsmaður í fataverk-
smiðju þar sem framleiddur er
gúmmífatnaður.
Jón Sigurðsson, svæfmgarlæknir
á Landspítalanum, hefur gert áætl-
un fyrir Landspítalann um það
hvernig sjúklingum með latex-
ofnæmi er sinnt á sjúkrahúsinu.
Við aðgerðir á þeim verður að nota
sérstaka hanska en ekki venjulega
skurðstofuhanska. Þær slöngur og
þær öndunargrímur sem að jafnaði
eru notaðar við svæfingu geta verið
þessum sjúklingum lífshættulegar.
I umbúðum um stungulyf frá Lyfja-
verslun ríkisins er latex í töppum
og verður því að nota sérpöntuð
stungulyf. Frá Þýskalandi er keypt-
ur sérstakur vökvi í æð í latex-fríum
umbúðum. Ekki má heldur nota
algengustu tegund af sprautum til
að gefa þessum sjúklingum lyf í
æð, því að þéttihringir í sprautunum
eru úr latexi.
Ekkert bendir að sögn viðmæl-
enda blaðsins til að þetta vandamál
sé útbreiddara hérlendis en erlend-
is. En hvaða skýringar eru á því
að latex-ofnæmi hefur blossað upp
undanfarin ár? Efnið hefur verið
þekkt öldum saman og um áratuga-
skeið verið að finna í öllum gúmmí-
hlutum í umhverfi manna?
Að sögn Davíðs Gíslasonar, sem
skrifaði grein um latex-ofnæmi í
Læknablaðið nýlega ásamt Unni
Steinu Björnsdóttur lækni, er talið
að líklegasta skýringin á þessu nýja
ofnæmi sé síaukin notkun efnisins.
í kjölfar alnæmisfaraldursins og
vegna aðgæslu við lifrarbólguveiru
hafi notkun latex-hanska margfald-
ast. Latex sé óvíða meira notað en
á sjúkrahúsum. Einnig hafi t.d.
smokkanotkun margfaldast. Þá ér
talið hugsanlegt að breytingar á
framleiðsluferli efnisins eigi hlut að
máli.
Um tengingp ofnæmisins við
sjúklinga og sjúkrahús segir Jón
Sigurðsson að á sjúkrahúsum sé
einna mest hætta á að latex komist
í snertingu við slímhúð líkamans
og valdi ofnæmi, en það sé við þær
aðstæður sem þetta ofnæmi sé al-
varlegast þótt það sé einnig þekkt
sem roði á höndum undan hönskum.
Viðmælendur Morgunblaðsins
töldu ekki auðvelt að útrýma latex-
efnum af sjúkrahúsum og skurð-
stofum; þótt hægt sé að útbúa
skurðstofur sérstaklega þegar sinna
þarf þar sjúklingum með ofnæmið;
til þess sé efnið of útbreitt og hand-
hægt.