Morgunblaðið - 23.10.1996, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 7
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Breytingartillaga við nýtt umferðarlagafrumvarp lögð fram
Hámarkshraði utan
þéttbýlis verði 110 km
SEX stjórnarþingmenn hafa lagt
fram á Alþingi breytingartillögu við
37. grein umferðarlaga þess efnis
að hámarkshraði á bundnu slitlagi
utan þéttbýlis verði 110 kílómetrar
í stað 90. Flutningsmenn eru Vil-
hjálmur Egilsson, Gunnlaugur M.
Sigmundsson, Siv_ Friðleifsdóttir,
Hjálmar Jónsson, Árm Johnsen og
Einar K. Guðfinnsson. í greinargerð
með breytingartillögunni segir að
90 kílómetra hámarkshraði á
bundnu slitlagi sé „barn síns tíma“.
Einnig segir að vegakerfi landsins
hafi tekið stakkaskiptum á síðustu
10-15 árum. Langmestur hluti
hringvegarins hafi nú verið lagður
bundnu slitlagi og á sama tíma hafi
aksturseiginleikum og öryggisbún-
aði fólksbifreiða fleygt fram.
„Sú almenna hraðatakmörkun
sem umferðarlögin setja við akstur
á bundnu slitlagi, það er 90 kíló-
metrar á klukkustund, er [•■•] ekki
lengur raunhæf viðmiðun.
Lög eru sett til þess að farið sé
eftir þeim. Það slævir réttarvitund
almennings ef í gildi eru lög sem
nær óframkvæmanlegt er fyrir lög-
gæsluna að framfylgja. Hér er lagt
til að ákvæðum umferðarlaganna
um hraðatakmarkanir verði breytt
með tilliti til betra vegakerfis og til
samræmis við þau hraðatakmörk
sem gilda í nágrannaríkjum okkar.“
Atvinnumálanefnd
350 þúsund
í styrki
BORGARRÁÐ hefur samþykkt til-
lögu atvinnumálanefndar um ráð-
stöfun ijár úr þróunarsjóði nefndar-
innar.
Samþykkt var að greiða 100 þús.
vegna kostnaðar við samkeyrslu
tölvuupplýsinga frá Hagstofunni og
SKÝRR. Jafnframt var samþykkt að
veita 250 þús. til samvinnuverkefnis
Aflvaka hf. og Atvinnu- og ferða-
málastofu um stefnu ríkisvaldsins í
atvinnuuppbyggingu.
Hundalíf
undir stýri
„TÍKIN þarna tekur ekki einu
sinni eftir mér þótt ég sé búinn
að rúlla niður rúðunni og reyni
að líta út fyrir að vera svalur.
Getur hún ekki hundskast til að
horfa hingað? Hæ, eigandi, flaut-
aðu nú létt á hana. Ég geri mig
að fífli ef ég gelti á hana á miðri
götu. Geturðu ekki stýrt fyrir
mér? Hvaða hundur er eiginlega
í þér? Sérðu ekki að ég hef um
mikilvægari hluti að hugsa?“
Samkeppnisráð úrskurðar um einka-
söluumboð fasteignasala
Oheimilt að krefjast
fullrar þóknunar
selji annar eign
SAMKEPPNISRÁÐ telur að ákvæði
í stöðluðu söluumboði Félags fast-
eignasala, um rétt fasteignasala til
einkasöluþóknunar, brjóti í bága við
góða viðskiptahætti. Jón Guðmunds-
son formaður Félags fasteignasala
kveðst telja líklegt að þessum úr-
skurði verði áfrýjað en stjórnarfund-
ur muni taka ákvörðun um fram-
haldið á fundi í dag.
Sumir greitt tvisvar
í ákvæðinu eru kveðið á um, að
hafi seljandi íbúðar skuldbundið sig
til að bjóða hana aðeins til sölu hjá
einum fasteignasala eigi fasteigna-
salinn rétt á söluþóknun, jafnvel
þótt eignin sé seld annars staðar.
Dæmi eru um að fólk hafi þannig
greitt söluþóknun tvisvar, til þess
fasteignasala sem seldi eignina og
þess sem var með söluna í einkasölu.
Neytendasamtökin kvörtuðu til
samkeppnisráðs í kjölfar þess að
maður leitaði til þeirra vegna kröfu
fasteignasala um að hann fengi sölu-
þóknun, þrátt fyrir að annar hefði
selt íbúðina.
í kvörtun Neytendasamtakanna
var bæði gerð athugasemd við
ákvæði um einkasölu, en einnig að
ákvæði, sem tilgreinir að söluumboð
sé uppsegjanlegt með 30 daga fyrir-
yara, væri ekki nægjanlega skýrt
aðgreint frá öðrum samningsákvæð-
um.
Jón kveðst vera ósáttur við fram-
göngu Neytendasamtakanna í mál-
inu, enda telji hann afar fátítt að
fasteignasalar geri kröfu um fulla
söluþóknun vegna eignar sem annar
selji og ekkert áþreifanlegt dæmi
um slíkt hafi komið fyrir hans sjón-
ir. í lögum sem starfshættir fast-
éignasala grundvallast á komi skýrt
fram að fasteignasali taki ekki hærri
þóknun fyrir þjónustu sína en sem
svarar til þess vinnuframlags sem
I'átið er í té. Lögin séu höfð að leiðar-
ljósi og samtökin séu því að grípa
inn í samninga milli fasteignasala
og viðskiptavina að óþörfu að hans
mati.
Skuldbinding nauðsynleg
í athugasemdum Félags fasteigna-
sala við erindi Neytendasamtakanna
kom fram, að að fenginni reynslu
væri einkasala merkingarlaust hug-
tak og fyrirkomulag, ef skuldbinding
um greiðslu söluþóknunar væri ekki
fyrir hendi. Þá var tekið fram, að
ekki hafi það verið ásetningur höf-
unda hins staðlaða söluumboðs að
fela ákvæði um uppsögn söluumboðs
innan um önnur ákvæði.
í úrskurði samkeppnisráðs kemur
fram, að söluþóknun fyrir eign í
einkasölu sé yfirleitt lægri en í al-
mennri sölu, eða 1,7% af verðmæti
eignarinnar á móti 2% annars.
Hins vegar vitnar samkeppnisráð
til laga um fasteigna- og skipasölu
og vísar til þess að í 14. grein lag-
anna sé fasteignasala óheimilt að
taka hærri þóknun fyrir starfa sinn
en sanngjarnt sé miðað við framlagða
vinnu. Ákvæði söluumboðsins feli í
sér ótilhlýðilega háar bætur af hendi
neytanda, sem ekki hefur staðið við
skuldbindingar sínar. Þá stríði
ákvæði söluumboðsins gegn sam-
keppnislögum, þar sem það raski til
muna jafnvægi milli réttinda og
skyldna samningsaðila.
Sanngjörn þóknun fyrir
framlagða vinnu
Samkeppnisráð telur því eðlilegt
að einkasöluumboð kveði á um að
neytandinn greiði söluþóknun fyrir
sannanlega framlagða. vinnu fast-
eignasala og annan kostnað, t.d.
vegna auglýsinga.
Þá tók ráðið einnig undir þau sjón-
armið Neytendasamtakanna um að
ákvæði um uppsögn samnings þyrfti
að koma fram með skýrari hætti í
söluumboðinu. Jafnframt telur ráðið
að 30 dagar til uppsagnar á einka-
' söluumboði sé óhæfilega langur
frestur miðað við eðli viðskiptanna.
NÓG PI^S