Morgunblaðið - 23.10.1996, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. OKTÓBER 1996 11
AKUREYRI
Fulltrúaráð foreldra-
félaga grunnskólanna
Skóla frekar
en knatt-
spyrnuvöll
FULLTRÚARÁÐ foreldrafélaga
grunnskólanna á Akureyri mótmæl-
ir harðlega framkomnum hugmynd-
um um yfirbyggðan knattspyrnu-
völl á meðan Akureyrarbær getur
ekki séð skólabörnum fyrir lög-
boðnu húsnæði sem sveitarfélögum
ber skylda til. Fulltrúaráðinu finnst
framkvæmd af þessu tagi ekki eiga
rétt á sér á meðan húsnæðismál
skólanna eru í hinum mesta ólestri.
Hilmar Antonsson, fráfarandi
fórmaður fulltrúaráðsins, segir mik-
inn aðstöðumun á milli grunnskóla
bæjarins. í Síðuskóla ríki til dæmis
nánast neyðarástand í húsnæðis-
málum. Þá sé Giljaskóii óbyggður
ennþá en skólinn fái inni á barna-
heimili.
Hilmar segir fólk persónulega
ekki á móti yfirbyggðum knatt-
spyrnuvelli en á meðan bærinn ekki
sinnir lögboðinni skyldu sinni gagn-
vart grunnskólum bæjarins sé ekki
ástæða til að fara í slíka byggingu.
----------»-■■»--♦-
Handtekinn
með fíkniefni
RANNSÓKNARDEILD lögregl-
unnar á Akureyri handtók mann
sem var að koma frá Reykjavík sl.
laugardag. Hann hafði í fórum sín-
um 5 grömm af hassi, 2 grömm
af amfetamíni og 2 alsælutöflur.
Maðurinn var í bifreið með tveim-
ur öðrum Akureyringum og við hús-
leit hjá þeim fundust hasspípur, auk
þess sem Jpeir viðurkenndu neyslu
fíkniefna. I sambandi við rannsókn-
ina var fjórði aðilinn handtekinn og
viðurkenndi hann einnig neyslu
fíkniefna. Málið telst upplýst.
-----» ♦ »----
Brotist inn í Vín
BROTIST var inn í Blómaskálann
í Vín í Eyjaijarðarsveit í fyrrinótt.
Eigandinn varð þess var er hann
kom til vinnu í gærmorgun að farið
hafði verið í peningakassa og stolið
þaðan um 40 þúsund krónum.
Rúða í húsnæði blómaskálans
hafði verið brotinn við innbrotið en
ekki var um aðrar skemmdir að
ræða. Málið er óupplýst en í rann-
sókn.
Margrét EA kom með Rifsnes SH til Akureyrar í gærmorgun
Morgunblaðið/Kristján
TOGARINN Margrét EA kom með Rifsnes SH til Akureyrar um kl. 9.30 í gærmorgun, þar sem skemmdir voru kannaðar
í dráttarbraut Slippstöðvarinnar hf.
Tjónið nemur
tugum millj-
óna króna
LJÓST er að tjónið á rækjubátnum
Rifsnesi SH sem strandaði í Greni-
vík í Grímsey um kl. 4.30 sl. mánu-
dagsmorgun nemur tugum millj-
óna króna. Togarinn Margrét EA
kom með Rifsnesið til Akureyrar
í gærmorgun og voru skemmdir
skoðaðar í dráttarbraut Slipp-
stöðvarinnar hf. í gær. Við það
verk unnu skoðunarmenn frá
Tryggingamiðstöðinni, þar sem
skipið er tryggt og Siglingamála-
stofnun ríkisins.
Baldur Kristinsson, skipstjóri á
Rifsnesinu, sem var í fríi er óhapp-
ið varð, segir að miklar botn-
skemmdir séu á skipinu. Velti-
bretti, utanáliggjandi kælar og öll
botnstykki eru ónýt og einnig urðu
skemmdir á skrúfu og stýri.
Erum stopp í
einhverjar vikur
„Það tekur lengri tíma en dag-
inn að meta allar skemmdir á skip-
inu en það er ljóst að við verðum
stopp í einhverjar vikur. Tjónið er
mikið en á þessari stundu hefur
ekki verið ákveðið hvar viðgerð fer
fram,“ sagði Baldur.
Margrétin lagði af stað með
Rifsnesið í togi frá Grímsey um
kvöldmatarleytið í fyrradag en tók
bátinn upp að síðunni inni í Eyja-
fírði og kom honum að bryggju hjá
Slippstöðinni. Stefán Yngvson,
BOTN skipsins er mjög illa farinn og lak hráolía úr tönkum í
dráttarbrautinni. Á myndinni eru starfsmenn Slippstöðvarinnar
að koma ílátum undir olíulekann.
skipstjóri á Margrétinni, sagði að
ferðin til Akureyrar hafi gengið vel.
Sjór flæddi í vélarúmið
„Það flæddi aðeins sjór í véla-
rúmið á Rifsnesinu og komu félag-
ar í Slysavarnafélaginu á Dalvík
til móts við okkur á gúmmíbáti
með dælur í nótt (í fyrrinótt).
Báturinn var alveg vélarvana og
við tókum hann upp að síðunni svo
auðveldara yrði að koma honum
að bryggju," sagði Stefán. Mar-
grétin hélt aftur á rækjumiðin í
gærkvöldi.
Rannsóknardeild lögreglunnar
á Akureyri tók í gær skýrslu af
skipveijum Rifsnessins og auk
þess af skipstjórum og stýrimönn-
um Margrétar EA og Sæljónsins
SU, sem einnig kom inn til Akur-
eyrar. Lögregluskýrslurnar verða
lagðar fram þegar sjópróf vegna
strands Rifsnessins fara fram en
ekki hefur verið ákveðið hvenær
það verður.
Sunna Borg endurkjörin formaður Leikfélags Akureyrar
Aðstaða félagsins slæm
Morgunblaðið/Margrét Þóra
Ljóð hollari en mjólk
Sunna Borg
BUBBI Morthens kom í heimsókn
til nemenda í 7. bekk i Glerár-
skóla í vikunni, en þeir hafa und-
anfarið verið að lesa texta eftir
hann sem og önnur skáld. Krakk-
arnir spurðu Bubba spjörunum úr,
vildu vita allt um lögin hans og
textana og svaraði hann greið-
lega. Hvatti Bubbi börnin til að
lesa ljóð og helst að skrifa eitt lít-
ið ljóð á hveijum degi. „Bækur
og ljóð eru hollari en rnjólk," sagði
hann, en 7. bekkingarnir virtust
eilítið undrandi á þeirri yfirlýs-
ingu. Bubbi brýndi krakkana líka
til að gleyma ekki rótum sínum
og gera veg íslenskunnar sem
mestan í framtíðinni. Þá gaf hann
þeiin einnig góð ráð og varaði þau
við neyslu vímuefna.
SUNNA Borg var endurkjörin for-
maður Leikfélags Akureyrar á aðal-
fundi félagsins sl. mánudagskvöld.
Hreinn Pálsson var endurkjörinn
varaformaður og Ingvar Björnsson
ritari. Sunna Borg gerði aðstöðu
Leikfélags Akureyrar að umtalsefni
í skýrslu sinni á aðalfundinum og
sagði að því miður gerðu allt of
fáir sér grein fyrir því hversu slæm
hún væri. Hér væri um að ræða
stofnun sem yrði að teljast einn af
hornsteinum menningar á Norður-
landi.
„Fyrir síðasta aðalfund LA velti
ég því fyrir mér þeirri spurningu
hvers vegna ráðamenn þjóðarinnai'
hrykkju alltaf í kút þegar minnst
væri á menningarmái. I fljótu
bragði finnst mér sem smá hugar-
farsbreyting hafi átt sér stað og
að meiri skilningur riki á mikilvægi
þess að menningin blómstri. En til
þess að Leikfélag Akureyrar geti
haldið áfram starfsemi sinni í Sam-
komuhúsinu verður að taka til
hendinni og veita fjármagni til end-
urbóta. Ástand það sem leiklistar-
starfsemin hefur mátt þola í alltof
langan tíma er komin út yfir öll
velsæmismörk og eigin-
lega til skammar þeim
sem valdið hafa til þess
að endurbætur geti átt
sér stað.“
Utanlandsferðir
hafa áhrif á aðsókn
Sunna kom einnig
inn á tíðar verslunar-
og skemmtiferðir Akur-
eyringa og annarra
landsmanna til útlanda
fyrir jólin. „Þegar þús-
undir manna gleypa
þessar auglýstu ferðir
svona fjálglega sem
raun ber vitni kemur
það hastarlega niður á þeim sem
eru að reyna að halda hér uppi
verslun og þjónustu. Og þetta breið-
ir anga sína víðar, því t.d. leikhús-
aðsókn dalar á þessum tíma,“ sagði
Sunna.
Þórey Aðalsteinsson, fjárreiðu-
stjóri LA, segir þó að staða félags-
ins sé sterk á þessum tímamótum.
„Við settum aðeins upp 3 verk á
síðasta leikári og greiddum þess í
stað niður skuldir, auk þess að und-
irbúa jarðveginn fyrir
afmælisár félagsins,"
sagði Þórey.
Góð byrjun á nýju
leikári
Verkin þijú sem LA
setti upp á síðasta leik-
ári gengu misvel.
Fyrsta verkefnið,
„Drakúla“, var aðeins
sýnt 7 sinnum og verk-
ið sáu um 830 manns.
„Sporvagninn Girnd
var annað verkefni
starfsársins, sýningar
urðu 16 og verkið sáu
rúmlega 2150 manns.
Þriðja verkið var „Nanna Systir"
en það verk sáu um 4000 manns á
25 sýningum.
Leikfélag Akureyrar setur upp 5
leikverk á yfirstandandi leikári, auk
samstarfsverkefnis við Akureyrar-
kirkju. Þegar et' búið að frumsýna
tvö þeirra, „Sigrúnu Ástrós" og
„Dýrin í Hálsaskógi" og hafa þau
verk farið vel af stað og fengið
mjög góða dóma.