Morgunblaðið - 31.10.1996, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1996 47
FRÉTTIR
Neytendasamtökin segja rúmlega 35%
hækkun grænmetis milli mánaða
Nú þegar verði látið
af leið ofurtolla
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi frá Neytendasamtök-
unum:
„Við gerð nýrra GATT-samninga
vöruðu Neytendasamtökin stjórn-
völd eindregið við því að leggja of-
urtolla á búvörur. Jafnframt bentu
samtökin á að ef stjórnvöld gerðu
það, myndi verð til neytenda hækka
fremur en lækka og samkeppni ís-
lenskra framleiðenda myndi verða
minni.
Markmiðið með þessum samn-
ingum er að auka viðskipti milli
landa með því að draga úr við-
skiptahömlum og stuðla með því
að betri lífskjörum í heiminum. Því
eru ofurtollar íslenskra stjórnvalda
í andstöðu við megin markmið þessa
samnings.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hagstofu íslands hækkaði græn-
meti um rúmlega 35% milli septem-
ber og október á þessu ári og er
nú dýrara en það var fyrir gerð
nýja GATT-samningsins. Sam-
keppni milli innlendra framleiðenda
er nánast engin og aðlögun þeirra
að auknu frelsi á markaðnum eng-
in. Því miður hafa því verstu spár
Neytendasamtakanna ræst.
Verndar- og haftastefna stjórn-
valda í landbúnaðarmálum eykur
tilkostnað heimila til muna, matar-
innkaup verða dýrari og skulda-
byrði eykst þar sem hækkun matar-
verðs hækkar vísitölu neysluverðs
sem aftur leiðir til hækkunar á
skuldum heimila/
Neytendasamtökin ítreka því þá
kröfu sína að vikið verði af vegi
ofurtollastefnunnar og íslenskir
netendur fái að búa við eðlilegt inn-
kaupaverð á matvælum. Neytenda-
samtökin mótmæla því að stjórn-
völd skuli með verndarstefnu sinni,
sem á að vera framleiðendum bú-
vara til hagsbóta, koma i veg fyrir
eðlilega aðlögun búvöruframleið-
enda að aukinni samkeppni. Með
því eru stjórnvöld að taka skamm-
tímahagsmuni framleiðenda fram
yfir langtímahagsmuni atvinnuveg-
arins og íslenskra neytenda."
14 skurðhjúkrunarfræðingar
ÚTSKRIFT úr viðbótarnámi í skurðhjúkrun fór
fram laugardaginn 12. október frá Háskóla ís-
lands. Vibótarnámið fór fram við Námsbraut í
hjúkrunarfræði. Brautskráðir voru fjórtán nem-
endur. Á myndinni eru, í aftari röð frá vinstri:
Þórhalia Eggertsdóttir, Ingunn Wernersdóttir,
Kristín Gunnarsdóttir, Sigríður Helga Jónsdóttir,
Ingibjörg Helgadóttir, Bryiya Björnsdóttir, Arn-
fríður Gísladóttir, Ágústa Winkler, Drífa Þorgríms-
dóttir og Matthildur Guðmannsdóttir. I fremri röð
frá vinstri: Þóra Guðjónsdóttir, Ásdís Johnsen,
Hrund Sch. Thorsteinsson, lektor, Ásrún Kristjáns-
dóttir, kennslustjóri, Ólína Guðmundsdóttir og
Áslaug Pétursdóttir.
Námstefna um
gerð starfsáætlana
í jafnréttismálum
Barátta
gegn þung-
lyndi og
sjálfsvígum
GEÐLÆKNAFÉLAG íslands boð-
ar til málþings um þunglyndi og
sjálfsvíg dagana 1. og 2. nóvember
og verður megináhersla lögð á for-
varnir.
Á málþinginu verða eftirfarandi
fyrirlestrar fluttir: Sjálfsvíg og
voveifleg dauðsföll á íslandi; Tóm-
as Zoega, geðlæknir; Geðheilsa og
heimilislæknirinn, Þorsteinn Njáls-
son, heilsugæslulæknir; Dánartíðni
þeirra sem leita til bráðamóttöku
geðdeilda, Sigurður Páll Pálsson,
geðlæknir; og Störf og niðurstöður
stjómskipaðrar nefndar um orsakir
og tíðni sjálfsvíga á íslandi, Sig-
mundur Sigfússon, geðlæknir.
Gestur málþingsins verður
Rachel Jenskin, geðlæknir frá
Englandi, sem veitir forstöðu þeirri
deild enska heilbrigðisráðuneytis-
ins, sem fjallar um geðheilbrigðis-
mál. Erindi hennar nefnast: „Eng-
land’s Campaign Against De-
pression and Suicide".
Rachel Jenkins hefur unnið mik-
ið að foivörnum og í því skyni
meðal annars skipulagt herferð
gegn þunglyndi og sjálfsvígum í
samvinnu við geðlækna og heimil-
islækna á Bretlandi. Hún hefur
birt fjölda greina um þennan mála-
flokk.
Málþingið hefst föstudaginn 1.
nóvember kl. 14-17 og laugardag
kl. 9.30-12. Það verður haldið á
Hótel Loftleiðum, þingsal 8 og er
sérstaklega ætlað heilbrigðisfólki.
Konur og
geðheilsa
GEÐLÆKNAFÉLAG íslands hef-
ur boðið hingað til lands breska
geðlækninum Rachel Jenkins sem
veitir forstöðu þeirri deild enska
heilbrigðisráðuneytisins sem fjallar
um geðheilbrigðismál. Hún mun
halda fyrirlestur sem ber heitið:
„Women and Mental Illness“. Fyr-
irlesturinn ásamt umræðum fer
fram fimmtudaginn 31. október
kl. 20.30 á Hótel Loftleiðum, þing-
sal 4. Fundarstjóri verður Halldóra
Ólafsdóttir, formaður Geðlæknafé-
lags íslands.
Fyrirlesturinn er öllum opinn.
JAFNRÉTTISNEFND Reykjavík-
urborgar gengst fyrir námstefnu
um gerð starfsáætlana í jafnréttis-
málum sem haldin verður 1. nóvem-
ber nk. i Tjarnarsal Ráðhússins.
Námstefnan er ætluð forstöðu-
mönnum, starfsmannastjórum og
öðrum þeim sem mynda munu jafn-
réttishópa borgarstofnana, en
þeirra hlutverk verður að gera
starfsáætlun í jafnréttismálum fyrir
sína borgarstofnun sem á að lýsa
því hvernig þær hyggjast ná mark-
miðum jafnréttisáætlunar Reykja-
víkurborgar sem samþykkt var 7.
maí sl.
Tveir erlendir leiðbeinendur hafa
verið fengnir til landsins til að flytja
Fyrirlestur um
streitu og kvíða
ÁSMUNDUR Gunnlaugsson, jóga-
kennari, heldur fyrirlestur í Yoga-
stúdíó, Hátúni 6a í Reykjavík,
föstudaginn 8. nóvember kl. 20.
Hann mun fjalla um streitu,
kvíða og fælni og hvernig nota
má öndun, jógaæfingar og slökun
til að koma á jafnvægi, bæði and-
lega og líkamlega.
Ásmundur mun einnig fjalla um
kvíðaferli og hvar ræturnar liggja
að mörgu sem fólk er að glíma við
í dag.
Aðgangseyrir er 500 kr.
Fundur á Akra-
nesi um dyslexíu
OPINN fundur um dyslexíu, les-
og skrifhömlun, verður haldinn í
sal Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi fimmtudaginn 31. októ-
ber kl. 20.30.
Stutt erindi flytja: Formaður
stjórnar Dyslexíufélagsins, tal-
kennari, foreldri nemanda úr
grunnskóla, nemandi við FVA, for-
eldri nemanda við FVA og sér-
kennari.
Umræðum í lok fundar stjórnar
Trausti Gylfason. Fundarstjóri
verður Elmar Þórðarson. í fundar-
hléi verða kaffiveitingar seldar.
erindi á námstefnunni. Þeir eru
Ingrid Guldvik, sem er fræðimaður
hjá Ostlandsforskning í Lillehammer
í Noregi, en hún hefur verið ráð-
gjafi fjölmargra norskra sveitarfé-
laga um gerð starfsáætlana og Tor-
ill Lundli, ráðgjafí hjá Oslo Sporvei-
er, sem hefur komið að því starfí
innan OS að gera starfsáætlun í
jafnréttismálum, stýra aðgerðum til
að ná markmiðum hennar og endur-
skoða hana með reglulegu millibili.
Báðir fyrirlestramir verða túlk-
aðir á íslensku. Auk þeirra fjallar
Hildur Jónsdóttir, jafnréttisráðgjafí,
um starfsáætlanir í jafnréttismálum
sem tæki til að draga úr launamun
kynja hjá Reykjavíkurborg.
Vilja auka
tengsl
við Kúbu
MORGUNBLAÐINU hafa borist
eftirfarandi ályktanir frá Menning-
ar- og friðarsökum íslenskra
kvenna:
„Fundur Menningar- og friðar-
samtaka íslenskra kvenna, haldinn
28.10. 1996, lýsir andúð sinni á
þeim aðdróttunum og aðför sem
gerð er að minningu og heiðri lát-
innar merkiskonu í greininni Helgi-
spjall sem birtist í Morgunblaðinu
20. okt. 1996 með undirskriftinni
M.
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenskra kvenna krefjast þess að
ástvinir og samstarfskonur Maríu
Þorsteinsdóttur séu beðin afsökun-
ar á þessu frumhlaupi ritstjórans,
enda fellur allur áburður hans
dauður og ómerkur.“
Síðari ályktunin er svohljóðandi:
„Fundur Menningar- og friðar-
samtaka íslenskra kvenna haldinn
28.10. 1996 krefst þess að ríkis-
stjórn Islands og íslenskir fjölmiðl-
ar láti af þeirri fjandsamlegu af-
stöðu sem sýnd hefur verið gagn-
vart Alþýðuveldinu á Kúbu.
Fundurinn skorar á íslensk
stjórnvöld og fyrirtæki að taka upp
heiðarlegt viðskiptasamband við
Kúbu, báðum þjóðum til sæmdar
og hagsbóta."
Mótmæli vegna
viðskiptabanns
áKúbu
HÓPUR einstaklinga hefur boðað
til mótmæla vegna viðskiptabanns
á Kúbu föstudaginn 1. nóvember.
Safnast verður saman á Lækjar-
torgi kl. 16.30. Stuttur fundur verð-
ur við sendiráð Bandaríkjanna,
Laufásvegi 21, kl. 17. Ræðumenn
verða Sigfús Ólafsson, háskólanemi
og ritari Alþýðubandalagsins og
Sylvía Magnúsdóttir, guðfræðinemi
og stjórnarliði í Vináttufélagi ís-
lands og Kúbu. Drífa Snædal, for-
maður Iðnnemasambands íslands
kynnir tillögur að ályktun. Fundar-
stjóri verður Kristinn H. Einarsson,
framkvæmdastjóri Félagsíbúða.
Nemendafélög í ýmsum fram-
haldsskólum, nokkur sljórnmálafé-
lög og æskulýðssamtök og Vináttu-
félag íslands og Kúbu ýmist styðja
aðgerðina eða hvetja félagsmenn
sína til þátttöku, segir í fréttatil-
kynningu.
Fjölg'un í
Alþýðu-
flokksfélagi
Hafnarfjarðar
FUNDUR var haldinn í Alþýðu-
flokksfélagi Hafnarfjarðar mánu-
daginn 28. október sl. Á dagskrá
var kjör fulltrúa félagsins í fulltrúa-
ráð Alþýðuflokksins í Hafnarfirði,
kjör fulltrúa á flokksþing, félags-
starfið fram undan og önnur mál.
Tillögur að skipan fulltrúa fé-
lagsins í fulltrúaráðið sem og á
flokksþing Alþýðuflokksins Jafnað-
armannaflokks íslands, voru sam-
þykktar. Inntökubeiðnir 33 nýrra
félaga í Alþýðuflokksfélagið lágu
fyrir fundinum. Þær voru sam-
þykktar.
Guðmundur Árni Stefánsson,
þingmaður Alþýðuflokksins í
Reykjaneskjördæmi og varafor-
maður flokksins, gerði grein fýrir
viðhorfum sínum varðandi væntan-
legt formannskjör.
■ ÍSLENSKA málfræðifélagið
boðar til fundar í Skólabæ við
Suðurgötu í kvöld, fimmtudags-
kvöldið 31. október, kl. 20.30. Þar
ætlar Magnús Snædal, dósent í
almennum málvísindum, að segja
frá gerð orðstöðulykils að gotnesku
Biblíunni.
Borgardætur í
Hafnarborg
ELDRI skátar í Hafnarfirði efna
til tónleika með Borgardætrum
fímmtudaginn 31. október kl. 21
í Hafnarborg. Kynnir er Jónatan
Garðarsson.
Borgardætur hafa á undanföm-
um árum fært gömlu lög milli-,
stríðsáranna í íslenskan búning og
á tónleikunum munu þær flytja
söngdagskrá í anda söngtríóa
swingáranna. Þeim til fulltingis
verða Eyþór Gunnarsson píanisti
og útsetjari og Þórður Högnason
kontrabassaleikari, en Borgardæt-
ur eru þær Andrea Gylfadóttir,
Berglind Björk Jónasdóttir og
Ellen Kristjánsdóttir.
Aðgangseyrir er 700 kr. og eru
allir velkomnir.
Markaðsdagur
í Fríkirkjunni
MARKADSDAGUR Kvenfélags
Fríkirkjunnar í Reykjavík verður
laugardaginn 2. nóvember í
Safnaðarheimili kirkjunnar, Lauf-
ásvegi 13. Þar verður fatamarkað-
ur, basar og hlutavelta þar sem
allir miðar eru vinningsmiðar.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í
Reykjavík er elsta starfandi kirkju-
kvenfélags landsins og hefur alla
tíð stutt söfnuð sinn og félaga
hans af alefli. í þetta sinn mun
afrakstrinum varið til endurbóta
innanhúss í kirkjunni.
LEIÐRÉTT
Kristín Ómarsdóttir um
smásögur
Umsögn um bókina Engar smá
sögur eftir Andra Snæ Magnason
sem birtist í blaðinu í gær, miðviku-
dag, var eftir Kristínu Ómarsdótt-
ur. Nafn hennar misritaðist og er
beðist velvirðingar á því.
Leikrit þýdd og flutt
Slæm prentvilla varð innlyksa í
grein minni í Morgunblaðinu í gær.
I greinarlok átti að standa: „Um
slík viðbrögð er mér ekki kunnugt.
En sé svo — þá það!“ Tekið skal
fram að í þetta sinn var það ég sem
las próförk.
Helgi Hálfdanarson.