Morgunblaðið - 23.11.1996, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1996 51
FRÉTTIR
Fyrirlestur
um þjálfun
móðurmáls
RANNVEIG A. Jóhannsdóttir æf-
ingakennari við Æfingaskólann og
Kennaraháskóla íslands flytur fyr-
irlestur á vegum Rannsóknarstofn-
unar Kennaraháskóians þriðjudag-
inn 26. nóvember kl. 16.15.
Fyrirlesturinn nefnist: Þjálfun
móðurmáls hjá elstu börnum í leik-
skóla og byrjendum í grunnskóla og
fjallar um rannsókn Rannveigar sem
lögð var fram sem meistaraprófsrit-
gerð (ME.d.) í uppeldis- og kennslu-
fræði við Kennaraháskóla íslands
1996.
í fyrirlestrinum mun Rannveig
fjalla um breytingar sem verða í
námi barna þegar þau hætta í leik-
skóla og byija í grunnskóla en það
svið hefur ekki áður verið rannsakað
hér á landi. Helstu niðurstöður rann-
sóknarinnar verða kynntar og skýrt
frá viðhorfum til máluppeldis barna
á þessum aldri eins og þau birtast
í opinberum gögnum sem liggja til
grundvallar uppeldis- og skólastarfi
í íslenskum leikskólum annars vegar
og grunnskólum hins vegar. Að auki
verður varpað ljósi á ýmsa þætti í
máli og almennum þroska sem telj-
ast mikilvægir hjá börnum á þessu
reki og stuðla að því að gera þau
farsæla málnotendur.
Rannveig A. Jóhannsdóttir er sér-
kennari að mennt og hefur kennt á
grunnskólastigi um árabil, bæði hér
á landi og erlendis. Hún hefur kennt
við Kennaraháskóla íslands frá 1979
og haldið fjölda námskeiða og
fræðslufunda fyrir starfandi kenn-
ara. Þá hefur Rannveig samið náms-
efni fyrir byijendur í grunnskóla og
veitt kennslufræðilega ráðgjöf um
nám og kennslu barna á grunnskóla-
stigi.
Fyrirlesturinn verður í stofu M-
201 í Kennaraháskóla íslands og er
öllum opinn.
Listir og menn-
ing eskimóa
í FYRIRLESTRARRÖÐINNI Ork-
anens 0je á sunnudag kl. 16 mun
bandaríska listakonan Jo Going
halda fyrirlestur í Norræna húsinu
um listir og menningu eskimóa í
Alaska. Fyrirlesturinn nefnist:
„Inua: Images of Transformation
and Spirit in the art and life of the
Eskimos of Alaska".
Jo Going er listakona búsett í
Alaska og hefur starfað meðal frum-
byggja um árabil og kynnt sér lífs-
máta þeirra og menningu. Hún hef-
ur haldið fyrirlestra innan Banda-
ríkjanna og víðar um athuganir sín-
ar á menningu eskimóa í Alaska.
Einnig hefur hún verið kennari við
fjölda listaháskóla í Bandaríkjunum.
Hún mun dvelja hér á íslandi um
þriggja mánaða skeið og vinna að
listsköpun sinni og varð Island m.a.
fyrir valinu því það liggur á sömu
breiddargráðu og þar sem hún býr
í Alaska.
í listsköpun sinni fæst hún aðal-
lega við þrívíddarmyndir með blönd-
uðum efnum. Fyrirlesturinn fer fram
á ensku.
Allir eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir og aðgangur er ókeypis.
Haustsýning
tréskurðar-
manna
HAUSTSÝNING Félags áhuga-
manna um tréskurð verður um helg-
ina í Viðarmiðluninni, húsnæði Skóg-
ræktar ríkisins í Suðurhiíðum 38 í
Reykjavík.
Sýningin er opin milli kl. 13 og
18 á sunnudag. Á sýningunni eru
munir, sem félagsmenn hafa skorið
út, bæði til sýnis og sölu.
Markmið Félags áhugamanna um
tréskurð er að efla skurðlist á Islandi
með fræðslu, sýningum og útgáfu
fréttabréfs. Félagið var stofnað í mar
sl. og er þetta önnur sýning þess.
HARMONIKUFÉLAG Reykjavíkur.
Dagur harmonikunnar á sunnudag
HARMONIKUFÉLAG Reykjavík-
ur stendur fyrir fjölskyldu-
skemmtun í Danshúsinu í Glæsibæ
í Álfheimum sunnudaginn 24. nóv-
ember nk. kl. 15. Leikin verður
létt tónlist úr ýmsum áttum og
eru flytjendur á öllum aldri.
MIKIL aðsókn hefur verið að
Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
i ár og nálgast sá timi óðum að
tekið verður á móti milljónasta
gestinum frá opnun garðsins.
Hinn heppni gestur og fjöl-
skylda hans fá gjafakörfur með
íslenskum landbúnaðarafurðum
frá Osta- og smjörsölunni, Mjólk-
ursamsölu Reykjavíkur og Slát-
urfélagi Suðurlands. Þau fá einn-
ig árskort í garðinn og Ferða-
þjónusta bænda býður þeim
bændagistingu næsta sumar.
Börn og unglingar leika nokk-
ur lög og Stórsveit Harmon-
ikufélags Reykjavíkur leikur
undir stjórn Karls Jónatansson-
ar. Einnig leika Matthias Korm-
áksson, Olafur Þ. Kristjánsson,
Karl Jónatansson og Sveinn Rún-
Dýrahirðar Fjölskyldu- og hús-
dýragarðsins bjóða síðan milljón-
asta gestinum og fjölskyldu hans
að taka einhvern daginn þátt í
umhirðu og fóðrun dýranna.
Um helgar í vetur er börnum
boðið á hestbak frá kl. 13-15.
Sunnudaginn 24. nóvember verð-
ur sögustund kl. 11 og kl. 15
skemmta vinir garðsins, Trjálfur
og Mimmli. Aðgangseyrir 0-5
ára barna er ókeypis, 6-16 ára
greiða 100 kr., fullorðnir 200 kr.
og ellilífeyrisþegar fá ókeypis.
ar Björnsson. Loks leikur Létt-
sveit Harmonikufélags Reykja-
víkur.
Eftir kaffihlé gefst gestum
kostur á að stíga léttan dans und-
ir dunandi harmonikutónlist Létt-
sveitar HR.
Tanja tatara-
stelpa í Ævin-
týra-Kringlunni
TANJA tatarastelpa kemur í heim-
sókn í Ævintýra-Kringluna í dag,
laugardag. Ólöf Sverrisdóttir, leik-
kona samdi þáttinn um Tönju og
hefur sýnt hann í leikskólum og
víðar. Leikritið hefst kl. 14.30 í
dag. Aðgangseyrir er 300 kr. og
er þá bamagæsla innifalin.
Ævintýra-Kringlan er barna-
gæsla og listasmiðja fyrir börn á
aldrinum 2-8 ára. Hún er staðsett
á 3. hæð í Kringlunni og þar geta
viðskiptavinir Kringlunnar skilið
börnin eftir á meðan þeir versla.
Þar er ýmislegt til gamans gert.
Þar er hægt að teikna og mála,
sagðar eru sögur og farið í leiki.
Boðið hefur verið upp á leikræna
tjáningu og síðan eru leiksýningar
vikulega. Ævintýra-Kringlan er
opin kl. 14-18.30 virka daga og
kl. 10-16 laugardaga.
Hestadómarar
þinga
FÉLAG hestaíþróttadómara heldur
félagsfund sunnudaginn 24. nóvem-
ber kl. 13.30 í húsakynnum ÍSÍ,
íþróttamiðstöðinni í Laugardal.
Nokkuð hefur borið á gagnrýni á
störf dómara á undanförnum árum
og hafa dómarar því ákveðið að fá
til skrafs og ráðagerða nokkra valin-
kunna knapa svo sem Trausta Þór
Guðmundsson, Atla Guðmundsson,
Erling Sigurðsson, Sigurbjörn Bárð-
arson o.fl, segir í frétt frá félaginu.
Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn
FRÁ Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Milljónasti gesturinn
væntanlegur
Samstarf
tveggja gallería
RAMMAGERÐ ísafjarðar og Gallerí
Smíðar og skart, Skólavörðustíg, eru
með sameiginlega listmunasýningu
22. til 23. nóvember í Rammagerð
ísafjarðar.
Rammgerð ísafjarðar er eini stað-
urinn á ísafirði, sem hefur í umboðs-
sölu listmuni. Smíðar og skart er
galierí í Reykjavík sem hefur í um-
boðssölu listmuni eftir 60 listamenn.
í þessu helgarsamstarfi taka um
það bil 15 listamenn þátt. Til sýnis
verða bæði nytjalistmunir og myndir.
Opnunartími sýningarinnar er frá
kl. 11-16 á laugardag.
DANSPAR frá Dansskóla
Auðar Haralds.
Lottó-dans-
keppni Dans-
skóla Auðar
Haralds
HIN árlega Lottó-danskeppni verður
haldin sunnudaginn 24. nóvember í
íþróttarhúsi Seitjarnarness. Húsið
verður opnað kl. 14 og keppni hefst
kl. 15.
Keppt verður í mörgum aldurs-
flokkum, yngsti flokkurinn er 7 ára
og yngri og sá elsti 35 ára og eldri.
Aldursflokkunum er síðan skipt nið-
ur í A-, B-, C-, -D og F-riðla. Allir
keppendur í A- og F-flokkum dansa
bæði suður-ameríska og standard
dansa og verða gefin verðlaun fyrir
samanlagðan árangur. Sigurpörin í
þeim flokkum fá Lottó-vinning og
farandbikar en öll önnur pör á verð-
launapalli fá litlar gjafir.
Sú nýjung verður í keppninni í
ár að 7 ára og yngri í B- og C-riðli
dansa gömlu dansana, dansaður
verður skottís og fingrapolka.
Að lokum verður svo haldin liða-
keppni milli skóla. Hver skóli skipar
eitt lið sem samanstendur af þremur
danspörum, 11 ára og yngri, 12-15
ára og 16 ára og eldri. Keppt er í
suður-amerískum dönsum.
Sjö íslenskir danskennarar dæma
keppnina.
Bíl stolið af
verkstæði
LÖGREGLAN í Reykjavík leitar
nú að ljósbláum Saab 99 GL, ár-
gerð 1983, sem var stolið frá bif-
reiðaverkstæði í Mörkinni 8 í lok
október.
Hvarf bílsins uppgötvaðist að
morgni sunnudagsins 27. október.
Bíllinn er með skráningarnúmerið
R-22682. Þeir sem veitt gætu upp-
lýsingar um hvar bíllin er nú eru
beðnir að hafa samband við rann-
sóknardeild lögreglunnar.
Hvítur Saab, sem lögreglan leit-
aði að dyrum og dyngjum og skýrt
var frá hér í Morgunblaðinu, fannst
eftir ábendingu lesanda. Hann stóð
í iðnaðarhverfinu á Ártúnshöfða.
Mamma
má ég lífa?
fófafett í miklu úrvali
)old«>tt, hormófar
OnnhMófatetti*?
Vönduð
lueöaHusgoon
a fjodu verði!
frákL '10.00-T6.00
usqoqn
Hjá okkur
eru Visa- og
Eurorað-
samningar
i ávísun á
staðgreiðslu