Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 9 __________FRÉTTIR______ Verslunarháskóli hefur starfsemi 1998 Dragtir, blússur, stakir jakkar og pils Tískuskemman Bankastræti 14, sími 561 4118 FYRIRHUGAÐ er að verslun- arháskóli taki til starfa haustið 1998 í nýjum húsakynnum við Ofanleiti í Reykjavík. Þá verður lokið 4.000 fm byggingu, fyrsta áfanga af þremur sem áætlað er að hýsi starfsemi háskólans svo og Tölvuháskólans, að sögn Þor- varðar Elíassonar, skólastjóra Verzlunarskóla íslands. Fullgerður verður háskólinn um 12.000 fermetrar, forhönnun liggur fyrir á hinum áföngunum tveimur en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvenær þeir munu rísa. Allri hönnun á fyrsta áfanga mun Ijúka fyrir áramót og segir Þorvarður að framkvæmdir hefj- ist líklega í byrjun næsta árs. Háskólinn verður sjálfstæður en með sameiginlegri yfirstjórn Verzlunarskólans. „Verslunarráð íslands skipar skólastjórn sem mun stýra báðum skólunum en að öðru leyti verður reksturinn aðskil- inn frá rekstri Verzlunarskólans," segir Þoi-varður. Heildarfjöldi nemenda í fyrsta áfanga nýja hússins er áætlaður um 500 en auk verslunarháskóla verður þar starfræktur Tölvuhá- skóli Verzlunarskólans með um 180 nemendum. Kostnaður um 500 millj. króna Að sögn Þorvarðar er áætlaður heildarkostnaður við fyrsta áfanga um 500 millj. króna. Framkvæmd- ir verða fjármagnaðar með fjár- framlögum úr húsbyggingasjóði Verzlunarskólans, með ijársöfnun meðal fyrirtækja og einstaklinga og með lántökum. „Verið er að ræða við fjármálastofnanir um með hvaða hætti ijármögninni verði best fyrir komið,“ segir Þor- varður. Viðræður standa yfir við menntamálaráðuneytið um þátt- töku í rekstri háskólans. „Gert er ráð fyrir að samningar verði með svipuðu sniði og tíðkast hafa í samningum um Verzlunarskólann þannig að ríkið greiðir ákveðna upphæð á hvern nemenda. Ef samningar nást munu fram- kvæmdir hefjast í byrjun næsta árs.“ Að sögn Þorvarðar verður verkið ekki boðið út fyrr en eftir áramót þar sem nauðsynlegt er að ljúka hönnuninni fyrst og tryggja nægilegt fjármagn. 30 metra há turnbygging Arkitektastofa Ormars Þórs Guðmundssonar og Örnólfs Hall teiknar húsin sem verða byggð úr steinsteypu með hvítum og svört- um marmarasalla að utan. Bygg- ingarnar þtjár verða samtengdar og sameiginlega mynda þær ramma um torg mót suðvestri. Þá er gert ráð fyrir að byggingarnar tengist Verzlunarskólanum með brú yfir Ofanleiti. Fyrsta bygging- in sem mun snúa að Listabraut verður á fimm hæðum, þar verða fimmtán almennar kennslustofur þ.ám. sérhæfðar tölvustofur og stórt bókasafn. Að auki er gert ráð fyrir tveimur fyrirlestrasölum, mötuneyti og góðri vinnuaðstöðu nemenda og kennara. Seinni áfangarnir eru annars vegar álma upp með Ofanleiti um 3.000 fm og hins vegar áframhald álmu meðfram Listabraut sem endar í níu hæða turni, alls um 5.000 fermetrar. Turnbyggingin er 30 metra há og kemur til með að standa fyrir enda Kringlunnar og blasa við frá Kringlumýrar- braut. Borgarleikhús tfSTARBm&T Verslunarskólinn \ \ \ \ \ fy, Verslunárháskóli OFANLEITI # Vió erum áb fara í jólabúninginn Athugiö 20% afsláttur af haust- og vetrardömu- fatnaði í st. 44-54 til 6. desember. Sjáumst hressar - hressing á sta&num 'di FATAPRYDl GLÆSIBÆ,S. 5532347 Uppsetningabúðin 20 ára Sérverslun með borðdúka Gefum 20% afsiátt af okkar fallegu silkidamask- dúkum og einnig damaskdúkum með servíettum í stórglæsilegum gjafakössum. Aðeins næstu daga Uppsetningabúðin, Hverfisgötu 74, sími 552 5270. Póstsendum. Smáskór Full búð af barnaskóin Moonboots í st. 19-30. Verð 1.995 Smáskór í bláu húsi við Fákafen. 5! HUGBÚNAÐUR FYRIR WIND0WS BYLTINGARKENND NÝJUNG KERFISÞRÓUN HF. Fákateni 11 - Sími 568 8055 Attaius plasthúðun • Fjölbreytt vandaö úrval af efnum • Fullkomnar plasthúöunarvélar • Vönduö vara - betra verö j.nsivniDssoNHf. Skipholti 33,105 Reykjavík, sími 533 3535, Fjölbreytt úrval ríkisverðbréfa Sniðin að mismunandi þörfum sparifjáreigenda • Fjölbreytt úrval ríkisverðbréfa sem uppfylla óskir fjárfesta um ávöxtun, lánstíma, öryggi, verðtryggingu o.fl. • Ríkisverðbréf eru markaðsverðbréf, skráð á Verðbréfaþingi íslands, og eru því auðseljanleg hvenær sem er á lánstímanum. • Ríkisverðbréf eru boðin útvikulega. Ríkisvíxlar Ríkisvíxlar Ríkisvíxlar Ríkisbréf Ríkisbréf ECU-tengd Árgrei&sluskírteini Spariskírteini Spariskírteini Spariskírteini 3 mánubir N ómánuðir 12 mánuðir 3 ár 5 ár I Óverötryggö ríkisveröbréf 1 Verötryggö ríkisveröbréf 20 ár Hafðu samband við ráðgjafa Þjónustu- miðstöðvar ríkisverðbréfa og fáðu nánari upplýsingar. Sími 562 6040. ÞJÓNUSTUMIÐSTÖÐ RÍKISVERÐBRÉFA Hverfisgötu 6,2. hæð, sími 562 6040, fax 562 6068. Hvað sem þú gerir - sparaðu með áskrift að spariskírteinum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.