Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 49

Morgunblaðið - 27.11.1996, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 49 BRÉF TIL BLAÐSINS Kirkjustarf í Hafnar- fjarðarsókn Lottóið 10 ára - Afmæliskveðja Haf narfjarðarkirly a Frá Öryrkjabandalagi íslands: UM ÞESSAR mundir eru tíu ár síðan íslensk getspá hóf starfsemi sína en starfsemin er fyrst og fremst fólgin í rekstri lottósins - hins eina og sanna - hér á landi. Alþingi hafði áður með lagasetn- ingu veitt þrennum félagasamtök- um leyfi til starfseminnar, íþrótta- sambandi íslands, Ungmennafélagi íslands og Öryrkjabandalagi ís- lands. Allt eru þetta risar á íslensk- an kvarða fyrir félagastarfsemi. Það má með fullum sanni segja að íslenska lottóið og það sem síðar bættist við, Víkingalottóið og Kínó- ið, er rekið ótvírætt í þágu lands- manna allra, í þágu íþróttaiðkunar, í þágu ungmenna og síðast en ekki síst í þágu fatlaðra hér á landi. Málefni gerast tæpast háleitari en einmitt þau sem standa að baki lottóinu og koma þau málefni mjög víða við sögu í íslensku samfélagi. Þessi sannindi voru landsmönnum vel ljós strax í upphafí þegar lottó- inu var hleypt af stökkunum og þau eru það enn því að það eru einmitt málefnin að baki lottóinu sem m.a. valda hinum góðu undirtektum landsmanna undanfarin 10 ár. Öryrkjabandalag íslands var stofnað árið 1961 af sex félögum og styrktarfélögum fatlaðra. í dag eru aðildarfélögin 24 talsins. Bú- setumál fatlaðra hafa verið ofar- lega á verkefnaskrá bandalagsins allt frá stofnun þess og komið var á fót sérstökum hússjóði Öryrkja- bandalagsins. Fyrstu íbúðarbygg- ingar Öryrkjabandalagsins risu á árunum 1969-1974 við Hátún í Reykjavík og síðan bættust fleiri við. Hins vegar voru fjárráð Ör- yrkjabandalagsins mjög naum til þessara viðamiklu framkvæmda og aðallega var byggt fyrir lánsfé. Öryrkjabandalagið var af þeim sök- um skuldum vafið ef svo má segja. A þessu urðu geipileg umskipti við tilkomu lottósins. Nú á Öryrkja- bandalagið og rekur alls 540 íbúðir um land allt og hafa 259 þeirra komið til eftir að íslensk getspá hóf starfsemi sína. Á Reykjavíkur- svæðinu eru 482 íbúðir en utan þess 68. í þessum íbúðum búa alls um 740 manns, þar af 575 fatlað- ir. Aðrir íbúar eru sambýlisfólk fatlaðra, börn og foreldrar. 21% íbúanna telst til þroskaheftra, 18% til geðfatlaðra og 12% búa í íbúðum Öryrkjabandalagsins vegna hreyfi- hömlunar. Þarna er um að ræða um það bil helming skjólstæðing- anna. Hinn helmingurinn saman- stendur af fólki með ýmsar aðrar fatlanir. Reiknað á núvirði hefur íslensk getspá skilað Öryrkja- bandalagi íslands u.þ.b. 260 millj- ónum króna á þessum tíu árum. En það eru ekki eingöngu bú- setumál fatlaðra sem hafa notið góðs af lottóinu. Vegna tilveru þess hefur Öryrkjabandalagið getað haldið uppi ýmislegri félagslegri þjónustu, stórum víðtækari en hægt var fyrir tilkomu þess. M.a. hafa aðildarfélögin verið styrkt til ýmissa afmarkaðra verkefna sem unnin eru á þeirra eigin vegum. Þá gefur bandalagið út metnaðar- fullt blað, Fréttabréf Öryrkja- bandalags íslands, sem kemur út íjórum sinnum á ári í meira en 15 þúsund eintökum og er það sent ókeypis öllum félagsmönnum aðild- arfélaganna en auk þess dreifíst það á ýmsa aðra staði. Svo að eitt- hvað sé nefnt af annarri félags- legri þjónustu á vegum Öryrkja- bandalagsins má benda á vinnu- stofur þess fyrir öryrkja og al- menna lögfræðiþjónustu sem er skjólstæðingum bandalagsins að kostnaðarlausu. í stuttu máli sagt hefur lottóið gerbreytt stöðu Öryrkjabandalags- ins til að veita fötluðum þjónustu á ótalmörgum sviðum. Á þessum tímamótum er við hæfi að þakka landsmönnum stuðning við Is- lenska getspá með fullvissu um að sá stuðningur heldur áfram. Það er einnig vel við hæfi að þakka stjórnarmönnum og starfsmönnum Íslenskrar getspár fyrir frábæra frammistöðu við rekstur lottósins. Að lokum: Bestu afmæliskveðjur til íslenskrar getspár frá Öryrkja- bandalagi íslands með ósk um áframhaldandi farsælt starf í þágu íþrótta, ungmenna og öryrkja. F.H. FRAMKVÆMDASTJÓRNAR ÖBÍ, Helgi Seljan. Frá Gunnþóri Ingasyni, Þórhalli Heimissyni og Þórhildi Olafs: FJÖLBREYTT safnaðarstarf fer nú fram í Hafnarfjarðarkirkju og fögru safnaðarheimili hennar, Strandbergi, sem nýtist vel þó enn eigi eftir að innrétta meginsalar- kynni þess. Opin kirkja og safnaðarheimili Hafnarfjarðarkirkja er nú að jafnaði opin mánudaga til fimmtu- daga frá kl. 10 að morgni til kl. 22 að kvöldi en á föstudögum til kl. 18. Safnaðarheimilið Strand- berg er einnig opið á sama tíma. Kvöldbænastundir Mánudaga, þriðjudaga, mið- vikudaga og fimmtudaga leiða prestar kirkjunnar til skiptis stutt- ar kvöldbænastundir í kirkjunni á jólaföstu og hefjast þær kl. 18. Kyrrðar- og bænastundir í hádegi á miðvikudögum Kyrrðarstundir fara fram í kirkj- unni í hádeginu á miðvikudögum. Þær hefjast á orgelleik kl 12. Síð- an er Guðs orð íhugað í kyrrð og boðið til altaris og fyrirbæna. Eft- ir kyrrðarstundina gefst þátttak- endum kostur á því að neyta sam- an léttrar máltíðar í Strandbergi sér að kostnaðarlausu. Guðsþjónustur á helgidögum Guðsþjónustur fara fram í Hafnarfjarðarkirkju hvern helgan dag og hefjast þær kl. 14. Eftir guðsþjónustuna kl. 14 er að jafn- aði boðið upp á kirkjukaffi í Strandbergi. Annan hvern sunnu- dag eru einnig tónlistarguðsþjón- ustur kl 18. Þar er lögð áhersla á tónlistarflutning, leikið á ýmis hljóðfæri og þá haft náið samstarf við tón'istarfólk í Hafnarfirði. Öðru hveiju verður einnig boðið upp á kvöldguðsþjónustur sem hefjast kl. 20.30 og verða þær með fornu gregoriönsku tóni eða gospeltónlist flutt þar, „Taize“ og popptónlist. Kór Hafnar- fjarðarkirkju Natalia Chow tók við sem organ- isti og kórstjóri Hafnarfjarðar- kirkju 1. september sl. Hún hefur þegar sett mark sitt á kórinn og tengt hann nýju og framsæknu starfi kirkjunnar. Kórinn æfir á þriðjudagskvöldum kl. 20-22 og eru nýir félagar velkomnir í kórinn. Tveir sunnudagaskólar Á vegum H afn arfj arð arki rkj u eru nú í gangi tveir sunnudagaskól- ar, í Hafnarfjarðar- kirkju og í Hvaleyrar- skóla og hefjast báðir kl. 11. Foreldradagur Opið hús, samvera fyrir mæður og feður, sem koma með ung börn sín er nú að hefj- ast í Strandbergi og fer fram kl. 13.30- 15.30 á fimmtudögum. Þau hittast í sam- komusalnum, Vonar- höfn, sem gengið er inn í frá Suð- urgötu. Barnastarf virka daga Þriðjudaga frá kl. 17-18.30 er opið hús í samkomusalnum, Vonar- höfn í Strandbergi, fyrir börn á aldrinum 10-12 ára. Fimmtudaga frá kl. 17-18.30 er opið hús á sama stað fyrir börn á aldrinum 8 og 9 ára. Barnakór Barnakór hefur verið við Hafnarfjarðarkirkju síðustu 6 árin og sett fagran svip á guðsþjón- ustur og athafnir í kirkjunni. Hann æfir á föstudögum, yngri hópur frá kl. 17-18 en eldri hópur frá kl. 18.-19. Nýir söngfélagar eru vel- komnir í kórinn. Æskulýðsstarf í Safnaðarheimilinu Strandbergi er opið hús fyrir 13-15 ára ungl- inga á miðvikudagskvöldum frá kl. 20-22. Góðir gestir koma í heimsókn. „Þemakvöld“ , þar“ sem sérstakt efni verður tekið fyrir verða haldin og einnig farið i „óvissuferðir “ og haft samband við æskulýðsfélög kirkna á höfuð- borgarsvæðinu. Starf með fötluðum Prestar kirkjunnar hafa reglu- legt samband við sambýlin í sókn- inni og stuðla að því að heimilis- fólk þar geti sótt kirkju. Starf með öldruðum Opið hús, samvera fyrir 65 ára og eldri er nú að hefjast í Strand- bergi og fer fram á þriðjudögum kl. 14-16. Vikulegar helgistundir eru haldnar á Sólvangi og reglu- bundnar guðsþjónustur. Hjónanámskeið Hjónanámskeið voru haldin í Vonarhöfn Strandbergs í haust og voru vel sótt og byrja aftur 14. janúar á nýju ári. Kirkjuþjónar veita upplýsingar og skrá þátttak- endur í þessi námskeið í síma kirkj- unnar. Almenn námskeið í sumar fóru fram fjölsótt nám- skeið í Strandbergi um viðhorf helstu trúarbragða til dauðans. Námskeið um megineinkenni þess- ara trúarbragða verða haldin í vet- ur. Kristin íhugun - samræðuhópur Dr. Sigurbjörn Einarsson biskup hélt mjög fjölsótt fræðsluerindi í Strandbergi og Hafnarfjarðar- kirkju um guðrækni og kristna íhugun 3_ laugardagsmorgna nú nýverið. Áhugasamur hópur, sem kynnir sér þetta markverða efni frekar, hittist nú í Strandbergi á laugardagsmorgnum kl. 11 og er öllum þeim opinn sem hug hafa á * að vera með. Lögmannavakt Starfandi lögmenn í Hafnarfirði eru með lögmannavakt í Strand- bergi annan hvern fimmtudag frá kl. 17-19 og veita þá ráð og leið- beiningar um lögfræðileg úrlausn- arefni án endurgjalds. Kirkjuþjón- ar skrá fólk til viðtala við lögmenn í síma kirkjunnar. AA-starf Þrír AA-hópar hittast nú í Vonarhöfn Strandbergs: A. Hópur karla og kvenna á sunnudögum frá kl. 11-13. B. Kvennahópur á- mánudagskvöldum frá kl. 20-22. C. Sporahópur á miðvikudags- kvöldum kl. 20-22. ITC-starf ITC-deildin íris fundar í kennslustofunni Odda í Strand- bergi annað hvert mánudagskvöld og hefjast fundir kl. 20. GUNNÞÓRINGASON sóknarprestur, ÞÓRHALLUR HEIMISSON aðstoðarprestur, ÞÓRHILDUR ÓLAFS safnaðarprestur. Þu sparar o i 11 a 5 73% símkostnaðar Nú getur þú talað í friði án þess að hafa áhyggjur af svimandi háum símareikningum. Ný tækni og þróun slmamála markar endalok einokunar sfmafyrirtækja. Símkostnaður má ekki hindra samskipti okkar og framgang (slands sem fyrirmynd friðar og hreinnar náttúru. Þess vegna býður Friður 2000 allt að 73% ódýrari símaþjónustu. Þú færð einnig internetið, alþjóðlega neyðartryggingu og ýmis önnur fríðindi þegar þú gerist félagi Friðar 2000. Hringdu núna og þú færð geisladiskasett að gjöf meðan birgðir endast C E > Friður 2000, Ingólfsstræti 5, Reykjavík, sími 552 2000, www.peace.is/2000
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.