Morgunblaðið - 27.11.1996, Side 27
LISTIR
MORGUNBLAÐtÐ
MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996 27
Þrautin þyngri
BOKMENNTIR
E n d u r m i n n i n g a r
SAKLAUS íKLÓM
RÉTTVÍSINNAR
eftir Jónas Jónasson. 208 bls. Útg.:
Vaka-Helgafell. Prentun: Oddi hf.
Reykjavík, 1996. Verð kr. 3.880.
HVERS vegna það varð að slíku
stórmáli með þjóðinni? Ætli orsak-
irnar hafi ekki verið margar? Fjöl-
miðlarnir. Almannarómur. Fljót-
ræði. Mistök. Sjálf-
sagt sitthvað fleira.
Hér er rakinn einn
þáttur málsins:
Hundrað og fimm
daga gæsluvarðhald
Magnúsar Leópolds-
sonar. Forsögu máls-
ins er að fáu getið;
vafalaust gert ráð fyr-
ir að lesandinn geymi
það allt í minni. Að-
dróttanirnar voru al-
varlegar. En þær
reyndust ekki á rök-
um reistar. Magnús
var látinn laus. Rétt-
vísin lét hann nokkurn
veginn í friði upp frá
því en varð að greiða
honum bætur. En at-
burðurinn varð ekki
aftur tekinn. Þar sem
sögumaður hafði með
svo afdráttarlausum
hætti verið bendlaður
við alvarlegt sakamál
var aldrei framar
hægt að láta eins og
ekkert hefði gerst.
Minna þarf til að
breyta lífi manns.
Tæpast að furða þó
slík meðferð skilji eft-
ir sig djúpstæð og
langvarandi sárindi.
Það er hægara sagt
en gert að vinna sig
út úr þvílíkri martröð. Þegar upp
var staðið og horft var til baka
mátti kalla að málatilbúnaður
þessi væri allur með ólíkindum.
Bók þessi segir frá handtöku
Magnúsar, gæsluvist og öðru þar
að lútandi og að lokum frá lausn
hans. Að öðru leyti einkenndist
lífíð þessa mánuðina af deyfð og
viðburðaleysi. Því má kalla vel af
sér vikið — ef horft er á hlutina
út frá því sjónarhorni — að teygja
efnið yfir heilar tvö hundruð síð-
ur. Tíu til tuttugu hefðu nægt til
að rekja atburðarásina. En til að
þetta yrði bók hefur höfundur tek-
ið þann pól í hæðina að fjölyrða
því meir um geðhrif og sálarástand
sögumanns frá degi til dags. Sýn-
ist sem höfundur reyni með því
að endurvekja örvænting hans og
sálarkvöl sem vafalaust hefur ver-
ið allt að óbærileg. En þar gildir
lögmálið: Því fleiri orð, því minna
vegur hvert þeirra. Langdreginn
stíllinn ber efnið ofurliði. Þetta
verður of mikið um lítið, of mikil
endurtekning, stundum í bókstaf-
legum skilningi. ». . . enda á hann
enga undankomuleið . . .« stendur
t.d. á bls. 21. Og á næstu síðu:
»... en hann á enga undankomu-
leið.« Víða er farið hörðum orðum
um lögreglumenn og starfsmenn
Síðumúlafangelsis,
enda verða þeir tákn-
mynd valdsins í frá-
sögninni: ». . . menn
næturinnar... fávitar
. . . fábjánar . . . hálf-
vitar . . . sálarlausir
tuddar . . . aularnir í
rannsóknarlögregl-
unni... vitleysingarn-
ir í rannsóknarlögregl-
unni. . .«
Var ekki hægt að
spara þessi orð en ná
þó fram sams konar
eða sterkari áhrifum?
Sama máli gegnir um
blótsyrði sem víða
koma fyrir í textanum.
Þau auka ekki áhrifa-
mátt frásagnarinnar
nema síður sé.
Inn á milli er skotið
stuttum þáttum þar
sem sagt er frá æsku
og uppvexti Magnúsar
sem ólst upp í fátækt
en sýndi þó snemma
af sér dugnað og
framtaksemi og hóf
undrasnemma sjálf-
stæðan atvinnurekst-
ur. Konu hans er líka
að nokkru getið en á
hana hefur ekki minna
reynt, ef til vill meira.
Þeir kaflarnir eru tví-
mælalaust hið læsileg-
asta í bókinni.
Sagan er ýmist sögð í fyrstu
eða þriðju persónu. Ekki er ljóst
hvernig samstarfi þeirra, sögu-
manns og höfundar, hefur verið
háttað. Nema hvað sögumaður
hefur lagt til söguþráðinn; hann
er það hráefnið sem höfundurinn
vinnur síðan úr, mikið eða lítið
eftir atvikum. Meginreglan er auð-
vitað sú að sögumaður ráði frá-
sögn sinni en höfundur taki einn
ábyrgð á skrifuðum texta sínum.
Vera má að unnt sé að gera
mikið úr svo takmörkuðu efni sem
hér um ræðir. Til þess þarf þó
bæði smekkvísi og hugkvæmni.
Höfundur bókar þessarar hefur
það ekki á valdi sínu.
Erlendur Jónsson
Jónas
Jónasson
Magnús
Leópoldsson
Nýjar bækur
Sinfónía heitra
tilfinninga
NÝ ljóðabók, Alla leið
hingað,_ eftir Nínu
Björk Árnadóttur, er
komin út og er þetta
níunda ljóðabók henn-
ar. Einnig hefur hún
sent frá sér tvær
skáldsögur, leikrit og
fleiri verk.
í kynningu segir:
„Andblær liðinna
stunda er ríkur í bók-
inni og myndir úr öll-
um áttum sækja á
hugann. Sinfónía
Nína Björk
Á •'nadóttir
heitra tilfínninga
hljómar, söknuður og
ótti finna mótvægi í
ofsa og óþreyju, lífs-
ótti glímir við lífs-
þorsta. Alla leið hing-
að geymir áleitin ljóð
sem unnendur góðs
skáldskapar munu
hrífast af og fagna.“
Útgefandi er Iðunn.
Bókin er prentuð í
Prentbæ hf. og er verð
hennar 2.480 kr.
Heilsubót
Nýjar bækur
• BÓSA saga og Her-
rauðs er ein af Fornaldarsög-
um Norðurlanda, líklega sam-
in á 14. öld. Höfundur hennar
er ókunnur en hann hefur
verið með ritfærustu mönn-
um sinnar
samtíðar.
í Bósa
sögu er greint
frá margvís-
legum ævin-
týrum bónda-
sonarins
Bögu-Bósa
og förunautar
hans, kon-
ungssonarins
Herrauðs. Kunnust er sagan
fyrir berorðar lýsingar af ból-
förum Bósa. „Þær eru gerðar
af mikilli stílleikni og sver
orðfærið sig í ætt við bragð-
mestu erótík í evrópskri
sagnalist frá sama tíma,“
segir í kynningu.
Dr. Sverrir Tómasson, sér-
fræðingur við Stofnun Árna
Magnússonar, hefur búið
söguna til prentunar, skrifað
eftirmála og samið orðskýr-
ingar. Tryggvi Ólafsson, list-
málari, teiknaði myndir í bók-
ina og gerði kápumynd.
Útgefandi erMál ogmenn-
ing. Bókin er 79 bls., prentuð
íSvíþjóð. Verð 1.980kr.
BOKMENNTIR
Fy n d ni
BESTU
BARNABRANDARARNIR
Teikningan Halla Kristín Einarsdótt-
ir. Umbrofc Edda Harðardóttir.
Prentun: Oddi hf.
Útgefandi: Bókaútgáfan Hólar,
Akureyri, 1996.95 siður.
HEITI þessarar bókar er klaufa-
lega valið, að mínum dómi, telur fólki
trú um, að hér sé safn fyndni fyrir
krakka. Svo er ekki, heldur bók fyr-
ir alla þá sem kunna kímni að meta
— kunna að hlæja.
Fyndni er ákaflega teygjanlegt
hugtak og ólíkt hvað vekur þjóðum
hlátur, til dæmis mikill munur á
danskri, enskri og íslenzkri fyndni.
Okkar er klúr og þunglamaleg; dan-
skra dulin, nærri lævís; enskra al-
þjóðlegri, beint að þeim sjálfum. Svo
skal því ekki gleymt, að það sem
vekur mér hlátur í dag gerir það
kannske ekki á morgun. Fyndni er
því háð stað, líka hugarástandi þess
er les eða heyrir, ekki sama hvort
þú ert staddur eða stödd í kirkju eða
krá. Safn til þessarar bókar hefir
tekizt vel, sneitt hjá hinu klúra, —
heimskuþvaðrinu líka. Víða er leitað
fanga, gamalt og nýtt, innlent og
erlent. Þarna er sagan af Patton
gamla í nýjum búningi (73) og það
sem þjóðsagan hefir tengt nafni sra
Baldurs í Vatnsfirði er komið í nýjan
búning og látið henda prestinn í
Garðabæ. Nú er eg ekki mjög kunn-
ur hver húsdýr finnast þar, tel þó
fráleitt að þeir haldi asna og fráleitt
að skrásetjari eigi við mennskan
asna, ætla honum ekki svo illt. Hitt
er eg að benda á, að umgangast
þarf orð með varúð. Sagan um sra
Baldur er miklu betri. (59) En nóg
um slíkar aðfinnslur, því bókin er
vissulega þokkalegasta skrýtlusafn,
sjálfsagt reynist fleirum erfitt að
veltast ekki um af hlátri en gæsalöpp
(62). Dæmdu sjálf(ur):
„Sjáðu hvað þú hefir gert!“ hróp-
aði reiður viðskiptavinur í þvottahúsi
á Akureyri.
“Ég sé ekkert að þessum vasa-
klút,“ svaraði eigandi þvottahússins.
„Vasaklút! Þetta var lak.“
* * *
Villi litli kom hlaupandi til mömmu
sinnar og sagði óðamála: „Mamma,
mamma! Ég felldi niður stóra stigann
sem stóð upp við húsgaflinn."
„Af hveiju ertu að segja mér það,“
spurði mamma. „Farðu heldur og
láttu hann pabba þinn vita af því.“
„Pabbi veit af því. Hann hangir í
þakrennunni."
* * *
Gesturinn: „Er hundurinn þinn
hrifinn af börnum?“ Steinþór: „Já,
en hann vill samt heldur hundamat."
Látum þessi sýnishorn nægja.
Myndir eru bráðskemmtilegar, hrein-
lega skríkja af kátínu.hefðu mátt
vera miklu fleiri — gert samanþjapp-
að efni auðveldara í umbroti, líf-
legra. Hlátur er hollur og þessi bók
er því heilsubót.
Sig. Haukur
Sverrir
Tómasson
Spástefna
Stjórnunarfélags Islands 1997
haldin í Þingsal 1, Scandic Hótcl Loftleiðum, þriðjudaginn 3. deseniber 1996 kl. 14-17
Mannauður í fyrirtækjum - viðhorf og aðgerðir stjórnenda
Dagskrá:
Kl. 14.00 Setning spástefnu. Thomas Möller, stjómarformaður SFÍ.
Kl. 14.10 Ræktun mannauðs í fyrirtækjum. Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR.
Kl. 14.25 Mannauður - fyrirtæki - kjarasamningar. Þórarinn V. Þórarinsson,
framkvæmdastjóri VSÍ.
Kl. 14.40 Mannauður - "Fjárfesting í fólki". Gunnar Helgi Hálfdanarson,
forstj. Landsbréfa hf.
Kl. 14.55 Virkjun mannauðs með aðstoð upplýsingatækninnar.
Frosti Sigurjónsson, forstjóri Nýherja hf.
Kl. 15.10 Kaffihlé.
Kl. 15.30 Ný spá fyrirtækja um efnahagsþróun næsta árs og líkleg þróun
efnahags- og atvinnulífs til aldamóta. Sigurður Ágúst Jensson,
viðskiptafræðingur.
Kl. 16.00 Hvar ríkir jákvæðasta starfsvitundin? Niðurstöður 13 mæliþátta fyrstu
íslensku starfsvitundarkönnunarinnar kynntar. Dr. Halldór Júlíusson,
sálfræðingur.
Kl. 16.50 Spástefnu slitið. Spástefnustjóri; Ámi Sigfússon,
framkvæmdastjóri SFÍ.
Sigurður Ágúst
Jenssen
Frosti Sigurjónsson
Ámi Sigfússon
Thomas Möller
Þórarinn V.
Þórarinsson
Stjórnunarféiag
islands
Ánananaustum 15
slmi 562 1066