Morgunblaðið - 27.11.1996, Qupperneq 50
50 MIÐVIKUDAGUR 27. NÓVEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Vitundarvígsla manns og sólar
Dulfræði fyrir þá sem leita.
Fæst í versl. BETRA LÍF í Kringlunni 4-6
Námskeið og leshringar.
Ahugamenn um Þróunarheimspeki
Pósthólf 4124 124 Reykjavík Fax 587 9777 Sími 557 9763
Vinningar í
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
vænlegast til vinnings
i Hciti potturinn 26. nóv. '96
í kom á miða nr. 20483
'<s
RANNÍS
Orkurannsóknir
Kynningarfundur um Orkurannsóknaráætlun ESB
(Joule-Thermie) veröur haldinn á Grand Hótel
Reykjavík 28. nóvember kl. 9.00-13.00.
09.00 Ávarp, dr. Þorkell Helgason, orkumálastjóri.
09.15 Joule kynning - hr. David Miles frá
framkvæmdastjórn ESB.
10.15 Umræöur og fyrirspurnir.
10.30 Kaffihlé.
10.45 Thermie kynning - hr. David Miles.
11.45 Umræður og fyrirspurnir.
12.30 Lokaorð.
Skráning er hjá Rannsóknarráöi íslands
í síma 562 1320.
fullveldisfagnaðinn
í Sunnusalnum á Hótel Sögu
30. nóvember nk.
Stúdentabollan framreidd
frá kl. 19.00—19.30.
— Samkvæmisklæðnaður —
Hátíðin sett kl. 20.00: Formaður Hollvinasamtaka HÍ.
Veislustjóri: Ftagnhildur Vigfúsdóttir.
Magister bibendi: Stefán Karlsson.
Tvísöngur: Ingibjörg Marteinsdóttir og Þorgeir J.
Andrésson við undirleik Jónasar Ingimundarsonar.
Hátíðarræða: Ólafur B. Thors.
Fjöldasöngur: Valdimar Örnólfsson stjórnar.
Kórsöngur: Háskólakórinn.
Danshljómsveit: Saga Klass.
Miðapantanir í síma 551 4374, bréfasími 551 4911,
tölvupósti sigstef@rhi.hi.is.
Hollvinasamtök Háskóla Islands,
Stúdentafálag fíeykjavíkur,
Félag Islenskra háskólakvenna,
Stúdentaráð Háskóla Islands,
Félag prófessora,
Félag háskólakennara.
ÍDAG
skAk
limsjón Margeir
Pctursson
HVÍTUR leikur
og vinnur.
STAÐAN kom upp á minn-
ingarmótinu um Karl
Schlechter í _Vín í Austur-
ríki í haust. Úkraínski stór-
meistarinn A. Rotstein
(2.475) hafði hvítt og átti
leik, en A. Alvir (2.355),
Bosníu, var með svart.
Svartur tefldi bytjunina
illa og er óralangt á eftir
í liðsskipan. Þá er ekki að
sökum að spyija:
13. Rb6! - axb6 14. Bxb6
- Rc6 (Eða 14. - Dd7 15.
Bb5 og vinnur) 15. dxc6 -
d5 16. Db5 - bxc6 17.
Hxc6 (Hótar 18. He6 tví-
skák og mát) 17. - Dd7
18. Rxe5 - Ba6 19. Rxd7
og svartur gafst upp.
Alþjóðlegi meistarinn I.
Baiinov, Búlgaríu, sigraði
óvænt á mótinu með 7 v.
af 9 mögulegum, en næstir
komu stórmeistararnir
Popovic, Júgóslavíu,
Blatny, Tékklandi og
Groszpeter, Ungvetjalandi.
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: laugaÞmbl.is
Þakkirtil
starfsfólks
Breiðholts-
apóteks
NÚ ÞEGAR hæst stendur
slagur um viðskipavini
apótekanna vil ég endi-
lega, þótt seint sé, koma
til skila þeim þökkum til
Breiðholtsapóteks, sem
það á skilið frá mér. Ég
var á leið út úr Reykjavík
en hafði brennt mig illa á
læri stuttu áður. Eina apó-
tekið sem opið var þá var
Breiðholtsapótek. Það var
helgi. Bið ég af-
greiðsludömur um eitt-
hvað sem geti linað kvalir
mínar í brunasárinu; það
er ekkert með það heldur
er ég dregin bak við búð-
arborðið, sett þar upp á
rúmstokk, látin sýna sárið
og með það sama er
starfsstúlkan þotin fram í
apótekið að ná í eitthvað.
Hún setur einhverskonar
gervihúð á lærið og segir
að nú verði allt í lagi. Er
ég síðan rukkuð um ca
200 kr. en það kostaði
plásturinn. Slíka þjónustu
hef ég ekki áður hlotið,
bæði hvað varðaði viðmót
starfsfólks, kunnáttu og
verð lækningarinnar. Þess
má geta að brunasárið,
sem var slæmt, hvarf al-
veg; ekkert ör né óþæg-
indi. Fannst mér nú alveg
tími til kominn að láta
uppi hverskonar gæða-
apótek Breiðholtsapótek
er.
Ánægður
viðskiptavinur.
Einhæf Sýn
Guðjón hringdi: Af sex
leikjum sem sýndir hafa
verið beint á sjónvarps-
stöðinni Sýn eru fimm
sendingar frá leikjum
Manchester United. Þar
af voru tveir eða þrír ekk-
ert merkilegir. Getur verið
að umsjónarmaður þáttar-
ins hafi bara áhuga á að
sýna leiki með því liði sem
hann heldur mest uppá?
Þetta er orðið fulleinhæft
og verður að breytast.
Guðjón
Alltí l.flokk?
GYÐA Jóhannsdóttir
hringdi, en hún vill að fólk
hætti að kaupa það nauta-
kjöt sem stendur því til
boða í kjötborðum versl-
ana hér á landi. Hún segir
að kjötið sé flokkað í fjóra
flokka, misjafna eftir
gæðum, en sú flokkun
virðist skila sér í af-
greiðsluborðin. „Þar er altt
nautakjöt 1. flokks," sagði
hún, „neytendur eiga ekki
að láta bjóða sér upp á
þetta. Þeir ættu að hætta
að kaupa nautakjöt þar til
framleiðendur og seljend-
ur taka sig á.“
Tapað/fundið
Lyklakippa
fannst
LYKLAKIPPA með fjór-
um lyklum fannst í bið-
skýli fyrir utan Hátún 4
sl. föstudag. Upplýsingar
í síma 553-9586 eða í síma
563-2617. Guðmundur.
Hjólfannst
STORMHJÓL fannst á
garðstíg í Hafnarfirði.
Upplýsingar í síma
555-4654.
Hringur tapaðist
TAPAST hefur karl-
mannshringur úr silfri með
áletraðri gullplötu. Hring-
urinn tapaðist í Naustkjall-
aranum föstudaginn 22.
nóvember sl. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 551-0332.
Úr fannst
Gyllt og silfrað úr fannst
á malarvellinum hjá KR-
vellinum. Upplýsingar í
síma 562-9078.
ÞESSIR duglegu krakkar, Sanja Björk, Tinna, Ása
Dögg og Snorri héldu tombólu nýlega. Agóðinn
sem var 3.089 krónur fór í Hjálparstarf ABC, til
styrktarbarnsins Nagul.
Hlutavelta
HÖGNIHREKKVÍSI
Víkveiji skrifar...
AFORSÍÐU nýjasta tölublaðs
Lyfjatíðinda er allnýstárleg
auglýsing, sem tekur yfir alla for-
síðuna, að blaðhaus undanskild-
um. Auglýsingin er frá Glaxo
Wellcome ehf. og verið er að aug-
lýsa lyfið Zantac. í fyrirsögn að
auglýsingunni segir: „í ráðuneyt-
inu eru allir með í maganum vegna
iyfjakostnaðar. Zantac getur linað
þær þjáningar. 45% verðlækkun."
Texti auglýsingarinnar er svo-
hljóðandi: „Einkaleyfi á Zantac er
nú að falla út í Evrópu og því
hefur Glaxo Wellcome ehf. ákveðið
að lækka verðið á frumlyfinu
Zantac um 45%. Það þýðir að nú
fæst frumlyfið á lægra eða sama
verði og eftirlíkingalyfin sem hafa
verið til sölu á markaðnutn." Það
liggur við að daglega birtist frétt-
ir um umtalsverða verðlækkun á
einni vöru eða annarri. Fróðlegt
verður að fylgjast með því hvaða
áhrif þessi verðlækkun á Zantac
hefur á verðlagningu annarra
skyldra lyfja.
YÍKVERJI veltir. því fyrir sér,
hvort nú sé skæð hálsbólga
að hetja á borgarbúa í því kulda-
kasti sem þeir hafa mátt búa við
undanfarið. Að minnsta kosti eru
það gróflega margir úr kunningja-
hópi skrifara sem hálsbólgan hefur
lagt að velli á undanförnum dög-
um. En líklega er sá tími vetrar
nú kominn, þegar hvers konar
pestir hijá landsmenn, hvort sem
um kvef, inflúensu eða hálsbólgu
er að ræða.
xxx
MARGIR minnast ugglaust
slagverkleikarans skoska,
Evelyn Glennie, sem kom hingað
til lands í fyrra og lék einleik með
Sinfóníuhljómsveit íslands, við
geysilega góðar undirtektir ís-
lenskra tónleikagesta. Hún þykir
undrabarn á sínu sviði, er þrítug
að aldri, en hefur verið heyrnar-
laus frá ellefu ára aldri. Víkveija
er minnisstætt viðtal við listakon-
una, sem birtist hér í Morgunblað-
inu, sama dag og hún lék með
Sinfóníuhljómsveitinni. Persónu-
töfrar hennar og snilld beinlínis
geisluðu af henni í áðurnefndu
viðtali.
XXX
ETTA rifjaðist upp á sunnu-
dagskvöld, þegar Víkveiji
horfði á bandaríska sjónvarpsþátt-
inn „60 Minutes“ eða 60 mínútur
á Stöð 2. Ed Bradley átti viðtal
við listakonuna og fylgdi henni
eftir á tónleikum og æfingum.
Glennie var við sama heygarðs-
hornið í þættinum með Bradley -
hún heillaði hann og aðra starfs-
menn þessa virta sjónvarpsþáttar
upp úr skónum og reyndar svo
mjög, að hann hafði sérstakt orð
á því, að sennilega hefði enginn
viðmælandi þeirra í „60 Minutes"
heillað þá meira en einmitt Evelyn
Glennie.