Morgunblaðið - 15.12.1996, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C/D
288. TBL. 84. ÁRG.
SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skólavörðustígur í skammdeginu
Morgunblaðið/Ásdís
Áætlun ísraela um aukið landnám á hernumdum svæðum veldur áhyggjum
PLO varar við „spreng-
ingu“ í Miðausturlöndum
Gaza, Sameinuðu þjóðunum. Reuter.
PLO, Frelsissamtök Palestínumanna, sögðu
í gær, að stefna ísraelsstjórnar væri að leiða
nýjar hörmungar yfir Miðausturlönd og skor-
uðu á Palestínumenn að „berjast með öllum
tiltækum ráðum“ gegn áætlunum um fleiri
gyðingabyggðir á hernumdu svæðunum.
Leiðtogar Evrópusambandsins, sem verið
hafa á fundi í Dyflinni, lýstu í gær yfir
áhyggjum af þróuninni í Miðausturlöndum.
Heimastjórn Palestínumanna undir for-
ystu Yasser Arafats kom saman í Gaza í
fyrrakvöld til að ræða þá ákvörðun ríkis-
stjórnar Benjamins Netanyahus, forsætis-
ráðherra ísraels, að styrkja sérstaklega þá
gyðinga, sem vildu setjast að á hernumdu
svæðunum. í samþykkt, sem hún sendi frá
sér, sagði, að ekki léki vafi á því lengur, að
ísraelska stjórnin ætlaði sér að eyðileggja
friðarsamningana og valda nýrri „spreng-
ingu“ í þessum heimshluta.
„Við hvetjum alla Palestínumenn til að
vetja föðurland sitt og berjast gegn yfir-
gangi ísraela með öllum ráðum," sagði í
yfirlýsingu heimastjórnarinnar.
Skorað á öryggisráðið
PLO skoraði í fyrrakvöld á öryggisráð
Sameinuðu þjóðanna að koma í veg fyrir,
að ísraelsstjórn kæmi upp 132 íbúðum fyrir
gyðinga inni í hverfum araba í Austur-Jerú-
salem. í bréfi, sem Nasser al-Kidwa, áheyrn-
arfulltrúi PLO hjá SÞ, sendi öryggisráðinu,
sagði, að fyrirætlanir ísraelsstjórnar væru
„ólöglegar og stórhættulegar“.
Frá því ríkisstjórn Netanyahus tók við völd-
um í ísrael í júní sl. hefur hún leyft byggingu
þúsunda íbúðarhúsa í byggðum gyðinga á
hemumdu svæðunum og með áætlunum um
gyðingabyggð inni i hverfum araba í A-Jerú-
salem virðist hún ætla að verða við óskum
um að fjölga þessum byggðum.
Bandaríkjastjórn að missa
þolinmæðina?
„Við höfum séð samþykktina og í hrein-
skilni sagt höfum við verulegar áhyggjur af
henni,“ sagði Nicholas Burns, talsmaður
bandaríska utanríkisráðuneytisins, um þá
ákvörðun ísraelsstjórnar að styrkja sérstak-
lega gyðinga, sem vilja setjast að á her-
numdu svæðunum. „Það er deginum ljósara,
að ekki er við miklu að búast af viðræðum
þegar annar aðilinn aðhefst eitthvað, sem
kemur fyrirfram í veg fyrir árangur.“
„Bíl fyrir mig
og himdimi“
„GÓÐAN dag. Mig vantar Ieigubíl fyr-
ir mig og hundinn minn.“ Pantanir af
þessum toga verða æ algengari hjá
leigubílastöðvunum í Kaupmannahöfn
og ástæðan er ekki sú, að hundaeign
sé að aukast í borginni, heldur er ver-
ið að biðja um hvitan bílstjóra, þ.e.a.s.
Dana, sem talar örugglega dönsku.
Hefur þetta tíðkast í nokkur ár eða
eftir að í ljós kom, að innflytjendur í
leigubílstjórastéttinni, oft fólk frá
Asíu- og arabalöndum, kærðu sig ekki
um að taka hunda upp í bílinn. Blaða-
menn á dagblaðinu Politiken létu á
þetta reyna á dögunum og gekk það
allt eftir. Nefndu þeir hund fengu þeir
„innfæddan" bílstjóra, sem spurði að
sjálfsögðu ekkert hvar hundurinn væri
þegar á staðinn kom enda yfirleitt
ekki um neinn hund að ræða. Samtök-
um innflytjenda í Danmörku líkar þetta
ekki sem vonlegt er en þau hafa þó
veigrað sér við að gera mikið veður
út af því af ótta við, að þessi siður
verði enn algengari en nú er.
Major vill
ráða hár-
greiðslunni
NÝLEGA var frá því sagt, að Tony
Blair, leiðtogi breska Verkamanna-
flokksins, hefði breytt um hárgreiðslu
þegar í ljós kom, að hann naut ekki
nægilega mikillar hylli meðal kvenna.
Var það gert að ráði svokallaðra
ímyndarhönnuða og kollegar þeirra hjá
íhaldsflokknum vildu ekki vera minni
menn og lögðu hart að John Major
forsætisráðherra að breyta sinni. Var
helst á þeim að skilja, að væri hárið á
honum aðeins styttra og greitt aftur,
þá myndi honum reynast auðvelt að
snúa vörn í sókn og breyta slöku gengi
flokksins i skoðanakönnunum. Major
tók það samt ekki í mál og þá brugðu
hönnuðirnir á það ráð að ræða einslega
við rakarann hans. Reyndu þeir að fá
hann til að stinga upp á þessu við for-
sætisráðherrann en hann hafnaði ekki
aðeins beiðninni, lieldur fór með sög-
una í blöðin. Sagði hann þar, að eins
og aðrir sannir, enskir herramenn
væri Major sáttur við sjálfan sig, jafnt
hárið sem annað. Rakarinn hans Maj-
ors er hins vegar ekki sáttur við hárið
á Bill Clinton, forseta Bandaríkjanna
og hefur hann beðið sendiherra Banda-
ríkjanna í London að koma því til skila.
Segir hann, að Clinton sé kominn með
svo mikinn flóka á hvirflinum, að helst
líkist skýjakljúf.
Forgangsverkefni að is , lækka raforknverðið <22!? Grafið
22
Ifc Vm1 EYÐINGIN '^^10 HLJÓÐA
24
Úr eigu sfö atótekara
í 2 milljaröa veliu