Morgunblaðið - 15.12.1996, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Madeleine Albright skipuð utanríkisráðherra Bandaríkjanna
„HAUKUR“
MEÐSÝN
EVRÓPU-
BÚANS
MADELEINE Albright ásamt Bill Clinton forseta eftir að skýrt
hafði verið frá tilnefningu hennar í embætti utanríkisráðherra.
Stj órnarandstaðan
I Serbíu
Æf útí
Dini
Belgrad. Reuter.
STJÓRNARANDSTAÐAN í Serbíu
réðst á föstudag harkalega á Lam-
berto Dini, utanríkisráðherra Ítalíu,
en hann hvatti hana til að láta af
kröfum sínum á hendur Slobodan
Milosevic, forseta Serbíu, um að
tekin verði aftur ákvörðun um
ógildingu sveitarstjórnarkosninga.
Milosevic bauð eftirlitsmönnum Or-
yggis- og samvinnustofnunar Evr-
ópu (ÖSE) að skoða kjörgögn úr
kosningunum.
Vuk Draskovic, einn leiðtoga
Zajedno-hreyfingar stjórnarand-
stæðinga, kvaðst „furðu lostinn og
að sér væri misboðið" vegna orða
sem Dini lét falla í Belgrad á
fimmtudag. Þá átti utanríkisráð-
herrann fund með Milosevic og leið-
togum Zajedno, til að reyna að finna
lausn á deilu þeirra um ógildingu
sveitarstjórnarkosninga í Serbíu.
„Mér sýnast engar líkur á því að
til greina komi að úrslitin verði lýst
gild að nýju. Því verða deiluaðilar
að finna aðra lausn á vandanum,"
sagði Dini eftir fundinn.
Draskovic brást æfur við tillögu
Dinis, sagði hún myndi skapa mis-
skilning um heim allan, auk þess
sem hún styrkti Milosevic í barátt-
unni við lýðræðisöflin.
Dini sagði í samtali við ítalska
fjölmiðla það af og frá að einfald-
asta lausnin á vandanum væri af-
sögn Milosevic. „Alls ekki. Mi-
losevic hyggst ekki segja af sér og
ég gerði stjórnarandstöðunni skýra
grein fyrir því að það væri ekki
vilji þjóða heims,“ sagði Dini.
-----♦ ♦ :♦----
Onæmar bakteríur
Algengari
en talið var
London. Reuter.
BAKTERÍUR, sem eru orðnar
ónæmar fyrir flestum lyíjum, eru
miklu algengari á sjúkrahúsum en
áður var taiið og geta borist á milli
sjúklinga þótt fyllsta hreinlætis sé
gætt. Kom þetta fram við rannsókn
í Chicago í Bandaríkjunum.
Rannsóknin sýndi, að ákveðin
iðrabaktería, enterococci (VRE),
sem er orðin næsta ónæm fyrir
„vancomycin", lyfí, sem notað hefur
verið gegn henni, var mjög algeng
á Cook County-sjúkrahúsinu í
Chicago, jafnt í sjúklingum sem i
búnaði eins og rúmum. Óttast lækn-
ar, að fram muni koma afbrigði,
sem engin lyf ráði við.
Breskur læknir tilkynnti í síðustu
viku, að fundist hefði nýtt afbrigði
af VRE, sem gæti ekki þrifist nema
fá sinn reglulega skammt af lyfinu
vancomycin.
fó) SILFURBÚÐIN
Kringlunni 8-12 *Sími 568 9066
Þar fœröu gjöfina -
SKIPUN Madeleine Albright
í embætti utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna gef-
ur tilefni til að ætla að
áherslubreytinga sé að vænta á
þessu sviði frá stjórn Bill Clintons
Bandaríkjaforseta. Fyrir liggja
ákvarðanir og verkefni sem kreij-
ast annarrar sýnar til utanríkis-
mála en þeirrar sem einkenndi
fyrra kjörtímabil forsetans. Að auki
kann skipun Albright að reynast
snjall pólitískur leikur af hálfu
Clintons forseta og eitt skref í átt
að sigri Demókrataflokksins í for-
setakosningunum árið 2000.
Konur í Bandaríkjunum og
raunar víðar hafa fagnað þessari
upphafningu Madeleine Albright.
Aldrei áður í sögu Bandaríkjanna
hefur kona risið til viðlíka metorða
innan stjórnkerfisins en utanríkis-
ráðherra er, samkvæmt stjórnar-
skrá, þriðji í embættisröðinni frá
sitjandi forseta, á eftir varaforseta
og forseta fulltrúadeildar. Al-
bright þykir vel að embættinu
komin, hefur þótt trúverðugur og
ákveðinn málsvari Bandaríkjanna
á vettvangi Sameinuðu þjóðanna
þar sem hún hefur verið sendi-
herra síðustu ijögur árin.
Mótandi reynsla
Frú Albright hefur verið talin
í hópi „hauka“ í Bandaríkjunum;
hún hefur ætíð verið ákafur and-
kommúnisti enda reyndist sú hug-
myndafræði svo afgerandi í lífí
hennar og fjölskyldu hennar. Af
þessu leiðir síðan að hún hefur
ætíð verið sérlega áhugasöm um
mannréttindi. Hún hefur einnig
reynst „haukur“ í hinum nýja og
óhefðbundnari skilningi þess orðs;
ein þeirra sem framfylgja vilja
ákveðinni og afdráttarlausri
stefnu til að verja hagsmuni
Bandaríkjanna og vinaþjóða
þeirra og nýta sér styrk eina eftir-
lifandi risaveldisins til fullnustu.
Það er ef til vill einkum upp-
runi Albright og persónusaga sem
gerir að verkum að vangaveltur
vakna um breyttar áherslur í ut-
anríkismálum. Hún er dóttir
stjómarerindreka, fæddist í
Tékkóslóvakíu 1937, skömmu áð-
ur en hersveitir Hitlers héldu inn
í landið og ijölskyldan varð tvíveg-
is að flýja ættjörðina, fyrst undan
nasistum til Englands en síðan til
Bandaríkjanna undan kommún-
istum eftir valdaránið árið 1948.
Leiða má getum að því að þessi
reynsla hafi orðið til þess að móta
hinn ófrávíkjanlega boðskap
hennar að Bandaríkjamönnum
beri siðferðisleg skylda til að
vinna gegn öllum kraftbirtingar-
formum hins ólýðræðislega valds
og sérhverri ásælni af hálfu ein-
ræðisherra.
Með kjafti og klóm
Albright er þekkt fyrir mælsku
sína, þykir kröftug í framgöngu
allri og hörð í horn að taka. Mest
hefur borið á þessu í ummælum
hennar um einræðisstjórnir svo
sem þá sem ríkir á Kúbu. Þá þyk-
ir hún og hafa sýnt mikla hörku
í að halda fram þeim sjónarmiðum
stjórnar Clintons að ótækt sé með
öllu að Boutros Boutos-Ghali gegn
áfram embætti framkvæmda-
Gera má ráð fyrir að
áherslur í bandarískum
utanríkismálum breyt-
ist nokkuð með skipan
Madeleine Albright,
------y---------------
segir Asgeir Sverris-
son í þessari frétta-
skýringu um utanríkis-
ráðherrann nýja.
stjóra Sameinuðu þjóðanna. Haft
hefur verið eftir framkvæmda-
stjóranum að Albright búi yfir
álika siðfágun og tékkneskur
smábóndi. Víst er að hann kann
henni litlar þakkir fyrir en telja
verður mjög ólíklegt að hann verði
endurkjörinn.
Annað helsta verkefni Albright
á vettvangi Sþ hefur verið að
halda uppi þrýstingi á stjórn Cast-
ros Kúbuleiðtoga og veija sjónar-
mið Bandaríkjamanna, einkum
gildandi viðskiptabann, í því efni.
Þar líkt og í andstöðunni við Bout-
ros-Ghali hafa Bandaríkjamenn
verið einir á báti og mjög hefur
því reynt á seiglu sendiherrans.
Hefur hún hlotið einróma lof fyrir
framgöngu sína vestur í Banda-
ríkjunum en erlendir sendimenn
hjá Sþ hafa margir hveijir ekki
séð ástæðu til að gera slíkt hið
sama. Mörgum hefur þótt hún
fulltrúi fyrir hroka Bandaríkja-
manna sem vilji þvinga aðrar að-
ildarþjóðir samtakanna til að fara
að vilja sínum á sama tíma og
þeir reynist ófáanlegir til að
greiða sinn hluta af kostnaði
vegna reksturs þeirra.
Fjölmiðlavæn
Því er ljóst að annar „stíll" mun
einkenna Madeleine Albright en
forvera hennar, hinn skraufþurra
Warren Christopher, sem haldið
hefur fram máli sínu af svipaðri
ástríðu og sovéskir landbúnaðar-
hagfræðingar forðum. Sú var-
kárni, jafnvel lognmolla, sem ein-
kenndi lögfræðinginn orðvara
mun tæpast setja mark sitt á Al-
bright, sem á stundum hefur ver-
ið vænd um yfirgang og þykir
prýðilega þijósk.
Christopher hefur verið fundið
til foráttu að hann sé sérlega
dapurlegur í fjölmiðlum og lítt til
þess fallinn að nýta sér sjónvarps-
tæknina til að koma sjónarmiðum
stjórnvalda á framfæri við al-
menning. Þá hefur verið fundið
að því að maðurinn kunni sýnilega
ekki vel við sig innan um fólk.
Slíkt er ekki talið til merkis um
mannvit og þroska á tímum fjöl-
miðla- og fjöldamenningar en vís-
að til þess að frú Albright sé
ágætlega frambærileg á öllum
þessum sviðum. Horfa þá ýmsir
til væntanlegra samskipta hennar
við þingheim en líklega mun stjórn
Clintons á þessu kjörtímabili
leggja áherslu á að fá þingmenn
til að auka framlög til reksturs
utanríkisþjónustunnar.
Stækkun NATO
Þegar horft er til þeirra verk-
efna sem einkenna munu síðara
kjörtímabil Clintons á sviði utan-
ríkismála má leiða að því getum
að ákvörðun um skipun Albright
hafi verið tekin með sérstöku til-
liti til þeirra. Ætla má að sérstök
þörf hafi verið talin fyrir nýja sýn
og þá einkum með tilliti til þróun-
ar mála í Evrópu.
Fyrir liggur yfirlýsing af hálfu
Clintons forseta þess efnis að
fagna beri 50 ára afmæli Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) með
stækkun þess til austurs árið
1999. Utanríkisráðherrar banda-
lagsins komu saman til fundar á
þriðjudag og lögðu drög að fundi
leiðtoga aðildarríkjanna 16 næsta
sumar þar sem formlega verður
gengið frá boði um aðild að NATO
til nokkurra fyrrum kommúnista-
ríkja í Mið- og Austur-Evrópu.
Þessi yfirlýsing forsetans jafn-
gildir í raun ákvörðun um að
bandalagið verði stækkað til aust-
urs. Skipun Madeleine Albright í
embætti utanríkisráðherrra er til
þess fallin að auka trúverðugleika
þessarar stefnu bæði gagnvart
Tékkum (og raunar einnig Pól-
veijum og Ungveijum) en ekki
síst gagnvart Rússum, sem and-
mælt hafa fyrirhugaðri stækkun
kröftuglega með ýmsum rökum.
Með frúna í embætti utanríkisráð-
herra mun önnur sýn, „evrópsk-
ari“, einkenna störf og málflutn-
ing utanríkisráðuneytisins á
næstu árum þegar ljóst er að
stækkun NATO í nafni hinnar
nýju, lýðræðislegu og sameinuðu
Evrópu og samskiptin við Rúss-
land i sama tilgangi verða for-
gangsverkefni Bandaríkjanna í
álfunni. Þessi „sýn“ hennar er
grundvölluð á ástandinu í Evrópu
áður en skuggi kommúnismans
lagðist yfir þjóðirnar í austurhluta
álfunnar. Hún er þvi í senn full-
trúi hins liðna og þess veruleika
sem einkennir ástandið í álfunni
nú um stundir.
„Stuðpúði" Clintons?
Hlutverk Madeleine Albright
við mótun stefnu gagnvart Asíu-
þjóðum, einkum Kína, verður ann-
að og að flestu leyti erfíðara.
Bandaríkjastjórn hefur sætt mik-
illi gagnrýni á undanförnum árum
fyrir að leiða viðskiptahagsmuni
til öndvegis í samskiptum við Kína
þrátt fyrir gróf mannréttindabrot
kommúnistastjórnarinnar þar.
Engin ástæða er til að gera ráð
fyrir að þessum áherslum verði
breytt. Líklegra má telja að Clint-
on forseti hyggist nýta sér Al-
bright sem eins konar „líknar-
belg/stuðpúða“ fyrir ríkisstjórn-
ina í þessu efni vegna eindreginna
yfirlýsinga sinna á undanförnum
árum um mannréttindabrot ein-
ræðisstjórna. Frú Albright getur
því gert ráð fyrir að sæta veru-
legri gagnrýni og ætla má að
hennar bíði ásakanir um ósam-
kvæmni þegar hún tekur að fást
við Kínvetja.
Annað stórmál sem gæti reynst
utanríkisráðherranum nýja erfitt
er vera bandarískra hersveita í
Bosníu og þróun mála þar í landi.
Albright var ákafur talsmaður
þess að Bandaríkjamenn beittu
styrk sínum til að stilla til friðar
í landinu og lenti upp á kant við
marga ráðmenn bandaríska af
þeim sökum. Ný ríkir óvissa um
þróun mála í landinu og hvað tek-
ur við þegar bandaríska herliðið
hefur sig á brott eftir eitt og hálft
ár. Bosníu-vandinn er sérlega
djúpstæður og „evrópskur" í eðli
sínu. Má því búast við að horft
verði til utanríkisráðherrans nýja
og þess vænst að hann hafí for-
ystu um stefnumótun á þessu
sviði.
Þá blasa fleiri „evrópsk" verk-
efni vitanlega einnig við utanríkis-
ráðherranum enda verða þýðing-
armikil skref stigin á næstu á
árum í samrunaferli Evrópusam-
bandsins.
Kvennafylgið innsiglað
Skipun Madeleine Albright í
þetta háa embætti hefur einnig á
sér pólitískar hliðar, sem ætlaðar
eru til að styrkja stöðu Demókrata-
flokksins. Mikill meirihluti banda-
rískra kvenna tók Clinton fram
yfir frambjóðanda repúblíkana,
Bob Dole, í nýafstöðnum forseta-
kosningum vestra. Segja má að
konur hafi tryggt kjör Clintons
og nú hefur hann launað þeim
stuðninginn með sérlega bein-
skeyttum hætti sem er til þess
fallinn að tryggja þetta fylgi. Það
kann aftur að reynast dýrmætt
eftir Ijögur ár þegar frambjóð-
andi flokksins, trúlega A1 Gore
núverandi varaforseti, leitar eftir
stuðningi í forsetakosningunum
sem þá fara fram.