Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 1
88 SIÐUR B/C
12. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Stjóm ísraels samþykkir
Hebron-samkomulagið
iuter. ^ !■! J
Jerúsalem. Reuter.
BENJAMIN Netanyahu, forsætis-
ráðherra Israels, mætti mikilli and-
stöðu þegar hann lagði samning Isra-
ela og Palestínumanna um að borgin
Hebron á Vesturbakkanum yrði að
mestu leyti látin af hendi undir stjórn
sína á rúmlega 12 klukkustunda
fundi. En honum tókst að lokum að
knýja fram samþykkt þess seint í
gærkvöldi. Stjórn Yassers Arafats,
forseta Palestínumanna, samþykkti
samkomulagið í gær.
11 ráðherrar greiddu atkvæði
með samkomulaginu, en sjö gegn
því. Benjamin Begin, ráðherra vís-
indamála og sonur Menachems Beg-
ins, fyrrverandi forsætisráðherra,
sagði af sér embætti til að mótmæla
samkomulaginu.
Netanyahu varð að gera hlé á
fundinum til þess að kanna sjón-
varpsfrétt, sem harðlínumenn sögðu
að gæfi tilefni til að hafna samkomu-
laginu. Þar var haft eftir bandarísk-
um embættismanni að ísraelar gætu
ekki ákveðið einir hve mikið land á
Vesturbakkanum Palestínumenn
fengju heldur yrðu þeir að semja
PALESTINUMAÐUR gengur fram hjá
manni í úrhellinu í Hebron í
um það við Frelsissamtök Palestínu.
Nokkrir ráðherrar kröfðust skýr-
inga þar sem ísraelskir embættis-
menn höfðu sagt að_ Bandaríkja-
menn ábyrgðust að ísraelar réðu
hve mikið land á Vesturbakkanum
yrði afhent í brottflutningi, sem fyr-
ísraelskum
gær.
Reuter
her-
irhugaður er í þremur áföngum.
Fundinum var haldið áfram á ný
þegar Dennis Ross, sérlegur samn-
ingamaður Bandaríkjamanna, sagði
að sjónvarpsfréttin væri ekki rétt
túlkun á afstöðu Bandaríkjamanna.
Vörður ísraelskra hermanna í
Hebron var efldur í gær til að koma
í veg fyrir mótmælaaðgerðir heittrú-
aðra gyðinga, sem búa í borginni
og eru anvígir því að hún verði látin
í hendur Paiestínumönnum.
Yitzhak Mordechai, varnarmála-
ráðherra ísraels, skipaði hernum að
bíða þar til samkomulagið, sem
Arafat og Netanyahu gerðu með sér
á fundi í Erez, sem er á mörkum
ísraels og Gaza-svæðisins, skömmu
eftir miðnætti í fyrrinótt, hefði verið
staðfest á þingi. Þingið tekur sam-
komulagið til atkvæðagreiðslu í dag
og er búist við að það verði sam-
þykkt með stuðningi Verkamanna-
flokksins og vinstri flokka, sem eru
í stjórnarandstöðu.
Mahmoud Abbas, helsti samn-
ingamaður Palestínumanna, sagði
að samkomulagið kvæði á um að
ísraelar héldu brott frá 80% Hebron
innan tíu daga og færu frá mestum
hluta Vesturbakkans í þremur
áföngum. Fyrsta áfanganum ætti
að ljúka fyrir 7. mars.
■ ísraelar fá/35
Vilja
lækka
skatta -
og laun
Helsinki. Morgunblaðið.
NEFND á vegum finnsku ríkis-
stjórnarinnar birti í gær skýrslu
um helstu aðgerðir til þess að
draga úr atvinnuleysi í landinu á
næstu tveimur árum. Tillögur
nefndarinnar eru ólíkar hefð-
bundnum hugmyndum því nú er
lagt til að lækka laun og skatta
til þess að auka atvinnu.
Samkvæmt tillögunum ber að
lækka tekjuskatta þeirra sem eru
í neðstu skattþrepum og auka
þannig kaupmátt þeirra án þess
að koma þurfi til kauphækkana í
haust. Þá væri hægt að ráða fleiri
í vinnu og draga verulega úr at-
vinnuleysinu. /
Sauli Niinistö, fjármálaráðherra
og formaður Hægri flokksins, seg-
ist nokkuð jákvæður í garð tillög-
unnar. Hann neitar þó að gefa
kost á lægri sköttum áður en
kjarasamningar eru undirritaðir.
Tillögurnar þykja róttækar, en
hvorki vinnuveitendur né verka-
lýðsfélög hafa hingað til lagst
gegn þeim. Fulltrúar Alþýðusam-
bandsins (SAK) sögðu þegar í gær
að skattalækkanir þeirra lægst
launuðu væru skref í rétta átt.
Forstjóri vinnuveitendasambands-
ins, Johannes Koroma, sagðist
fagna því að stjórnvöld skuli loks-
ins taka á vandanum í alvöru.
Ríkisstjórn Paavos Lipponens
(jafn.) hefur lýst því yfir að at-
vinnuleysið verði minnkað um
helming á þessu kjörtímabili. Það
er nú hálfnað en atvinnuleysið
hefur minnkað mjög lítið.
Danadrottning
í hestvagni
um Kaup-
mannahöfn
MARGRÉT Danadrottning hélt
frá Amalienborg til miðborgar
Kaupmannahafnar i blíðskapar-
veðri í gær í tilefni af 25 ára
ríkisafmæli hennar. Mikill mann-
fjöldi fylgdist með og veifaði
danska fánanum þegar hún fór
um götur höfuðborgarinnar í
fylgd með hinum konunglega
verði á hestbaki með brugðin
bjúgsverð. Hér sést drottningin
koma að ráðhúsinu.
■ Ríkisafmæli/24
Reuter
Serbía
Sósíalist-
ar hyggj-
ast áfrýja
Belgrað. Reuter.
STJÓRNARANDSTÆÐINGAR í
Serbíu héldu áfram mótmælum í
gær. Tveir bandarískir öldungadeild-
arþingmenn tóku þátt í einni mót-
mælagöngu, en í annarri eltu stúd-
entar serbneska menntamálaráð-
herrann, Dragoslav Mladenovic, á
götu úti. Harðlínumaður úr röðum
serbneskra sósíalista sagði í gær að
reynt yrði að hnekkja þeim úrskurði
kjörstjómarinnar í Beigrað að stjórn-
arandstaðan hefði sigrað í borgar-
stjórnarkosningunum í nóvember.
Ljóst virðist að togstreitan í serbn-
eskum stjórnmálum er ekki liðin hjá
þótt stjórnarandstöðunni hafi að
hluta tekist að fá sitt fram með mikl-
um mótmælum frá því að stjómvöld
gerðu sigur hennar í kosningum í
14 bæjum og borgum ógildan.
Branislav Ivkovic, sem hefur verið
yfirmaður Sósíalistaflokks Slobodans
Milosevic forseta í Belgrað meðan á
mótmælunum hefur staðið og virðist
enn hafa áhrif þótt honum hafi verið
vikið úr þeirri stöðu á þriðjudag,
sagði að hann mundi beita öllum lög-
legum ráðum til að hnekkja sigri
stjórnarandstöðunnar. Kvaðst hann
ætla að áfrýja úrskurði kjörstjórnar-
innar í Belgrað.
Belgfarið
ekki yfir
Rússland
Chicago. Reuter.
BELGFARINN Steve Fossett hækk-
aði í gær flugið til þess að komast
í austlægari vinda svo hann geti flog-
ið suður fyrir Rússland.
Fossett neyddist til að grípa til
þessa ráðs þegar honum hafði ekki
borist svar stjórnvalda í Moskvu við
beiðni um leyfi til flugs yfir rúss-
neskt land í hnattflugstilrauninni.
Nú er gert ráð fyrir að belgfarið,
Andi einsemdar, fljúgi yfir Norður-
Afríku, írak, íran, Afganistan, Pa-
kistan, Kína, Mongólíu og Kóreu
áður en kemur út yfir Kyrrahaf.
Klukkan 17 í gær var Andi ein-
semdar 724 km austur af Bermúda.
■ Gestabókin hafði/24
Jeltsín áfram á sjúkrahúsi
vegna hættu á fylgikvillum
Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
er nú á batavegi eftir alvarlegt til-
felli af lungnabólgu, en verður þó
að liggja á sjúkrahúsi út vikuna
vegna hættu á fylgkikvillum, að
sögn Sergeis Míronovs, yfirlæknis í
Kreml.
„Ég mundi segja, að þetta væru
fremur alvarleg veikindi, sem vita-
skuld geta leitt til fylgikvilla af
ýmsum toga,“ sagði Míronov.
Andstæðingar Jeltsíns reyndu í
gær áfram að koma forsetanum frá
vegna veikinda hans. Kommúnistar
sögðu, að Jeltsín væri ófær um að
gegna skyldum forseta og stjórnar-
kreppa væri í Rússlandi.
Víktor Íljúkín, formaður öryggis-
málanefndar Dúmunnar, neðri deild-
ar rússneska þingsins, kvaðst ætla
að láta ganga til atkvæða um það á
morgun hvort Jeltsín ætti að fara frá
vegna heilsubrests, þótt lögfróðir
menn segðu, að ekki væri lagastoð
fyrir því.
Anatolí Tsjúbajs, skrifstofustjóri
Rússlandsforseta, sagði, að tilraunir
til að víkja Jeltsín frá væru „pólitísk-
ur gamanleikur“. í rússnesku stjórn-
arskránni segir ekki hvernig brugðist
skuli við hafí forseti ekki heilsu til
að sinna embættisstörfum.
Clinton býður Lebed
Rússneski stjómmálamaðurinn Alex-
ander Lebed sagði í gær, að honum
hefði verið boðið að vera við embættis-
töku Bills Clintons Bandaríkjaforseta
á mánudag.
Rússneska sjónvarpsstöðin NTV
hafði eftir Lebed, sem stefnir að því
að verða næsti forseti Rússlands, að
hann hefði þegið boðið en hann fór
í gær í fimm daga heimsókn til Þýska-
lands.