Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 22
22 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Verðbólga aldrei verið minni í ESB
Sex aðildarríki
undir 2%
VERÐBÓLGA var
2,2% að meðaltali
í ríkjum Evrópu-
sambandsins frá
nóvember 1995 til
nóvember 1996.
Þetta er minnsta
verðbólga í ríkjum
sambandsins allt
frá því Eurostat, hagstofa ESB, hóf
að safna verðbólgutölum fyrir 14
árum. I sex aðildarríkjum var verð-
bólgan undir 2% á þessu tímabili.
I fréttatilkynningu frá Eurostat
segir að frá nóvember 1994 til nóvem-
ber 1995, hafí meðaltalsverðbólgan
verið 3%. Ef litið er til helztu sam-
keppnislanda ESB, er verðbólga meiri
í Bandaríkjunum, eða 3%, en minni í
Japan, aðeins 0,1%.
Svíþjóð stóð sig
bezt ríkja ESB, en
þar lækkaði verð
raunar um 0,3% á
umræddu tímabili.
Næstminnsta verð-
bólgan var í Finn-
landi, 0,7%. Mest
verðbólga var í
Grikklandi,_7,7%. Spánn kom næstur
með 3,3%. I öllum öðrum aðildarríkj-
um ESB var verðbólga undir 3%.
Verðbólga á íslandi yfir
meðaltali ESB
Á íslandi var verðbólgan 2,5%, eða
0,3% yfir meðaltali ESB, samkvæmt
tölum Eurostat. í Noregi hækkaði
verðlag hins vegar um 1,8% frá nóv-
ember 1995 til nóvember síðastliðins.
*★★★*
EVRÓPA^
Reuter
SÉÐ yfir lóðina í miðborg Aþenu, þar sem talið er fullvíst að Lykeion, skóli Aristótelesar,
hafi verið á 4. öld f.Kr.
Skóli Aristótelesar
sagður fundínn
Aþenu. Reuter.
GRISKIR fomleifafræðingar telja
sig hafa fundið hið forna Lykeion;
skólann þar sem heimspekingurinn
Aristóteles og fleiri andans menn
kenndu ungum Aþenubúum. Að
sögn Evangelos Venizeios, menn-
ingarmálaráðherra Grikklands,
bendir allt til þess að skólinn hafi
staðið þar sem nú er bílastæði í
miðborginni, um tvo km frá Akró-
pólis-hæð.
„Þetta er einn merkasti fornleifa-
fundur síðari ára,“ sagði Yannis
Tzedakis, yfirmaður fornleifadeild-
ar menningarmálaráðunejrtisins
gríska. Aristóteles stofnaði Lykeion
árið 335 f.Kr. og dró hann nafn
sitt af tijálundinum þar sem hann
var staðsettur.
Fornleifafræðingar komu niður á
skóla Aristótelesar er þeir könnuðu
lóð þar sem staðið hefur til að reisa
listasafn. Komu þeir niður á íþrótta-
völl frá tímum Rómverja og undir
honum kom í Ijós stór hluti af glímu-
velli sem talið er að sé frá 4. öld
f.Kr., þegar Aristóteles kenndi og
skrifaði um stjórnmál, vísindi og
siðfræði og iagði grunninn að vest-
rænum hugsunarhætti.
Að sögn fornleifafræðinganna er
leikvangurinn vel varðveittur og við
nánari uppgröft komu í ljós ýmis
atriði sem þykja renna stoðum und-
ir að glímuleikvangurinn sé hiuti
af Lykeion og að hann hafi verið
notaður fram undir lok 4. aldar f.Kr.
„í fyrsta sinn hafa menn í höndum
sannanir fyrir staðsetningu Lykei-
ons og svar við einni stærstu stað-
fræðilegu spurningunum er varða
Aþenu til forna,“ sagði í skýrslu
menningarmálaráðuneytisins.
Óvíst hvað gert verður við
fornminjarnar
Aristóteles var uppi 384-322
f.Kr og var nemandi Platós. Hann
stofnaði skólann 335 f.Kr. eftir að
námi hans hjá Plató lauk og kenndi
m.a. Alexander hinum mikla og
gekk gjarnan um með nemendum
sínum í Lykeion. Var skólinn ætlað-
ur til þjálfunar hugar og líkama og
nemendumir voru úr fínustu fjöl-
skyldum þessa tíma.
Ekki verður tekin ákvörðun um
hvort að haldið verði áfram með
byggingu listasafnsins eins og áætl-
að var, fyrr en fomleifafræðingar
hafa skilað ítarlegri greinargerð um
málið. Vonast menningarmálayfir-
völd jafnvel til þess að hægt verði
að sameina þetta tvennt, svo að
fomleifamar verði hluti hins ný-
byggða safns^ og til sýnis innan
veggja þess. Áður en fornleifarnar
fundust höfðu íbúar í nágrenninu
mótmælt byggingu safnsins á þeim
forsendum að nóg væri af söfnum
í nágrenninu og nær væri að opna
lystigarð á svæðinu.
SVEPPASÝKING
Að fenginni reytis ín
Fyrirlestrar í Háskólabíói næstkomandi
laugardag 18. janúar kl. 13.
CANDIOA
SVEPPASÝKING
c«ti wiN m» m mA Ptc?
HdtrirMI P. KíMiiHW MÉKÍ!
. ö* Cx-Vtöv
• Alltaf eykst þekkingin frá þeim sem hafa læknast af Candida
sveppasýkingu.
• Hallgrímur Þ. Magnússon læknir ræöir um sveppasýkingar
í meltingarfærum og ræöir um æskilegt mataræöi fyrir
þolendur Candida sveppasýkingar.
• Guðrún Bergmann leiðbeinandi og þolandi ræðir
um sveppasýkingu í innri og ytri kynfærum kvenna.
• Áheyrendur fá tækifæri á að spyrja fyrirlesara.
• Heilsuhúsið kynnir og selur á kynningarverði fæðubótaefni
náttúrunnar sem hafa reynst vel í baráttunni við Candida
sveppasýkinguna.
• Bókin Candida sveppasýking seld á staðnum á sérstöku
tilboðsverði.
Aðgöngumiðar seldir við innganginn
Eftirmaður Móður
Teresu valinn
Nýju Delhi. The Daily Telegraph.
MOÐIR Teresa ætlar að láta af
störfum sem stjórnandi hins róm-
verks-kaþólska góðgerðartrú-
boðs, reglunnar sem hún stofnaði
fyrir 47 árum. Ástæðan er versn-
andi heilsa Móður Teresu, að sögn
aðstoðarkonu hennar, og hefur
hún ihugað þetta um nokkurt
skeið, enda orðin 86 ára og farin
að heilsu.
Móðir Teresa hefur leg-
ið rúmföst að undanförnu.
Undir lok síðasta árs var
óttast um líf hennar þar
sem hún er veil fyrir
hjarta og fékk lungna-
bólgu. Nú þjáist hún hins
vegar af miklum verkjum
vegna beingisnunar og
gigtar.
Að sögn nunna í höfuð-
stöðvum reglu Móður Teresu
munu æðstu nunnurnar í reglunni
koma saman í næstu viku til að
ræða um stöðu reglunnar en 2.
febrúar á að kjósa eftirmann Móð-
ur Teresu. Um 5.000 nunnur regl-
unnar, sem starfa í 450 trúboðum
víða um heim, munu taka þátt í
kjörinu en erkibiskupinn í Kalk-
útta á Indlandi, þar sem höfuð-
stöðvar reglunnar eru, mun hafa
umsjón með kjörinu. Páfagarður
mun að endingu staðfesta kjörið.
Þrátt fyrir að í lögum reglunnar
sé kveðið á um að leiðtogi hennar
sé kjörinn á sex ára fresti, hefur
Móðir Teresa verið óvefengjanleg-
ur leiðtogi frá upphafi. Árið 1990,
skömmu eftir að hún fékk hjarta-
áfall sem dró hana nærri því til
dauða, voru haldnar kosningar um
eftirmann en hún hafði gefið til
kynna að hún vildi láta af störfum.
Eina atkvæðið gegn móður
Teresu var hennar eigið
og varð að fá páfann til
að sannfæra hana um að
halda áfram í forsæti regl-
unnar.
Fjórar koma til greina
Nunnurnar sem helst
eru taldar koma til greina
eiga allar sæti í stjórnar-
ráði reglunnar. Þær eru
systir Frederica af Möltu, næst-
ráðandi reglunnar, systir Joseph-
Michell, fyrrverandi einkaritari
Móður Teresu, systir Monica og
systir Priscilla Lewis. Talið er að
sú síðastnefnda sé líklegasti eftir-
maður Móður Teresu en hún er
frá Suður-Indlandi og hefur verið
talsmaður reglunnar um margra
ára skeið. Systir Priscilla er jafn-
framt yngst fjórmenninganna en
hefur starfað í Bandaríkjunum í
tvo áratugi og þekkir vel til al-
þjóðlegs starfs reglunnar.
Móðir Teresa