Morgunblaðið - 16.01.1997, Page 24

Morgunblaðið - 16.01.1997, Page 24
24 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Munu ekki myrða gísla Lima. Reuter. LIÐSMENN skæruliðasamtak- anna Tupac Amaru, sem hafa 74 gísla í haldi í bústað jap- anska sendiherrans í Lima, höf- uðborg Perú, lýstu yfir því í gær að þeir hefðu ekki í hyggju að myrða fanga sína. „Við höfum ekki í huga að framkvæma aftökur eða setja úrslitakosti," sagði einn skærul- iðanna, sennilega leiðtogi þeirra, Nestor Cerpa Cartolini, í talstöðvarsamtali, sem frétta- stofa Reuters fylgdist með. Fallast á tillögur um sérstaka nefnd Maðurinn sagði hins vegar einnig að eftir því sem neyðar- ástandið drægist á langinn yrði líklegra að því lyktaði með átök- um. Hann kvað skæruliðana umgangast gíslana „í samræmi við virðingu þeirra". Sjónvarpsfréttastofan CNN greindi frá því að skæruliðamir hefðu í gær fallist á tillögu stjóm- ar Perú um að sérstök nefnd skipuð fulltrúum Rauða krossins, Páfagarðs, stjómar Guatemala og ónefnds Evrópuríkis mundi hafa eftirlit með viðræðum stjómar Perú og þeirra um að binda enda á gíslamálið. Stjóm Perú hafði lagt til að fulltrúar Rauða krossins og Páfa- garðs fylgdust með, en skærulið- ar vildu bæta við fulltrúum Gu- atemala og einhvers Evrópuríkis. Þetta var fyrsta yfirlýsing skæruliða um samninga frá því að viðræður fóru út um þúfur á sunnudag vegna þess að skærul- iðar kröfðust þess að þær fjölluðu í meginatriðum um lausn §ögur hundmð samheija úr perúskum fangelsum. Forseti Perús, Al- berto Fujimori, kveðst ekki taka lausn þeirra í mál. Mánuður liðinn Skæruliðamir réðust inn í bústað sendiherrans 17. des- ember og tóku þá um 500 gísla, en hafa síðan sleppt rúmiega 400. Reuter MARGRÉT drottning gengur fram hjá heiðursverði við komuna í Kristjánsborgarhöll í fyrradag. Ríkisafmæli í himnesku veðri Kaupmannahöfn. Morgunblaðið. ÞAÐ viðraði vel í Kaupmannahöfn til vagnferða í gær, svo ferð Mar- grétar Þórhildar drottningar og Hinriks prins í hestvagni frá Amalienborgarhöll, um Strikið og að Ráðhúsinu, tókst hið besta. Tugþúsundir borgarbúa stóðu alls staðar meðfram leiðinni auk þess sem gífurlegur fjöldi hyllti drottn- inguna þegar hún kom fram á hallar- og Ráðhússsvalirnar. Allt eru þetta hefðbundin atriði, þegar konungsfjölskyldan fagnar stórvið- burðum eins og nú á aldarfjórð- ungs ríkisafmæli drottningar. Pjölmiðlar eru stútfullir af efni í tilefni tímamótanna og aðeins fjár- málablaðinu Bersen virðist ofbjóða. í gær mætti drottningin í þingið til að taka á móti árnaðaróskum þingheims og taka við gjöf hans, sem var forláta skatthol úr hnotu. Drottningin hafði á orði er hún tók á móti gjöfinni að þegar hún seinna meir opnaði skúffur skattholsins myndi hún velta því fyrir sér hvaða hugsanir þingmenn hefðu nú sett í þær. Dæmigerð drottningarum- mæli, því drottningin er fljót að svara hnyttilega fyrir sig. í Ráðhúsinu snæddi hún há- degisverð í boði borgarstjórnar og þáði þar gjafir, silfurfat og tvo bikara með einkennisstöfum drottningar og prinsins. Síðdegis tók hún á móti fulltrúum erlendra ríkja og fleiri gestum en um kvöld- ið hafði hún hátíðardagskrá í Kon- unglega leikhúsinu fyrir boðsgesti. Allir þjóðhöfðingjar Norðurlanda taka þátt í afmælisdagskránni og þá einnig íslensku forsetahjónin. Bersen finnst nóg um tilstandið Dönum virðist láta drottningar- erillinn vel enda nýtur konungsfjöl- skyldan gífurlega vinsælda jafnt ungra sem aldinna Dana og því margir negldir við sjónvarpskjáinn þessa dagana. Aðeins dagblaðinu Bersen virðist ofbjóða tilstandið en i leiðara þess sagði að tíð hátíða- höld konungsfjölskyldunnar og yfir- þyrmandi fjölmiðlaathygii, sem þau hlytu, felldi gengi krúnunnar og drægi af henni geislabauginn. S-Kóreustjórn segir N-Kóreu róa undir Verkföllin bæld nið- ur fljót- lega? Seoul. Reuter. ÁTÖK voru með verkfallsmönnum og óeirðalögreglu í Suður-Kóreu í gær og yfírvöld lýstu yfir, að stjórnvöld í Norður-Kóreu reru undir með verkalýðsfélögunum. Þykir það benda til, að látið verði til skarar skríða gegn þeim fljót- lega. Gerðir tveir kostir Lögreglan beitti táragasi til að koma í veg fyrir göngu verkfalls- manna að Myongdong-dómkirkj- unni í Seoul en þar hafa nokkrir verkalýðsleiðtogar leitað hælis. S-kóreskir saksóknarar lýstu jafn- framt yfír, að leiðtogarnir ættu tveggja kosta völ, annaðhvort að gefa sig fram eða vera handteknir. Verkalýðsfélögin höfðu boðað til allsheijarverkfalls í landinu í fyrra- dag og í gær en svo virðist sem þátttakan hafí ekki verið mikil. Var lítil sem engin truflun á sam- göngum og ljóst er, að ekki er órofa samstaða með verkamönn- um. Hótað brottrekstri Choi Byung-kook, einn af ríkis- saksóknurunum í S-Kóreu, sagði í gær á fréttamannafundi, að N- Kóreustjóm kynti undir verkföllun- um. Telja fréttaskýrendur þá yfír- lýsingu vera fyrirboða þess, að verkföllin verði brátt brotin á bak aftur. Marcello Malentacchi, formaður Alþjóðasambands málmiðnaðar- manna, sagði í Seoul í gær, að sér og félögum sínum hefði verið hótað brottrekstri ef þeir hefðu eitthvert samband við leiðtoga verkfalls- manna í landinu. Reuter Hált í olíunni Gestabók belgfarans hafði ekki undan BELGFLUG FOSSETTS Bandaríski auðkýfingurinn Steve Fossett var í gær yfir reginhafi í tilraun sinni til þess að svífa fyrstur umhverfis jörðina í loftbelg. Ferðin hefur gengið að óskum og belgfarið, Andi einsemdar, flogið f 5,5 til 7,3 km hæð yfir sjó. Klukkan 12:30 í gær að íslenskum tima var belgfarið statt um 550 km austsuðaustur af Bermúdaeyjum Þriðjudag, 04:46 Flugtak trá Busch- leikvangi í St. Louis 08:07 Flýgurhjá Louisville, Kentucky SLÆMT veður kom í gær í veg fyrir tilraunir til að stöðva olíu- leka úr rússneska olíuskipinu, sem sökk við Norður-Japan. Athuganir á flakinu hafa vakið grun um, að sprenging hafi valdið skipsskaðanum. Hefur olían valdið gífurlegu tjóni og spillt einum auðugustu fisk- og skelfiskmiðum við landið. Hafa íbúamir á þessum slóðum reynt að þrifa upp olíuna á ströndinni og oft hefur þeim orðið hált á henni eins og þessari konu, sem er að brölta á fætur eftir eitt fallið. BELGFLUG bandaríska auðkýf- ingsins Steves Fossetts gekk að óskum í gær, hálfum öðrum sólar- hring eftir að hann lagði af stað frá St. Louis í Bandaríkjunum. Freistar hann þess að verða fyrst- ur til þess að svífa í loftbelg um- hverfis jörðina viðstöðulaust. Talsmenn stjórnstöðvar ferðar- innar sögðu að ferð belgfarsins, Anda einsemdar, miðaði eins og gert hefði verið ráð fyrir. Því mið- aði áfram um eitthundrað kíló- metra á klukkustund. Til þessa hefði allt gengið snurðulaust ef frá væri talin smávægileg bilun í hit- ara, sem Fossett hefði fljótlega tekist að laga. Um hádegisbil í gær var belgfarið statt 295 sjómílur, eða 550 kílómetra, austsuðaustur af Bermúda. Flughæð þess er 18-24 þúsund fet, eða nokkru lægri en flughæð tveggja belgfara, sem gerðu misheppnaða hnattflugstil- raun í síðustu viku. Gert var ráð fyrir að flugferill Anda einsemdar lægi til Bret- lands, sveigði þar lítillega til suð- austurs yfir Evrópu allt til Úkraínu en þar taki belgfarið austlæga stefnu og flygi yfir Rússland, Kaz- akhstan, Kína og suðurhluta Jap- ans áður en það færi yfir Kyrra- haf. í gær neituðu Rússar því hins vegar um heimild til yfirflugs og varð Fossett að freista þess að komast talsvert sunnar en hann ætlaði. Hægt hefur verið að skrifa í gestabók Fossetts á alnetinu (intemet) en vegna mikillar ásókn- ar hefur tölva í móðurstöð belg- flugsins ekki haft undan að taka á móti kveðjum til ofurhugans. Sömuleiðis hefur verið hægt að senda honum spumingar, sem hann ætlaði að nota dauðan tíma um borð til að svara, en á netsíðu Anda einsemdar var tekið fram í gær, að Fossett gæti ekki lengur svarað öllum þeim aragrúa fyrir- spurna sem bæmst því hann hefði svo margt annað að sýsla um borð í belgfarinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.