Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 39

Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 39 Röng staðsetning, hæpin fjárfesting Sigríður Jóhannesdóttir SJÁLFSAGT hefur ekki farið framhjá nein- um að ríkissjórnin hyggst veita heimild tii þess að á Grundar- tanga verði byggt álver sem árlega geti fram- leitt allt að 180 tonnum af fljótandi áli. Til þessara frarn- kvæmda ásamt nauð- synlegum orkumann- virkjun er fyrirhugað að veija u.þ.b. 38 millj- örðum króna. Til þess að hindra að slík fjár- festing hafi í för með sér þenslu er ætlunin að skera niður opinber framlög tii framkvæmda víða um land. Einhverjum kynni nú að detta í hug að hætta sé á því að orkufram- kvæmdir hér sunnanlands, ásamt áðurnefndum stóriðjuframkvæmd- um í bland við niðurskurð á fram- kvæmdum úti á landi, kunni að valda vaxandi fólksflutningum til sv- hornsins en ríkisstjórnin mun af ai- kunnri ráðsnilld sinni stemma stigu við því með því að flytja Landmæl- ingar ríkisins upp á Akranes, því eins og kunnugt er skirrast ráðherr- ar ekki við að taka óvinsæiar ákvarð- anir séu þær í þágu almennings. Þess vegna kemur nokkuð á óvart að íslensk stjórnvöld telja sig ekki þess umkomin að gera hliðstæðar kröfur um mengunarvarnir og t.d. Norðmenn gera. Þeir setja mörkin um losun brennisteinsoxíðs við 2 kg á hvert áltonn þar sem þeir gera kröfur um vothreinsun en hér er talað um þurrhreinsibúnað þar sem miðað er við 21 kg á hvert áltonn. Við vothreinsun næst líka mun betri Við höfum lagt áherslu á, segir Sigríður J6- hannesdóttir, að kynna íslenskar landbúnaðar- vörur sem einstæðar vegna hreinleika. árangur við hreinsun á flúoríði en á Grundartanga er talað um helmingi rýmri mörk en Norðmenn gera við ný starfsleyfi. Umhverfisráðherra gaf þá skýr- ingu að í Straumsvík væri líklega öllu heppilegra að hafa þurrhreinsi- búnað því þar dreifðist mengun á haf út fyrir ýmsum vindum meðan vothreinsunin skilaði menguninni í ræsi rétt við verksmiðjuvegginn. Þessi skýring kann að vera rétt hvað varðar Straumsvík en er út í hött þegar talað er um Grundartanga sem er alls ekki fyrir opnu hafi. Og þá er spurningin sem menn kröfðust svara við á mjög fjölmenn- um fundi á Heiðarbergi í Leirársveit sl. fimmtudagskvöld. Hvers vegna í ósköpunum hefur ríkisstjórnin ákveðið að setja niður á þessum stað álbræðslu án þess að miðað sé við bestu fáanlegu mengunarvarnir, án þess að leitað sé álits Búnaðarsam- bands Borgarfjarðar, Bændasam- takanna eða Rannsóknarstofnunar iandbúnaðarins eins og venjan mun hafa verið þegar slíkar staðsetningar hafa verið ákveðnar? í nágrannasveitum Grundartanga háttar þannig til að þar er sumar- húsabyggð mikil, þar er umtalsverð skógrækt, þar er blómlegur landbún- aður og ekki síst hafa sumir bændur þar fengið vottun um lífræna ræktun og fleiri hyggjast snúa sér að þeim markaði sem fer.ört vaxandi í hinum vestræna heimi og gefur betra verð fyrir afurðir en venjubundinn land- búnaður. Frá Hollustuvernd ríkisins koma þau skilaboð að allt sé þetta innan „holl- ustumarka" og því „ásættanlegt". Frá Finni Ingólfssyni, iðnaðarráð- herra hæstvirtum, komu hins vegar þau skilaboð að þar sem á staðnum sé járnblendi- verksmiðja sem mengi hvort eð er, sé svo sem í lagi að setja niður ál- ver að auki, það sjái ekki á svörtu. Á undanförnum árum höfum við lagt mikla áherslu á að kynna ísland sem hreint land, ferðamenn hvaðanæva að hafa lagt leið sína hingað til að komast í tæri við ósnortna náttúru. Við höfum lagt áherslu á að kynna íslenskar landbúnaðarvör- ur sem einstæðar vegna hreinleika þeirrar náttúru sem þær eru fram- leiddar í. Við höfum sem sé verið að selja ímynd og bara með góðum árangri. Hugsanleg mengunaráhrif af staðsetningu stóriðju eru vissu- lega til staðar en stóriðjuver í röðum í fögrum firði þar sem í næsta ná- grenni eru einhver blómlegustu land- búnaðarhéruð landsins gefur land búnaði og ferðaþjónustu á svæðinu neikvæða ímynd og það er vissulegí grafalvarlegt mál. Jafnvel þótt svo blessunarlegi takist til að hinir vammlausustt vísindamenn geti með hreinni sam- visku vottað það að jarðargróð Hvalfjarðar muni lifa af a.m.k. 181 tonn á ári af áloxíðryki auk 111 tonna af flúoríði hvers virði verðui þá ímynd óspilltrar náttúru á þess- um stað? Er trúverðug vottun um lífræna ræktun við slíkar aðstæður? Getur sumarhúsabyggð í nágrenni við ál- ver treyst á óspillt neysluvatn næstu áratugi? Er ekki verið að spilla samkeppn- ismöguleikum í héraðinu með fram- ferði af þessu tagi? Gróði okkar af álveri felst fyrst og fremst í orku- sölu til þess en þar sem við höfum bundið raforkuverð við heimsmark- aðsverð á áli dylst engum að hér er um áhættusama fjárfestingu að ræða. Það er líklegt að vaxtarbrodd- ur íslensks atvinnulífs sé á sviði ferðaþjónustu og framleiðslu ómeng- aðra afurða. í þeim atvinnugreinum skiptir öllu að skapa og varðveita ímynd óspilltrar náttúru hér á ís- landi. Fyrirhugaðar framkvæmdir á Grundartanga eru tilræði við þá ímynd. Höfundur er alþingismaður. UTSALA SPARTA Nýtt kortatímabil Kuldalatnaður, skíðáfatnaður. leíkfimifatnaður. skór og aðrar íþrótta\örur i mikiu úrvali á aila ljölsk\ Iduna á l'rábæru verði. - f<, ■0*. r ölte i • ÚLPA SEWARDt ' Litir: Dökkblátt og rautt nr. 8, 10, 12, 14. Verð 4.490,- (áður 5.990) Nr. XS til XXL BARNAKULDAGALLAR úr hinu níðsterka Beawer-nylonefni. Nr. 3, 4, 5, 6, 7, 8 og 10, Verð 5.490 og 5.990. NEBRASKA VETRARJAKKI Vatns- og vindheldur. Litir: Dökkblátt, fjólublátt, grænt. Nr. 2 til 14 verð 2.990. Nr. S til XXL verð 3.990. ÍÞRÓTTAGALLAR í miklu úrvali. Nr. 1 til 14 verð 2.990 Nr. XS til XXXL verð 3.990 INDOOR COURT Innanhússskór. nr. 28 til 46. Verð 1.990 NAPPA DÚNMJÚKIR LEÐURSKÓR Tilvaldir í eróbikk, líkamsrækt eða á götum. Nr. 36 til 42. Verð 2.990. Mjög gott úrval af íþróttaskóm: hlaupaskór, körfuboltaskór, fótboltaskór. Bómullarfatnaður á góðu verði Buxur 1590 - Háskólabolir 1.790 Hettupeysur 1.990 - renndar 2.490. 10% afsláttur af öðruni viirum en útsöiuviirum Við rúllum boltanum til þín. Nú er tækifærið til að gera góð kaup. Opið laugardaga til kl. 16. SPORTVÖRUVERSLUNIN SPARTA Laugavegi 49 • 101 Reykjavík • sími 551 2024 Póstsendum. Athugið simgreiðslur Visa og Euro. avaticm mademniscUe IJTSALAN er hafín lO —% afsláttur AtH. 25% afsláttui* af KS. drögtum í stærð 3<» 40% afsláttur af hálfsíðum kápum Vorlínan frá t IVI og KS er komin Laugavegi 97 S: 551 7015 Verð frá 2.931 Hvítir og svartir - stærðir frá 28 - á meðan birgðir endast _ _ Reióhjólaverslunin — ORNINNF" SKEIFUNNI11, SlMI 588-9890 Skri fstof utækn i Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrif- stofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefjandi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru: Handfært bókhald Tölvugrunnur Ritvinnsla Töflureiknir Verslunarreikningur Gagnagrunnur Mannleg samskipti Tölvubókhald ií Lokaverkefni STARFSMENNTUN fjárfesting til framtíðar „Ég hafði samband við Tölvuskóla fslands og ætlaði að fá undirstöðu í bókhaldi og var mér bent á skrif- stofutækninámið. Eftir að hafa setið þetta nám þá tel ég mig mun hæfarí starfskraft en áður og nú get ég nýtt mér þá kosti, sem tölvuvinnslan hefur upþ á að bjóða. Ég mæli eindregið með þessu námi. “ Öll námsgögn innifalin Tölvuskóli íslands Höfðabakka 9 • Sími 567 14 66 Ólafur Benediktsson, starfsmaður Glófaxa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.