Morgunblaðið - 16.01.1997, Page 45

Morgunblaðið - 16.01.1997, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 45 _____MIWMIWGAR____ DANÍEL FRANKLÍN GÍSLASON ■4- Daníel Franklín Gíslason • fæddist í Reykjavík 25. apríl 1909. Hann lést á Landspítalan- um 5. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Neskirkju 14. janúar. Kveðja frá Bandalagi íslenskra skáta Daníel Gíslason er farinn heim og löngum skátaferli er lokið. Hann gekk í Skátafélagið Væringja 22. febrúar árið 1925 fyrir tilstuðlan Jóns Oddgeirs Jónssonar. Samleið Daníels og skátahreyfingarinnar spannar því 72 ár af þeim 85 sem hún hefur starfað á íslandi. Áhugi Daníels og dugnaður, þýtt viðmót og myndugleiki, leiddu óhjákvæmi- lega til þess að hann var snemma kallaður til forystu og gegndi fjöl- mörgum trúnaðarstörfum á löngum skátaferli. Sinnti bæði stjórnar- störfum og fræddi skátaforingja á námskeiðum auk þess sem honum var einkar lagið að stjórna varðeld- um og samkomum. Hann var í fremstu röð skátaforingja í Reykja- vík á fjórða áratugnum og sat í stjóm Skátafélagsins Væringja og var aðstoðarfélagsforingi þess er félagið sameinaðist Skátafélaginu Örnum og stofnað var Skátafélag Reykjavíkur. Stjómaði Daníel stofnfundi Skátafélags Reykjavíkur og var framarlega í forystusveit félagsins uns hann fór til starfa vestur um haf á styijaldarárunum en skátar á skátaskólanum að Úlf- ljótsvatni ortu um hann saknaðar- Ijóð sem enn er sungið. Á Löngu- eyju í New York vakti þessi ís- lenski skátaforingi athygli og starf- aði nokkuð með skátum þar og hlaut viðurkenningu fyrir. Það er athyglisvert að forsíðu dagblaðsins Long Island Star 12. febrúar 1943, mitt í stórfréttum heimsstyijaldar- innar, prýðir mynd af tveimur ötul- um skátaforingjum frá Reykjavík, þeim Daníel og Hilmari Fenger, sem einnig er farinn heim. Daníel Gíslason hélt alla ævi mikilli tryggð við skátahreyfínguna, og innti af hendi mörg þarfíeg verk, þótt hann sæti ekki í stjórnum og ráðum hin síðari ár. Störf þessi vora og metin að verðleikum. Skátafélag Reykjavíkur gerði hann að heiðursfélaga sínum árið 1959 og hann var sæmdur heiðursmerkj- um Bandalags íslenskra skáta og Skátafélags Reykjavíkur. Daníel Gíslason gerðist félagi í samtökum eldri skáta, St. Georgs gildinu í Reykjavík. Daníel sótti jafnan almennar samkomur og skátamót svo lengi sem heilsan leyfði, og hugurinn var ævinlega hjá ungum skátum sem vora að þjálfa sig og læra af skáta- störfum. Þá mátti jafnan heyra hvatningarorð hans og gamanyrði er hann fylgdist með þeim af áhuga. Daníel Gíslason var einn þeirra manna sem tóku af mikilli alvöru við þeim siðaboðskap sem skátalög- in setja og lagði sig eftir að hafa þau að leiðarljósi á langri ævi. Hann var traustur maður og heil- steyptur sem ekki mátti vamm sitt vita. Nú er Daníel farinn heim, ís- lenskir skátar þakka honum að leið- arlokum, biðja honum blessunar guðs á ókunnum stigum og flytja ástvinum hans einlægar samúðar- kveðjur. Ólafur Ásgeirsson. ÞÓRÐUR EINARSSON ■4“ Þórður Einarsson fæddist á * Siglunesi á Barðaströnd 25. október 1921. Hann lést á Land- spítalanum 24. nóvember síð- astliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 3. desember. Nú leggur þú á hinn ljósa vog, sem liggur á milli stranda. Þér verður fagnað af vinum, þar sem verðir himnanna standa, sem alkomnum bróður, úr útlegð, heim af eyðimörk regin-sanda. (Kristján frá Djúpalæk) Þegar Júlíus vinur minn hringdi í mig seint í nóvember og sagði að faðir sinn væri látinn eftir löng veikindi, þá varð mér á, eins og mörgum, að líta til baka í skjóðu minninganna. Og það er svo skrýtið að það sem einn kýs að hylja í minningunni kýs annar að geyma í hjarta sínu. Fyrir mér stendur efst í minning- unni um Þórð ferðalag sem ég, Júlíus, sonur hans, og sameiginleg- ur kunningi okkar fórum í þrettán ára gamlir. Þórður keyrði okkur austur fyrir fjall, en þar sem gest- gjafi okkar slasaðist að kvöldi komudags okkar varð Þórður að sækja okkur strax daginn eftir. Þessi ófyriséða stytting varð okkur stráklingunum eðlilega svolítið erf- ið, ofan á það bættust fleiri óhöpp sem Þórður greiddi úr. Hann hafði svo einstakt lag á að gera flókna hluti einfalda. Við töluðum um það strákarnir lengi vel á eftir að Þórð- ur hefði staðið sig þarna sem sann- kallaður forystuflekkur. Hann var okkur stoð og stytta í erfiðleikum okkar, fyrirmynd. Önnur minning sem tengd er Þórði og eftirlifandi eiginkonu hans, Maríu, er heimili þeirra í Sigtúni 35. Þórður og María vora af þeirri kynslóð sem gjarnan bjó sér til þægilegt sveitaheimili í miðri borg, þar sem íslenskir siðir vora hafðir í heiðri á hátíðisdögum og hvers- dags var og er alltaf heitt á könn- unni. Að Þórði liðnum er erfítt að ímynda sér annað þeirra hjóna án hins. Þórður var ráðagóður þegar leit- að var til hans, hnyttinn og orðhag- ur og fljótur að komast að kjama málsins. Til ungdómsins skilaði Þórður sér með athygli, áhuga og skilningsríkri hlustun og á tungu hanslá alltaf hvatning inn í framtíð- ina. Ég var heimilisvinur, en í starfí og út á við vissi ég að Þórður var samviskusamur og skyldurækinn. Einkum verður persóna hans minn- isstæð og áhrifarík fyrir traustið sem hann vakti og framganga öll. Það var ekki fyrr en hin síðari ár þegar heimsóknir mínar urðu strjálli, að Þórður sýndi á sér nýjar hliðar. M.a. að hann var prýðisgóð- ur hagyrðingur. En er það ekki ein- mitt óforgengilegur sannleikur að þeir sem ná að blómstra með alla flóru litanna í sínum skapgerðar- þroska og hafa kjark og eldmóð til athafna, hafa alltaf gull að gefa undir þeim samræmda boga, ekki endilega það sem sagt er eða gefíð beint, heldur er ég meir að tala um að hafa hlustun og þolinmæði og vitað sé af styrkri hendi þegar eitt- hvað bjátar á. Að því leytinu held ég að Þórður hafi kannast við ábyrgð sína bæði í stóra og smáu og verið þannig bæði mér og öðram fyrirmynd í hans forlagastríði hörðu. En þín við minnumst með þökk í hug sem þess, er við líkjast viljum. Og fetum veginn í fótspor þín, hve fátt og smátt sem við skiljum. (Kristján frá Djúpalæk) Maríu Júlíusdóttur, börnum og barnabörnum og öðram aðstand- endum votta ég mína dýpstu samúð. Pétur Þormar. TG-702 PM Þrekhjól m. púlsmæli * Tölvu-púlsmælir * Newton þyngdarstillir * Breitt, mjúkt sæti Verð 26.306. Nú 18.414. Opið laugardaga kl. 10-14 Póstsendum um land allt E .. Reidhjólaverslunin _ ORNINNP' SKEIFUNNI 11, SÍMI 588 9890. TM-302 Þrekstigi Deluxe ★ Tölvumælir ★ Mjúkt, stórt, „stýri ★ Mjög stöðugur Verð 26.306. Nú 18.414. TC-1828 Klifurstigi Deluxe ★ Tölvumælir ★ Stillanleg hæð fyrir hendur ★ Mjög stöðugur Verð 31.460. Nú 22.022. JANUARTILBOÐ TONIC þrektæki

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.