Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 50

Morgunblaðið - 16.01.1997, Síða 50
50 FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ t Elskulegur eiginmaður minn, faðir okk- ar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR BORGÞÓR MAGNÚSSON húsasmíðameistari, Tunguvegi 23, Reykjavik, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 17. janúar kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á að láta Krabbameinsfélagið, Styrktarfélag vangefinna eða aðrar líknarstofnanir njóta þess. Fyrir hönd aðstandenda, Sesselja Ásgeirsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Ásmundur R. Richardsson, Ásgeir Sigurðsson, Gabriela E. Pitterl, Magnús Sigurðsson, Valborg H. Gestsdóttir, Ingunn Sigurðardóttir, Þorkell Ágústsson, Helga Sigurðardóttir, Jóhannes Hr. Sfmonarson og barnabörn. t Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, DÓRA BJARNADÓTTIR frá Bæjarstæði, er lést á Sjúkrahúsi Akraness 11. janú- ar, verður jarðsungin frá Akraneskirkju föstudaginn 17. janúar kl. 14.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakk- aðir, en þeim, sem vildu minnast henn- ar, er bent á dvalarheimilið Höfða, Akranesi. Dóra Lfndal Hjartardóttir, Marteinn Njálsson, Karen Lfndal Marteinsdóttir, Njáll Lfndal Marteinsson, Ásdís M. Rafnsdóttir, Ómar Lfndal Marteinsson, Inga Marfa Halldórsdóttir. t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, HARALDUR Þ. JÓHANNESSON fyrrv. lögregluþjónn, Gunnarsbraut 36, Reykjavfk, sem lést föstudaginn 10. janúar sl., verð- ur jarðsunginn frá Frfkirkjunni í Reykja- vík föstudaginn 17. janúar kl. 13.30. Jóhanna Haraldsdóttir, Málfríður Haraldsdóttir, MargrímurG. Haraldsson og fjölskyldur. t ÞURÍÐUR GUÐMUNDSDÓTTIR frá Brekkum 1 f Mýrdal, verður jarðsungin frá Skeiðflatarkirkju laugardaginn 18. janúar kl. 14.00. Fyrir hönd ættingja og vina, Hrönn Brandsdóttir, Guðjón Þorsteinsson. t Innilegar þakkir sendum viö öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts PÉTURS MAGNÚSSONAR. Sigurveig Hauksdóttir, Ásta Ingibjörg Pétursdóttir, Helgi Hjálmtýsson, Sigurveig Þórhallsdóttir, Björn Magnússon, Andrós Magnússon. Lokað Skrifstofur og afgreiðsla Fasteignamats ríkisins, Borgartúni 21, Reykjavík, verða lokaðar föstudag- inn 17. janúar frá kl. 13.00 vegna jarðarfarar SIGURÐAR B. MAGNÚSSONAR, matsfulltrúa. JÓSAFAT HINRIKSSON + Jósafat Hinriks- son fæddist i Reykjavik 21. júní 1924. Hann lést á heimili sinu 7. jan- úar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 14. janúar. Það var í sumarleyfi á eyjunni Mallorca, Spáni, fyrir sennilega aldarfjórðungi sem við hjónin kynntumst Jósafat Hinrikssyni og konu hans Ólöfu fyrst. Þau voru þar í sumarleyfi líkt og við. Með þeim í för voru þrír ungir synir þeirra, hressir og kátir eins og vera ber í sumarleyfi á erlendri grund. Síðar lágu leiðir okkar sam- an eftir að ég hóf störf á Tækni- deild Fiskifélags íslands og þá á sjávarútvegssýningum, fyrst í Þrándheimi í Noregi, sennilega árið 1978, en Jósafat var með bás á sýningunni þar sem hann sýndi hlera og annan búnað til fiskveiða. Það var alltaf mjög gaman að koma á básinn til Jósafats vegna þess að þar var yfirleitt margt um manninn og Jósafat óspar að kynna fyrir væntanlegum viðskiptavinum fram- leiðslu sína. Sú kynning fór ekki fram í hálfkveðnum vísum heldur á tungumáli seem allir skildu þar sem gæði vörunnar voru tíunduð og þess getið undir lokin hvað fyrir- tækið framleiddi mikið á ári sem var alltaf gefið upp í tonnum en ekki í fjölda hlera og til hve margra landa hann seldi framleiðsluna. En á fáum árum breyttist Vélaverk- stæði Jósafats Hinrikssonar úr því að komast fyrir í bílskúr við heim- ili hans í það sem það er í dag, í nokkurskonar verksmiðju sem hef- ur sérhæft sig í framleiðslu á bún- aði til togveiða og lætur sér ekki nægja ítök í innlenda markaðinum en hefur haslað sér völl á erlendum mörkuðum og selur nú stóran hluta framleiðslunnar úr landi. Jósafat var mikill eldhugi, svo mikill að honum nægði ekki að reka vélsmiðjuna með öllum þeim önnum sem því fylgja heldur þurfti hann að hafa fleiri jám í eldinum. Varð- veisla gamalla muna sem tengjast sjávarútvegi var Jósafat hugleikin og hafði hann safnað að sér í gegn- um árin gömlum tólum og tækjum sem tengjast greininni. Á árinu 1986 var safnið síðan opnað, Sjóminja- og smiðjusafn Jósafats Hinrikssonar. Þangað hefí ég margoft komið í tengslum við afmæli og opinber boð sem þar hafa verið haldin. Nefna má að þegar norrænir vélstjórar héldu þing sitt hér á landi á árinu 1995 var safnið heimsótt og það tók all- nokkra stund að útskýra það fyrir gestunum að safnið væri í einka- eigu, nyti engra opinberra styrkja. Og ég skal játa að það var með dálitlu stolti sem ég sagði fulltrúum norræna vélstjóra frá því að eigand- inn væri lærður vélstjóri og hefði líkt og margir íslenskir vélstjórar hafið sinn feril á fiskiskipum, harðnað þar en síðar haslað sér völl í landi. Um safnið er hægt að hafa mörg orð, en öll góð. Það sem mér hef- ur fundist skemmtileg- ast að skoða er ná- kvæm eftirlíking af eldsmiðjunni sem Hin- rik Hjaltason faðir Jósafats reisti á Norð- fírði á árinu 1926 en þar starfaði Jósafat með föður sínum á unga aldri og lærði handtökin við jámsmíðina, sem mörg hver heyra nú sögunni til. Húsið er eins og gamla smiðjan, líka stefnið sem snéri í brekkuna til þess að veija það bæði aurskriðum og snjóflóðum er á sínum stað, en margir sem skoða smiðjuna halda að það hafí orðið til fyrir tilviljun. Ekki er nóg með að húsið sé nákvæm eftirlíking af hinu gamla heldur er einnig að fínna í smiðjunni tólin og tækin sem faðir Jósafats notaði við smíðamar á sínum tíma. Allt er á sínum stað líkt og forðum. Á aðalfundi Vél- stjórafélags íslands í desember 1995 var Jósafat gerður að heiðurs- félaga félagsins vegna dugnaðar síns og framsýni og við eram stolt- ir af honum sem einum af okkur, hann sýndi svo ekki verður um villst hverju er hægt að áorka þótt byijað sé með tvær hendur tómar ef vilji, dugnaður og áræði era til staðar. Hann er fyrsti heiðursfélagi okkar sem kemur beint úr atvinnulífínu, þeir sem fyrir eru koma úr félags- málunum og hafa verið heiðraðir vegna þátttöku sinnar á þeim vett- vangi. Nú er komið að leiðarlokum. Síðast bar fundum okkar Jósa- fats saman í október sl. í hófí sem við héldum í tilefni af útkomu vél- stjóra- og vélfræðingatalsins. Þá var hann hress og kátur að vanda en sagði að fæturnir væra svona að byija að láta á sjá og sú slæmska ylli því að hann kæmi ekki eins miklu í verk og hann bæði kysi og þyrfti því mörg væra verkefnin, bæði í vélsmiðjunni og ekki síður í safninu sem átti hug hans allan. Að lokum vottum við hjónin eftir- lifandi eiginkonu Jósafats, Ólöfu og fjölskyldu þeirra, samúð okkar. Helgi Laxdalj form. Vél- stjórafélags Islands. Kæri Jósafat, það er komið að kveðjustund sem raunar kom okkur öllum í opna skjöldu, og mörgum áram of snemma, en við viljum minnast þín fyrir það stórvirki sem þú fórst út í með okkur. Á tímum tækni og framfara er eins og allir beini augum sínum svo stíft inn í framtíðina að þeir gleymi alveg fortíðinni, eins og hún skipti ekki lengur máli og sé jafnvel til trafala. En svo era menn eins og þú og Þórður á Skógum sem lyfta grettis- tökum einir og sér, grettistökum t Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRÐAR ODDSSONAR læknis, Bólstaðarhlfð 45, Reykjavík. Erla Þórðardóttir, Valur Póll Þórðarson, Þórður B. Þórðarson, Helga Magnúsdóttir, Óli H. Þórðarson, Þuríður A. Steingrfmsdóttir, Oddur Þórðarson, Guðrún Jónsdóttir, Jón Þóröarson, Guðrfður A. Theódórsdóttir, Herdfs Jónsdóttir og fjölskyldur. sem þjóðfélagið í heild treystir sér ekki til þess að taka á. En það var eins og við manninn mælt, þegar fréttist af safninu þínu þá streymdu til þín munir til varðveislu hvað- anæva af landinu, og áhuginn á fortíðinni kviknaði aftur. Við vitum báðir að margir þeirra hluta sem nú era á safninu væra komnir í glatkistuna hefðir þú ekki tekið þetta frumkvæði. Þegar við nokkrir áhugamenn um eldsmíði fóram að leita okkur að aðstöðu til að reisa kennslu-eld- smiðju komumst við fljótt að því að enginn af þeim aðilum sem mál- ið var skyldast treysti sér til að leggja okkur lið, en fljótlega var okkur bent á þig. Okkur þótti að vísu ólíklegt að einstaklingur væri reiðubúinn að sinna verkefni sem opinberir aðilar treystu sér ekki til. En þegar Páll kom að máli við þig var eins og þú hefðir verið að bíða eftir þessari umleitan. Á innan við fimm tímum varstu búinn að taka ákvörðun um að ljá okkur húsnæði undir þessa starfsemi. Upp úr þessu stofnuðum við félagið Áfl í félagi við þig, og var sjálfgefið að þú sætir í stjóm þess, enda var þér málið skylt þar sem faðir þinn var eldsmiður og sjálfur stóðst þú í smiðju með honum frá unga aldri. Við viljum færa fjölskyldu þinni okkar samúðarkveðjur og óska þér velfamaðar á þinni ferð. Fyrir hönd Áflsmanna, Bjarni Þór Krisljánsson. Fljótlega eftir að vinna hófst þriðjudaginn 8. janúar sl. barst okkur sú fregn að vinnuveitandi okkar og lærimeistari Jósafat Hin- riksson hefði látist á heimili sínu þá um morguninn. Auðvitað vissum við að einhverntímann kæmi að þessu augnabliki en við héldum okkur hafa nokkur ár enn áður en að því kæmi. Hann var fílefldur í vinnu daginn áður og engin veik- leikamerki að sjá á honum. Okkur brá því öllum mjög mikið en eftir nokkra umræðu ákváðum við öll sem eitt að halda áfram vinnu þann daginn enda töldum við það vera i anda hans. Jósafat var mikill vinnuþjarkur og sló aldrei slöku við, hvort sem var vegna persónulegra aðstæðna eða annars. Eins og sjá má á minn- isvörðum hans, vélaverkstæði J. Hinrikssonar ehf. og Sjóminja- og smiðjumunasafni J. Hinrikssonar var hann mikill dugnaðarmaður sem fór ótroðnar slóðir. Jósafat fram- kvæmdi allar sínar hugmyndir og ef einhveijar efasemdaraddir heyrð- ust þá efldist hann í framkvæmdum. Eins mörg og við eram höfum við öll lært eitthvað af Jósafat; hrein- skilni, vinnusemi, sjálfstæði, hlýðni eða baráttuvilja. Svona mætti lengi telja en lýsingarorðin era einfaldlega ekki nógu mörg. Þar sem Jósafat var margbrotinn persónuleiki og persónan sterk er erfitt að fínna rétta lýsingú á honum. Helst dettur okkur í hug að segja eins og stend- ur utan á kápu bókar hans Ævi- minningar Jósafats Hinrikssonar: „Hann er engum líkur.“ Hann átti einfaldlega engan sinn líka. Missir okkar er mikill en §öl- skyldunnar enn meiri. Við munum reyna að taka höndum saman og halda áfram uppi nafni hans og heiðri með samheldni í starfi og gera okkar besta í samvinnu við eftirlifandi ættingja til að vélaverk- stæðið og safnið haldi áfram að vaxa og dafna. Þegar æviröðull rennur, rökkvar fyrir sjónum þér, hræðstu eigi, Hel er fortjald, hinum megin birtan er. Höndin sem þig hingað leiddi, himins til þig aftur ber. Drottinn elskar, - Drottinn vakir daga’ og nætur yfir þér“ (Sig. Kr. Pétursson) Elsku Olla, börn, tengdaböm, bamabörn og bamabarnabarn. Guð gefi ykkur styrk í sorg ykkar. F.h. starfsmanna J. Hinrikssonar ehf., Ellen Blomsterberg og Inga Jóna Óskarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.