Morgunblaðið - 16.01.1997, Side 68
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
tfP Mectn
<o>
AS/400 er...
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1
FIMMTUDAGUR 16. JANÚAR 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Fjórir í gæslu vegna smyglmálsins
4.000 flöskur
af vodka gerð-
ar upptækar
Morgu nbl aðið/Rax
*
I lauginni
ÞRÍR menn hafa verið handteknir
og tveir þeirra verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald í eina viku, grunaðir
um aðild að smygli á um 10 þúsund
flöskum af vodka. RLR hefur gert
upptækar um 4 þúsund flöskur og
þykir ljóst að um 6 þúsund flöskur
hafi komist í dreifingu. Áður höfðu
tveir menn verið úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 28. janúar í
tengslum við smyglmálið.
Um er að ræða þriggja pela flösk-
ur af bandarísku vodka af tegund-
inni Jenkins. Miðað við útsöluverð
á vodka í útsölum ÁTVR er verð-
mæti sendingarinnar yfir 20 millj-
ónir króna.
Lögreglan á Akureyri handtók í
vikunni tvo menn og við yfirheyrsl-
ur viðurkenndu þeir að hafa keypt
35 kassa af áfenginu, eða 420 flösk-
ur. Um er að ræða áfengi úr sömu
smyglsendingu. Að sögn Daníels
S VÍ N ARÆ KT ARFÉLAG íslands
stefnir að því að flytja inn tvo nýja
svínastofna af tegundunum Yorks-
hire og Duroe. Fyrir eru í landinu
tveir svínastofnar, sá íslenski og
norskur stofn sem byijað var að
flytja inn 1994.
Kristinn Gylfi Jónsson, formaður
Svínaræktarfélagsins, segir þennan
innflutning forsendu þess að hægt
verði að stunda samkeppnishæfa
svínarækt á íslandi í framtíðinni.
Hann segir að stefnt sé að því að
flytja inn erfðaefni með reglulegum
hætti. Þannig verði gæði kynbóta-
Snorrasonar, lögreglufulltrúa í
rannsóknardeild lögreglunnar á
Akureyri, voru fjórir menn til við-
bótar handteknir í tengslum við
málið. Viðurkenndu þeir að hafa
keypt áfengi af mönnunum tveim-
ur. Daníel segir að málið teljist
upplýst af hálfu rannsóknarlögregl-
unnar á Akureyri og hefur öllum
mönnunum verið sleppt.
Hörður Jóhannesson, yfirlög-
regluþjónn hjá RLR, segir að í gámi,
sem einn þeirra sem nú situr í
gæsluvarðhaldi, flutti inn í desem-
ber, sé talið að hafi verið um 10
þúsund flöskur af vodka, eða á
milli 800 og 900 kassar. Hörður
kveðst ekki hafa upplýsingar um
það á þessu stigi málsins hvort
grunur leiki á um að starfsmenn
eða starfsmaður tollgæslunnar sé
viðriðinn málið. Hann vildi ekki
upplýsa hvort játningar lægju fyrir.
starfsins best tryggð. Markmiðið
sé að íslensk svínarækt geti staðist
erlenda samkeppni bæði hvað varð-
ar verð og gæði.
Erlendu svínastofnarnir vaxa
mun hraðar en sá íslenski. Dýrin
safna meira kjöti en minni fitu,
nýta betur fóður og eru fijósamari.
Reiknað er með að blendingsrækt
skili sér i 15-20% fleiri grísum á
hveija gyltu, en við það eykst hag-
kvæmnin í greininni verulega.
■ Fluttir verða/34
NÚ er sá árstími sem grunn-
skólanemendur læra fyrstu
sundtökin eða fullkomna þá
kunnáttu sem fyrir var. Skóla-
sund stóð yfir í sundlauginni í
Kópavogi á dögunum þegar
ljósmyndari átti þar leið um.
Nemandinn virðist hafa tekið
hraustlegan sprett og vera
hvíldinni feginn.
Danir banna inn-
flutning á þorramat
Þorri blót-
aður yfir
dönsku
hlaðborði
HEFÐBUNDINN þorramatur verð-
ur ekki á boðstólum á þorrablótum
íslendinga í Danmörku í ár. Danir
hafa hert reglur um innflutning á
kjötvörum til einkanota í samræmi
við reglur Evrópusambandsins.
Sendiráðið í Kaupmannahöfn
hefur ritað danska landbúnaðar-
ráðuneytinu bréf og spurst fyrir um
hvort unnt væri að veita undanþágu
fyrir íslendingafélögin og náms-
mannafélögin í Danmörku til þess
að flytja inn þorramat. Svar við
málaleitaninni hefur ekki borist.
Skítamórall á að
bæta ástandið
íslendingafélagið í Óðinsvéum
ætlar engu að síður að halda þorra-
hátíð 14. febrúar nk. og verður þar
boðið upp á hlaðborð að hætti Dana.
Til að blíðka hátíðargesti vegna
skortsins á súrsuðum hrútspungum,
hákarli og fleira góðgæti mun
hljómsveitin Skítamórall halda uppi
stemmningunni að loknu borðhaldi.
■ Hefðbundinn/10
--------------
Lenti á
ljósavita
UMFERÐARSLYS varð á mótum
Miklubrautar og Skeiðarvogar laust
fyrir kl. 19.30 í gærkvöldi.
Maður sem ók bíl sínum vestur
Miklubraut missti vald á bílnum og
hafnaði hann á umferðarljósavita.
Kyrrstæður bíll var á gatnamótunum
og er hugsanlegt talið að maðurinn
hafi ætlað að komast hjá árekstri
við þann bíl með fyrrgreindum af-
leiðingum.
Maðurinn var fluttur á slysadeild
en er ekki talinn alvarlega slasaður.
Bíllinn var fluttur á brott með drátt-
arbíl.
Nýir svínastofn-
ar til landsins
Nýliðarn-
ir unnu
NÝLIÐAR Fram í 1. deild í
handknattleik karla gerðu sér
lítið fyrir og unnu efsta liðið
Aftureldingu 26:25 í gær-
kvöldi. Munar nú aðeins tveim-
ur stigum á Aftureldingu og
Haukum, en þessi lið mætast
einmitt í Mosfellsbæ n.k. laug-
ardag.
■ Stálin stinn/B4
Óvenjumikil viðskipti með verslunarhúsnæði í Reykjavík
Aformað að reisa nýtt
stórhýsi við Kringluna
ÁFORM eru uppi um að reisa 4-5
þúsund fermetra verslunarhús á
milli suður- og norðurhluta Kringl-
unnar í Reykjavík sem mun tengja
Kringluna og Borgarkringluna
saman. Að sögn Jóns Pálma Guð-
mundssonar, hjá eignarhaldsfélag-
inu Hofi ehf., er áætlað að húsið
verði tilbúið á næsta ári.
Miklar hræringar eiga sér stað í
verslunarrekstri í Reykjavík um
þessar mundir. Mikil sala hefur
verið í húsnæði í miðbænum og
muna menn vart annað eins frá því
Kringlan var opnuð 1987. Að sögn
Eddu Sverrisdóttur, formanns
Laugavegssamtakanna, er mikil
eftirspurn eftir verslunarhúsnæði
frá Hlemmi að Ingólfstorgi. Margar
stórar eignir á þessu svæði hafa
skipt um eigendur á síðustu vikum
og mánuðum. Edda segir að talsvert
margar fyrirspurnir hafí borist til
Laugávegssamtakanna um hvort
eitthvert húsnæði sé laust á svæðinu.
Margar eignir
skipta um eigendur
Sem dæmi um eigendaskipti má
nefna að Karl Steingrímsson kaup-
maður í Pelsinum hefur keypt
Laugaveg 16 þar sem Lauga-
vegsapótek er til húsa. Vero Moda
hefur keypt jarðhæðina á Lauga-
vegi 97, en verslunin átti fyrir allt
húsnæði áLaugavegi 95. Jón Sig-
uijónsson, annar eigendi verslunar-
innar Jóns og Óskars, hefur ásamt
syni sínum og Jóni Ólafssyni, eig-
anda Skífunnar, keypt Laugaveg
86. Áform eru uppi um að reisa
stórt verslunarhús á lóðinni, sam-
kvæmt heimildum blaðsins. Frank
W. Sands hefur í félagi við Róbert
G. Róbertsson og Ingvar Þórðarson
keypt Vegamótastíg 4 af Reykja-
víkurborg. Frank hefur einnig keypt
ísafoldarhúsin við Austurstræti. Þá
hefur fyrirtækið Hafrós keypt
Laugaveg 13 þar sem Habitat-
verslunin hefur verið rekin undan-
farin ár.
Auk þessa eiga sér stað hræring-
ar í Kringlunni. Í húsnæði Gallery
Borgar í Borgarkringlunni verður í
mars opnuð tískuvöruverslunin
Oasis, sem er í meirihlutaejgu eign-
arhaldsfélagsins Hofs. í næsta
mánuði flytur verslunin Heimsljós
úr Kringlunni að Suðurlandsbraut
54 þar sem Exo-húsgögn eru til
húsa.
■ Miklar hræringar/C2