Morgunblaðið - 23.01.1997, Side 1
72 SÍÐUR B/C
18. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ekkert lát á manndrápum íslamskra skæruliða í Alsír
Ákall um hjálp við
að stöðva drápin
París. Reuter.
EKKERT lát var á manndrápum ísl-
amskra skæruliða í Alsír í gær og
herforingjastjómin viðurkenndi að
henni væri um megn að binda enda
á hryðjuverk þeirra, sem hafa kostað
157 manns lífíð frá því föstumánuður
múslima, Ramadan, hófst fyrir tæp-
um hálfum mánuði. Stjórnin skoraði
á almenning að aðstoða hana við að
koma í veg fyrir frekari blóðsúthell-
ingar.
Að minnsta kosti þrír menn biðu
bana í gær í tveimur sprengjuárásum
á bæinn Blida, um 50 km frá Algeirs-
borg. Alsírsk dagblöð skýrðu enn-
fremur frá því að skæruliðarnir hefðu
drepið fimm til viðbótar, þeirra á
meðal fímm ára dreng og föður hans,
í tveimur árásum á þorp nátægt Al-
geirsborg í vikunni.
Mustpaha Benmansour, innanrík-
isráðherra Alsírs, sagði í gær að
stjómin gæti ekki bundið enda á til-
157 manns hafa
beðið bana á hálf-
um mánuði
ræðin án aðstoðar almennings. „Það
er erfítt að koma í veg fyrir sprengju-
tilræði en með hjálp og árvekni borg-
aranna getum við brotið hryðju-
verkamennina á bak aftur," hafði
alsírska dagblaðið E1 Watan eftir
ráðherranum.
Þorpsbúar skornir á háls
íslamskir bókstafstrúarmenn
höfðu hótað að herða sprengjuárás-
irnar í föstumánuðinum, sem hófst
10. janúar. Alsírsk dagblöð segja að
síðan hafí að minnsta kosti 157
manns látið lífíð í árásunum og hátt
í 200 særst. E1 Watan sagði að tólf
manns hefðu beðið bana og 54 særst
í tveimur sprengjutilræðum í Algeirs-
borg í fyrradag.
Skæruliðarnir hafa ennfremur
ráðist á þorp og skorið íbúana á
háls, þeirra á meðal fímm stúlkur
sem þeir rændu og myrtu í þorpinu
Haouc Englise nýlega. Mannskæð-
asta árásin var gerð á fimmtudag
þegar skæruliðarnir drápu 49 trú-
bræður sína sem voru á bænasam-
komu í mosku í þorpinu Sidi Abd-
elaziz, að sögn EI Watan.
Herforingjastjórnin hafði lýst því
yfír að henni hefði tekist að bijóta
skæruliðana á bak aftur og frétta-
skýrendur telja að skæruliðarnir vilji
með hermdarverkunum sýna að ekk-
ert sé hæft í þeim yfírlýsingum.
Um 60.000 manns hafa beðið bana
frá árinu 1992 þegar herforingja-
stjómin aflýsti kosningum til að
koma í veg fyrir að heittrúaðir mús-
limar næðu völdum.
Reuter
Skip losað
úr ís í
Þýskalandi
BJÖRGUNARMAÐUR fetor sig
áfram á jakahröngli í Koblenz í
Þýskalandi í gær til þess freista
þess að koma taugum í skip sem
reyna átti að draga úr isnum, sem
það festist í á dögunum er frost-
hörkur hrjáðu íbúa Evrópu. Nú
hefur hlýnað í veðri og bráðnar
ísinn smám saman.
Albright
samþykkt
Washington. Reuter.
ÖLDUNGADEILD Bandaríkjaþings
staðfesti tilnefningu Madeleine Al-
bright í gærkvöldi í embætti utanrík-
isráðherra. Er hún fyrsti ráðherrann
í nýrri stjóm Bills Clinton forseta,
sem þingið veitir brautargengi.
Tilnefningu Albright studdu 99
þingmenn og var enginn á móti.
Sama niðurstaða fékkst stuttu seinna
er atkvæði voru greidd um tilnefn-
ingu repúblikanans Williams Cohens
í starf varnarmálaráðherra.
Boris Jeltsín snýr óvænt aftur til
vinnu í Kreml
Þingtillögu
um afsögn for-
setans frestað
París. Reuter.
BORIS Jeltsín Rússlandsforseti
mætti óvænt á skrifstofu sína í Kreml
í gær eftir tólf daga fjarveru vegna
slæmrar iungnabólgu. Á sama tíma
fjallaði neðri deild rússneska þings-
ins, Dúman, um tillögu sem miðar
að því að forsetinn verði þvingaður
ti! að segja af sér af heilsufarsástæð-
um. Niðurstaða atkvæðagreiðslu um
tillöguna varð sú, að endanlegri af-
greiðslu hennar verður frestað fram
í febrúar. Áður hafði þingið sam-
þykkt tillöguna „í grundvallaratrið-
um“.
Fyrst greiddu þingmennirnir at-
kvæði um að þeir styddu tillöguna
„í grundvallaratriðum" með 229 at-
kvæðum gegn 63. Nokkrum mínút-
um síðar greiddu þeir aftur atkvæði,
Dollar hækk-
ar mikið
London. Reuter.
GENGI dollarans hækkaði mjög í
gær og hefur ekki verið jafnhátt
árum saman. Spáðu fjármálasér-
fræðingar áframhaldandi á þeirri
þróun.
Um miðjan dag var gengi dollar-
ans á evrópskum fjánnálamörkuflum
skráð 1,6420 þýsk mörk, sem er
hæsta gengi frá því í júní 1994 en
þá komst dollarinn í 1,6455 mörk.
þar sem þeir ákváðu með 102 at-
kvæðum gegn 87 að fresta endan-
legri afgreiðslu tillögunnar fram í
febrúar. Að sögn upplýsingaþjónustu
Dúmunnar var þetta gert til þess að
skapa svigrúm til frekari umræðu.
I Dúmunni sitja 450 kjömir full-
trúar og eru kommúnistar atkvæða-
mestir þeirra á meðal. Stuðnings-
menn stjórnar Jeltsíns meðal þing-
manna héldu sig fjarri atkvæða-
greiðslunum um hina umdeildu til-
lögu. Alexander Kotenkov, einn tals-
manna þeirra, sagði í ávarpi áður
en tillagan var tekin fyrir, að hún
hlyti ekkert lögformlegt gildi, þótt
hún hlyti samþykki meiri hluta þing-
heims. Hún gæti samt haft hættuleg-
ar afleiðingar og leitt til gagnað-
gerða af hendi stjórnarinnar „til þess
að koma í veg fyrir frekari skaða“.
Gegn læknisráði
Jeltsín, sem er mjög í mun að
færa sönnur á að hann sé vinnufær,
mætti til vinnu að því er virðist gegn
læknisráði. Hann hitti Viktor
Tsjernomyrdín forsætisráðherra að
máli. Þeir ræddu nokkur þeirra
vandamála, sem mest aðkallandi
þykir að lausn verði fundin á og lengi
hafa beðið úrlausnar, þar á meðal
hinar löngu tafír sem orðnar eru á
útborgun lífeyrisgreiðslna og verka-
mannalauna. Ennfremur ræddu þeir
kosningar f Tsjetsjníu, sem áætlað
er að fari fram í næstu viku.
Reuter
Tekur við
erfiðu búi
HERMENN heiðra nýjan Búlgar-
íuforseta, Petar Stoyanov, eftir
að hann hafði svarið forsetaeið
og tekið formlega við völdum í
gær. Stoyanov er fyrsti lýðræðis-
lega kjörni leiðtogi landsins í
1.300 ára sögu þess. Tekur hann
við búi sem einkennist af efna-
hags- og stjórnmálakreppu og
félagslegri upplausn. Fyrsta
ákvörðun forsetans var að aflýsa
kampavínsveislum sem hann
sagði óviðeigandi með tilliti til
ástandsins í þjóðfélaginu. Þá tók
hann undir kröfur stjórnarand-
stæðinga um að fljótlega yrði
gengið til nýrra þingkosninga.
Landslið leitar hælis
Róm. Reuter.
FIMMTÁN leikmenn og þjálfari
eþíópska landsliðsins í knatt-
spymu báðu í gær um pólitískt
hæli á Ítalíu. Hafði liðið, alls
22 menn, viðdvöl í Róm á mánu-
dag á leið til keppni í Marokkó.
„Það er langt síðan við ákváð-
um að flýja land en þetta var
fyrsta tækifærið sem bauðst,“
sagði einn leikmannanna, Yim-
am Mohammed, og bar því við,
að stjórnmálaástandið í heima-
landinu væri þess eðlis, að þar
væri engum vært.
Snemma á þriðjudag yfírgaf
hópurinn hótel sitt og leitaði á
náðir skrifstofu Sarrieinuðu
þjóðanna í Róm sem útvegaði
Eþíópíumönnunum lögfræðing.
Það hefur áður gerst, að eþí-
ópskir íþróttamenn biðji um
pólitískt hæli í keppnisferðum
erlendis. Hópur langhlaupara
sneri ekki heim frá Hollandi
fyrir nokkrum árum, 15 leik-
menn unglingalandsliðsins í
knattspyrnu sneru ekki heim frá
Afríkumeistaramótinu 1991 og
sex leikmenn A-landsliðsins
flýðu til Bandaríkjanna frá
Egyptalandi 1989.